Leita í fréttum mbl.is

Hver er undirstaða lífsins – trúin á Guð !

Einu sinni var sagt að trúin flytti fjöll, en það var meðan fólk var ennþá til sem treysti á forsjá Guðs og leit á trúna sem lifandi taug milli Guðs og manns. Og vissulega er það undirstrikað af Kristi sjálfum í Heilagri Ritningu að hægt sé að flytja fjöll með mætti trúar. En nú á tímum virðist trú manna á Almættið ekki mikil að vöxtum og býsna margir telja sig greinilega svo menntaða og upplýsta að þeir nota hvert tækifæri til að gera lítið úr trúarlegri innlifun annarra og í þeirra augum er enginn Guð til. Hæðst er oft að trúuðu fólki og allt sem tengist guðstrú ( og góðum siðum ) er sagt vera hindurvitni og hégiljur. Slík afstaða til mála er auðvitað í fullum takti við neysluþjóðfélag nútímans og allt markaðshyggjuæðið og efnishyggjuna sem í gangi er - enda er það Mammon sem ræður !

 

Nú flytja því líklega fáir fjöll með trúarsannfæringu sinni einni saman, en Vegagerðin flytur hinsvegar björg og stóra steina með mikilli varfærni af stöðum og á staði að fyrirmælum álfasérfræðinga, sem eru að eigin sögn með tengslanet yfir í þann heim sem í grjótinu býr. Og fólk í dag, ekki síst það sem telur sig upplýst og menntað, sér ekki neitt athugavert við að trúa slíku. Það er jafnvel litið svo á að slíkt beri vitni um víðsýni og frjálsa hugsun. Og ekki þykir ástæða til að horft sé í kostnað skattpenings eða meiriháttar tilfæringa, svo tryggt sé að ekki séu styggð einhver hulin öfl sem sögð eru hefna sín ef illa sé að þeim farið !

 

Staðreyndin er auðvitað sú að svonefnd hindurvitni eiga sér ekkert minni stuðning meðal fólks í nútímanum en í liðnum tíma. Það er hlegið að heimsku manna sem sagt er að hafi forðum fest trú við stokka og steina, en í dag trúir „upplýst og menntað fólk“ á orkusteina og allskyns uppmagnaða hluti og þykist jafnvel gildismeira fyrir vikið. Og hver skyldi þá vera munurinn á fávisku fortíðarinnar og nútíðarheimskunni ? Ætli það væri mælanlegt að nokkrum mun ef út í það færi !

 

Það liggur hinsvegar fyrir að heimska fortíðarinnar er gengin yfir og ætti samkvæmt því mörg hver að vera liðin tíð, en heimska nútíðarinnar er í ráðandi stöðu og heimtar að henni sé fylgt. Sá sem stendur í gegn vondum tíðaranda og mælir honum í mót, er því oftast líklegur til að fá á baukinn fyrir það með einum eða öðrum hætti.

Fólk sem telur sig upplýst á nútímavísu vill auðvitað ekki að því sé núið um nasir að það sé í allskyns kukli og andlegu fikti, þó það í raun hafi ekki hugmynd um við hvað það er oft að fást. En meðan það sparkar í kristindóminn eins og það getur og afneitar tilvist Guðs, gleypir það við hvaða heiðingdómi sem er, bæði þeim sem skilið var við hér fyrir árþúsundi og allskonar skurðgoðadýrkun austan úr heimi. Og nú kallast það víðsýni og fordómaleysi að fást við slíkt. Nákvæm lýsing á nútímamanninum og viðhorfum hans er annars gefin í Biblíunni, í Tímóteusarbréfi II, 3. kafla, versum 1-5 og við þá umsögn þarf engu að bæta !

 

Sú kynslóð sem nú er að verða í eldri kantinum ólst upp við það að sungnir voru sálmar áður en gengið var inn í bekk í grunnskólum þess tíma, en nú má helst ekki minnast á kristindóm í skólunum. Það á víst að vera innræting af versta tagi. En kynning á flestu öðru efni þykir sjálfsögð í skólum, jafnvel þó býsna margt fljóti þar með sem seint mætti telja uppbyggilegt fyrir vaxandi kynslóð. En svokallað frjálslyndi virðist æði oft vilja ganga af öllu siðferði dauðu og gerir það iðulega - öllu samfélaginu til óþurftar !

 

Maðurinn þarfnast aga og hann hefur alltaf þarfnast aga. Þegar hann elst upp agalaus eins og helftin af ungu fólki hefur gert síðustu hálfu öldina eða svo, koma brotalamirnar fljótt í ljós. Og sá sem ekki hefur lært aga er ekki fær um að kenna öðrum aga. Þessvegna er heimurinn sem aldrei fyrr fullur af uppreisn og óhlýðni, andspyrnu gegn öllu því sem mælir réttilega með lögum og reglu.

 

Það er í sjálfu sér ekki svo erfitt mál að lesa þau tímanna tákn sem fyrir löngu hafa verið boðuð, en eitt er svo afgerandi marktæk viðmiðun hvað nútímann snertir, að hann snýr öllu við. Túlkun á gildum verður öfug við það sem áður var og allt á nú að vera eðlilegt samkvæmt alfrelsi því sem menn heimta sér til handa. Hin ævagömlu lögmál, sem hafa verið stoðkerfi samfélagsbygginganna um aldir, falla því hvert af öðru undan þeim og senn munu hvelfingar þeirra hrynja yfir okkur og fullkomna eyðilegginguna !

Bandaríski dómarinn Robert Jackson sagði eitt sinn: „ Það er ein af mótsögnum vorra daga, að mannfélag nútímans þarf að óttast menntaða manninn - fyrst og fremst !“ Ástæða þess ótta er fólgin í þeirri staðreynd, að við tökum vitsmunalegum framförum án þess að sambærilegar siðferðilegar framfarir séu með í för.

 

Babylonski andinn sem stjórnar veröldinni í dag er andi myrkurs og dauða. Við getum séð áhrif hans hvar sem er um allan heim, ef við bara höfum sálarleg augu okkar opin. Í dag eru menn að verða valdhafar víða um heim sem hefðu ekki þótt koma til álita fyrir 20-30 árum, menn sem kunna sig ekki, menn sem ausa fúkyrðum og tala eins og götustrákar, menn sem kasta sprekum á alla ófriðarelda og segjast samt ætla að tryggja frið og viðvarandi hagsæld !

Og það vantar ekki að nútíminn gleypir við blekkingum slíkra sendiboða, sem eru gerðir út af ríki myrkurs og dauða, og trúir því sem enginn heilbrigð hugsun mælir með, að framundan séu góðir tímar !

 

En blindir leiðtogar geta enga farsæld boðið og veröldin er á leið inn í meiri hörmungar en nokkur getur ímyndað sér. Þau öfl eru alfarið að tryggja sér völd og framgang sem hafa í raun þá stefnu, að tortíma heiminum og hinu villuráfandi mannkyni sem býr á þessari heillum horfnu jörð og er að dansa þar frá sér alla undirstöðu lífsins !

Eina leiðin til bjargar fyrir mannkynið er að snúa sér sem fyrst frá gullkálfinum og ganga aftur gömlu göturnar – með Guði !

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 21
  • Sl. sólarhring: 70
  • Sl. viku: 1196
  • Frá upphafi: 316795

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 889
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband