Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2022

Þriðja tilraun Tevtóna ???

 

 

 

 

Evrópusambandið hefur á síðustu árum virst vera að breytast alfarið í að verða pólitískt tæki Þýskalands til yfirráða í álfunni. Þar er þá kannski að komast í gang þriðja tilraun hernaðaranda ,,tevtónsku riddaranna“ til slíkra yfirráða á tímabili einnar aldar !

 

Það er ekki hægt að segja annað en þrjóskan og úthaldið sé drjúgt þar sem Berlínarvaldið á í hlut, og auðvitað hefur fylgt þar með mikill styrkur fjármálalegrar stöðu. Og hin strategíska þrákelkni og afl auðsins virðist hafa skilað sér afskaplega vel fyrir þýskan framgang í Brussel og náð yfirburða valdastöðu þar. Sá sem ekki sér það hlýtur að vera blindur !

 

Frakkar virðast nú vera þar eins og laufblað í vindi í höndum Þjóðverja og Bretar eru flúnir til baka yfir sundið eins og þeir hafa gert einu sinni áður !

 

Hliðstæða baktjalda valdasókn átti svo að nota til að gera Úkraínu að nýlendu hins nýja Tevtónavalds, nýlendu nr.1, en þá þurftu bölvaðir Rússarnir rétt einu sinni að standa í vegi fyrir ,, réttri sögulegri framvindu “ eins og það heitir á tevtónskri háþýsku. Alltaf þurfa þeir að vera til ills og bölvunar, jafnt sem kommar og kapítalistar !

 

Úkraína hefur löngum verið hugstæður biti í augum Tevtóna. Í hugmyndafræði nazismans átti hún að gegna stóru hlutverki sem kornforðabúr álfunnar og miðstöð í valdakerfi hins komandi Evrópuríkis !

 

Mörg línan var lögð í Berlín um 1940 og margt var sett á pappír sem aldrei komst til framkvæmda, varðandi framtíðarhlutverk Úkraínu. Réttur útdeilingaraðili allra landgæða þar átti að sjálfsögðu að verða Stór-Þýskaland, hjarta, höfuð og heili hinnar væntanlegu alþýsku Evrópu !

 

Já, valdadraumarnir risu hátt á þeim dögum í Berlín og fáir gerðu sér grein fyrir því að djöfull færi þar með völdin. En því miður gat ófreskjan sú spilað á öll auðvaldsöfl Þýskalands á þeim tíma og kallað þau til liðs við sig og leitt þannig sannkallað helvítisástand yfir alla álfuna !

 

Ný sókn skyldi hafin í austur - „Drang nach Osten.“ Andi tevtónsku riddaranna óð yfir sviðið í fullu veldi og nú skyldi borgað fyrir ófarirnar á Peipusvatni 1242. Það var löngu kominn tími til þeirrar hefndar !

 

Alexander Nevskí hafði þá stöðvað frekari sókn Tevtóna til austurs, en nú skyldu austursvæðin falla í hendur þeirra að fullu og öllu. En enn sem fyrr var við sama gamla vandann að fást. Þann óþolandi vanda að Rússland er fullt af Rússum. Réttum 700 árum eftir orustuna á Peipusvatni blæddi Tevtónum því aftur út og að þessu sinni við Moskvu og Stalingrad !

 

En nú virðist eiga að hefja baráttuna og sóknina á ný og að þessu sinni út frá Brussel – ekki Berlín. Það er auðvitað miklu klókara að gera út frá þeirri háborg auðvaldsins sem þar hefur verið sköpuð, enda er Brussel nú alfarið undir þýsku valdi – Tevtónarnir ráða þar. Allt er þegar þrennt er, hugsa þeir líklega, og nú brjótumst við í gegn !

 

Og fylgjendur mun víst ekki skorta. Sagði ekki Paul-Henri Spaak fyrrum utanríkisráðherra Belgíu og formaður nefndar sem undirbjó stofnun Efnahagsbandalags Evrópu á sínum tíma: ,, Sendið okkur öflugan forustumann, hvort sem hann er guð eða djöfull, munum við taka á móti honum !“ Þannig hafa viðhorfin verið og eru enn. Og nú er forusturíkið komið fram, þó að Foringinn dyljist enn að tjaldabaki en hann mun senn opinbera sig í makt og miklu veldi – enn á ný !

 

Svíar og Finnar hafa breytt um stefnu, enda hafa þær þjóðir lengi verið hallar undir Tevtóna eins og önnur tilraunin sýndi best. Ráðamenn í Stokkhólmi og Helsinki vita líklega vel hver ræður í Brussel og þeim er trúlega ekki sérlega leitt að hlýða því valdi !

 

Og líklega fara ný eða endurunnin goð að rísa víða af hæstu stöllum í Evrópu í komandi tíð, Gustaf Adolf prins í Svíþjóð, Mannerheim marskálkur í Finnlandi, Pilsudski í Póllandi, Stefan Bandera í Úkraínu og hliðstæðir fuglar hér og þar. Það fer þá ný hetjudýrkun af stað. Og baráttusöngvar í anda slíkra goða kunna brátt að hljóma í veislusölum hins nýja valds og eru jafnvel þegar farnir að gera það !

 

Ó, Evrópa, Evrópa, Evrópa ! Ætlar þú aldrei að verða mannlífsreitur friðar og frelsis, þar sem hver þjóð fær að ráða sínum málum ? Er hinn rómverski kúgunarandi enn í dag á ferðinni í allra handa líki um lendur þínar ? Verður bölvun sú aldrei þvegin af skildi þínum, fyrr en í vítislogum kjarnorkustyrjaldar, við endalok mannkynsins ?

 

 


Rússar – nýkapítalistarnir í Evrópu !

 

 

Eins og vitað er, er Evrópa sem slík raunverulega engin sérstök heimsálfa, heldur öllu heldur skagi sem gengur vestur úr meginlandi Asíu. En vegna þeirra menningarlegu umbrota sem þar hafa löngum átt sér stað, hefur tíðkast að þjóðir þær sem búa á umræddu landsvæði vísi til Evrópu sem sérstakrar heimsálfu !

 

Látum svo vera ! Sumar þjóðir eru bara þannig gerðar að allt sem þeim viðkemur er og á að vera nafli alheimsins. Þar getum við innifalið Breta, Frakka og Þjóðverja og jafnvel nokkrar aðrar svonefndar Evrópuþjóðir !

 

En lítum aðeins á Söguna. Hvar hafa helstu vandamálin sem upp hafa komið í ,,höfuðheimsálfunni“ Evrópu reynt mest á ? Hvar skall Mongólabylgjan harðast á og hlífði þeim þjóðum sem vestar bjuggu ?

Austur í Rússlandi !

Hvar missti Napóleon stórher sinn og kverkatak sitt á þjóðum Evrópu ?

Austur í Rússlandi !

Hvar var Hitler stöðvaður og brotinn á bak aftur ?

Austur í Rússlandi !

Hvar á sú orka upphaf sitt sem heldur Vestur-Evrópu gangandi ?

Austur í Rússlandi !

 

Hvað þýða þessi svör á eðlilegu mannamáli ? Líklega það að Vestur-Evrópuríkin þurfa á Rússlandi að halda ? En þegar Rússar voru bolsévíkar og kommúnistar, voru þeir óalandi og óferjandi og ekki taldir hæfir í hinum hágöfuga félagsskap vestrænna séntilmanna !

 

En frá 1991 hafa Rússar hinsvegar bara verið kapítalistar og oligarkar, útrásarvíkingar og peninga-gráðugir auðmenn eins og þekkist í Vestur-Evrópu ! Enda voru þeir þar með viðurkenndir aðilar að G 8 hópnum ? Meira að segja taldir þar um tíma til prýði fyrir klúbbinn !

 

En eftir að þeir tóku Krímskagann 2014 fóru Vesturveldin í fýlu. Samt voru 68% íbúa skagans Rússar og landsvæðið rússneskt frá því á átjándu öld til 1954. Áður unnu Rússar skagann af Tyrkjum og Töturum !

 

1954 færði Úkraínumaðurinn og Sovétleiðtoginn Nikita Kruschev hinsvegar forræði skagans frá Rússlandi undir Úkraínu. Ekki voru Vesturlönd yfirleitt hrifin af ákvörðunum Kruschevs, en þessi á að þeirra mati að standa óhögguð og af hverju skyldi það vera ? Vegna þess að það þjónar pólitískum hagsmunum Vesturveldanna og hernaðarpólitík Nató !

 

Við hrun Sovétríkjanna hefði Krímskaginn átt að ganga til baka til Rússlands, en Jeltsin var alltaf fullur og því sjaldan með fullu ráði. Slíkir leiðtogar sem hann gera mörg mistök og Jeltsin gerði þau mörg á kostnað Rússlands. Oligarkarnir og Vesturlönd gengu þar fljótt á lagið !

 

Hvað skyldi annars valda því að Rússar mega ekki hegða sér út frá eigin hagsmunum eins og aðrar kapítalískar þjóðir ? Og hvað skyldi valda þvi að þeir þykja ekki lengur gjaldgengir í auðkýfingaklúbbinn ?

 

Svarið við því er einfalt ! Þeir leyfa sér allt of mikið. Þeir vilja jafnvel ráða sínum eigin auðlindum, ráða verðlagi þeirra og greiðslu-fyrirkomulagi. Þeir fara sínar eigin leiðir í öllu. Þeir hlýða ekki eins og Jeltsin !

 

Þeir vilja ekki lengur vera bara örlátir orkustuðnings-aðilar fyrir Brusselvaldið. Í stuttu máli sagt – þeir vilja með hákapítalískum hætti fá sitt fyrir sinn snúð. En sú bölvuð frekja af ódannaðri og hálf-asískri þjóð !

 

Meintur yfirgangur Rússa er af gömlu nýlendu-kapítalista-þjóðunum talinn með ólíkindum. Þeir bregðast jafnvel við með beinum hernaðaraðgerðum þegar Evrópusambandið baslar í því með fullkomlega friðsamlegum hætti að innlima Úkraínu með fjármálavaldi !

 

Ekki þóttu Rússar góðir meðan þeir voru kommúnistar en þeir þykja jafnvel verri eftir að þeir urðu kapítalistar. Eru ekkert nema forhertir frekjuhundar !

 

Ég skil það reyndar ósköp vel. Í mínum huga verða engir menn betri við það að verða kapítalistar eða með öðrum orðum aurapúkar - jafnvel ekki Rússar !

 

En hvernig sem fer, verður fróðlegt að fylgjast með samskiptum Rússlands og Vesturveldanna á næstu misserum. Kapítalistar í Evrópu hafa nefnilega tvö ólík gæða-stöðustig, þar eru gömlu auðvaldsríkin skilgreind númer 1 og svo Rússland númer 2, 3 eða jafnvel 4 !

 

Líklega allt eftir því hvað ráðamenn lands og þjóðar þykja óliðlegir í samskiptum við rétta aðila og hvað Rússland fær þannig mörg refsistig hjá Æðstaráði Réttlætismála Evrópu í kastala auðhringanna í Brussel !

 

Kuldaboli verður líklega ágengur víða í Vestur-Evrópu á komandi vetri og að sjálfsögðu verður það Rússum að kenna – eins og annað. En þó ekki rússneskum kommum – heldur rússneskum kapítalistum !

 

 

 

 

 

 


Naut í flagi !

 

 

Þegar menn eru með mikinn óhemjuskap og vaða áfram með miklum fyrirgangi og athyglis-sækjandi tilburðum, er þeim stundum líkt við naut í flagi. Það er eins og slíkum sé það eðlislægast að setja hausinn undir sig og bolast áfram – í gegnum girðingar málanna !

 

Slíkir maður hefur mér virst Boris Johnson vera. Mér datt alltaf í hug naut í flagi þegar fréttamyndir sáust af honum og sjaldan hef ég séð svonefndan leiðtoga með jafn fráhrindandi takta. Maðurinn virtist inngróinn tuddi !

 

Nú er það svo að Bretar hafa ekki lengur neitt sérstakt vægi í málum þessa heims. Þeir hafa verið að síga saman allar götur frá því um miðja síðustu öld og það eina sem varir hjá þeim er drottningin sem virðist ætla að verða eilíf. Kóngafólkið lifir lengi nú á tímum, enda slitnar það ekki af erfiði !

 

Nú ráða Bretar ekki lengur í Indlandi en Indverjar virðast vera farnir að ráða nokkuð miklu í Bretlandi. Það er þó ekkert undarlegt við það þegar tekið er til þess hvílík fjölþjóðasúpa býr nú í Bretlandi !

 

Vilja því sumir meina að Bretar hafi ekki aðeins tapað stórveldisstöðu sinni á síðustu áratugum heldur líka þjóðerni sínu !

 

Boris Johnson er ólíklegur til að verða talinn í hópi þeirra forsætisráðherra Bretlands sem merkari hafa þótt. Það er eiginlega furðulegt hvað hann hefur verið seinheppinn í nánast öllum sínum athöfnum í Downingstræti 10. Hann hefur arkað með sitt ógreidda hár frá einu klúðrinu yfir í annað !

 

Það er eins og Bretar séu orðnir alls ófærir um að koma sér upp bitastæðum forustumanni. Kannski er úrvalið bara ekki lengur bitastætt sem úrval ?


Arfleifð eymdarinnar sækir á !

 

 

Sú framvinda sem er í gangi og hefur verið í gangi langa hríð, varðandi líf mannkynsins á þessari jörð, hefur að mörgu leyti verið ferð til feigðar. Ekki bara vegna þess að við fæðumst og hljótum að deyja þegar þar að kemur, heldur vegna þess að við kunnum ekki fótum okkar forráð !

 

Og almennt séð höfum við aldrei lært þá lexíu sem nauðsynlegust er til vaxtar lífi og góðum gildum. Við lifum alltaf sjálfum okkur fyrst og fremst og fórnum litlu sem engu í þarfir náungans eða af mannlegri elsku til annarra. Það mun aldrei fæðast neinn maður með hugarfar Frans frá Assisi á Íslandi. Hér eru öll hin tíu boðorð ævitímans helguð últra-kapítalisma !

 

Og svo einn daginn erum við horfin yfir landamæri lífs og dauða með léttan mal og lítið veganesti, eftir vægast sagt ótrygga æviferð um viðsjált klækjaklungur sérgæskunnar. Einkunnarorð manna hérlendis eru löngu orðin „ Allt í eigin þarfir,“ og þannig er og hefur verið lifað - þroskalaust !

 

En Ísland verður ekki alltaf velmegunarland. Það munu koma þeir tímar sem snúa öllu á hvolf sem mönnum þykir snúa rétt í dag !

 

Mér virðist þegar ljóst að forsjónin sé byrjuð að telja niður velmegunar-forsendur mannlífsins hér á landi sem og reyndar víðar. Við höfum einfaldlega ekki staðist það próf sem eitt hefði getað forsvarað áframhaldandi lífsgæfu fyrir land og þjóð og skömm er óhófs ævi !

 

Hið daglega brauð mun verða vandsótt aftur og lífsbaráttan mun aftur snúast um hafa til hnífs og skeiðar. Engar gerviþarfir munu þá ráða lífinu heldur aðeins og eingöngu hin harðsótta glíma sem þreyta verður til að komast af. Fólk mun þurfa að hafa fyrir lífinu aftur !

 

Hinir efnameiri munu við þær aðstæður flýja til útlanda ef þar verður þá eitthvert skjól að finna. Öllu klúðri og öllum mistökum stjórnvalda verður sturtað niður til almennings og hann verður látinn borga ógæfureikningana eins og löngum fyrr, en þegar þarna verður komið verða þeir margfaldir að meinagildi !

 

Sú skuldastaða sem þá skapast mun valda stórlækkun á almennum lífskjörum og afæturnar munu þá hverfa burt úr landinu því þá verður ekkert hægt að éta frá okkur lengur. Innflytjendur munu heyra sögunni til !

 

Þá mun aftur verða til í landi þessu þjóð með eymd í arf, þjóð sem verður að gjalda stórra synda, þjóð sem hefur alltaf vantað sanna og heilbrigða forustumenn. Það forustuleysi mun hafa sínar illu afleiðingar !

 

Við Íslendingar höfum ekki sáð fyrir neinni framtíðargæfu því það gerir ekkert samfélag sem er sokkið í ágirnd og græðgi. Okkar eigið framferði mun dæma okkur. Við fljótum að feigðarósi og hljótum að uppskera arf eymdarinnar senn hvað líður !

 

Meðan við höfum ekki manndóm í okkur til að leggja kvótakerfið niður í núverandi mynd verður aldrei virðingarvert mannlíf í þessu landi !


Ofsóknirnar gegn Julian Assange !

 

 

Vesturlönd hafa lengi talið sig hafa einkarétt á frelsinu og hvernig það skuli túlkað. Þau hafa samkvæmt eigin skilgreiningum alltaf rétt fyrir sér en aðrir rangt. Þrátt fyrir mýmörg dæmi um glæpi og allrahanda misferli, kúgun og hverskonar svívirðingar, halda Vesturlönd í þessa ímynd sína þó að hún sé löngu orðin að engu í augum allra nema þeirra sjálfra !

 

Frelsisstyttan gnæfir við innsiglinguna til New York, þeirrar borgar sem er Babylon heimsins númer eitt á okkar dögum. En er þetta frelsistákn lýsandi fyrir stjórnarstefnu Bandaríkjanna, á slíkt frelsistákn við þar sem heimsvaldastefna er stöðugt í gangi ?

 

Nei auðvitað ekki, Bandaríkin og mannfrelsið eiga enga samleið á okkar dögum. Það sést með margvíslegum hætti og ekki síst með ofsóknum Bandaríkjavaldsins gegn Julian Assange !

 

Ef Bandaríkin væru það sem þau þykjast vera, heilbrigð og sönn, væru þau ekki að níðast á Julian Assange. Og þá hefði Assange ekki þurft að fletta ofan af þeim, þá hefðu þau ekki haft neitt að fela sem þoldi ekki dagsins ljós. Assange, sem og fleiri, leit svo á að afhjúpa þyrfti tvöfeldni þeirra og glæpsamlegt framferði með birtingu leyndarskjala myrkravaldsins !

 

Mannfrelsið krefst þess alltaf að borði mannlífsins sé haldið hreinu. Hver sem atar það út og óhreinkar það á skilyrðislaust að þola afhjúpun. En það er það sem Bandaríkin þola ekki. Þau þola ekki að sjá sína eigin mynd eins og hún er orðin í augum heimsins !

 

Þau ríghalda enn í Washington, Jefferson og Lincoln, þó enginn þessara manna myndi vilja sjá þau eins og þau eru í dag. Öll orð þessara frumherja ríkisins í ræðum þeirra og skrifum, æpa gegn framferði bandarískra stjórnvalda á okkar tímum. Slíkur er umsnúningurinn orðinn !

 

Julian Assange er í miklu meiri samhljómi við hugsjónir þessara frumherja Bandaríkjanna en bandaríska alríkið er í dag með allri sinni hræsni og öllum sínum samvisku-svæfandi stjörnustælum !

 

Bandarískt frelsi er ekki neitt sem kalla má eftirsóknarvert. Það er frelsi hinna ríku til að féfletta og kúga þá sem eru minni máttar. Það er lygafrelsi sem innifelur í raun ófrelsi. Bandaríkin upphefja sífellt öfugt mannfrelsi, frelsi hins vopnaða til að skjóta hinn óvopnaða, frelsi ranglætisins til að myrða réttlætið. Allar ódyggðir Evrópu virðast hafa margfaldast á síðari tímum í hræsni og hroka hins villuráfandi ofurveldis Norður Ameríku !

 

Þau eru ófá ríkin í heiminum sem hafa látið ofsækja, fangelsa og jafnvel drepa menn eins og Julian Assange og þar geta verið um að ræða ríki sem margir trúa til allra vamma og skamma. En hvernig er heimurinn orðinn þegar ríkið sem átti að vera svo gott og ærlegt er orðið engu betra ? Já, jafnvel verra en vondu ríkin og hættulegra fyrir eðlilegt mannfrelsi !

 

Ef Bandaríkin væru það sem þau þykjast vera, myndu þau heiðra Julian Assange í stað þess að ofsækja hann. Það er sterkasta sönnunin fyrir því hvað þetta höfuðríki Vesturveldanna er komið langt út af réttri braut, að það ofsækir menn sem vilja gera rétt – menn eins og Julian Assange !


Vertu lax en ekki marglytta !

 

 

Til er dæmisaga sem segir frá því að lax og marglytta hafi mæst í miðjum sjó. ,, Munur er á,“ sagði marglyttan. ,,Ég læt straumana létta mér lífið og bera mig varlega vítt um sjá, en þú stritar móti straumi og dasast til dauða.“ ,, Varla ertu öfundsverð,“ mælti laxinn. Þegar hvessir og stormur hvín, stækka æstar öldur, sem lemja þig á land og þú ferst í fjöru. Þar liggur þú límd við hleina eins og hrákaklessa, öllum til ama og andstyggðar. Menn láta eigi lítið um mig en þig forðast allir og fyrirlíta og spyrna við þér sem sparði.“ !

 

Hvað lesum við út úr þessari dæmisögu ? Þarna sjáum við fyrir okkur lýsingu á tveimur manngerðum. Við sjáum þann sem flýtur með í öllu og hinn sem berst gegn straumnum. Við sjáum þann sem hefur enga sjálfstæða hugsun og engan vilja til annars en að vera með meirihluta líðandi stundar, og við sjáum hinn – þann sem er tilbúinn að fórna miklu fyrir að standa fast á sínu og vera hann sjálfur !

 

Fyrri manngerðin er eins og við vitum fjölmenn og alls staðar auðfinnanleg meðal sérhverrar þjóðar, en hin seinni er ekki fjölmenn en þó enn sæmilega finnanleg. Og þú sem lest þessar línur, hvar ert þú staddur í þessu samhengi ? Ertu marglytta eða lax ?

 

Skáldið Bjarni Thorarensen yrkir svo varðandi laxinn og lífshætti hans :

 

,, En þú sem undan

ævistraumi

flýtur sofandi

að feigðarósi,

lastaðu ei laxinn,

sem leitar móti

straumi sterklega

og stiklar fossa !

 

Laxinn sinnir sínu lífshlutverki með virðingarverðum hætti. Hann tekst á við flúðir og fossa og hættur í hafi og ám, til að skila sinni skyldu.Það er hans hrós !

 

En marglyttan er áttavilltur aumingi. Hún veit ekkert á hvaða leið hún er. Hún hugsar bara um það að fljóta – fljóta eitthvað. Ytri aðstæður ráða öllu í hennar tilveru. Hún er í engu eftirbreytni verð !

 

 

En samt eru lífshættir fjölda manna í stíl við staðleysulíf marglyttunnar. Þar á svo sannarlega við lýsingin – að fljóta sofandi að feigðarósi !

 

 

Menn fljóta í hugsunarleysi værðar um villuslóðir allt sitt líf uns dauðinn tekur við þeim, hafa ekkert unnið sem virða má og hafa eytt lífi sínu 100% í hégóma og vitleysu. Hafa verið á tilgangslausu reki allt sitt líf !

 

Þú sem lest þetta, ég bið þig, þín vegna, hugsaðu þinn gang, hafnaðu því hlutskipti að vera marglytta, reyndu heldur að vera lax. Vertu þér og þínum til sæmdar og lifðu með réttlætiskennd og sannleika að leiðarljósi, sama hvað þú þarft að fara ,,sterklega gegn straumi“ í villuferli tíðarandans !


Leitað í gömlu skotgrafirnar !

 

Það sannast enn á ný í Úkraínustríðinu, að leiðtogar Evrópu eiga engin ráð önnur þegar alvarlegur ágreiningur verður milli ríkja, en að koma sér niður í gömlu skotgrafirnar. Alþjóðleg samtök sem áttu að draga úr hættu á árekstrum, eins og Sameinuðu þjóðirnar hafa fyrir löngu tapað allri tiltrú !

 

En hvað er þá til ráða ? Af hverju fer þetta alltaf svona ? Fyrri heimstyrjöldin átti að vera síðasta styrjöldin og Þjóðabandalagið var stofnað til þess að svo yrði. Pólitíkusar eyðilögðu bandalagið á fáeinum árum með gjörspilltu framferði sínu og gengu svo frá málum að seinni heimsstyrjöldin varð óþverrafætt afkvæmi þeirrar fyrri !

 

Eftir seinni heimsstyrjöldina var farið í sama leiðangur. Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar til að koma í veg fyrir styrjaldir, en eftir nokkur ár var sú tilraun til friðar eyðilögð líka í gegnum gjörspillta pólitík þar sem enginn lyfti hreinum skildi eða talaði sannleika !

 

Og nú eru Sameinuðu þjóðirnar ónýtt verkfæri sem hefur verið sett út í horn í áhaldahúsi Vesturveldanna og enginn metur það til nokkurs nýtanlegt í dag. Og með hverjum deginum sem líður nálgast mannkynið sitt eigið sjálfsmorð.Sjálfstortímingarandinn fer með algerri kæruleysisvímu sinni hamförum um alla jörðina !

 

Svíþjóð sem hefur notið meiri friðar í tvær aldir en nokkur önnur Evrópuþjóð vegna hlutleysisstefnu sinnar, telur nú hag sínum best borgið innan hernaðarbandalags. En það er ekki reynsla Sögunnar sem veldur þeirri viðhorfsbreytingu heldur pólitískar skoðanir þeirra sem nú fara með völdin í landinu. Og áróðurinn segir að fólk sé miklu öruggara fyrir vikið !

 

Churchill kallaði Svíþjóð á sínum tíma ,,litla hugleysingjalandið“ af því að Svíþjóð lét ekki teyma sig í dilk hernaðarhyggjunnar. En Svíþjóð sigldi sínum bát farsællega í gegnum styrjaldar-umrótið í álfunni og komst að mestu leyti heil í höfn frá því. Leiðtogar landsins sýndu ábyrgð og festu fyrir þjóðarhag og voru sjálfir í brúnni við stjórn !

 

En nú er annar andi ráðandi þar á bæ og varla 200 ára friður framundan í lífi Svía, ef að líkum lætur. Þjóðfélag sem verður markað hernaðarhyggju breytist með ýmsum hætti og ekki til hins betra !

 

Annars verður hver þjóð að taka ábyrgð á sínum örlögum og kannski eru valdaöfl Evrópu enn sem fyrr með það í fórnfrekri hugsun sinni að sælt verði sameiginlegt fall. En hvernig á slíkt fall að geta orðið sælt þegar kjarnorkuveldi fara að takast á um valdahlutföllin í álfunni ?

 

Þegar hernaðarhyggjan ræður ferð, þyrpast menn niður í gömlu skotgrafirnar. Þegar áhrif hennar dvína, vegna þess að hún leysir aldrei neitt, koma menn upp úr þeim og fara að talast við. Þá tekur vonin við um tíma þar til þeir komast aftur á skrið sem vilja eyðileggja og tortíma !

 

Þannig hafa málin gengið til þessa. En það hljóta flestir að sjá að leiðir þær sem menn þykjast hafa verið að fara til friðar undanfarna áratugi hljóta að vera rangar. Ávinningurinn er svo smár og heilindin lítil sem engin !

 

Menn eru líka oftast á villugötum og vilja vera það, sjá ekki það sem er að skella yfir þá. Rétt fyrir frönsku byltinguna 1848 sagði Alexis de Tocqueville í ræðu : ,, Ég held að við sofum á eldfjalli !“

 

Hann taldi svo vera en valdamennirnir sáu ekki neitt. Þeir skildu ekki stöðu mála og hætturnar sem þar voru að koma fram. Þeir sáu þær ekki þó þær væru farnar að ýta við öðrum. Og svo kom örlagadómurinn yfir þá, pakkaður inn í hernaðarhyggju og blóðsúthellingar !

 

Og hver er svo staða mála núna ? Nú virðist öll Evrópa sofa á eldfjalli – kjarnorkueldfjalli !


Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 37
  • Sl. sólarhring: 82
  • Sl. viku: 1174
  • Frá upphafi: 316860

Annað

  • Innlit í dag: 28
  • Innlit sl. viku: 875
  • Gestir í dag: 28
  • IP-tölur í dag: 28

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband