Leita í fréttum mbl.is

Hvađ er list ?

Ţar sem sett hefur veriđ upp listamiđstöđ á Skagaströnd, hefur talsverđ umrćđa  fariđ af stađ milli manna á stađnum um ţađ hvađ sé list, hvert sé mikilvćgi listar og jafnvel um ţjóđhagslegt gildi listarinnar ? Ţađ verđur víst međ ţađ eins og svo margt annađ, ađ ţegar stórt er spurt verđur lítiđ um svör.

En listin er ţó yfirleitt eitt af ţví í lífinu sem allmikil virđing er borin fyrir og víst er ađ margir listamenn hafa gefiđ mannkyninu stórkostlegar gjafir međ verkum sínum og glatt og auđgađ međ ţví veröld alla.

Sumum finnst reyndar nú á tímum sem öll list sé orđin úrkynjuđ og úr takti viđ alla eđlilega skynjun. Listamenn séu oftast ađ einhverju fálmi út í loftiđ og ađalmáliđ sé ađ höndla ţađ ađ vera frumlegur. Ađ ná ţví ađ fá viđurkenningu sem frumlegur listamađur jafngildi ţví nánast ađ öđlast frelsi til alls. Ţađ sé ţví um ađ gera ađ láta sér detta eitthvađ fáránlegt í hug.

En ţeir sem hugsa ţannig um listafólk virđast hafa einhverskonar hellenískt viđhorf til listar. Ţeir gera sýnilega kröfur til ţess ađ hún gnćfi yfir allt og vilja sennilega helst sjá gríska fagurfrćđi í hverju verki.

En ţađ verđur ađ segjast eins og er, ađ Fídías og Praxiteles eru ekki ađ störfum í dag og marmarastyttur Grikklands hins forna eru sem önnur mannanna verk börn síns tíma. Listin er ţar fyrir utan eins og flest annađ í lífinu síbreytilegt viđfangsefni og enginn tími er ţar öđrum meiri ţegar á allt er litiđ.

Listhneigđ mannsins skýtur eđlilega rótum í ţeim tíma ţar sem hann er sjálfur ţátttakandi og tekur miđ af ţví sem ţar er í gangi á einn eđa annan hátt. 

Ţađ má líka međ nokkrum rétti segja, ađ hver sá sem stundar listsköpun af ástríđu anda og sálar, sé nokkurskonar landkönnuđur í heimi hinnar dýpri hugskynjunar og beri í sér ríka tilfinningatengingu viđ draumheima dulrćnna vídda. Viđkomandi einstaklingur er ađ sjá og heyra, finna og skynja svo margt sem býr handan viđ allt ţađ augljósa í lífinu og hann reynir ađ opna leiđir til ađ yfirfćra listrćna upplifun sína til annarra. Međ ţví eru stundum opnađir farvegir sem búa yfir nánast takmarkalausum möguleikum á lifandi tjáningu í sköpun og list.

Ég er ađ hugleiđa ţetta vegna ţess ađ ég var spurđur um daginn ţessarar spurningar af einum samborgara: " Hvađ er list ?  Ég svarađi spursmálinu snarlega međ ţví ađ segja, ađ list vćri eitt af ţví sem gćfi lífinu gildi.

Ég gerđi mér ţó strax grein fyrir ţví ađ ég hafđi svarađ međ nokkuđ flötum hćtti og svariđ kallađi ţannig á enn frekari spurningar ef út í ţađ fćri.

Á leiđinni heim frá vinnu ţennan dag fór ég ţví ađ hugsa frekar um ţessa spurningu og hvernig hćgt vćri ađ svara henni frekar. Ţađ leiddi til ţess ađ ég orti ljóđiđ sem fer hér á eftir.

Ţađ er von mín ađ ţađ feli í sér ađ nokkru leyti ţađ sem mér fannst vanta á fyrra svariđ :

 

HVAĐ  ER  LIST ?

 

Hvađ er list ?

Ţađ er eitthvađ sem hugann hrífur,

hátt eins og fuglinn svífur,

bláminn sem logar og lifir,

lyftir sér grámann yfir ;

eldur sem býr í blóđi,

bjartsýnin ein í sjóđi,

knúsuđ bćđi og kysst.....

Ţađ er list !

 

Hvađ er list ?

Ţađ er draumur á degi nýjum,

dynjandi regn úr skýjum,

dropar sem detta og falla,

dásemd sem snertir alla ;

veröld sem víddir eykur,

vorandans sóknarleikur,

hugsjón í hjartans vist.....

Ţađ er list !

 

Hvađ er list ?

Allt sem ber mannleg merki,

mótađ af hugans verki,

innsýn í ađra heima,

orka sem fćr ađ streyma ;

kengúra og köttur í mýri,

kostulegt ćvintýri,

skekiđ í heild og hrist.....

Ţađ er list !

                                        Rúnar Kristjánsson

 

****************


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 398
  • Sl. viku: 1420
  • Frá upphafi: 315401

Annađ

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 1137
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband