Leita í fréttum mbl.is

Í ÖLMUSUSKJÓLI ÍHALDSINS

Ţađ hefđi einhverntíma ţótt ótrúleg spásögn, ađ Framsóknarflokkurinn ćtti eftir ađ jafna ţjónkunarmet Alţýđuflokksins sáluga viđ íhaldiđ. En ţađ hefur samt orđiđ ađ veruleika eins og allir vita.  Ţađ var vissulega dálítiđ sérstakur áfangi fyrir Framsóknarmenn ţegar ţeir náđu ţví í fyrsta skipti ađ jafnast á viđ krata í hćkju-hlutverki fyrir einherjana í Valhöll.

Fáir bjuggust nefnilega viđ ţví ađ kratar gćtu eignast fullkomna jafningja í slíkum undirlćgju-hćtti.

En allt hefur sínar skýringar. Andi Jónasar frá Hriflu er löngu horfinn frá vötnum Framsóknar. Ţar virđast menn eins og Tryggvi Ţórhallsson líka gleymdir og samvinnuhugsjónin gufuđ upp. Hugmyndafrćđin hefur veriđ umpökkuđ innan flokksins í sellofan Sjálfstćđisflokksins og stimpluđ međ ránfálkamerki frjálshyggjunnar. Leiftrandi hugsjónamenn af gerđ Hallgríms Kristinssonar ţrífast ţví ekki í Framsóknarflokknum lengur.

Flokkurinn hefur hinsvegar veriđ yfirtekinn af einkavćđingarsinnum og stóriđjupostulum sem hafa sungiđ sína sálma í takt viđ íhaldiđ. Og nú er Framsókn síst af öllu skilgreind til vinstri. Nú er ţađ miđjan sem gildir. Ţađan er hćgt ađ eiga viđskipti til beggja handa samkvćmt forskriftinni  Vegir liggja til allra átta.

En ţó Framsókn hafi löngum viljađ leggja áherslu á ađ stefnan sé og eigi ađ vera opin í báđa enda, hafđi Halldór Ásgrímsson í sinni formannstíđ  ađeins sýn til hćgri. Sjónsviđiđ til vinstri var ekkert hjá honum og ţegar litiđ er á kvótakerfis-ófögnuđinn, liggur hagsmunalega samtengingin í augum uppi. Ţađ var nefnilega ekki síst vegna tilurđar kvótakerfisins ađ Framsókn leiddist út í ţađ ađ verđa eitt međ íhaldinu.

Gömlum slagorđum stórrar sögu sóknar og sigra, hefur veriđ gjörbylt og nú hljóma ţau ţveröfugt viđ ţađ sem áđur var. Undra skjótt kom ţví ađ ţeirri stöđu ađ enginn mađur gat tjaldađ svo auđugu ímyndunarafli ađ hann gćti séđ Halldór Ásgrímsson fyrir sér ţruma á fundi hiđ frćga slagorđ Framsóknarmanna “ Allt er betra en íhaldiđ ! 

En viđ verđum líka ađ skilja ađ ástćđan fyrir breytingunni er ekki síst sú, ađ Framsókn er ekki lengur sá flokkur sem var og hét. Framsókn er ekki lengur međ 17-18 ţingmenn og verđur ţađ varla héđan af. Hámarksfylgi flokksins gćti ţó hugsanlega skilađ inn 10 ţingmönnum ef allar hundakúnstir fyrir kosningar gengu upp. Ţađ ţýđir ađ Framsókn er orđinn tiltölulega lítill flokkur og eftir nćstu kosningar fer fylgiđ trúlega, og vonandi leyfi ég mér ađ segja, vel niđur fyrir 10 ţingmenn. Hvađ ćtti ađ geta  forđađ flokknum frá ţví ? 

Hćkjuhlutverkiđ hefur alltaf hefnt sín ađ lokum !

En viđ verđum  svo sem einnig ađ skilja, ađ Framsókn hefur sennilega tekiđ ađ sér ţjónustustarf sitt viđ íhaldiđ ađ einhverju leyti vegna minnimáttarkenndar út af vaxandi smćđ sinni. Hefđi flokkurinn haft 17-18 ţingmenn vćri mun meiri slagkraftur fyrir hendi og trúlega einhver reisn til stađar.

Áriđ 1978 fóru Framsóknarmenn niđur í 12 ţingmenn og ţađ var ţá taliđ mikiđ pólitískt áfall. Núorđiđ telja Framsóknarmenn sig hinsvegar  hćstánćgđa sigurvegara međ ađ ná inn 12 mönnum. Slík er afturförin !

Og tugmilljóna-auglýsingakostnađ ţurfti svo sem til ađ ná postulatölunni, á sínum tíma, hver svo sem borgađi ţá reikninga !

Og ţó ađ Halldór hafi fengiđ ţađ fram hjá Davíđ, ađ fá ađ vera forsćtisráđherra um tíma, er ţar varla um neitt ađ rćđa sem mun koma Framsóknarflokknum á nokkurn hátt til góđa, kosningalega og sögulega séđ. Til ţess er og hefur styrkur hans í ríkisstjórninni veriđ allt of lítill. Sjálfstćđismenn eru ţar alltaf međ hin raunverulegu  völd og ráđandi stöđu. Međ eftirgjöf stólsins á sínum tíma var Davíđ trúlega ađeins ađ koma til móts viđ persónulega metnađarţörf einstaklingsins Halldórs Ásgrímssonar. Og kannski var ţađ ekkert skrítiđ ađ formađur Sjálfstćđisflokksins hafi viljađ launa áralanga dygga ţjónustu međ einhverju.

En ósköp var ţađ ţó ömurlegt í ljósi sögunnar, fyrir eftirmann Tryggva og Jónasar, ađ sitja sem forsćtisráđherra međ ţeim hćtti sem alfariđ blasti viđ öllum -  í ölmusugefnu náđarskjóli íhaldsins.

Nýr formađur Framsóknarflokksins virđist ađ ýmsu leyti skeleggur mađur og hann vill sjáanlega reyna ađ skapa sér og flokknum nýjar málaforsendur, en tiltrú almennings á málaflutningi hans virđist ţó afar lítil.

Jafnvel nafniđ Jón Sigurđsson er eitt og sér engin trygging fyrir ávinningi, ţegar stađa mála er sú ađ görótt fortíđin spillir framtíđarmöguleikunum.

Talar sitt frá týndum árum
tapađ spil,
fjötrar og bindur flokk í sárum,
feigđar til !

Rúnar Kristjánsson


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 456
  • Sl. sólarhring: 465
  • Sl. viku: 1593
  • Frá upphafi: 317279

Annađ

  • Innlit í dag: 387
  • Innlit sl. viku: 1234
  • Gestir í dag: 371
  • IP-tölur í dag: 362

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband