Leita í fréttum mbl.is

HVERS EIGA BÖRNIN AÐ GJALDA ?

 

 


Það er kunnara en frá þurfi að segja, að á síðustu árum hafa menn farið að flækja saman algildum siðalögmálum og yfirlýstum mannréttindum þannig að algjör óskapnaður hefur af því hlotist. Það virðist orðin sígild aðferð fólks sem vill koma sér á framfæri fyrir víðsýni, fordómaleysi, frjálslyndi og hvað það nú heitir, að stunda það helst að gera lítið úr heilbrigðum siðalögmálum.

Innan fjölmiðla virðast slík gildi eiga sér núorðið verjendur fáa, því allt gengur út á að þjóna kröfum tíðarandans sem stöðugt virðist verða blindari og siðvilltari.

Þau siðalögmál sem hafa alla tíð verið burðarásar eðlilegs mannfélags, eru nú sniðgengin með ýmsum hætti og jafnvel talin þröskuldar í vegi mannréttinda.

En við skulum ekki gleyma því, að heilbrigð og eðlileg siðagildi hafa ætíð verið límið í samfélagsbyggingunni og það mun sannast að þegar það vantar mun ýmislegt fara að hrynja. Þá gæti margt glatast sem fæstir vildu án vera.

Í hvaða stöðu er þjóðfélagið komið þegar afbrigðilegir minnihlutahópar  krefjast þess í nafni mannréttinda, að lífsmáti þeirra sé blessaður í bak og fyrir af öllum ?

Ekki virðist boðið upp á neitt lýðræðislegt val varðandi afstöðu, því sá sem ekki samþykkir er sagður á móti mannréttindum og fullur af mannfjandsamlegum fordómum. Uppstillingin er algjör, ber steinveggur að baki hvers og eins og aftökusveitin tilbúin með fingur á gikk !

Og nú er það meira að segja orðin aðferð sumra að flagga kærleiksboðskap Krists sem vopni í baráttu gegn eðlilegum siðagildum. Þeir sem það gera ættu að huga að því að sannur kærleikur getur aldrei orðið afbrigðilegur. Hann er það eðlilegasta af öllu eðlilegu. Sannur kærleikur ver ekki eða afsakar það sem rangt er. En hann segir við hverja brotlega sál : " Far þú og syndga ekki framar !

Kirkjuleg yfirvöld hafa tvístigið varðandi þessi mál, enda verið hart að þeim sótt. Vegna ágangsins hafa þau ekki treyst sér til að standa að málum með ótvíræðum hætti á réttum grundvelli, sem er eða á að vera Orðið. Innan vébanda kirkjunnar eru þeir líka til sem tala þannig að það mætti halda að þeir hefðu aldrei lesið Biblíuna eða vissu yfirleitt af tilvist Bókar Bókanna.

Og hugtökin sem áður voru á hreinu fyrir mannlegum skilningi, eru nú stöðugt gerð myrkari og torskildari, ekki síst fyrir börnin, sem allir segjast þó vera að vernda. Hvernig verður föður og móður hugtak skilgreint í komandi tíð, þegar kolrugluð mannréttindaumræða verður fyrir fullt og allt búin að rústa heilbrigðri fjölskyldugerð ? Hvernig eiga saklaus börnin að skilja þær flækjur sem fullorðið fólk skapar með vítaverðu og ábyrgðarlausu framferði ?

Eitt barn á föður og móður í sambúð, annað á tvo pabba í sambúð, það þriðja á tvær mömmur í sambúð, og allt á þetta að heita jafn eðlilegt og sjálfsagt. Allt kynlíf, hverju nafni sem það nefnist, á að eiga guðdómlegan rétt á sér í nafni mannréttinda og fordómaleysis. Sjá menn virkilega ekki hvert þessi stefna leiðir þjóðfélagið ?

Hún er sannarlega ekki ávísun á hreina og tæra gleði, það eitt er víst !

Það vita allir, að börn verða aðeins til með náttúrulegum hætti í gegnum samlíf karls og konu. Náttúran sjálf undirstrikar hvað eðlilegt er í þessum efnum.

Leyfum börnunum að alast upp við eðlileg skilyrði og fyllum þau ekki af rugli !

Við eigum ævagamla málshætti sem vísa á sannindi sem gengnar kynslóðir hafa numið í gegnum rök reynslunnar. " Það lærir barnið sem fyrir því er haft ", " Lengi býr að fyrstu gerð " o.s.frv.

Þegar við kennum börnunum okkar að líta á það sem er óeðlilegt sem eðlilegan hlut, erum við að leiða þau á braut ófarnaðar.

Við erum þá að flækja þau inn í nokkuð sem getur auðveldlega skapað ævilanga togstreitu í sálarlífi þeirra. Það er nefnilega innbyggður í hverja heilbrigða manneskju frá upphafi ákveðinn grundvallar skilningur á því hvað er rétt og hvað er rangt.

Þegar við brjótum gegn þeim skilningi finna börnin okkar fljótt að við erum ekki sjálfum okkur samkvæm. Þau sýna okkur nefnilega mjög snemma að þau vilja hafa hreinar línur. En við bjóðum þeim ærið oft upp á annað en hreinar línur. Þegar við gerum það, erum við að höggva til þeirra en ekki að hlífa þeim eins og okkur ber að gera.

Hugtök þurfa að vera skýr og ekki síst þegar börn eiga í hlut. Þegar föður og móður hugtakið er ekki lengur skýrt og eðlilegt eins og það var, verður það til þess að fjölskyldumyndin afskræmist og það mun leiða til siðferðilegrar veiklunar á samfélagsgerðinni, sem smám saman mun brotna niður.

Heilbrigð siðalögmál geta aldrei strítt gegn eðlilegum og réttmætum mannréttindum. Þau vernda þvert á móti heilbrigt mannlíf og hafa frá öndverðu verið til þess sett.  Svokölluð "mannréttindi" sem krefjast afnáms heilbrigðra siðalögmála, geta hinsvegar aldrei verið eðlileg. Þjóðfélag sem gengst inn á að heimila slík " mannréttindi " er komið út á braut siðleysunnar. Afleiðingar þess geta aldrei orðið góðar.

Setjum börnin okkar í forgang og hugum að framtíð þeirra með þeim hætti sem alltaf hefur verið gert - með eðlileg siðalögmál að leiðarljósi.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 136
  • Sl. sólarhring: 182
  • Sl. viku: 1272
  • Frá upphafi: 318696

Annað

  • Innlit í dag: 116
  • Innlit sl. viku: 954
  • Gestir í dag: 115
  • IP-tölur í dag: 115

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband