Leita í fréttum mbl.is

Um fyrningarleiðina og fleira

Það hefur verið ótrúlegt að upplifa viðbrögð kvótagreifanna og fylgifiska þeirra við hugmyndum sem miða að því að vinda ofan af hinu illræmda misréttiskerfi, með fyrningarleið eða einhverjum slíkum valkostum.

Menn hafa bókstaflega umturnast og sumir sem eru gjörsamlega vanhæfir til að fjalla um málið, vegna þess að þeir eru margflæktir inn í það hagsmunalega, hafa farið hamförum gegn þessum sjónarmiðum, og þóst gera það á einhverjum réttlætisforsendum. Það er hinsvegar óravegur á milli kvótakerfisins og réttlætisins og engin samsvörun þar á milli.

Það er og hefur verið skýrt  í lögum, að kvóta-aðallinn á ekki sjávar-auðlindina og hefur aldrei átt hana. En viðbrögð innankerfismanna sýna svo ekki verður um villst að þeir hafa litið svo á að auðlindin væri í raun þeirra eign. Svo lengi er búið að ala þessa ríkisómaga á auðlind þjóðarinnar að þeir eru ekkert nema heimtufrekjan og hrokinn. Enda má nú minna sjá og heyra !

Þarna hafa þeir setið í fullan aldarfjórðung í veislusalnum miðjum og hámað í sig vellystingarnar -  á kostnað þjóðarinnar - fitað sig og sína, og svo þegar loks virðist komið að því að réttlætiskennd þjóðarinnar sé nóg boðið -  og það þarf nú nokkuð til -  þá verða þeir alveg vitlausir yfir því að það eigi að taka frá þeim spenann sem þeir hafa með áfergju sogið allan þennan tíma og það meira að segja blóðsogið í óseðjandi græðgi sinni !

Er hægt að hugsa sér meiri öfugsnúning í sálarlífi manna gagnvart réttlætiskennd og heilbrigðum  siðalögmálum ?

Og svo koma fram áhrifamenn í þjóðmálum, úr flokkunum sem komu kvótakerfismisréttinu á, sem gefa yfirlýsingar sem eru svo siðvilltar að það tekur engu tali. Og til að kóróna skömmina, koma svo bæjarstjórar og sveitar-stjórnarmenn af landsbyggðinni, sem hefur nánast blætt út vegna kvótakerfisins, og fullyrða að allt fari í rúst ef fyrningarleiðin verði farin. Sjá mennirnir ekki enn allt það sem hefur verið sett í rúst með afleiðingum kvótakerfisins ?

Nei, því þeir virðast miklu frekar líta á sig sem tiltekna flokksmenn en ábyrga og föðurlandssinnaða þjóðarþegna.

Hvar eru heimaútgerðirnar í þorpum landsbyggðarinnar ? Menn hafa selt kvótann og síðan flatmagað í maurasænginni, meðan atvinnan sem allt mannlífið byggðist á hefur verið tekin burt eða er í dauðateygjunum heima fyrir. Sömu sögu er að segja í þeim efnum um landsbyggðina alla.

Hvar er atvinnuþróunin, hvar er nýsköpunin, hvar er það sem segir ungu fólki að hægt sé að lifa í þorpum landsbyggðarinnar í framtíðinni ?

Hvar er vongleðin sem logaði í brjóstum manna eftir l970, þegar hafist var handa um að byggja upp á landsbyggðinni ? Síðan þá hefur engin landsbyggðar-væn ríkisstjórn verið við völd á Íslandi ?

Allt hefur miðast við Reykjavík og þarfir suðvesturhornsins. Jafnvel í miðju efnahagslegu hruni þjóðarbúsins, er að finna einbeittan brotavilja hjá stjórnvöldum fyrir því að halda áfram byggingu tónlistarhússins við Reykjavíkurhöfn, sem á að verða ein menningarsnobbhöllin til og sennilega sú dýrasta. Er þessari þjóð alls ekki viðbjargandi ?

Eigum við virkilega skilið að þurfa að þola áfram allt það siðvillta forustufólk, sem hefur svo lengi fleytt rjómann ofan af öllu í samfélaginu til eigin þarfa, en virðist hvergi að gagni fyrir þjóðarheildina ?

Niður með bölvað kvótakerfið og misrétti þess, sem var upphafið að hruninu, og upp með þjóðlega endurreisnarhugsun !

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 360
  • Sl. viku: 1260
  • Frá upphafi: 316650

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 988
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband