Leita í fréttum mbl.is

Um persónugerđan vanda o.fl.

Ţađ hefur fariđ um suma heldur betur eftir ađ Davíđ Oddsson kom fram í enn einu kóngs eđa drottningarviđtalinu í sjónvarpinu fyrir skömmu.

Ţeir sem hafa dýrkađ Davíđ og dýrka hann enn, gátu varla vatni haldiđ af hrifningu á öllu ţví sem hann sagđi, en flestum held ég ađ hafi ţótt nóg um hroka hans og séđ betur en nokkru sinni fyrr, ađ ţjóđfélagiđ hefur ekki efni á ţví ađ hafa slíkan mann í valdastöđu. Davíđ talađi um sína góđu samvisku og ađ hann hefđi varađ viđ á öllum stigum ađdraganda bankahrunsins.

Hann ćtlast til ađ menn taki hann trúanlegan, ţegar hann segir ađ ţeir menn sem alltaf hafa hlýtt honum og veriđ hans undirdánugir ţjónar, hafi ekkert mark tekiđ á viđvörunum hans. Hvernig ber ađ skilja slíkar yfirlýsingar ?

Hann virđist skjóta föstum skotum ađ Geir Haarde og hans ríkisstjórn, en Geir segist ekki taka ţađ ţannig ! Ţegar Sigmar fréttamađur hjó eftir ţessari ádeilu Davíđs og spurđi hvort hann vćri ţá ađ meina ađ Sjálfstćđisflokkurinn hefđi ekki tekiđ neitt mark á viđvörunum hans, fékk hann yfir sig ákúrur fyrir ađ skilja máliđ ţannig ? Lítur Davíđ Oddsson virkilega svo á ađ ríkisstjórn undir forustu  Sjálfstćđisflokksins eigi ekkert sammerkt međ Sjálfstćđisflokknum eđa ađ viđ ţćr ađstćđur beri flokkurinn enga ábyrgđ á ţví sem gerist í ríksstjórn ?

Í umrćddum sjónvarpsţćtti var Davíđ Oddsson ekki í viđtali. Hann var stjórnandi ţáttarins og talađi oft, ađ minni hyggju, niđur til fréttamannsins sem átti ađ stjórna ţćttinum ! Ţetta gerir ekki nokkur annar mađur og ţađ er ömurlegt ađ upplifa slíkan hroka og ţá veruleikafirrtu sjálfsréttlćtingu sem ţarna kom fram.

Já, Davíđ talar um góđa samvisku og ađ fjöldi fólks telji hann eina manninn sem hćgt sé ađ bera traust til ! Ţvílíkur málflutningur !

Ţađ mćtti spyrja margs og til dćmis eftirfarandi spurninga :

Hver hefur veriđ hér mestur valdsmađur síđan 1991, í nćrri 18 ár, og sennilega ráđiđ meiru en nokkur annar íslenskur stjórnmálamađur fyrr og síđar ?

Hver gerđi frjálshyggjuna endanlega ađ ráđandi stefnu í Sjálfstćđisflokknum ?

Hver stóđ fyrir einkavćđingu bankanna og afhenti ţá útrásarvíkingunum sem síđan hafa spilađ öllu til andsk..... í fullu umbođi stjórnvalda ?

Hver setti íslensku ţjóđina á skrá međ ţeim ţjóđum sem studdu Bush-innrásina í Írak og hirti ekki um ađ fara ţar eftir eđlilegum stjórnarfarsleiđum ?

 

Viđ getum lengi bćtt viđ á slíkan lista ýmsu sem verđa ađ teljast ávirđingar og viđ vitum öll hver mađurinn er sem á ţetta. Ţađ ţýđir ekki fyrir ţann sama mann ađ tala um sína góđu samvisku og ađ hann hafi varađ viđ.

Hann stjórnađi ferđinni og markađi manna mest stefnuna ađ ţví sem varđ.

Ég er sannfćrđur um ţađ, ađ ef sósíalistar hefđu veriđ í stjórnarforustu hér undanfarin l8 ár og spilađ öllu til fjandans, hefđi enginn gagnrýnt ţá harđar en einmitt Sjálfstćđisflokkurinn ! Er einhver til sem efast um ţađ ?

Ótrúlegustu menn taka undir sönginn, ađ ekki megi persónugera vandann. Jafnvel Steingrímur J. Sigfússon. En hvađ eru stjórnmálamenn ađ segja ţegar ţeir tala svona. Ţeir eru ađ fría félaga sína á ţingi og í ríkisstjórn viđ ađ vera ábyrgir gerđa sinna ? Pólitíkusar standa saman í ţessu og virđast hugsa međ sér, í dag ert ţađ ţú, á morgun verđur ţađ ég - tryggjum okkur sameiginlega !

En hverjir hafa veriđ harđastir í ađ persónugera vanda kommúnistaríkja undanfarna áratugi ? Hverjir ađrir en sjálfstćđismenn. Í ţeirra augum var Stalín  vandi Sovétríkjanna, Ceausescu var vandi Rúmeníu, Pol Pot var vandi Kambodíu, Mao var vandi Kína o.s.frv. Milljónir manna um heim allan voru farnar ađ líta svo á ađ Bush vćri vandi Bandaríkjanna !

Af hverju má ţá ekki persónugera vandann hér, er samtryggingarkrafa pólitíkusa hér svona miklu öflugri en alls stađar annars stađar ?

Davíđ Oddsson segist hafa góđa samvisku, en ég segi fyrir mig, ađ ég gef ekki  mikiđ fyrir samvisku hans. Ég held ađ íslenska ţjóđin sé búin ađ fá allt of stóran skammt af Davíđ Oddssyni og hans stjórnarháttum !

Ég veit ekki frekar en ađrir hvađ tekur viđ, en ég veit hinsvegar hvađ ég vil ekki. Ég vil ekki mann eins og hann til forustu fyrir minni ţjóđ eđa í nokkurri meiriháttar valdastöđu í ţjóđfélaginu.  

Ég tel ekkert ađ ţví ađ vandinn sé persónugerđur og í mínum huga er engin ein persóna stćrri hluti af ţví sem gerst hefur en Davíđ Oddsson.

Nú á hann bara ađ víkja til hliđar og gefa ţjóđinni friđ til ađ jafna sig.

Ţađ er ađ mínu viti gott fyrir ţjóđina og best fyrir hann sjálfan.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 132
  • Sl. sólarhring: 134
  • Sl. viku: 1382
  • Frá upphafi: 316772

Annađ

  • Innlit í dag: 80
  • Innlit sl. viku: 1059
  • Gestir í dag: 76
  • IP-tölur í dag: 76

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband