Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2021

Nokkur orð um úrslit kosninganna !

 

Kosningaúrslitin sýna svo ekki verður um villst, að íslenska þjóðin fer sína leið og stundum alveg á skjön við áróður og skoðanakannanir. Það er gott meðan fólk lætur ekki villa sig og trylla inn í eitthvað sem aðrir hanna sem veiðitæki og gildrur og felst oftast í einhverskonar misnotkun á lýðræðinu !

 

Útkoma Framsóknar í kosningunum er mjög athyglisverð og kannski er hún ekki hvað síst að þakka hófstilltri kosningabaráttu. Slagorð flokksins ,, Er ekki bara best að kjósa Framsókn “ virðist hafa slegið í gegn. Sem sagt, þegar allt annað hefur verið skoðað og þar með fengið lélegan dóm, er þá ekki bara best að kjósa Framsókn !

 

Nálgunin í þessum skilaboðum er hófstillt ábending til fólks um að halda í það sem hefur reynst þokkalega gott í gegnum árin. Og þessi ábending skilaði sér svo sannarlega. Árangurinn varð 5 nýir þingmenn og stórbætt staða hvað gengi og áhrif þessa gamla flokks snertir !

 

Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra virðist einnig vinna góðan persónulegan sigur með sínu kjöri og má líta svo á að ráðherradómur hans hafi þar með öðlast ákveðna traustsyfirlýsingu !

 

Í heild má sigur Framsóknar í þessum kosningum teljast nokkuð afgerandi og nú þarf flokkurinn að einbeita sér að því að halda því trausti sem honum hefur verið sýnt, með góðum störfum á komandi kjörtímabili. Annars getur fengið gengi flotið til baka !

 

Sjálfstæðisflokkurinn mun hafa talið sig eygja á tímabili verulegan sigur og formaðurinn var nokkuð kampakátur eftir fyrstu tölur. En það ætlaða gengi fjaraði út þegar á leið og þingmannatalan verður áfram sú sama.

 

Það hljóta að hafa verið viss vonbrigði fyrir forustu flokksins, en þegar á allt er litið mega menn þar á bæ þó kannski sæmilega við það una að ná því nokkurnveginn að halda sínu !

 

Vinstri grænir koma ekki vel út úr þessum kosningum. Það er nú venjan að þegar ætlaður vinstri flokkur slær sér saman við auðvaldsflokka í ríkisstjórn, leiðir það af sér tap fyrir hann. Hann er þá einfaldlega ekki þar sem hann ætti að vera !

 

Alþýðuflokkurinn gamli minnkaði og minnkaði vegna samstarfsins við íhaldið á sínum tíma og þurrkaðist næstum út að lokum. Ráðamenn hans voru orðnir svo hægrisinnaðir að þeir sáu ekkert annað í kortunum en slíkt samstarf. En fólk áttar sig nokkuð fljótt á því þegar menn eru ekki lengur sjálfum sér samkvæmir og Vinstri grænir voru hættir að vera það !

 

Nokkuð var hinsvegar reynt til þess að lyfta flokknum á þeim forsendum að formaðurinn væri svo vinsæll og hlaðinn trausti, en það dugði einfaldlega ekki til. Fjölmargir töldu flokkinn nefnilega á röngum samstarfsslóðum. Foringinn getur þannig verið þokkalega vinsæll þó flokkurinn sé það ekki !

 

Churchill var á miklum örlagatímum mikið til óumdeildur leiðtogi bresku þjóðarinnar, en flokkur hans vann hinsvegar ekki kosningarnar í stríðslokin þrátt fyrir vinsældir hans. Lýðræðið fer og á að fara sínar leiðir !

 

Um Viðreisn eða litla íhaldið vil ég ekki fara mörgum orðum. Þar er á ferð tækifærissinnaður flokkur og það er mín skoðun að stóra íhaldið hafi losnað við nokkra óværu þegar þessi söfnuður klauf sig frá því !

 

Sennilega kemur að því að þetta brot skili sér aftur til heimahúsanna, eins og glataði sonurinn, en þá mun stóra íhaldið bara versna sem því nemur !

 

Um Samfylkinguna er það að segja, að hún virðist aldrei ætla að öðlast tiltrú sem ætlaður ,,sameiningarflokkur alþýðu.”Flokkurinn fór af stað með nokkrum hroka í fyrstu og hélt víst að allt lægi opið fyrir honum. En sú varð ekki raunin og ekki harma ég það eins og í pottinn var búið !

 

Hin ætlaða sameiningargnoð rakst strax í byrjun siglingar sinnar á hið stórhættulega Skallasker og síðan hefur fleytan að mestu hrakist til og frá. Og enn í dag hafa vonirnar um forustuhlutverkið til vinstri ekki rætst eða líkur aukist á því að svo verði í bráð ?

 

Það virðist nefnilega margt vera í logandi óreiðu um borð, stjórnunarlega séð, enda hefur árangur flokksins ekki verið beysinn. Kannski er meinið, að félagar í Samfylkingunni virðast vera svo miklir jafnaðarmenn, að þeim sé það fullkomlega óvinnanlegt mál að koma sér upp bitastæðum foringja ?

 

Miðflokkurinn fær nokkuð hraklega útreið í þessum kosningum og má velta því fyrir sér með ýmsum hætti hversvegna hann fær ekki meira fylgi. Kannski getur hann þó að hluta til sjálfum sér um kennt !

 

Og það er svo sem alltaf tiltölulega veikur grunnur undir flokki sem byggir tilveru sína að mestu á hugmyndum eins manns. En þó má benda á það, að Sigmundur Davíð formaður er tiltölulega ungur eins og nóttin er stundum sögð vera, og kannski má segja að rödd Miðflokksins eigi sem slík fullt erindi á Alþingi og geti jafnvel verið þar þjóðvarnarleg nauðsyn !

 

Sósíalistaflokkurinn fór fram með nokkrum látum og hugðist líklega höggva stórt. Minna varð þó úr en verða átti. Eitthvað varð um vindhögg og ómarkvissan áróður, en mestu skipti að ekki tókst að vekja það traust og þá tiltrú sem þurfti til að flokkurinn næði fótfestu í lýðræðisbjarginu. Kannski vantaði fjögurra blaða Smára við stýrið !

 

Um Pírata sé ég ekki ástæðu til að segja mikið. Ég hef aldrei verið hrifinn af því fyrirbæri og held að þar sé fyrst og fremst um sértilkominn og heldur ógeðugan borgarlífsgetnað að ræða svo ekki sé meira sagt !

 

Nafnið eitt finnst mér vera úr öllu samhengi við lýðræðislegan anda. Raunverulegir píratar hafa í sögulegu samhengi lítt spilað á lýðræðislegar nótur í sínum verkefnum. Kannski hefði flokkurinn heldur átt að kenna sig við prímata !

 

Að svo mæltu læt ég staðar numið við þessa samantekt því greiningarhæfnin er auðvitað takmörkuð. Ég segi bara að síðustu - vonandi vinna verðandi þingmenn vel úr málum út frá þeirri stöðu sem kosningarnar hafa boðið upp á og hafi það jafnan í huga á kjörtímabilinu að þeir eru í vinnu hjá þjóðinni en ekki öfugt !


,,Íslensk spilling er síst betri en önnur !”

 

 

Það dylst ekki neinum Páli og Pétri

sem pretti lítur,

að íslenskur skítur er engu betri

en annar skítur !

 

Er verið að taka landið frá þjóðinni ? Einkaaðilar eru og hafa verið undanfarin ár að markaðssetja helstu perlur þjóðarinnar sér til ábata og enginn gætir hagsmuna almennings, allra síst ríkið sem virðist hafa orðið á síðari árum að sérstöku aðstöðuhreiðri græðgisfullra sérhagsmunahópa !

 

Eins virðast sveitarstjórnir hafa verið yfirteknar víða um landið af einkaaðilum sem hafa plantað sér inn á þær á þann máta, að þær virðast ekki lengur geta haldið á málum með heilbrigðum hætti. Spillingin ríður húsum hér og þar og allt of mikil völd virðast komin þar sem þau eiga ekki að vera og lýðræðið mælir ekki með !

 

Það virðist núorðið vera haft eftirlit með öllu, einkum til þess að almennir borgarar á Íslandi njóti ekki neins góðs af hlunnindum lands og sjávar. Sægreifar og landgreifar eiga að vera í sérréttinda-aðstöðu varðandi alla hluti. Þeirra skal vera hið margrómaða land tækifæranna !

 

Slíkir aðilar virðast eiga að fá að selja útlendingum landið og stinga öllum ágóða í eigin vasa. En hvar sem einhverjum mínusliðum bregður fyrir í dæminu, á þjóðin að borga þá – almenningur þessa lands !

 

Landið og landhelgin öll virðist eiga að vera undirlögð þeirri ógeðslegu valdaklíku sem þarna er á ferðinni. Þessi blóðsuguklíka virðist vera varin af kjörnum fulltrúum fólksins í bak og fyrir í öllum flokkum og hagsmunir hennar látnir ganga fyrir í öllu !

 

Hversvegna í ósköpunum kjósum við aftur og aftur óhæfa frambjóðendur á þing sem hafa lítið sem ekkert til brunns að bera ? Er það af því að ekkert annað er í boði og af hverju er þá ekkert annað í boði ?

 

Fólkið í landinu er látið borga allan kostnað sem fylgir arðráninu á því sjálfu. Þrælahald og mismunun virðist í bullandi vexti og arðránsböðlarnir sitja sem feitar blóðsugur í Reykjavík og drakúlast þar allar stundir !

 

Kolsvart andavald hins gamla kúgunarofríkis kaupmanna og stórbænda virðist komið aftur, íslenskum þjóðarhagsmunum til mestu bölvunar, eins og löngum fyrr. Það virðist eiga að vera ávinningur 100 ára sjálfstæðis okkar og nærri 80 ára lýðveldis að allt sé á kafi í spillingu !

 

Milljarðatæki eru notuð til að passa upp á það að þjóðin njóti ekki neins góðs af eigin auðlindum. Þyrlur eru látnar svífa með ströndum landsins til að tryggja það að arðránsöflin haldi sínu. Öll veiði skal þjóna þeim. Þjóðin borgar hinsvegar bensínreikninginn – að sjálfsögðu !

 

Þetta er veruleikinn í dag ! Varðhundar eru sendir út um allt með tilheyrandi kostnaði. Eftirlit kallar á eftirlit, innra eftirlit fylgist með ytra eftirliti og allt stefnir í enn eina útgáfuna af lögregluríki, þar sem allir verða undir smásjá. Er þetta virkilega það sem verða á og líðast skal ?

 

Það eru settar upp stofur þetta og hitt og safnað þar arðránsvaldi. Spillingarandi Stóra Bróðurs virðist alveg farinn að ráða kerfinu. Eftirlitsmálaráðuneytið bólgnar út með hverju árinu !

 

Það er enginn kommúnismi sem er að skapa þetta ástand. Kommúnista-valdamenn síðustu áratuga voru fæstir kommúnistar að lífssýn, bara að nafninu til. Þeir klifruðu að vísu til valda eftir stiga kommúnismans, en hefðu annars notað hvað sem var sem hentað gat þeim til þess að komast á toppinn. Þannig hafa skítmenni hegðað sér á öllum tímum !

 

Þessir svikakommúnistar lærðu af kapitalistunum og konungs og keisarasinnunum sem á undan þeim fóru, þeir lærðu að elska valdið og fórna því öllu. Þeir voru verri en hinir því þeir sviku fólkið enn verr, fólkið sem þeir þóttust alla jafna bera svo mjög fyrir brjósti !

 

Og alltaf er sama prógrammið í gangi hjá öllu svona óþverraliði, að halda fólkinu niðri, að halda gæðunum frá alþýðu manna, að sjá til þess að valdastéttin sé og verði hin sama og njóti alls – á kostnað almennings !

 

Sú breytni á sammerkt við það sem sagt var um skattpening hér fyrir nokkrum árum, af einum innvígðum klíkufélaga, sem þó var af alþýðuættum : ,,Fólkinu kemur ekkert við hvað gert er við þessa peninga !”

 


Gömlu sósíalistarnir – ,,nýju sósíalistarnir” !

 

 

Ljóst er að Sósíalistaflokkurinn gamli átti sér að flestu leyti merkilega sögu, enda var hann í raun og veru skjól og skjöldur alþýðu manna lengi vel. Forusta flokksins var lengst af í höndum manna sem voru alveg gegnheilir hugsjónamenn og brugðust aldrei í neinu. Þar byggðist ekkert á hentistefnu. Þar gengu fremstir meðal jafningja Einar Olgeirsson, Brynjólfur Bjarnason og Sigfús Sigurhjartarson !

 

Þau afrek sem þessi ágæti flokkur vann fyrir almenningshag verða hinsvegar seint eða aldrei viðurkennd innan þess sérgæskufulla samfélags sem byggt hefur verið upp í þessu landi, ekki síst á síðari árum. Enginn þarf heldur að búast við því !

 

Sú öfugþróun hefur auðvitað átt sér stað fyrir tilstyrk þeirra afla sem alltaf hafa nítt niður hugsjónir jafnaðar, félagshyggju og réttlætis og spillt öllu því sem gott er og göfugt. Það er gömul og ný sorgarsaga, en slík framvinda hefur alltaf stuðst við lægstu og ómerkilegustu hvatir og eigindir mannskepnunnar. Auðvald hefur alltaf byggst á græðgi !

 

En afrek Sósíalistaflokksins gamla lifa samt áfram í minningum fólks í ræðu og riti og meðal heilbrigðari hluta þjóðarinnar, umvafin virðingu og þakklæti. Þau munu aldrei verða þöguð í hel !

 

Og nú er kominn fram nýr flokkur sem telur sig geta komið fram í nafni sósíalismans og hugsjóna gamla flokksins. Það er nú svo, að þar er miklum arfi að lyfta og ekki mun mörgum gefið að geta axlað það hlutverk með sóma. Það er sannarlega ekki á allra færi að standa heilir undir stóru nafni !

 

En með mikilli fórnfýsi og óeigingirni má þó vafalaust enn vinna afrek og sigra fyrir alþýðu landsins, ef menn hafa styrkinn og rétta hugarfarið til þeirrar miklu baráttu sem það mun kosta !

 

En þegar ég lít yfir framboðslista þessa nýja flokks sem hér um ræðir, bregður mér heldur í brún. Í okkar litla samfélagi þekkir fólk mikið til hvers annars og ég fæ ekki annað séð en svipaðir sérgæðingar og sjá má á öðrum framboðslistum, séu víða í framboði fyrir þennan nýja flokk !

 

Ég sé ekki endilega fólk þar sem þekkt er af heilbrigðri samfélagskennd, fórnfýsi og óeigingirni. Ég sé þar fólk sem hefur sýnt sig með allt öðrum hætti. Hvað er slíkt fólk að gera í röðum sósíalista ? Veit það nokkuð fyrir hvað það stendur eða á að standa ?

 

Er kannski rétt eina ferðina enn verið að reyna að klifra veg til eiginhagsmuna og sérgæskustöðu í gegnum flokksnafn sem á sér tiltölulega hreinan skjöld og orðstír ? Það hefur svo sem áður verið gert !

 

Ég veit ekki hvað er þarna í gangi, en hef miklar efasemdir um að það sé af eins hreinum hvötum og látið er í veðri vaka. Og ég minnist þess, að enginn flokkur er betri en fólkið sem í honum er og sérgæðingar verða seint að hugsjónamönnum !

 

Ég velti því fyrir mér um tíma hvort ég ætti að styðja þá tilraun sem þarna virðist vera á ferð, en í ljósi þeirra upplýsinga sem fram eru komnar um það hverjir eru frambjóðendur flokksins, treysti ég mér ekki til að trúa því, sem manni er líklega ætlað að trúa, að þarna séu full heilindi á ferð !

 

Að mínu mati eru forsendurnar fyrir trúverðugleikanum allt of veikar til þess að það sé hægt. Nýju sósíalistarnir eru svo gjörólíkir þeim gömlu, að þeir vekja því miður enga tiltrú hjá mér og falla þar í öllum samanburði !

 

En frómt frá sagt - mikið væri það annars gott fyrir allan almannahag ef gömlu sósíalistarnir – eða jafnokar þeirra - væru komnir aftur !

 


,,Helgarmenning höfuðborgarinnar !!!”

 

 

 

Það er ekki skemmtilegt að hlusta á helgarfréttir útvarpsins um mannlífið í höfuðborginni. Nánast um hverja helgi virðast meira og minna alvarleg ofbeldistilfelli eiga sér stað. Þau gerast á götum borgarinnar, einkum í miðborginni, og eiginlega ekki síður í heimahúsum. Og það gerist á sama tíma og hávær umræða fer fram á samfélagsmiðlum gegn beitingu ofbeldis !

 

Við skulum hafa það í huga að ofbeldi er ofbeldi hvort sem það beinist gegn konum eða körlum. Þessi síendurteknu ofbeldistilfelli sýna okkur hvert stefnir. Við erum alls ekki á réttri leið. Ef fer sem horfir, verða lögreglumenn landsins líklega farnir að ganga með vélbyssur eftir áratug eða svo !

 

Að minni hyggju á sér stað mikil innræting ofbeldis í landinu. Sjónvarpsrásir dæla út ofbeldis-mettuðu efni alla daga og það er verið að nauðga, drepa og misþyrma fólki í kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og hverskonar framhaldsefni daginn út og inn. Heldur fólk að þessi stöðuga, dagskrárbundna sýnikennsla á ofbeldi hafi ekki nein áhrif ?

 

Margt af þessu efni er framleitt undir þeim formerkjum að það sé eiginlega bara verið að sýna hvernig vernda þarf samfélagið og upplýsa glæpi. Lögreglan sé að berjast við undirheimalýðinn og öll á þessi framleiðsla því að flokkast undir það að verið sé að halda uppi lögum og reglu !

 

En sorinn sem flýtur yfirleitt með svona myndefni er hinsvegar alveg yfirgengilegur og hreint ekki boðlegur sæmilega heilbrigðu fólki. Það ætti flestum að vera ljóst. Og með þessum hætti og öðrum fær ofbeldið að sístreyma inn í stofurnar okkar og valda þar sínum skaða !

 

Þegar hömlulaust áhorf á ofbeldismyndir fer saman við óhóflega áfengisneyslu manna, er mjög hætt við því að margir fari yfir mörkin. Þá geta atburðir gerst sem geta kallað á iðrun eða forherðingu eftir atvikum. Og það getur átt við um allar stundir í lífi viðkomandi fólks þar á eftir. Eyðilegging á hamingju heilla fjölskyldna getur þar orðið afleiðingin !

 

Það má alveg ganga út frá því að þau eitrunaræxli sem virðast þenjast út í mannlífi höfuðborgarinnar, muni dreifa sér út um allt landið í auknu magni á komandi árum. Það er ekki uppörvandi framtíðarsýn !

 

Einn af neðri endum skolpræsis allrar ómenningar Evrópu virðist nú meðal annars vera staðsettur í miðborg Reykjavíkur og ausa þar úr sér viðbjóðnum yfir þjóð sem var fyrir tiltölulega skömmu laus við slíka ,,fjölmenningu !”

 

 


Alveg íslenskur Erlendur !

 

 

Erlendur F. Magnússon smiður og útskurðarmeistari með meiru, varð nýlega áttræður. Hann hefur lagt gjörva hönd á margt um dagana og sitthvað kraumar enn í kolli hans með krafti sköpunargleðinnar !

 

Menn geta enn fengið að gleðjast yfir handaverkum hans á Hótel Geysi og víðar og margir muna eflaust eftir fjölbreyttum útskurði hans í Eden í Hveragerði meðan sá staður var og hét !

 

Erlendur er sonur heiðurshjónanna Magnúsar Finnbogasonar smiðs og hugvitsmanns og Laufeyjar Jakobsdóttur, ömmunnar góðu í Grjótaþorpinu. Ættargenin eru austfirsk að stofni til og standa auðvitað vel fyrir sínu !

 

Snemma á þessu ári sendi ég þessum hugmyndaríka hagleiksmanni eftirfarandi kveðju í bundnu máli.

 

Erlendur með afli og dug

áralanga glímu

hefur við sitt hugarflug

háð sem kappi í rímu.

 

Snemma varð af snörum móð

snilldar sinnar kenndur.

Fram um brattar brautir óð,

beit í skjaldarrendur.

 

Þankalagði þetta og hitt,

þyrsti í fræðslu alla.

Fann í öllu eðli sitt

eftir sköpun kalla.

 

Áfram vaxa afrek hans

yfir tímans móðu.

Líf í huga listamanns

lofar alltaf góðu.

 

Hann mun efla eigin skil,

uns hin fornu regin,

toga hann í Tröllagil

tímans hinum megin !

 

Svo bætti ég við - til frekari áherslu – utan á boðskapinn :

 

Þessi bæn er þér til handa,

þannig verði hún líka heyrð.

Lifðu heill í eðli og anda

alveg þangað til þú deyrð !

 

Þó að við lifum í arðrænandi og andstyggilegu milliliða-samfélagi, þurfti Erlendur ekki neinn millilið til að skilja kveðju þessa og þakkaði innvirðulega fyrir. Sjá mátti að austfirsku genin í honum sendu honum samstundis glampa í augu og glott á vör. Það er nefnilega engin sálarflatneskja ríkjandi í Erlendi F. Magnússyni !

 

Margt spjöllum við félagarnir er við hittumst og skreppum þá gjarnan í huganum til Orkneyja eða skosku hálandanna og veltum fyrir okkur sögusviðinu þar fyrir rúmu árþúsundi.

 

Ég held að okkur finnist báðum miklu skemmtilegra að gera slíkt, en forpokast í hundleiðinlegri framvindu samtímans !

 

Megi Erlendur F. Magnússon halda haus sem lengst í þessari vídd og fljúga þöndum vængjum sálar sinnar inn í þá næstu þegar þar að kemur !

 

 

 

 

 


Ekki er þetta uppskeran sem að var stefnt ?

 

 

Fyrir um það bil 20 árum heyrði ég til frammámanns í íþróttahreyfingunni í viðtali í ríkisútvarpinu. Umræddur maður sagði margt og mér fannst ekki íþróttamannslega talað. Hann sagði að það ætti ekki að vera að eyða fjármunum og fyrirhöfn í fólk sem aldrei myndi geta neitt !

 

Það ætti þess í stað að styðja þá sem hefðu það í sér að geta orðið afreksmenn og gera þeim kleyft að verða enn meiri afreksmenn. Í því lægju fyrst og fremst möguleikarnir til meiri árangurs og aukinna tekna, að gera vel við þá einstaklinga sem eitthvað gætu !

 

Ég stóð og hlustaði á þetta og gerði mér þegar ljóst að verið var að jarða ungmennafélagshugsjónina um ræktun lands og lýðs. Hún var greinilega ekki lengur það leiðarstef sem hún hafði verið. Ungmennafélagsandinn var ekki að tala þarna. Það var annar andi að ryðjast til valda innan íþróttahreyfingarinnar – andi Mammons, andi peningahugsunar, efnishyggju og sérgæsku !

 

Og hversvegna var svo komið ? Nú, það var búið að leggja allt samfélagið með pólitískum hætti undir óheftan kapitalisma og auðvitað hlaut íþróttahreyfingin að fylgja þar með ? Það átti að hámarka ávinninginn eða gróðann þar eins og allsstaðar annars staðar. Henda öllum aumingjum út og gera út á væntanlega afreksmenn og ekkert annað !

 

Og þannig virðist hafa verið staðið að málum síðan innan íþróttahreyfingarinnar og kannski ekki síst innan KSÍ. Nú erum við að sjá hluta af þeirri uppskeru sem þessi stefna hefur gefið af sér !

 

Við höfum sýnilega ýtt undir kapp manna til sigrandi framgangs en án siðmenningarlegra gilda og viðmiða. Við höfum alið upp afreksmenn, en því miður líka hrokagikki. Við virðumst hafa einbeitt okkur að því að skapa sérgæðinga úr tiltölulega góðum drengjum !

 

Og þegar mönnum hefur orðið á og þeir hafa gert eitthvað sem aldrei hefði átt að líðast, virðist vandinn sem skapast hefur við það, við ranga framkomu ætlaðra gulldrengja, hafa verið þaggaður niður vegna þess að afreksmenn hafa átt í hlut. Einhverjir virðast þannig hafa farið að gera út á þá stöðu að þeir væru fyrir ofan lög og rétt. Það er enganveginn ásættanlegt framgangsferli !

 

En þetta hefði aldrei gerst innan KSÍ ef samfélagið allt væri ekki gegnsýrt sama andanum. Hann datt ekki niður yfir KSÍ eitt og sér, hann hefur plantað sér um allt hið íslenska samfélag með hugarfarsbreytingu sem hefur spillt og raskað heilbrigðum gildum þess !

 

Græðgishugsun og allt of mikil peningahyggja getur eyðilagt sérhverja íþróttahugsjón og gert hana að einhverju sem hún á alls ekki að vera og snúið gildi hennar á haus. Þeir sem fylgja röngum viðmiðum geta aldrei fengið rétta útkomu úr dæminu. Mínusarnir verða fljótt allt of margir !

 

Ef krafa dagsins er siðbót innan KSÍ, verður að spyrja - hvernig í ósköpunum á knattspyrnu-sambandið eitt að halda heilbrigðum velli í óheilbrigðu samfélagi ? Hvernig á að standa að siðbót á einni smágrein heildarmeiðsins í siðbótarlausu þjóðfélagi ?

 

Er ekki staðreyndin sú, að ráðamenn eru alltaf að hygla þeim - sem þeir telja að standi sig - á kostnað annarra í þessu samfélagi okkar ?

Ein grein á sýktum stofni verður ekki tekin og læknuð og siðbætt. Það verður að lækna og siðbæta allt tréð – samfélagið allt !


Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 141
  • Sl. sólarhring: 185
  • Sl. viku: 1278
  • Frá upphafi: 316964

Annað

  • Innlit í dag: 131
  • Innlit sl. viku: 978
  • Gestir í dag: 130
  • IP-tölur í dag: 129

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband