Leita í fréttum mbl.is

HVAÐ ER SORP ?

Íslendingar hafa líklega nú til dags töluvert annað viðhorf til þess hvað sé sorp en þeir höfðu hér áður fyrr. Og kannski gildir það sama um þá sem hnöttinn byggja í víðasta skilningi. En þó er umhverfissóðaskapur vissulega mikið vandamál í veröldinni, enda ganga margir á skítugum skónum um sameiginlegt allsherjarheimili mannkynsins og slíkt ætti auðvitað hvergi að líðast. !

Í hádegisfréttum fyrir nokkrum mánuðum var greint frá því að Bandaríkjamenn hefðu áhuga á því að flytja hingað til lands sorp til urðunar á Suðurnesjum. Þarna eru að sjálfsögðu peningar í spilinu og sumir sjá möguleika á því að græða en aðrir fá bara óþef í vitin. En það undarlega er, að svo virðist sem furðu margir Suðurnesjamenn séu ekkert allt of hrifnir af slíkum sorptengslum við það sem margir töldu að hefði nánast lengi vel verið þeirra andlega föðurland.

Eins og oft vill verða í okkar örþjóðfélagi, virðist umræða varðandi sorpmál eins og annað geta býsna fljótt farið út í það að verða pólitísk þar sem hver reynir að koma höggi á annan. Og margt bendir reyndar til þess að tengslin milli pólitíkur og sorps séu svo sterk að varla sé unnt að greina þar á milli.

Og sú var tíðin að andlegt sorp streymdi inn í landið frá Bandaríkjunum í gegnum hernámsstöð þeirra hér og Suðurnesin virtust þá hin sælustu yfir því. Eitthvað virðast því viðhorfin hafa breyst í þessu tilfelli og heldur til hins betra, að ætla mætti ! En almennt talað, hafa flestir áhuga á því að losna við sorp og viljinn stendur yfirleitt til þess að koma því fyrir sem fjærst eigin landi og eigin náttúru.

Það er hreint ekki lítið sem gengur af í nútíma neyslusamfélagi og vandinn við að koma rusli fyrir fer stöðugt vaxandi. Gamla stefið „ lengi tekur sjórinn við" er löngu gengið sér til húðar því sorp og allskyns viðbjóður flýtur um öll höf í dag og líklegt er að kjarnorkuúrgangi og allskyns eiturefnum hafi víða verið sökkt í sjó í áratugi og fyrir þann mikla glæp mun mannkynið áreiðanlega fá að gjalda síðar. En svo virðist sem slíkum málum sé lítið vísað til úrlausnar hins alþjóðlega samfélags, sem þó ætti auðvitað að halda uppi vörnum fyrir lífvænlegt umhverfi okkar allra. En þar ræður hinsvegar pólitíkin ríkjum og spurningin hver eigi að borga hreinsunarkostnað svífur þar jafnan yfir óhreinum vötnum og enginn veit eða vill vita svarið við henni !

Nú er farið að flytja sorp langar leiðir til urðunar og virðist flutningskostnaður ekki skipta þar nokkru máli. Sum sveitaryfirvöld vilja ólm taka við sorpi og urða þau í sínu umdæmi og fá pening með því móti í kassann, en önnur hafa þá sýn að verða ekki ruslakistur fyrir aðra og vilja halda sínu nágrenni sem hreinustu. Hver og einn getur metið fyrir sig hvort sjónarmiðið sé heilbrigðara ?

Rætt var um það fyrir nokkru að einhverjir ábyrgir heimsborgarar tækju það verkefni að sér, að taka við eiturgasi úr hergagnabúri sýrlenska hersins og sjái um að eyða því með einhverjum hætti. Helst voru Norðmenn orðaðir við það, enda miklir hreinsunaraðilar, eins og til dæmis á makrílnum í hafinu !

Ég skil eiginlega ekkert í því að íslensk yfirvöld skuli ekki hafa hlaupið til og boðið í þann pakka ? Þarna gæti þó verið um talsverðan pening að ræða og allir vita að náttúruvæn sjónarmið þvælast yfirleitt ekki fyrir brjósti íslenskra ráðamanna. Svo erum við í hópi staðfastra þjóða og slíkar þjóðir hafa hingað til ekki veigrað sér við því að vinna skítverk fyrir heiminn, þó engir slái Bandaríkjunum við í þeim efnum og allra síst á okkar dögum. Það er nefnilega ekki til sá hornkrókur í veröldinni þar sem Bandaríkin hafa ekki unnið skítverk - í þágu heimsins, náttúrulega !

En ég var víst að tala um sorp ! Það var samt ekki að ófyrirsynju að hugurinn leitaði þá ósjálfrátt til  Bandaríkjanna, því umhverfissóðaskapur hefur löngum þótt vera þar mikill !

Þegar hvíti maðurinn kom til Norður Ameríku, voru vötnin miklu tær og hrein og full af fiski og fugla og dýralíf gjörsamlega óspillt, enda hafa engir menn gengið betur um jörðina en indíánar. En mengunin og viðbjóðurinn sem safnast hefur þar fyrir eftir tiltölulega stuttan umgengnistíma hvítra manna segir sitt um rányrkjuna og eyðingarstefnuna sem í gangi hefur verið og er gagnvart náttúrunni. Þar hefur mörgu verið fórnað og spillt fyrir stundarhagnað fárra !

Everglades-fenin á Florida eru af mörgum talin hafa verið notuð mikið til að sökkva þar efnaúrgangi og öðrum spilliefnum. Það mun þá líklega sanna sig með einhverjum illum eftirköstum í framtíðinni og þá verður varla hugsað með mikilli virðingu eða hlýju til þeirra umhverfissóða sem unnu slík hervirki gegn náttúrunni og Móður jörð til að hámarka eigin gróða !

Já, hvað er sorp ? Nú, sorp er í efnislegum skilningi allt sem spillir náttúrulegu umhverfi okkar og hnattrænum lífskostum og jafnframt allt efni sem afvegaleiðir hugarfarslegt heilbrigði okkar og knýr andlegt gildismat okkar svo langt niður að samfélagsleg átumein koma fram með þeim hætti að siðlaus holdsveiki fer að ráða öllu í sálarlífinu.

Ætli við séum nú á tímum ekki farin að nálgast nokkuð mikið þá hættulegu örlagastöðu ?

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 27
  • Sl. sólarhring: 94
  • Sl. viku: 1265
  • Frá upphafi: 317523

Annað

  • Innlit í dag: 17
  • Innlit sl. viku: 963
  • Gestir í dag: 17
  • IP-tölur í dag: 17

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband