Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2020

Að lifa í veröld veirusýkinga !

 

Nú er búið að binda heiminn svo saman með samgöngum að ef einhver óáran kemur upp á einum stað fer hún eins og örskot um veröldina alla. Að búa á afskekktum stað er því engin vernd lengur.

Það er margsannað mál að ekkert er svo að því fylgi bara kostir. Það er alltaf eitthvað sem fylgir af verra taginu og stundum reynist það drýgra þegar til lengdar lætur !

 

Veröldin hefur farið á hliðina út af Covid 19. Heilsukerfi heilla þjóða hafa raskast og riðlast og komið hefur skýrt í ljós hvað öll okkar velferð er byggð á veikum grunni. Það má lítið sem ekkert gerast þá er allt í voða og heilu samfélögin eru ráðþrota !

 

Hin kapitalíska samtrygging sem ræður heimsverslun og efnahagsmálum víðasthvar emjar fljótt af iðrakvöl þegar gróðinn dregst saman. Frjálshyggjan telur ekki svo mikinn skaða að því þó einhverjir deyi. Þar er kannski hugsað og jafnvel sagt : ,, Þetta er mestallt gamalt fólk og veikburða sem hefur ekki marktækt gildi fyrir þeirri höfuðnauðsyn að hjólin haldi áfram að snúast !” Sjónarmið manna geta verið margvísleg og segja sannarlega sitt um hvern mann !

 

Heilbrigðisyfirvöld virðast nú færast æ meira í þá stöðu að lenda í návígi við hin hagfræðilegu efnahagsyfirvöld sem vilja láta hjólin snúast sama hvað það kostar í mannslífum. Formúlan um framboð og eftirspurn veldur því að hvert mannslíf vegur æ minna í þessum heimi okkar. Það er jú nóg af fólki til. Framboðið er svo mikið að það er víða vandamál. Efnahagspostular sjá því ekki stóran vanda fylgja því að framboð sem er orðið að þeirra mati allt of mikið – minnki eitthvað !

 

Það virðist því fyrirsjáanlegt að félagshyggjuviðmið mannlegs samfélags tapi styrk ef fer sem horfir. Heilbrigðisyfirvöld munu verða að gefa eftir fyrir hinum afkomukrefjandi gróðasjónarmiðum fjármagnsaflanna. Fórnarkostnaðurinn verður ekki talinn þegar fram í sækir. Hjólin verða að snúast og í því efni er staðan svipuð og í styrjöld. Það verður að berjast áfram, sama hvað það kostar !

 

En hér er ekki bara um efnisleg atriði að ræða. Hér er um það að ræða hvað á að ráða hugarfari manna við þessar aðstæður. Er veirusýking bara líkamlegt heilsuvandamál eða nær hún til andans og hugarfarsins ? Auðvitað mun slík alheimsplága merkja sinn tíma og göfga fólk eða glæpastimpla !

 

Ef viðbrögð yfirvalda við Covid munu helst taka mið af gróðakröfum auðhringa og allskyns einokunarhafa, sem í skjóli sérgæskunnar hafa rakað að sér gífurlegum auði, mun samfélagið líða fyrir það. Það mun verða miskunnarlausara og kaldara sem því nemur !

 

Covid 19 er ekki á förum. Og það geta komið fleiri slíkar sendingar í komandi tíð. Við þurfum að búa okkur undir langt stríð í þeim efnum. En til hvers munum við heyja það stríð, til að verða betri manneskjur – eða verri ? Með hvaða hugarfari munum við mæta til þeirrar baráttu ?

 

Við erum komin inn í veruleika sem gerir sínar kröfur og sumum finnst þær miskunnarlausar. En ætlum við að takast á við þær á sammannlegan hátt með velferð mannkynsins að leiðarljósi eða á að fylgja þar sérgæskufullum gróðakröfum fámennra valdahópa sem hirða lítið sem ekkert um almenna velferð ?


Ekki verður allt keypt fyrir peninga !

 

Miðað við þau lífsgæði sem fjöldi fólks á Vesturlöndum nýtur, finnst mörgum lífið allt of stutt. Fólk vill hafa miklu lengri tíma til að njóta. En þar geta verið ýmis ljón á veginum eins og margir fá að reyna !

 

Þeir eru býsna margir sem eru ekki búnir að hlaða undir sig efnum og auði fyrr en kemur að efri árunum og þá er ekki eins gaman að njóta eins og þegar fólk var ungt. Heilsan jafnvel orðin léleg eða bara farin eftir hamstrið og hamaganginn á græðgisárunum. Allt hefur sem sagt sín takmörk – þrátt fyrir fengið ríkidæmi !

 

Svo eftirköst eins og hrörnun og heilsuleysi vilja setja stórt strik í reikninginn hjá fólki þó efni séu til staðar. Og sumir segja ergilega : ,, Það er vegna þess að lífið er allt of stutt !” En við þurfum ekki að fara langt aftur í tímann þegar meðalaldur í Evrópu var ekki nema helmingur þess sem hann er nú. Og ekki var venjulegu fólki þá boðið að njóta neins. Það lifði allt meira og minna við sult og seyru !

 

Aðeins aðallinn og prestarnir lifðu nautnalífi á þeim tíma og það á erfiði hinna vinnandi stétta. En þeir sem flutu ofan á þá eins og nú kvörtuðu á sama hátt og þeir gera í dag, ,,lífið er allt of stutt !” Því alltaf kom Dauðinn að lokum og hann gátu menn ekki flúið. Menn urðu að hverfa frá ríkidæminu, óðulum sínum og höllum, metorðum og öllum hinum yfirflæðandi efnisgæðum. Þurftu bara sama rúm í jörð og aðrir !

 

Dauðinn gerði engan greinarmun á háum og lágum og allir dóu – enginn gat keypt sig frá þeim lokadómi. Og ríka fólkinu fannst það í meira lagi skítt og svo er enn. En flest af því hafði og hefur síst af öllum áunnið sér aukinn rétt til lífsins !

 

En áfram er samt reynt að lengja lífið, þrátt fyrir hrörnun og heilsuleysi. Sumir auðjöfrar láta skipta um blóð í sér reglulega, aðrir fá ný líffæri austan úr heimi, hvernig sem þau eru annars tilkomin.

Í krafti auðs geta sumir líklega lengt líf sitt um einhver ár, en þeir lifa samt við áframhaldandi hrörnun. Þeir kaupa sér ekki yngingu !

 

Jafnvel Ann Nicole gat ekki komið meira lífi í sinn ektamaka, enda var líf hans á förum og reyndar ekki svo langt eftir af hennar tilveru. Auðurinn breytti þar engu um. Dauðinn fer ekki í manngreinarálit. Það er það meginatriði sem tekur ekkert mið af ríkidæmi. Allir hrörna, allir deyja !

 

Og til hvers er þá þetta allt ? Eru þessi svokölluðu lífsgæði einhvers virði þegar allt kemur til alls ? Erum við kannski alltaf að leita hins óforgengilega í því forgengilega ? Hlaða vitleysu ofan á vitleysu !

Til hvers er að safna auði alla ævi og deyja svo frá honum og spilla um leið afkomendum sínum með ríkidæminu ?

 

Þannig fer fyrir öllum sem leita á röngum stöðum. Hamingjan er ekki fólgin í veraldlegum auði, líf í fullri gnægð er fólgið í þjónustu við andleg gildi sem eru og verða. Aðeins sá sem fórnar sjálfum sér sigrar Dauðann og erfir hið Eilífa Líf ! Þannig er lögmál Almættisins og hefur alltaf verið !


,,Augnablikið eitt þú átt !”

 

 

Mannlífið er undarlegt fyrirbæri á flestan máta. Við komum inn í þennan heim, lifum hér um stund og hverfum síðan. Hvaðan komum við, hversvegna erum við hér og hvert förum við ?

 

Öll vísinda og tækniþekking nútímans veit engin svör við þessum spurningum. Sú kröfufreka þekking hefur líklega fært okkur fjær hinum réttu svörum frekar en hitt. Allt miðast við efnið í dag en lítið er lagt upp úr andanum. Sú afstaða hefur haft sínar slæmu afleiðingar !

 

Því það er ljóst og hefur lengi verið ljóst, að svörin við ráðgátu tilvistar okkar hljóta að vera andlegs eðlis. Lögmál lífsins er komið frá andlegri uppsprettu og til að skilja það verða menn að tengjast þeirri uppsprettu. Það getur aðeins gerst í gegnum andlega endurfæðingu !

 

Nú á tímum er margt sem bendir til að komið sé að skuldadögum mannkynsins. Við höfum þrætt að mestu rangar brautir, verri eigindir okkar virðast alveg hafa ráðið ferðinni í sálarlífinu og siðblinda hefur sýnilega vaxið stórlega á síðari árum !

 

Unga fólkið fær enga leiðsögn lengur frá þeim sem eldri eru, eins og áður var, enda uppreisnareðli þess orðið slíkt að ekkert af slíku tagi yrði meðtekið með jákvæðu hugarfari !

 

Náttúrulögmálin eru við það að bresta vegna gengdarlauss ágangs versta rándýrs jarðarinnar – mannsins. Við stefnum út í algera ófæru og mörkum okkur og tíma okkar dauða og djöfli, að því er virðist af fullkomnu ábyrgðarleysi. Þar sést varla lengur glæta til góðs !

 

Sólkerfi okkar í heild virðist vera að ganga í gegnum breytingar sem kunna að verða okkar hnetti afdrifaríkar. Aðallega felst það í mikilli hita-aukningu. Sumir telja að sólin gæti farið að senda út svo geigvænlega mikla útgeislun rafsegulbylgja að þær gætu eyðilagt allt orkusamband á jörðinni. Jafnvel skapað rafmagnsleysi á öllum hnettinum til lengri tíma !

 

Spurningar nútímastöðu tilvistarmálanna geta verið margvíslegar. Af hverju hefur litróf Venusar yfir í græna litinn aukist um 2500% á fáeinum árum ? Af hverju hefur ljósmagn og hiti frá okkar litla Plútó aukist um 300% á svipuðu tímabili ? Af hverju, af hverju, af hverju !

 

Og meðan viðvörunarljósin blikka um alla jörðina út af því sem fer að koma yfir okkur, er allt efnahagskerfi jarðarinnar – nákvæmlega á þessu augnabliki - að hrynja út af einni veiru. Er það ekki skýrt dæmi um veikleika heildarstöðunnar ?

 

Á hvaða undirstöðu byggjum við ? Er hún efnisleg eða andleg ? Er hún blekking eða bjarg ? Mér sýnist hún alfarið vera efnisleg, full af græðgi og neikvæðu innihaldi, undirstaða sem heldur ekki vatni !

 

Sjá menn ekki að við leitum ekki lausna við lífsgátunni á hraðbraut dauðans, brautinni sem liggur út í endanlega glötun. Við erum villt í þoku öfugsnúinna sjónarmiða. Við teljum nú í mörgu það ranga vera rétt !

 

Hvað segir tíðarandinn í dag. Í stað þess að benda fólki á að taka sér andlega stöðu, segir hann við fólk – ,,Lífið er Núna ! Augnablikið eitt þú átt, skemmtu þér meðan þú getur !” Frá andlegu sjónarmiði er það vitlausasta afstaða sem hægt er að taka !

 

Á meðan dunar dansinn í höll Belshazzars og enginn virðist vita að ógnaröfl eru að leysast úr læðingi !

Vei jörðinni, vei mannkyninu, ef svo fer sem horfir !


Alþýðuskáldskapur eða hvað ?


Skáldskapur hefur allt frá elstu sögnum fylgt Íslendingum og við þekkjum flest dæmin úr fornsögunum þar sem óbreyttir bændasynir ganga fyrir konunga og jarla erlendis, jafnvel beint frá óþrifalegri vinnu, til að flytja þeim kvæði. Ekki virðist sem háttsettum valdamönnum hafi mislíkað það, enda mun kjarni málsins líklega hafa verið kvæðið sem flutt var, en ekki klæðaburður eða efnastaða flytjandans !

 

Á þessum tímum var ekki til neinn sérstakur alþýðuskáldskapur, heldur aðeins skáldskapur. Það var ekki fyrr en líklega seint á nítjándu öld og svo þeirri tuttugustu sem menntamenn fóru að innleiða hugtakið – alþýðuskáldskapur -, sennilega til að undirstrika að skáldskapur þeirra væri eitthvað meiri að gildi en það sem Jón Jónsson var að yrkja úti í bæ !

 

Nú vitum við að það er afskaplega ríkt í fari sumra manna að setja goggunarröð á allt. Og það er sannarlega ekki svo, að þeir sem virðast ákafastir um slíkt, séu endilega fremstir manna. Líklega er það nær því að vera alveg öfugt. Kannski er slík sérgæsku tilhneiging, sem hér um ræðir, viss tilraun, - í því skyni einkum gerð - að fastsetja eigið gildi ? Það skyldi þó aldrei vera og ekki kæmi það mér á óvart !

 

En hvernig förum við annars að í skilgreiningum varðandi þessi mál ? Var Egill Skalla-Grímsson alþýðuskáld, og hvað má segja um Þormóð Kolbrúnarskáld eða Sighvat Þórðarson, voru þeir alþýðuskáld ? Hvað með Hallfreð vandræðaskáld ? Skyldu kannski öll svokölluð alþýðuskáld í rauninni vera einhvers konar vandræðaskáld – í augum svonefndra menntamanna ?

 

Er ekki einhver fræðileg eða hræðileg skekkja fólgin í því að alþýðuskáld skuli yfirleitt vera til og geta ort ? Eiga alþýðumenn í rauninni eitthvað að vera að fikta við skáldskap ? Er þar ekki bara um að ræða æðri list og andlegt viðfangsefni skólaðra manna, eins og viss ráðsmennsku-sjónarmið menntamanna nú á tímum gefa oft í skyn ? Nei, sem betur fer, er svo ekki !

 

Við getum hinsvegar velt því fyrir okkur, hvenær skáldskapurinn fór í þá skiptingu, að sumt af honum fór að kallast alþýðuskáldskapur, og hverjir stóðu að þeirri skilgreiningu ? Þá ætti líklega að vera til sem mótvægi einhver sérstakur menntamanna-skáldskapur, og þá líklega í öðrum gír og öðru veldi ? En þar vantar á útfærslu mála svo kenningin gangi upp !

 

Við ættum samt að geta haft það á hreinu, að andagiftin, sem er hjartað í skáldskapnum, er ekki afurð skólalærdóms. Andagift er náttúruleg gjöf, en hún getur auðvitað slípast og vaxið með andlegum vexti þess sem hún býr í, eins og sérhver annar hæfileiki. Það hefur aldrei leikið vafi á því !

 

En andagift sem er kúguð til að hlíta einhverri goggunarröð metings og mannasetninga, er ekki líkleg til að vaxa mikið og síst með heilbrigðum hætti. Því miður virðist hún samt oft knúin af slíkum aðstæðum sem eru spillandi fyrir hana á allan hátt og hamla eðlilegum skáldskaparþroska !

 

Skáldskapurinn ætti yfirleitt að vera bestur þegar hann er hugarfrjáls, en margir hafa ort ofurmannlega vel þó þeir hafi aldrei verið frjálsir. Þar kemur ekki síst til óendanlegt breytiferli mannlegra persónuleika og göfgun anda og sálar í því sambandi. Sum mestu frelsiskvæði veraldar hafa verið ort af fólki sem bjó við ómannlegar aðstæður ófrelsis og þrælkunar !

 

Æðri og lægri skáldskapur er af þessum og öðrum ástæðum enganvegin skilgreind staðreynd, þó sumir vilji meina að svo sé. Það er tilfinning fólksins, þjóðarinnar, sem ræður í því efni þegar til lengdar lætur !

 

Einhverjir menningarpostular geta haft áhrif á margt um sína daga, en oftast fjara slík persónuáhrif fljótt út þegar þeir eru dauðir. Þá hafa þeir ekki lengur völd og aðstæður til að ráðskast með skáldskapar-hugtök að hætti alvísra dómara. Skáldskapur er nefnilega fyrst og fremst skáldskapur, - án aðgreiningar !

 

Það sem nær að festast í sessi sem menningarframlag, hvort sem það er alþýðuskáldskapur eða menntamannaskáldskapur, hvort sem það er lægri skáldskapur eða æðri, verður sjálfkrafa hluti af þjóðmenningunni.

 

Þau lögmál sem ráða því ferli geta verið flókin í hugfræðilegum skilningi, en byggjast að miklu leyti á hjartatilfinningu fjöldans. Það geymist einfaldlega best í sálinni sem talar til hennar !

 

Það á enginn skáldskapinn ! Hann sprettur fram í mannssálinni á náttúrulegan hátt og á að gera það. Ávextirnir sem skapast við það geymast eða gleymast – sama hver yrkir. Sumt lifir og sumt ekki. Þannig hefur flæði skáldskaparins verið á öllum tímum og með þeim hætti einum er jöfn staða tryggð og hersis hefnd við hilmi efnd !

 

Þannig er það sál þjóðarinnar sem metur allan skáldskap og dæmir með tímanum. Og sá dómur mun standa og honum verða allir að una, – líka hin goggunarraðar hugsaða efri deild, - ,, menntamannaskáldin !”


Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 328
  • Sl. sólarhring: 348
  • Sl. viku: 1585
  • Frá upphafi: 316586

Annað

  • Innlit í dag: 273
  • Innlit sl. viku: 1277
  • Gestir í dag: 258
  • IP-tölur í dag: 253

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband