Leita í fréttum mbl.is

Nokkur orð um Breta og Hollendinga fyrr og nú

 

 

Sú var tíðin að Bretar voru að miklu leyti drottnarar heimsins, ekki síst heimshafanna. Margar skýringar lágu þar að baki og kannski var helsta skýringin sú að þjóðin var afskaplega fylgin sér og kunni að standa saman, einkum þegar hættur steðjuðu að.

Oft voru Bretar líka svo lánsamir að eiga mikla afburðamenn sem vel voru til forustu fallnir og svo -  og ekki síst - voru þau gildi sem Bretar reyndu að standa fyrir, að mörgu leyti þess eðlis að þau stóðu fyrir sínu í augun flestra vel hugsandi manna. Allmargir menn úr fyrri tíðar sögu Breta eru mér t.d. hugstæðir og nokkrir meira að segja hjartfólgnir vegna þess sem þeir stóðu fyrir og þeirra gilda sem þeir vörðu meðan þeir lifðu og störfuðu.

Langþreyttir Bretar kenndu ágangssömu konungsvaldi sterka lexíu á sautjándu öld, þegar þingið tók völdin í nafni þjóðarinnar eftir blóðuga borgarastyrjöld og óhæfur konungur var að lokum gerður höfðinu styttri.

Það átti sér stað þó að breska þjóðin hafi löngum haft það orð á sér að vera ein konunghollasta þjóð veraldar. En Karl I. Stúart kom sér út úr húsi hjá þjóð sinni með yfirgangssemi sinni og kannski má segja að mesta manndómsverk hans um dagana hafi verið að mæta dauða sínum með karlmennsku sem hann sannanlega gerði.

Það er hinsvegar undravert hvað almennir borgarar Bretlands virðast seint ætla að fá sig fullsadda af sínu aðalshyski þrátt fyrir langtíma margháttaðan kostnað skattgreiðenda af slíkum yfirstéttarómögum.

Hollendingar áunnu sér mikinn orðstír á sextándu og sautjándu öld sem vaxandi þjóð frelsis og mannréttinda. Þeir börðust gegn kúgurum sínum, Spánverjum, af mikilli einurð og hetjulund og hvikuðu hvergi.

Fólk sem tilheyrði fjölmörgum kúguðum minnihlutum annarra Evrópulanda, flykktist til Hollands þar sem það fékk að njóta frelsis og árangurs erfiðis síns. Hollendingar sóttu fram í verslun og viðskiptum og urðu á skömmum tíma það mikið flotaveldi að jafnvel Bretum stóð stuggur af þeim.

Sjóliðsforingjar eins og de Ruyter og van Tromp unnu mikla sigra í nafni Hollands og reyndust fyllilega jafnokar bestu flotaforingja Breta.

Herflotar þessara siglingaþjóða voru ekki hvað síst styrktir til að tryggja öryggi kaupskipanna sem færðu varninginn heim.

Afrek Breta og Hollendinga, einkum á 17. og 18. öld eru mörg og þau lögðu trúlega mikið til grunninn að þeim orðstír sem þessar þjóðir unnu sér á heimsvísu, en síðan eru liðin mörg ár og margt hefur breyst. Síðari saga hefur því miður að mörgu leyti gefið þeim annan og verri vitnisburð.

Bretar og Hollendingar urðu nýlenduherrar, einkum í krafti sæveldis síns, og fóru brátt fyrir fullum seglum inn á þá braut að beita aðrar þjóðir kúgun og arðráni sér til vaxandi viðurværis. Framferði Breta á Indlandi, í Afríku og víðar er ekki fögur saga en ferill Hollendinga í Austur Indíum og víðar er jafnvel verri. Þar hefur mörgum staðreyndum verið þokað inn á þagnarslóðir.

Það er athyglisvert að hugsa til þess, að þessar þjóðir máttu sjálfar berjast fyrir rétti sínum til að ráða eigin þjóðarmálum, Bretar gegn Spánverjum og síðar konungi sínum og Hollendingar gegn Spánverjum og síðar Frökkum. Þær hefðu því átt að hafa lært að það væri fjarri öllum frelsisanda að níðast á öðrum !

En strax og þeim óx fiskur um hrygg og þær gátu varist ágengni annarra, brugðu þessar þjóðir sér í hlutverk kúgara og fóru að drottna yfir öðrum með harðri hendi og voru þá engum líkari en sínum fyrri kúgurum.

Eftir seinni heimsstyrjöldina hefur orðstír Breta farið jafnt og þétt dvínandi. Þeir hafa reynt sem mest að lifa á fornri frægð en það hefur ekki skilað þeim miklu. Atgervi þjóðarinnar virðist hafa hrakað mikið, enda samsetningin allt önnur en hún var. Kannski er það líka að verða spurning hvort einhver bresk þjóð sé til nú til dags, því margir telja þar aðeins um einhvern fjölþjóðlegan hrærigraut að ræða og á það einkum við um England. Skotar hafa betur haldið um sitt og halda því enn að mestu sínu þjóðlega höfði og það er gott til þess að vita.

Forustumenn Breta eftir stríð virðast að mestu hafa verið miðlungsmenn, ef þeir hafa þá náð því og svo hefur mikilvægi Bretlands á alþjóðavettvangi aldrei orðið það aftur sem það var fyrir stríð og var þó auðsæ afturför í þeim efnum á árunum milli heimsstyrjaldanna. Bandaríkin tóku alveg að sér hið alþjóðlega hlutverk Stóra-Bretlands eftir 1945, enda höfðu þau fulla burði til þess, en Stóra-Bretland sem þá var raunverulega orðið Litla-Bretland, gat þá ekki lengur staðið sig í stykkinu. Það gerðist smám saman algert fylgiríki sinnar fyrri nýlendu og glataði enn frekar virðingu annarra ríkja fyrir þá þjónkun, enda fór það að sýna Sámi frænda allt að því hundslega fylgispekt í öllum málum.

Þegar Bretar höfðu misst nýlendur sínar höfðu þeir einfaldlega ekki neinn slagkraft í það hlutverk sem þeir áður höfðu tekið sér. Fjárstreymið til heimalandsins frá hinum arðrændu matarholum heimsveldisins hafði stöðvast.

Nú er Bretland skugginn af því sem það var á sínum velmektardögum og reynir helst að þrífast á því nú til dags að níðast á þeim fáu ríkjum sem það telur sig ráða við og við Íslendingar erum svo óheppnir að vera í þeim hópi.

Um Hollendinga má segja mjög svipaða sögu. Þeir reyndu eftir stríð að halda Austur-Indíum með valdi, en það var vonlaust mál fyrir þá.  Hinar undirokuðu þjóðir Asíu höfðu séð þá beygða í duftið af Japönum í stríðinu og hin fyrri virðing var horfin. Hvítu herrarnir urðu því að hypja sig !

Síðan þá hafa Hollendingar reynt að hreiðra sem best um sig í skjóli Nato og Evrópusambandsins og þjóðleg einkenni þeirra hafa verið að þynnast út og hverfa við stóraukinn innflutning fólks af öllu tagi, sem í vaxandi mæli er farið að tala fyrir munn Hollands, sem er nú allt annað fyrirbæri en það var.

Hollendingar nútímans eiga því alfarið samleið með Bretum nútímans, þar sem báðar þjóðirnar berjast við vaxandi minnimáttarkennd og reyna að hamla henni með því að viðhafa yfirgang og stórmennskutakta gagnvart örþjóðum eins og Íslendingum.

Bankagreifar íslensku útrásarinnar hegðuðu sér vissulega með algerlega óábyrgum hætti og bera sannarlega þunga og mikla sök á efnahagslegu hruni Íslands. Það er á engan hátt hægt að afsaka óþjóðlega breytni þeirra sem verður vonandi krufin til mergjar síðar meir, íslenskri þjóð til vítis og varnaðar.

En framferði breskra og hollenskra stjórnvalda gagnvart íslensku þjóðinni er hinsvegar talandi vitni um það hvað þessar þjóðir hafa vikið langt frá þeim gildum sem gerðu þær miklar og virðingarverðar á sínum tíma.

Það er mjög dapurleg niðurstaða - fyrir þær sjálfar og heiminn allan sem þær virðast löngu hættar að bæta.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 13
  • Sl. sólarhring: 140
  • Sl. viku: 1442
  • Frá upphafi: 315612

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 1162
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband