Leita í fréttum mbl.is

Bandaríkin eru á óstöđvandi niđurleiđ !

 

 

Dapurlegar eru ţćr fréttir sem berast reglulega frá Bandaríkjunum um skotárásir og fjöldamorđ í hverju ríkinu af öđru. Ţar er veriđ ađ drepa fólk á degi hverjum međ vopnum sem fylla ţar nánast öll heimili. En ţarna er sá dómur ađ ganga í verki sem bandaríska ríkiđ hefur kallađ yfir sig međ skefjalausu ofbeldi um allan heim !

 

Mér verđur oft hugsađ til Assyríu ţegar ég hugleiđi örlög Bandaríkjanna. Hernađar-legur styrkur er oft ađ mati hershöfđingja eitthvađ sem ţarf ađ sýna. Og eins og Assyría hafa Bandaríkin ekki sparađ ađ sýna herstyrk sinn. Frá 1945 hafa ţau veriđ nánast óslitiđ í stríđum, veriđ ađ tukta einhverja til sem hafa ekki veriđ nógu hlýđnir og eftirgefanlegir viđ bandarískt auđvald !

 

Assyría féll ţegar hatriđ gegn herveldinu var orđiđ ađ sameign allra annarra. Bandaríkin eru komin í ţá stöđu eđa ađ nálgast hana og dómurinn er fallinn. Ţađ er nú óyfirlýst borgarastyrjöld í landinu. Frelsisríkiđ sem eitt sinn átti ađ verđa, hefur gjörsamlega falliđ á prófinu sem skjól fyrir ofsótt fólk. Ţangađ flýđi á sínum tíma fólk frá gamla heiminum. Ţađ flýđi einrćđi, óstjórn og miskunnarlausa kúgun. Ţađ flýđi vestur og hélt ađ nýi heimurinn myndi bjarga ţví. En ţar byrjađi hiđ ofsótta fólk strax á ţví ađ svipta ţađ fólk sem fyrir var öllum mannréttindum. Hinir ofsóttu byrjuđu ţar strax á ţví ađ verđa ofsćkjendur !

 

Og nú er nýi heimurinn sem svo var kallađur, búinn ađ tileinka sér allar syndir gamla heimsins, og orđinn verri en hann ađ mörgu leyti. Ţjóđin sem kom til liđs viđ gamla heiminn í stríđsneyđ hans 1917 og 1941 er nú gangandi bölvunarađili fyrir ţann sama heim. Og hún hefur gjörfyllt bikar ódćđa sinna og er ađ gjalda fyrir alla sína syndasögu međ hliđstćđum hćtti og Assyría forđum !

 

En hvar er aumingja fólkiđ statt sem trúir enn á ameríska drauminn, mitt í öllum ofbeldisbylgjunum sem falla nú um Bandaríkin ţver og endilöng ? Ţađ hefur lengi haldiđ sig vera í paradís en finnur sig líklega senn hvađ líđur í helvíti mann-gerđra hryđjuverka. Ţađ er orđiđ svo hugvillt af lygafullu fjölmiđlakjaftćđi og blekkingarvađli, ađ ţađ virđist ekki sjá ađ draumurinn er ekki lengur til stađar og martröđ myrkranna tekin viđ í ţessu mikla ríki sem eitt sinn átti ađ verđa von heimsins !

 

Morđćđiđ í Bandaríkjunum er orđiđ yfir-gengilega skelfilegt. Jafnvel smábörn drepa systkini sín og foreldra. Andavald illskunnar er alls stađar til stađar og öll heimili eru full af drápsvopnum ţví enginn finnur sig óhultan lengur. Ríkiđ sem enn í dag sýnir sig grátt fyrir járnum hiđ ytra, er varnarlaust hiđ innra, ţví ţar er óvinurinn ţađ sjálft. Andlegt hrun ríkisins er fyrir höndum og hernađar-styrkurinn mun ţá fjara út, ţegar hann styđst ekki lengur viđ neina hugsjónalega undirstöđu !

 

Sovétríkin hrundu ţegar forustuliđiđ gekk ekki lengur fyrir neinum hugsjónum og efnahagsmálastefnan hafđi um skeiđ veriđ gjöreyđilögđ af svikurum og sérgćđingum í kerfinu. Sjálftökuliđiđ var alls stađar komiđ á fulla ferđ. Mannseđliđ verđur fljótt ofurselt spillingu ţegar hugsjónir varđa ekki veginn. Ţađ hefur sannast margsinnis á umliđnum öldum !

 

Hernađarmátturinn einn var til stađar í Sovétríkjunum í lokin en engin stjórnhćf forusta. Bandaríkin eru á sömu dauđaleiđ og árásin á Ţinghúsiđ í Washington var miklu alvarlegra mál fyrir ţau en hin nýafstađna Wagner-uppreisn í Rússlandi var fyrir ţarlend yfirvöld. Vestrćnir fjöl-miđlar halda enn í blekkingarnar, enda spenatengdir valdi sem heimtar stöđugt lygafréttir !

 

Heimurinn hefur á síđustu árum fengiđ yfir sig nóg af Bandaríkjunum, hroka ţeirra og hóflausum yfirgangi um allan heim. Framtíđarsýn fjölmargra ríkja gerir ekki ráđ fyrir frekari undirgefni viđ ţessa Assyríu nútímans og stöđugt fjölgar í ţeim hópi. New York getur ţessvegna átt fyrir sér ađ fara eins og Nínive forđum. Bandaríkin munu fara hratt niđur á nćstu árum og hin blóđuga og soramarkađa heimsvaldastefna ţeirra mun verđa ađ engu !


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 44
  • Sl. viku: 1551
  • Frá upphafi: 319624

Annađ

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 1250
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband