Leita í fréttum mbl.is

Nokkur orđ um haldreipi sérgćskunnar og rembihnútarök ranglćtisins !

 

 

Flestir Íslendingar virđast farnir ađ telja ađ allt of margt skapi hagsmuna-árekstra í okkar litla samfélagi ţó fjölbreytni sé nokkur. Mikil nauđsyn sé á ţví ađ draga saman og sameina rekstrar-einingar, víđar en bara í fyrirtćkjum sem ţurfa ađ losa sig viđ óţćgilegt fólk. Kannski er eitthvađ til í ţessu, en útfćrslan verđur líklega seint eđlileg enda áreiđanlega ekki ađ ţví stefnt !

 

Í ţví sambandi vćru ţeir sjálfsagt til sem líklega vildu skođa ţađ alvarlega hvort ekki mćtti sameina stöđu seđla-bankastjóra og stöđu forseta ASÍ. Nú hefur atburđarás síđustu ára sýnt glöggt mikil inngrip seđlabankastjóra í launabaráttu verkafólks og ţar međ vćgi hans til ţess ađ halda launum verkalýđsins niđri til ađ koma böndum á verđbólguna !

 

En eins og sumir virđast trúa og telja, skapar eiginlega ekkert verđbólgu nema laun verkafólks. Og ţađ sem meira er, enginn virđist í alvöru vera ađ berjast fyrir verkafólk. Seđlabankastjóri er ţví líklega alveg kjörinn til ađ stjórna á báđum ţessum umrćddu vígstöđvum, og áreiđanlega mun hann fćr um ađ gera ţađ - ađ sumra mati - sumum til heilla og ríflega ţađ !

 

Stađa forseta ASÍ í umrćddum efnum virđist ţó orđin miklu veikari en áđur og litlar líkur virđast á ţví ađ alţýđusamtökin komi sér saman um ţađ ađ sameinast um almennilega bitastćđan mann til lengdar í ţađ embćtti. Oftast fara ţá deilur í gang sem enda međ einhverri málamiđlun sem verđur hvorki fugl né fiskur. Og ţá fer líklega mörgum ađ líđa illa í samtökunum ţeim. Í ţví sambandi má kannski minna á hina átakanlegu sögu um embćttislegt úthald Drífu Snćdal sem forseta ASÍ !

 

Ţar sem seđlabankastjóri hefur leyft sér ađ vera međ svo mikil inngrip í launakjör verkafólks á Íslandi sem raun ber vitni og virđist telja alla hćkkun á ţeim sérlega verđbólguhvetjandi, vćri kannski lausnin sú, ađ hann tćki jafnframt ađ sér stöđu forseta ASÍ og stćđi ţar svo á bremsum varđandi almenningskjörin í landinu ?

 

Enginn hefur líklega meiri hćfni en viđkomandi mađur til ađ ţjóna međ ţeim hćtti. Ţađ ţarf nefnilega nokkuđ til. Ţađ ţarf auđvitađ mikinn sveigjanleika gagn-vart allri réttlćtishugsun og alveg sérstakan samstarfsvilja og brćđralags-anda gagnvart Samtökum atvinnulífsins, eđa ţví afli sem fólk virđist kalla núorđiđ sín á milli SA - sveitirnar !

 

Ţeir hugarfarslegu innviđir sem ţörf er á í ţessu tilfelli, virđast ađ öllu samanlögđu mjög ríflega til stađar í núverandi seđlabankastjóra, sumum vafalaust til mikils fagnađar. Glansmyndin af Íslandi ţarf ađ vera uppi viđ svo ferđamennskan dafni. Almennt verkafólk í landinu á ţví hvergi ađ sjást, ekki frekar en óhreinu börnin hennar Evu. Ţađ vćri bara til ađ skemma myndina !

 

Auđstéttin á Íslandi ţarf ţví líklega ekki ađ hafa miklar áhyggjur af stöđu sinni á međan seđlabankastjóri stendur keikur međ sitt spámannlega skegg á hagsmuna-vaktinni fyrir hana - hverja stund, - í seđla-bankanum og kannski innan tíđar hjá ASÍ ?

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 20
  • Sl. sólarhring: 292
  • Sl. viku: 1659
  • Frá upphafi: 319913

Annađ

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 1365
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband