Leita í fréttum mbl.is

Friđţćgingarfórn Bjarna Ármannssonar !

Yfirbótarganga Bjarna Ármannssonar inn í fjölmiđlana nú í byrjun ársins var ekki sannfćrandi sem slík. Málflutningur hans bar ţví ekki vitni ađ hann gerđi sér grein fyrir ţeim ógćfu hamförum sem hann og hans líkar hafa leitt yfir ţjóđina. Hann viđhafđi fyrst og fremst frasakennt tal um ađ ţetta og hitt hefđi ekki tekist sem skyldi, hann hefđi gert einhver mistök en hrađinn á öllu hefđi veriđ slíkur ađ ekki hefđi veriđ hćgt ađ komast hjá ţví og ţađ lá viđ ađ hann segđi : " Vonandi gengur ţetta bara betur nćst ! "

Sem stjórnandi viđtals hefur Sigmar oft veriđ skeleggari ţví ţađ vantađi ađ miklu leyti ţá hvössu greiningu á ferli mannsins sem hefđi átt ađ viđhafa, og ţá ádeilu sem réttmćt hefđi veriđ varđandi ofurlaun, forréttindastöđu til auđgunar o.s.frv.

Bjarni viđurkenndi ađ vísu ađ hann hefđi sýnt grćđgi, en stađreyndin er hinsvegar sú ađ hann sýndi grćđgi aftur og aftur og aftur og ţađ međ mjög Rei-gingslegum hćtti !

Og ţó ađ hann hafi nú greitt til baka einhverskonar friđţćgingargjald fyrir fjármálasyndir sínar, hluta af starfslokasamningi sem var siđlaus ađ inntaki, eru ţađ smámunir miđađ viđ ţann ránsfeng sem hann skilar ekki og skuldsetningar-afleiđingar fjármálastefnu hans og annarra bankagreifa útrásartímans.

Í ţví sambandi talar Bjarni bara um harđa lendingu hagkerfisins og virđist alls ekki skilja hörmulegar afleiđingar fjárhćttuspilsins fyrir mestan hluta landsmanna !

Og sem fyrr segir, er sú stađa sem hann og ađrir ofurlaunamenn frjálshyggjunnar hafa steypt ţúsundum Íslendinga í fjárhagslega, sannarlega ekki hans eigin stađa, ţví mađurinn er stórauđugur orđinn á ţeim blóđpeningum sem hann hefur hirt af ţjóđinni á ferli sínum. Ţegar tekiđ er tillit til ţess, ađ einkavćđing bankanna var aldrei raunveruleg sem slík, ţar sem frjálshyggjugúrúarnir höfđu ríkistryggingu fyrir ţví sem ţeir gerđu, voru ţeir í raun og veru ađ rćna eigin ţjóđ, - okkur, - almenning ţessa lands, vitandi vits.

Og ţetta eru mennirnir sem segja ađ ríkiđ eigi ekki ađ vera ađ vasast í öllu. En ţeir vösuđust í öllu og létu ríkiđ sitja uppi međ ábyrgđina, áhćttuna og svo hinar gífurlegu skuldir !

Bjarni Ármannsson getur aldrei hvítţvegiđ sig í Kastljósi, ţó allir vćru ţar af öllum vilja gerđir til ađ hjálpa honum viđ syndalausnarţvottinn og hann hefur mér vitanlega ekki fengiđ neina harđa lendingu međ sína fjármálastöđu !

Bjarni og félagar léku sér af fullkomnu ábyrgđarleysi međ fjöregg ţjóđarinnar. í fullu samráđi viđ vanhćf stjórnvöld, og orđspor íslenskrar ţjóđar varđ ţessvegna ađ lokum fyrir mestu niđurlćgingu sinni frá upphafi vega.

Viđ erum ekki ađ tala um smávćgilega hluti, viđ erum ađ tala um hryllilega ćvintýramennsku örfárra manna, sem fengu skotleyfi á efnahag ţjóđarinnar fyrir atbeina pólitískra ráđamanna ríkissjóđs, sem gćttu afar illa skyldu sinnar gagnvart ţjóđarhagsmunum.

Afleiđingarnar eru og verđa slíkar, ađ enginn getur enn gert sér grein fyrir umfangi ţeirra til lengri tíma litiđ. Íslenskur ţjóđarhagur er í skelfilegri stöđu og sumir međal ráđamanna sem og ađrir, eru ţegar tilbúnir ađ fćra sjálfstćđi okkar sem fórn á altari Brusselvaldsins, sjálfstćđi sem tók forfeđur okkar og mćđur 656 ár ađ endurvinna, eftir fyrri landráđ íslenskra valdamanna.

Mér sýnist ađ framhald mála geti ađeins orđiđ međ tvennu móti :

Annađhvort endurnýjast íslenska ţjóđin ađ krafti, dómgreind og dáđ í gegnum nýja siđvćđingu og sjálfstćđissýn  -  eđa hún á sér ekki viđreisnar von !

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 178
  • Sl. viku: 1034
  • Frá upphafi: 309926

Annađ

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 907
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband