Leita í fréttum mbl.is

" Icesave "

Það gengur mikið á nú sem fyrr út af hinu illræmda Icesafe-máli og það er meira en skiljanlegt. Ekkert við það mál er ánægjulegt eða gott fyrir Íslendinga. Núverandi stjórnvöld eru þó vonandi að reyna að gera það sem hægt er til að leysa málið, en þeir sem sköpuðu vandamálið fara hinsvegar hamförum og segja : " Við borgum þetta ekki neitt !"

Ætli málið sé virkilega svo einfalt að hægt sé að afgreiða það með slíkum hætti ?

Af hverju létu sjálfstæðismenn það viðgangast að " Icesave " reikningarnir væru baktryggðir af íslenska ríkinu og þar með íslensku þjóðinni ? Var ekki Landsbankinn bankinn sem kom í þeirra hlut við skiptin á ránsfengnum á sínum tíma ? Áttu þeir ekki að gæta þess að þar væri allt í sómanum ?

Af hverju hamast Framsóknarmenn með þeim hætti sem þeir gera og formaðurinn alveg sérstaklega ? Væri ekki ráð fyrir hann að hugsa aðeins um öll skítamálin í kringum Kaupþing sem voru unnin og gerð á ábyrgð Framsóknarflokksins ? Hverskonar siðferði er það þegar aðilarnir sem ollu hruninu með ábyrgðarleysi sínu þykjast nú vera þjóðræknastir allra manna ? Hvernig kom Icesafe-málið til, hverjir voru heilarnir á bak við það dæmi í Landsbankanum ? Hverjir eru þar ábyrgir fyrst og fremst ?

Er það Björgólfur Guðmundsson eða eru það Halldór J. Kristjánsson og Sigurjón Þ. Árnason ? Hvar og hvernig kom Edda Rós Karlsdóttir við sögu í því máli ? Af hverju fást ekki nein svör við þessum og þvílíkum spurningum ?

Má aldrei tala um persónulega ábyrgð fólks af þessu tagi ?

Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn ganga fram með miklum hamagangi í þessu máli og virðast ekki vilja hugleiða þá staðreynd eitt andartak, að þetta eru afleiðingarnar af þeirra eigin verkum ?

Þeir sköpuðu vandamálið, þeir lögðu þessar byrðar á þjóðina en héldu víst að skuldadagar væru ekki til. Það virðist aldrei hafa verið hugsað til þeirrar hættu sem búin var til með þessu fyrir íslenska þjóðarbúið. Og nú segja fulltrúar þessara sömu afla, "við borgum ekki neitt / eða / við semjum bara aftur og þá um betri kjör !"

Halda þeir að íslenska þjóðin, komin í ruslflokkinn, geti fengið betri kjör en fyrirliggjandi samkomulag býður upp á, þegar búið er að rústa orðstír hennar gersamlega og ríkisbúið tæknilega séð gjaldþrota ?  Halda þeir það í raun og veru ? Eða skyldu þeir kannski bara vera að halda uppi lýðskrumi í von um betri útkomu við næstu kosningar - ábyrgðarlausir sem fyrr !

Núverandi stjórnvöld eru að glíma við að moka yfirgengilegan skítahaug sem samstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins bjó til á sínum þjóðarógæfuferli  - það er alveg ljóst að sá haugur verður ekki hreinsaður burt nema með miklum fórnum - fórnum sem munu koma við alla þegna ríkisins.

Þær væntingar sem ýmsir kjósendur virðast hafa haft til Vinstri grænna eru því miður algjörlega óraunhæfar - það eru engar forsendur til þess að " redda öllu - einn, tveir, þrír !" Ef einhver heldur það, þá hlýtur sá hinn sami að vera heiladauður að þó nokkru leyti.

Við erum í djúpum skít, og það er virkilega illþolandi að sjá þá sem helltu þessum skít yfir okkur, fólkið í þessu landi, þykjast vera riddara réttlætisins í þessu hrikalega Icesave máli.

Þar standa þeir á leirfótum lyginnar.

Ætla þeir aldrei að læra að skammast sín og þegja ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 155
  • Sl. sólarhring: 326
  • Sl. viku: 1564
  • Frá upphafi: 315545

Annað

  • Innlit í dag: 149
  • Innlit sl. viku: 1275
  • Gestir í dag: 148
  • IP-tölur í dag: 147

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband