Leita í fréttum mbl.is

FRAMSÓKNARFLOKKURINN NÝI - EÐA HVAÐ ?

 

 

 

Það hefur verið mjög fróðlegt, með hliðsjón af mannlegu eðli, að fylgjast með Framsóknarmönnum að undanförnu. Þeir hafa farið sumir hverjir marga hringi í umræðunni og tala nú eins og Halldór Ásgrímsson hafi aldrei verið til.

Síðast í morgun var talað við einn þeirra í útvarpinu og talaði hann þá fjálglega um Framsóknarflokkinn sem öflugan valkost milli forræðishyggju og frjálshyggju ! Fréttamaðurinn sá enga ástæðu til að minna manninn á fortíðina. Halló, var það ekki Framsókn sem tryggði fullan framgang auðvalds og frjálshyggju í þessu landi, það sem hefur lagt hér allt í rúst, með því að leggjast hundflöt undir íhaldið og Davíðsgengið þar ?

Var það ekki Framsókn sem sló afgerandi fyrra þjónkunarmet við íhaldið, sem Alþýðuflokkurinn sálugi átti, og sleikti Sjálfstæðisflokkinn enda á milli árum saman í taumlausri græðgi og Davíðsdýrkun ?

Hvar eru Framsóknarmenn staddir í tilverunni, þeir eru varla á Íslandi, fyrst þeim er fyrirmunað að sjá og skilja afleiðingar gerða sinna ?

Er Framsóknarflokkurinn kannski orðinn Nýr Framsóknarflokkur, eins og Nýi Glitnir, Nýja Kaupþing og Nýi Landsbankinn ? Hreinsaður af syndum fortíðar sinnar og tilbúinn í slaginn aftur, tandurhreinn og strokinn ?

Nei, Framsóknarflokkurinn verður trúlega aldrei aftur það sem hann þó var. Hann mun sennilega aldrei geta skilið á milli sín og skítsins sem mun loða við hann eftir Júdasarárin !

Menn verða nefnilega að hafa það í huga að Framsóknarflokkurinn er eiginlega verri en íhaldið og er þá mikið sagt. Íhaldið var að framkvæma sína stefnu, svo bölvuð sem hún var, og nýtti færið sem Framsókn gaf því út í ystu æsar - lét þjóðareignir fjúka á útsöluverði ofan í uppvaxandi útrásarhyski af fullkomnu ábyrgðarleysi gagnvart almannahag. Íhaldið hefur aldrei verið almenningsvænn flokkur, og hyglar sínum óspart af ríkisfé eins og það hefur alltaf gert.

En Framsóknarflokkurinn sveik sína stefnu, Framsóknarflokkurinn sveik varðstöðu sína sem félagshyggjuflokkur og afhenti Sjálfstæðisflokknum lykilinn að því að leyfa alikálfunum að féfletta þjóðina eftir einkavinavæðinguna alræmdu.

Og það bar ekki á öðru en Framsókn ætti þá sína alikálfa líka því ekki voru mennirnir í S- hópnum geðslegri en sjallarnir nema síður væri og sannarlega var græðgin þar ekki minni. Megi það lið taka út allt sem það hefur sáð til - bölvun landvætta Íslands í merg og bein um allan sinn aldur.

Þjónkunin við íhaldið hefur gert Framsóknarflokkinn smáan til sanda og sæva. Flokkurinn er orðinn lítill og ómerkilegur til orðs og æðis og vandséð hvaða framtíð hann getur átt sér í samfélagi nútímans.

En þrátt fyrir það þykist Framsóknarflokkurinn nú vera endurfæddur, vera orðinn nýr og betri flokkur, Halldórshryllingurinn sé genginn yfir og Valgerðarvillan að baki og ekkert framundan nema slétt og fellt  hugsjónahaf félagshyggjunnar  !

En ég spyr, eru Framsóknarmenn algjörlega veruleikafirrtir, telja þeir sig ekki þurfa að gera upp við fortíðina ? Eru það bara kommúnistar sem þurfa að gera upp við görótta fortíð, eru aðrir sem brjóta stórlega af sér gagnvart þjóð sinni fleygir og frjálsir til frekari framavinninga - eins og ekkert hafi í skorist ?

Í ræðu á yfirstandandi flokksþingi leyfði Lómatjarnarfrúin sér að segja : " hina köldu krumlu frjálshyggjunnar verður að losa af hálsi þjóðarinnar !" Átti hún ekki mikinn þátt í að þrýsta þeirri krumlu á þann stað, hvar skildi á milli hennar og sjálfstæðismannanna í þeim verknaði ? Gekk hún ekki næst Halldóri Ásgrímssyni í þjónkuninni við íhaldið ?

Hverskonar siðvilla er þetta eiginlega ? Viljum við svona manneskjur sem fulltrúa fyrir fólkið í landinu ? Einstaklinga sem hafa brotið stórlega af sér gegn hagsmunum þjóðarinnar og kannast svo ekki við neitt og þykjast jafnvel vera komnir í björgunarmannahlutverk ?

Meðan Valgerður Sverrisdóttir situr á þingi fyrir Framsóknarflokkinn er spillingarmarkið á flokknum engu síðra en spillingarmarkið sem verður á íhaldinu meðan Davíð situr í Seðlabankanum.

Þessir einstaklingar eru orðnir holdgervingar spillingar og stórkostlegra mistaka í  stjórn ríkisins í augum þúsunda Íslendinga og það þýðir ekki að bjóða fólki upp á slíka valkosti lengur.

Framsóknarflokkurinn verður ekki trúverðugur á neinn hátt aftur, fyrr en hann gerir upp við hinn skuggalega Halldórstíma, árin sem hann þjónaði undir íhaldið og Davíð, árin sem hann sveik hugsjónir félagshyggjunnar og fór að tilbiðja skurðgoð frjálshyggjunnar. Hann þarf að biðja þjóðina fyrirgefningar á sínum stóra hlut í þeirri glötunarstefnu sem hér réði á þeim tíma.

Þá fyrst er hugsanlegt - aðeins hugsanlegt -  að hann geti smám saman byrjað að vinna sér traust á ný !

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 206
  • Sl. sólarhring: 229
  • Sl. viku: 1615
  • Frá upphafi: 315596

Annað

  • Innlit í dag: 176
  • Innlit sl. viku: 1302
  • Gestir í dag: 173
  • IP-tölur í dag: 172

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband