Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2023

Lygaþjónkunin !

 

 

Þegar lygar hátt sig hefja,

heiladauð við ferlið lofum.

Mun þó víst að reyndin refja

ræður víða á fréttastofum.

 

Út um heiminn fréttir fljúga,

falskar myndir upp þær byggja.

Þeir sem mestu af list þar ljúga

launin hæstu spilltir þiggja.

 

Vesturlöndin fremst þar fara,

flest með þýjum undirlögðum.

Æruleysið í þeim skara

allt mun fætt með Göbbels brögðum.

 

Þjóna menn þar vondu valdi,

véla aðra frá því rétta,

hlekkja sig með háu gjaldi

hugsun allra svikafrétta.

 

Manndóm öllum mun það eyða,

með þar glatast viljastyrkur.

Sannleiksmorða sálir leiða

sína heill í eilíft myrkur.

 

Enginn friður fylgir slíku,

flest á váleg örlög bendir.

Djöfuls andi Ameríku

Evrópu til vítis sendir !

 

 

 

 

 


Sækir hver til sinnar fylgju !

 

 

Jón Magnússon lögfræðingur, maður að mörgu kunnur, tók sögulegt dæmi fyrir í pistli á Moggablogginu nýverið. Það var varðandi svar Karls V við því hvort ekki væri rétt að grafa upp lík Lúthers og varpa því á hauga ? Karl átti að hafa svarað því til að hann ætti í stríði við lifandi menn en ekki dána !

 

Síðan tengdi Jón þessa sögu við deilur nútímans á Spáni um hvað gera skyldi við jarðneskar leifar manna eins og Franco og Primo de Rivera. Nokkuð augljóst finnst mér vera hvar samúð Jóns liggur í þessum efnum og þarf það ekki að koma neinum á óvart !

 

Nú eru svo sem til ýmis önnur dæmi um framferði valdsmanna í þessum efnum. Þegar konungsvaldið var endurreist í Englandi 1660 og lýðveldinu komið fyrir kattarnef, var eitt fyrsta verk konungs og aðals að grafa upp lík Olivers Cromwells og sumra látinna félaga hans og hengja þau upp á alræmdum aftökustað og höggva síðan höfuð þeirra frá bolnum !

 

Það virðist því hafa verið töluvert mikill munur á framkomu þeirra og framkomu Karls V gagnvart Lúther. Karl II níddist á líkamsleifum Cromwells og sýndi með því hvað hann var lítilsigldur leiðtogi fyrir ensku þjóðina !

 

Hann hefndi sín þannig á látnum andstæðingi sem hann gat aldrei sigrað í lifanda lífi. Hann lét grafa Cromwell upp og suma fylgismenn hans sem látnir voru og vildi í ómerkilegheitum sínum heyja stríð við dauða menn !

 

En eftirtíminn hefur sýnt það að Oliver Cromwell er og verður miklu meiri stærð í enskri sögu en Karl II getur nokkurntíma orðið. Og meðferð konungsmanna á líki hans skipti hann engu máli og skaðaði hann ekki, en segir hinsvegar sitt um þá sem þar réðu málum. Lakur orðstír þeirra varð enn minni fyrir vikið !

 

Það er fróðlegt að velta því fyrir sér hver framtíð Englands hefði orðið sem lýðveldis eftir daga Cromwells, ef það stjórnarform hefði lifað áfram. Það hefði svo sem átt að geta haldið velli, en því miður var enginn maður til að halda áfram verki Cromwells !

 

Það var enginn jafnoki hans til staðar til að taka við af honum. Þar við bætist að Englendingar hafa alltaf verið ótrúlega miklar konungssleikjur og aðalsundir-lægjur og sennilega höfðu þeir aldrei raunhæfa burði til að koma sér upp alvöru lýðræði !

 

Franco, einræðisherra fasista á Spáni var sá þjóðarleiðtogi í Evrópu sem lengst hélt völdum fyrir atbeina Hitlers og Mussolinis. Þeir komu honum til valda og eftir heimsstyrjöldina síðari var hann fljótur að komast í kærleikssamband við Vesturlönd, enda höfðu þau átt sinn þátt í því frá byrjun að brugga lýðveldis-stjórninni á Spáni banaráð og greiða fasistum þar veg til valda !

 

Hvernig spánska þjóðin gerir upp arfleifð Francos er alfarið hennar mál. En það er fullsannað mál, að Franco var mikill ógæfumaður fyrir eigin þjóð og hefði hún ein mátt ráða, hefði hann aldrei komist til valda. En Hitler og Mussolini og óhrein öfl á Vesturlöndum sáu til þess að svo varð. Erlend öfl koma mörgu illu til leiðar, bæði hérlendis og annars staðar í þessari veröld okkar !

 

Það verður hinsvegar aldrei réttað yfir Franco í þessum heimi. En ólíklegt þykir mér þó, að minning hans verði talin af umheiminum eitthvað sem ástæða sé til að halda og hafa í heiðri. Miklu frekar hygg ég að þar sé víti til að varast !

 

 


Munkurinn og Mammons-kirkjuvaldið

 


Það var til að bæta heildarhag

og hefja upp betri myndir,

að munkur einn reis með röskum brag

og reyndi að færa kirkju í lag

sem sokkin var djúpt í syndir.


En páfinn hann Leó varð ljótur á svip

og leit á sinn prestaskara.

Hann talaði um þýskan gallagrip

með götóttan málstað sem læki eins og hrip,

hann væri ekki verður svara !


En munkurinn áfram mælskur var

og mál hans til fólksins náði.

Hann yfir þá höfuð og herðar bar

sem helst voru kirkjuvaldinu þar

til varnar, en varla að ráði.


Því margir fundu í sinni sál

að síst yrði vegur dáða,

ef sannleikann ætti að bera á bál

og brenna þar Orðsins sigurmál

svo Róm mætti áfram ráða.


En kardínálar með köldum hug,

í klæðunum sínum rauðu,

vísuðu öllu sem villu á bug

sem væri líklegt að taka flug

gegn ástandi andlega dauðu.


Að halda öllu í heljarklóm

í hugsanalífi manna,

sem vildi ekki leggja rækt við Róm

var reynt - og allt fékk það harðan dóm

sem leitaði ljóssins sanna.


Og kaþólska hirðin kreddufull

hún kaus á siðbót að loka.

Í Mammons anda hún æpti á gull

og upp sig trekkti við páfans bull

í svartasta sálarhroka.


Og Róm sem mataði margan hlunk

í makræði á veldispalli,

röflaði um þennan þýska munk

sem þyrfti að stöðva með allt sitt krunk

mót aflátssölu og svalli.


Að svipta kirkjuna gulli og glans

og gera hana veika og snauða,

var sögð vera í öllu ætlun hans

því ætti dómur svo válegs manns

að birta honum bálið rauða.


Það vildi hann brenna, það leiða lið,

svo ljótt var þar hugarfarið.

Sem Húss átti hann ekki að hljóta grið,

en heldur var breytt um stöðu og svið

og líf hans af vinum varið.


Því Siðbótin steyptist fram sem flóð

og fengin var þar sú gáfa,

að skilja betur þau gildin góð

sem glæddu hjá fólki andans sjóð

gegn ráðsmennsku Rómarpáfa !


Þá hófst sú álfunnar frelsisför

sem færði í hendur þjóða,

þann andlega þrótt við aukin kjör,

sem opnaði leiðir á hærri skör

og vaxtaði viðreisn góða !




 


Meint sannleiksmiðlun fjölmiðla Vesturlanda er lygasúpa !

 

Það vita allir sem kynnt hafa sér

mannkynssöguna eins og hún gekk fyrir sig

á 20. öldinni að fjármagn það sem byggði

Hitler upp og nazismann kom alfarið frá

Vesturlöndum. Það var breska og franska

auðvaldið ásamt því bandaríska sem vakti

upp þýska ófögnuðinn !

 

Meiningin var að siga honum á Sovétríkin

og þurrka þar út kommúnismann sem vakti

auðstétt Vesturlanda meiri beyg en nokkuð

annað. Engir vestrænir sagnfræðingar hafa

viljað gramsa mikið í þeirri sögu sem

gengur út á þau skipti, enda myndi þeim

lítið borgað fyrir slíka rannsókn og

sagnfræðingar þurfa sitt lifibrauð eins og

aðrir og ekki minna en þeir !

 

Simon Sebag Montefiore og aðrir hægri-

sinnaðir sagnfræðingar Bretlands gætu

eflaust skrifað endalaust ævisögu Stalíns

og haft góða þénustu af þeirri iðju, en

sennilega myndu þeir ekki vera spenntir

fyrir að skrifa ævisögu Montague Normans

forstjóra Englandsbanka og annarra

skuggabaróna breskra stórfjármála eða um

auðhringamafíuna sem stjórnaði þeim !

 

Þegar litið er til þess, að það kostaði

tugi milljóna mannslífa að kveða nazismann

niður, hlýtur allur sá fórnarkostnaður

mannkynsins að færast skuldarmegin á

reikning hins vestræna auðvalds. En það

veldur blástakkaðri böðlaklíku Vesturlanda

sjálfsagt ekki neinum samviskukvölum, enda

voru flest hin misstu mannslíf fórnar-

kostnaður Sovétríkjanna fyrst og fremst !

 

Sagnfræðingar Vesturlanda hafa samt lítið

sinnt þeim reiknings-skilum, enda eru þeir

fyrst og fremst sérfræðingar í því hvað

kommúnisminn hefur kostað mörg mannslíf og

í slíkum tilfellum kunna þeir margföld-

unartöfluna líklega upp í þrítugasta veldi

ef ekki meira. Sú háþróaða reikningskúnst

þessara fræðinga tekur þó hvorki mið af

samúð né sannleika, enda rammpólitísk í

anda og æð !

 

En það er samt vitað og því verður ekki

neitað, að engin ein þjóð lagði meira af

mörkum til þess að sigrast á djöflaveldi

nazismans, skilgetnu afsprengi hins

vestræna auðvalds, en sovéska þjóðin, í

nafni Ráðstjórnarríkjanna undir hamri og

sigð, og það verður aldrei frá henni

tekið, alveg sama hvernig andstæðingar

sannleikans láta og reyna að aflaga allar

sögulegar staðreyndir !

 

Og nú eru Sovétríkin liðin undir lok og

þessvegna hægt að ganga út frá því sem

vísu, að sú ríkjasamsteypa verði ekki

lengur höfð fyrir sökum í styrjöldum og

milliríkjadeilum. Svo ekki verða Sovét-

ríkin sem slík héðan af völd að þriðju

heimsstyrjöldinni, en lengi var hamrað á

því að þau væru líklegust til þess, enda

yfirlýst af bandarískum áróðursmunni sem

heimsveldi hins illa !

 

En Bandaríkin eru enn að og ekkert lát á

yfirgangi þeirra og afbrotatíðni á

heimsvísu. Þau gætu þessvegna enn gert

heiminn allan að Hiróshíma-rústum í nafni

lýðræðis Vesturlanda !

 

Eins og flestir vita fremja Bandaríkin

jafnvel sína verstu glæpi í nafni góðra

gilda. Þau eru alltaf að bjarga, frelsa og

líkna með stríðsbrölti sínu um allar

jarðir. Það er löngu tímabært að því linni

!

 

Bandaríkin minna helst á kaþólsku kirkjuna

og hinn ógeðslega  Rannsóknarrétt hennar á

sínum tíma, þegar þúsundir manna voru

brenndar á báli, að sögn talsmanna

kirkjunnar, til að bjarga þeim. Fólk var

kvalið, pyntað og brennt því sjálfu til

bjargar og öllu heilbrigðu snúið á hvolf !

 

Rökin voru þar rómversk að uppruna en

síðar voru þau gerð bandarísk að öllu

inntaki. Þar réði og ræður enn allri

framvindu mála djöfulleg áætlun sem á að

tryggja að völdin séu áfram í höndum

réttra aðila. Engu skiptir hvað margir

verða drepnir til þess að svo megi áfram

verða. Heimsvaldastefna Bandaríkjanna og

ESB er að stefna öllu í bál og brand !

 

Svo hver er í hlutverki heimsveldis hins

illa í dag ? Hvaða aðili er að drekkja

heimsfriðnum í lygasúpu hvern dag ? Hvaða

aðili hefur valdið meiriháttar mengunar-

slysi í Eystrasalti með samviskulausu

hryðjuverki ?

 

Það ætti ekki að vefjast fyrir neinum

sæmilega skýrum og frelsis-hugsandi manni

að sjá það og skilja og neita að dansa með

inn í Ragnarökin ?

 

 

 

 


Þegar Stalín dó, ó, ó, ó !

 

 

Eitt versta áfall sem áróðursmiðlar

Vesturlanda urðu fyrir á 20. öldinni var

líklega dauði Stalíns. Það hafði svo stór

hluti áróðursins gegn Sovétríkjunum verið

tengdur tilvist Stalíns, að þegar hann var

allt í einu dauður, kom ekki svo lítið

tómarúm inn í dæmið. Það virðist sem

valdamenn á Vesturlöndum hafi búist við

því að Stalín yrði allra karla elstur og

væri jafnvel talinn allt að því ódauðlegur

og þyrfti jafnvel helst að vera það,

áróðursins vegna !

 

Stalín hafði nefnilega verið gerður svo

vondur, að þegar Vesturlandafólk stóð

frammi fyrir því sem staðreynd að hann

væri dauður, varð það til þess að það

taldi að Sovétríkin hlytu að verða betri

eftir dauða hans því enginn gæti þó verið

verri en hann. Það var nú ekki beint slík

útkoma í viðbrögðum sem áróðursmafían

hafði ætlast til, og líklega náði hún ekki

vopnum sínum aftur, eftir þetta skelfilega

áfall að missa Stalín svona, fyrr en undir

1960 !

 

Þetta sýnir hvað valt getur verið að

tengja stórveldadeilur eða milliríkjamál

við persónur og það jafnvel eina persónu.

En áróðursmafía Vesturlanda lærði samt

lítið til lengdar af fyrrnefndu áfalli. Nú

er það Pútín sem öllu veldur. Hann er

minkurinn í hænsnahúsi friðarins í Evrópu.

Hann er bölvaldurinn, vondi karlinn,

ófriðarandinn sjálfur ! En hvar er friður

í Evrópu ?

 

Er friður í höfuðstöðvum Nató, er friður á

Evrópuþinginu eða í æðstu klíku ESB ? Er

einhver friður í Frakklandi, Bretlandi eða

Þýskalandi ? Er ófriðurinn í Úkraínu ekki

fæddur og alinn og reistur á legg af

ófriðarmafíu Nató og ESB ? Eru Þjóðverjar

sáttir við árásina á Nordstream-leiðsluna,

sem beindist líka að þeim ?

 

Máttu Þjóðverjar ekki búa í haginn fyrir

orkuþörf sína með hagstæðum viðskiptum við

Rússland ? Var sjálfstæði þeirra ekki

meira virt en það af Bandaríkjamönnum og

Norðmönnum ? Var þar ekki um að ræða árás

tveggja Natóþjóða gegn Natóþjóð ?

 

Útþensla Vestur-Evrópu-auðvaldsins til

austurs er pólitísk og hernaðarleg stefna

Nató og Evrópusambandsins. Það er alveg

ljóst hver er að herja á hvern í því dæmi.

70-80 milljarða dollara fjárfestingar í

Úkraínu fyrir stríðið segja hver hin

raunverulega innrás var. Hún kom í formi

dollarasóknar að vestan !

 

Stjórnin í Kiyv er ekkert nema

nýlendu-stjórn undir fyrirmælum frá

Brussel og Selensky er ekkert nema

strengjabrúða Nató og ESB !

 

Hversu mikið sem hann er faðmaður af

vestrænum leiðtogum, er hann ekkert nema

bölvun fyrir eigin þjóð. En meðan Úkranar

fást til að úthella blóði sínu fyrir

óþverraöflin í Brussel eru þau föst í

sínum yfirgangi. Það yrði annað og verra

mál ef kalla þyrfti íbúa Vestur-Evrópu á

vígvöllinn til að láta slátra sér. Þá hygg

ég að menn færu nú fyrst að sjá liðhlaup

sem eitthvað kvæði að !

 

Þegar nýlenduvaldið í Kiyv hóf að níðast á

Rússum í Austur Úkraínu og þjóðernis-

hreinsanir fóru þar af stað, gátu rússnesk

yfirvöld ekki lengur setið hjá. Þau urðu

að koma til liðs við þjóðbræður sína í

Úkraínu. Auk þess var orðin ótvíræð

hernaðar-leg nauðsyn fyrir rússneska

þjóðaröryggishagsmuni að verjast

áganginum. Rússar voru reyndar orðnir svo

langþreyttir í þessu sambandi að þeir

sögðu viðvarandi í fullri alvöru er á

hólminn var komið : ,, Við erum til í allt !“

 

Með sína 6000 kjarnorkuodda og annan

herafla eru þeir að koma sér í fulla

viðbragðsstöðu. Fleiri og fleiri

verk-smiðjur eru að komast í gagnið með

vopnaframleiðslu. Þjóðin sem framleiddi

2200 skriðdreka á mánuði á móti 500 hjá

Þjóðverjum í heimsstyrjöldinni síðari, er

að virkja sig til fullrar baráttu !

 

Og þegar Rússar fara að verja þjóð sína og

land, fer mikil flóðbylgja af stað. Engin

þjóð í heimi býr að eins djúpstæðri

föðurlands-ást og Rússar. Þeir vita til

fulls hvað þeir eiga og eru sannarlega

tilbúnir að verja það !

 

Meðan Bretar voru Bretar, sem þeir eru

ekki lengur, var sagt ,,þegar býður þjóðar

sómi þá á Bretland eina sál !“ Þessi

umsögn á hinsvegar miklu betur við Rússa í

dag og stríðið í Úkraínu er ekki stríð

Pútíns frekar en seinni heimsstyrjöldin

var stríð Stalíns !

 

Þetta er aðeins enn eitt stríðið sem

Rússar þurfa að heyja gegn ásókn

Vestur-veldanna til austurs, líklega í

sjöunda sinn, og Vesturveldin geta ekki

sigrað og þar með endurvakið gamla

arðráns-stefnu nýlendutímans. Málstaður

þeirra er nefnilega langt frá því að vera

góður og nýtur lítils stuðnings á

heimsvísu !

 

Þjóðir Asíu og Afríku vita um hvað málið

snýst og þær hatast allar við hlekki og

kúgun nýlenduböðlanna og sú saga er hreint

ekki gleymd og er stöðugt víti til

varnaðar !

 

Rússar munu í aðdraganda ófriðarins hafa

boðið Brusselvaldinu að semja um það að

Úkraína yrði viðurkennd af báðum aðilum

sem hlutlaust land, en því var neitað. Af

hverju ? Af því að Vesturveldin voru að

leggja Úkraínu undir sig með fjármálavaldi

og langt komin með það. Þar átti ekki að

vera neitt hlutlaust ríki eða sjálfstætt

ríki. Þau voru að koma sér upp plokkunar-

nýlendu eftir gamalli uppskrift !

 

Stríðið í Úkraínu snýst því ekki um neitt

sjálfstæði til handa Úkraínu því Selensky-

stjórnin er ekki sjálfstæð, hún er

handbendi Nató og ESB og það stóð aldrei

til að hún yrði neitt annað !

 

En almenningur á Vesturlöndum er mataður á

lygum í öll mál og það kemur að því að

þeim verður að æla upp og sú Nató-magapína

sem þá verður versta kvölin í umræddum löndum verður þar langtímaþraut !

 

 


Kærkomið frelsi til sjálfsmenntunar !

 


Hin akademíska einokunarstaða hefur veikst talsvert við hið mikla framboð sem býðst til hverskonar menntunar í gegnum alnetið. Menn geta nú lært í gegnum netið án þess að þurfa að fara um kúgunarfull svipugöng úrelts skólakerfis í mörg leiðindaár !

 

Þessar nýju aðstæður skapa fólki kærkomið frelsi í allri menntunarsókn og geta opnað alls kyns möguleika, fram hjá hinni þröngsýnu valdsstjórn skólanna, sem virðist löngum hafa öðru fremur byggst á yfirlætisfullu gráðuveitingakerfi án allrar tengingar við áunna reynslu og meðfædda hæfni !

 

Bill Gates hafði ekki tíma til að hanga yfir hefðbundnu skólanámi eftir reglum kerfisins. Hann stökk bara af stað í sína köllunarferð með sína náttúrulegu hæfni í veganesti. Hann hefði líklega verið frystur og slökkt á frumleika hans ef hann hefði átt að dvelja við drepandi og dauðyflislegt nám í nokkur ár !

 

Nám er þannig að það vekur kannski suma en svæfir því miður miklu fleiri. Það sem í sálinni býr og hugarfarsdjúpinu, þarf að búa við raunhæfa næringu ef vel á að fara. Það vantar allt of oft á það í þungu og svæfandi kennslufari hins akademíska andrúmslofts !

 

Því býsna oft virðast hinir hefðbundnu kennarar uppteknari af eigin þörfum og persónulegri hégómagirnd en þörfum nemenda sinna og sumir hreint ekki búnir mikilli hæfni til að upplýsa aðra. Lærdómshroki skólaðra fræðimanna er enn sem fyrr Þrándur í margri þroskagötu og sannarlega ekki neitt sem byltir þar björgum úr vegi eða færir heilbrigða þróun fram á veg !

 

Ég veit til dæmis tilfelli um það, að eðlistrúað fólk hafi farið til náms í guðfræðideild háskólans og orðið þar algjörlega viðskila við trú sína. Það hefur verið látið liggja þar yfir hnausþykkum guðfræðidoðröntum mánuðum saman, þar til sérhver trúarögn hafði verið þvegin burt úr hugsun þess og hjarta og ekkert verið eftir nema þurr og steinrunnin fræðikenning, algerlega laus við hinn lifandi boðskap kristindómsins !

 

Nokkuð oft eru slíkir doðrantar einhver samanhnoðuð fræðimennska á trúarsviðinu eftir kennarana sjálfa, jafnt steindauð að lifandi efniskrafti og guðfræðin sjálf er sem fag. Það verður því varla nokkur einstaklingur trúmaður í gegnum það að læra svokallaða guðfræði, en einhverjir kunna að verða uppþurrkaðir fræðimenn og þá líklega í því frosna fari sem fylgir oftast slíkri ferilmennsku. Niðurstaða námsins verður því í öfugu fari við tilganginn og skilst þá afturför alls kristindóms á seinni árum !

 

Rétttrúnaðarsjónarmið hafa alltaf ráðið miklu í viðhorfum þess klíkusamfélags sem myndað hefur langskólaða valdaelítu til langs tíma í flestum ríkjum Vestur-Evrópu. Nú þegar valdagrunnurinn er að gefa sig með ýmsu móti hefur verið gripið til örþrifaráða. En gamla kennaraveldið er gengið sér til húðar og virðingin fyrir því að mestu farin veg allrar veraldar út í tómið !

 

Þó er nú verið að reyna að smala fólki saman í nafni hnattrænna björgunaraðgerða gegn loftslagsvá og heimsendis-voða, undir forustumerkjum gamla prófessoraveldisins. En um leið er hugsað til þess að efla fyrra vald og halda í horfinu. Samt er nýr tími genginn í garð og fólk lætur ekki lengur segja sér hvað sem er. Það vill sjálft þreifa á og sannfærast um mál af eigin reynd !

 

Það er löngu orðið tímabært að reynsla sé metin að verðleikum. Nóg er þetta samfélag okkar búið að skaðast af langskóla-menntuðu fólki sem hefur fengið að valsa í ábyrgðarmiklum valdastöðum, en haft lítið til brunns að bera þrátt fyrir einhverja lærdómsgráðu, sem enginn skilur þó hvernig hefur fengist !

 

Margir telja að langskólanám hafi á seinni árum gengið mjög til baka að raungildi og þar séu gráðurnar oft í meira lagi innihalds-litlar eins og reyndar dæmin sanna. Við erum þannig sem sagt í mörgum tilfellum að mennta fólk án menntunar. Sjálfsmenntun fólks á frjálsum námskeiðum og í gegnum netið er því orðinn mun vænni kostur, því í gegnum það ferli kemur miklu heldur fram fólk sem þarf að sanna hæfni sína í gegnum próf reynslunnar og reynslan er jafnan ólygnust !

 

Öllu eðlilegu og heilsteyptu hugarfrelsi, frá stöðnuðum kennisetningum löngu úreltrar skólafræðslu í gegnum þröngsýnt einokunar-kerfi, ber því vissulega að fagna, því nú getur fólk af fullum vilja gengið fram í því til meiri og aðgengilegri menntunar en nokkru sinni fyrr - í anda og sannleika. Það var sannarlega kominn tími til !

 


Hagfræðin er látin stuðla að vistmorði !

 

 

 

Náttúran er eign okkar allra ! Hún þarf að

vera til svo við getum lifað í þessum

heimi og helst sem óspilltust. Það er sem

betur fer til fólk sem berst fyrir

náttúrunni og vill verja hana en það er

líka til fólk sem metur hana bara til

verðs og vill stöðugt ganga lengra og

lengra í að svipta hana þeim lífsblóma sem

hún skapar og viðheldur fyrir okkur öll

sem lifum á þessari jörð !

 

Meðal þeirra sem sjá ekki gildi

náttúrunnar og virða það einskis eru

reiknimeistarar auðvaldsins. Það er ekkert

náttúrulegt við hagfræðiformúlur og

efnahagslegar blekkingar sem þjóna

stöðugt sjónarmiðum hámarksgróða og

takmarkalausrar græðgi og vilja spilla

öllum náttúrunnar blóma af þeim sökum !

 

Þar er yfirleitt öllu hagrætt eftir vilja

hákarlamafíunnar sem stjórnar vestrænum

samfélögum og í því samhengi er hagfræðin

mikið notuð sem stýritæki til að kasta

ryki í augu almennings með lygarökum og

fölskum tölum sem iðulega eru hrein

andstæða þess sem rétt er. Hagfræðin er á

okkar tímum ákaflega vinsælt valfag meðal

háskólafólks, sem vill vera flott með

allar tölur á hreinu, þó ekki sé hægt að

treysta þar einu eða neinu !

 

,,Hagfræðin er ofmetnasta fræðigrein sem

til er“ sagði Göran Persson eitt sinn í

viðtali. ,,Í grunninn snýst þetta bara um

almenna skynsemi !“ Og almenn skynsemi er

til alls staðar meðal fólks sem lætur

skynsemina ráða í verkum sínum til sjávar

og sveita. Svo spyrja má, til hvers eru

hagfræðingar ?

 

Eru þeir til að mynda þjóðhagslega

hagkvæmir ? Fáar staðreyndir virðast mæla

með því. Menntun þeirra virðist aðallega

snúast um að hagræða tölum fyrir kerfið og

valdsstéttina og í þeim töluleik er

sannleikurinn sjaldnast mælanleg stærð.

Þegar hagfræðinni er beitt til að réttlæta

náttúrulegt niðurbrot um allan heim er

niðurstaðan því alltaf tap fyrir

heilbrigt, mannlegt samfélag !

 

Við þörfnumst náttúrunnar og þess sem hún

gefur okkur. En við þörfnumst ekki

hagfræðinga sem yfirleitt virðast vera

nýttir menntunarlega séð af

fjármagnseigendum sem gerendur, í þeim

ljóta leik að taka af okkur réttindi okkar

til heilbrigðs umhverfis og betra lífs,

með talnalygum tvöfaldra kredduvísinda !

 

Þegar einstaklingar fá ofurvöld í hendur,

sama hvar er í heiminum, er ein kúnstin í

valdaspili þeirra að falsa tölur. Og

yfirleitt hafa allir slíkir nóg af

hagfræðingum í kringum sig, til að hagræða

og stilla upp jákvæðum tölupýramídum svo

fólk haldi að allt sé í lagi. Man fólk

eftir björgunarsamtökum hagfræðinga í

hruninu mikla hérna um árið ? Nei,

auðvitað ekki, því þau voru ekki til !

 

En það voru greiningardeildir banka og

fjármálastofnana til staðar með fullt af

fólki á háu kaupi, nokkurskonar

öryggis-kerfi gegn fjármálalegri veðurvá,

en það klikkaði hinsvegar allt. Öryggið

var ekki neitt og launakostnaðurinn allur

til einskis. Hagfræðingarnir horfðu í

sólskins-gleraugun sín og sáu engin

hættumerki á hinum fjármála-fræðilega

sjóndeildarhring. Þeir voru yfirtaks

sáttir með eigin kjör og velsæld á allar

hliðar og hvað gat þá verið að ?

 

Árið 1953, þann 5. mars, lést Jósef nokkur

Stalín, en hann var einn þeirra manna sem

ofurvöld hafði sem munu hafa bitnað á

mörgum. Ófáir hagfræðingar dönsuðu eftir

fyrirmælum hans hinum megin járntjaldsins

svonefnda um hans daga og hagræddu tölum

fyrir hann. Ég tók eftir því að þann 5.

mars síðastliðinn lést Jóhannes Nordal

háaldraður, hagfræðingur sem talinn var

hafa haft býsna lengi ofurvöld í

efnahags-málum okkar Íslendinga, sem þó

hafa aldrei verið í lagi svo heitið geti !

 

Ekki er ég að segja að þessir tveir menn

hafi verið líkir, en báðir höfðu þeir svo

mikil völd um sína daga að það hálfa hefði

verið nóg og báðir kvöddu þeir 5. mars.

Hagfræðingar eru sjálfsagt að deyja á

öllum dögum ársins eins og annað fólk, sem

trúlega myndi sannast í réttum tölum, ef

aðrir hagfræðingar kæmu ekki nálægt þeim.

En hagfræðilegar lausnir virðast afar

sjaldan hafa eitthvað með það að gera að

bæta líf okkar og velferðarstig !

 

Þjóðhagsleg afkoma okkar væri eflaust mun

betri án aðkomu hagfræðinga, því í

grunninn snúast málin fyrst og fremst um

almenna skynsemi sem fyrr segir. Og leiðir

hagfræðinga og almennrar skynsemi virðast

afar sjaldan liggja samhliða í þessari

veröld okkar, enda virðast fræðin alls

ekki miðuð við það að svo sé, enda farin

að ganga út á tóman blekkingaleik að mestu !

 

Hagfræðin vinnur yfirleitt alls staðar með

auðvalds og stóriðju-öflum gegn

náttúrulegum sjónarmiðum verndar og

viðgangs og þjónar þannig sjaldnast

almannaheill. Flotta fólkið sem gengur um

með töludálkagreiningar sínar í

leður-skjalatöskum yfirlætisins er því

alls ekkert flott þegar málin eru skoðuð

ofan í kjölinn, og það sem verra er,

þjóðfélagsleg gagnsemi þess, er eins og

flestir ættu að geta skilið, afar

umdeilanleg !

 

 

 

 

 

 

 

 


Litla hnátan !

 

 

Við vitum eflaust öll af því,

sem örkum þjóðarstig,

að lítil hnáta er landi í

sem lítur stórt á sig !

 

Hún dansar út um borg og bý

og ber sig fjarska vel.

Það finnst að hennar hjarta í

er hlýðið Natóþel !

 

Hún sýnir líka galsa og glens

og gleður Stoltenberg.

Og kurrar þá : ,, Minn kæri Jens,“

svo kátt í gríð og erg !

 

Þó gengið sé nú VG valt

og vandi að hamla því.

Sú hnáta á flugi fer um allt

og faðmar Selenskí !

 

Hún er og verður okkur dýr,

það eitt er vitað mál.

Og alla tíð í öðrum gír

en ætti að ráða sál !

 

Svo flest er nú að stefna í strand

því staða mála er ljót.

Ef kveddi hnáta lítil land,

ég liti á það sem bót !

 

 

 


Íslenska ríkið er að farast úr innanskömm !

 

 

Íslenskir kjósendur eiga enga góða valkosti fyrir höndum og það er sosum engin ný staða. Margir kvarta yfir því að nú finni þeir enga á þjóðarþinginu sem hægt sé að bera eitthvert traust til og þaðan af síður í ríkisstjórninni. Þeir sem hafa orð á slíku virðast orðnir talsvert fleiri en var og er það vissulega þjóðlegt áhyggjuefni !

 

En þó er það meira áhyggjuefni, að þessi afstaða fólks er ekki einhver vitleysa, heldur byggð á nokkuð veigamiklum forsendum. Alþingi nýtur ekki mikils trausts meðal þjóðarinnar og þar er ekki við þjóðina að sakast. Þingið er einfaldlega þannig skipað að æ fleiri missa trú á getu þess til að leysa úr vandamálum samfélagsins. Það líkist æ meira einhverskonar stefnulausum innanbúðar klúbbi þar sem fólk fer í endalausa hringi !

 

Meirihluti þingsins er yfirleitt ábyrgðaraðili ríkisstjórnar-samstarfs og ótrúverðugur meirihluti þings er því ólíklegur til að fæða af sér trúverðuga ríkisstjórn. Enda sjáum við að hvorugt mengið kallar á traust meðal almennings. Þar dregur allt hvað annað niður með röfli um einhver gildislaus hégómamál sem engu skipta !

 

Ríkisstjórnin sem situr, komst á koppinn eftir síðustu kosningar, sem í heilbrigðu lýðræðisríki hefði átt að endurtaka, vegna gallaðrar framkvæmdar. Það var ekki gert sökum pólitískra hagsmuna flokksræðisafla og þar með var lýðræðislegum hreinleika valfrelsisins hent út af borðinu og varpað á dyr !

 

Sá sem fékk úrskurðarvaldið í því máli, var sagður hafa fengið feita tignarstöðu í ferilskrána fyrir vikið, og er slíkur gjörningur ekki fátítt verklag í þessu landi. Allt í kringum umræddan skollaleik undirstrikaði það, að ekki eru miklar forsendur fyrir virðingarhæfni þingsins eða ríkisstjórnarinnar og er það skömm fyrir öll þau þjóðlegu gildi sem við á hátíðisdögum teljum lýðveldi okkar til tekna og viljum upphefja, en aldrei nema þá !

 

Sumir tala um að þingið sé að verða einskonar saumaklúbbur eða snobbuð innanbúðar-samkoma sem fyrr segir, og umræða um mál þröngsýn og sjálfhverf. Flokkarnir eru allir að verða svipaðir hver öðrum og skýr stefna er hvergi sjáanleg. Þar virðist stöðugt slegið úr og í varðandi öll mál og engu að treysta. Fyrirmæli frá Brussel flæða inn í landið vegna EES svikanna og yfirvöld hér eru að verða valdalaus milliliður og þjóðinni til einskis gagns !

 

Ríkisstjórnin virðist aðeins einbeitt í einu máli. Það er að lafa út kjörtímabilið. Þá gætu sumir ráðherrarnir þessvegna sagt sig frá pólitík, enda líklega komnir með ráðherra-eftirlaun það sem þeir eiga ólifað. Þeir geta þá lifað á okkur hinum allt til endadægurs og kannski er einmitt að því stefnt í vel grunduðum framtíðarplönum forhertra ego-ista ?

 

Stöðugt færri virðast hafa trú á því að einhverjir séu heilshugar að þjóna þjóðinni í hópi þessa ráðamannaliðs, sem virðist ekki koma neinu stefnulega séð í verk, og lafir bara eins og Lúðvík kóngur við völd ? Þar líta margir Fróðárhirð falskheitanna !

 

Við þurfum ráðamenn sem standa í fætur í þjóðlegum velferðarmálum og nota okkar fé til að styrkja samfélag okkar og innviði þess. Raunverulega ráðamenn með jarðsamband við fólkið í landinu, sem liggja ekki hundflatir fyrir erlendu valdi !

 

Vegna augsýnilegs ódugnaðar ráðandi afla og slæmrar meðferðar þeirra á almannafé, er Samfylkingin að skora hátt í skoðana-könnunum. En það vita allir fyrir hvað Samfylkingin stendur. Það ætti ekki að dyljast neinum eftir atburðarás síðustu 30 ára og lengur. Hún stendur jafnt sem áður fyrir Brussel-valdið !

 

Nýr formaður hefur ýtt því máli í bili út af borðinu, en vaxi flokkurinn að styrk mun það mál fljótt verða endurvakið. Þá verður tengt við það að nýju, og ef flokkurinn verður þá kominn í stjórnaraðstöðu og jafnvel lykilstöðu þar, mun það ógna sjálfstæði okkar og öllu þjóðlegu frelsi !

 

Margir hafa lengi talið krata óþjóðlegasta hluta íslensku þjóðarinnar, og eiga þeir sem það segja oftast létt með að færa boðleg rök fyrir þeirri skoðun sinni. Sagan mótmælir heldur ekki þeirri staðhæfingu. Þvert á móti staðfestir hún hana !

 

Við þurfum umfram allt að vera á verði fyrir óþjóðlegum öflum innanlands og láta þau ekki festa okkur í fjötrum erlends valds að nýju. Síðast tók það okkur 656 ár að verða frjáls aftur og þjáningar þjóðarinnar allan þann tíma verða aldrei með tölum taldar. Fimmta herdeildin er alltaf það hættulegasta. Svikarar innan eigin raða !

 

Hugsum aðeins um sjálfstæða hagsmuni íslensku þjóðarinnar. Lærum af Færeyingum og þjóðlegri stefnu þeirra. Þeirra ráðamenn virðast vita hvað þeim ber að gera, en okkar ráðamenn eru gagnslausir sem slíkir og virðast þjóna erlendum áhrifaöflum fyrst og síðast !

 

Mættum við verða laus við þá eins fljótt og auðið verður og fara að hegða okkur í verki eins og sjálfstæðri þjóð ber að gera.

Það er ekki seinna vænna !

 

 


Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 46
  • Sl. sólarhring: 91
  • Sl. viku: 1183
  • Frá upphafi: 316869

Annað

  • Innlit í dag: 36
  • Innlit sl. viku: 883
  • Gestir í dag: 36
  • IP-tölur í dag: 36

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband