Leita í fréttum mbl.is

Um sérstakt tímabil sjálfstćđisvöntunar og öfugheita í íslenskri pólitík !

 

 


Einstaklega ómerkilegu tímabili í pólitískri sögu ţjóđar okkar hlýtur ađ fara ađ ljúka senn hvađ líđur. Tímabili ţar sem engin manneskja í valdasessi hefur unniđ sér nokkurn eđlilegan orđstír samkvćmt ţjóđlegum, íslenskum mannskilningi !

 

Ţađ er eins og fólk, sem telur sig ţó líklega öđrum fremur boriđ til mannaforráđa, hafi falliđ nokkrar manndómströppur niđur á viđ á undanförnum árum. Ţađ er eins og viđmiđ gagnvart heilbrigđari mćlikvörđum sem áđur giltu, hafi skekkst og séu jafnvel ekki til lengur. Svo mikil er ösin orđin á grćđgis-götum mannlífsins !

 

Núverandi ríkisstjórn er ađ minni hyggju vesalmennskustjórn. Hún er ćpandi auglýsing um aumingjaskap og bakslag í öllum ţeim málaflokkum sem eiga ađ bera frjálsri og sjálfstćđri ţjóđ góđan vitnisburđ. Ţeir sem sitja í ţessari stjórn eiga aldrei eftir ađ heyra ţađ hjá neinum ađ ţeir hafi setiđ ţar til góđs.

 

Ţar hefur nánast allt veriđ gert ţjóđarhag til óţurftar og flest reynt til ađ hanga viđ völd sem lengst og geta svo endađ ferilinn međ ráđherra-eftirlaun til hinsta dags fyrir ekki neitt. Ţađ fjölgar líklega fyrrverandi ráđherrum á Kanarí innan skamms, en öllum er ţeim haldiđ uppi af íslenskum almenningi, ţó ţeir gangi ţar um eins og útblásnir frođuskúmar og ţykist líklega hetjur ţjóđar sinnar !

 

Núverandi ríkisstjórn hefur mér vitanlega aldrei stađiđ undir nafni sem slík eđa yfirleitt í lappirnar Pólitíkin í kringum hana virđist vera sođin saman á einhverjum ógeđslegum spillingarforsendum sérhagsmuna, svo mađur fćr ćluna upp í kok viđ óhreinar gerđir hennar. Lengi getur vont versnađ, segir máltćkiđ, og ţađ leynir sér ekki ađ ţannig er ferliđ !

 

Ţađ hafa margar afleitar ríkisstjórnir setiđ viđ völd á Íslandi, en ţessi sem nú óhreinkar ţar sviđiđ er ein af ţeim ömurlegustu sem trođiđ hefur veriđ upp á okkur og hún hefur, ađ mínu mati, komiđ óorđi á nafn Íslands međ ýmsum hćtti !

 

Ţessi ríkisstjórn hefur ţegar setiđ of lengi til einskis gagns. Samstarfiđ innan hennar virđist hanga saman á einhverri samtryggingar-formúlu sem langlyktar af skítlegheitum og skemmandi manndómsleysi. Ţađ verđur sannur fagnađardagur í sögu ţjóđarinnar ţegar ţetta óhćfa sjálfdćmda liđ verđur ađ hypja sig burt úr ráđherrastólunum, eftir ađ hafa setiđ ţar á einu stóru núlli frá byrjun, flestum til angurs og leiđinda !

 

Stjórnmálaforustan í landinu er orđin óţjóđleg ađ öllu leyti og sérgćskan rćđur ţar ríkjum. Ţađ virđist engin heiđarleg hugsun ţar til grundvallar einu eđa neinu. Enginn virđist í raun vera ađ vinna fyrir land og ţjóđ, allir bara ađ krafsa sér í hag, á kostnađ almannaheilla. Arđrániđ á öllum auđlindum íslensku ţjóđarinnar er komiđ í sögulegan hápunkt sem ţýđir ađ almenn velferđ er á hröđu undanhaldi í landinu. Til hvers vildum viđ stefna ađ sjálfstćđu Íslandi, ef ávextirnir áttu virkilega ađ verđa svo óţjóđlegir og úrkynjađir eins og ţeir sem viđ blasa ?

 

Íslensk yfirvöld virđast ţegar orđin ţjóđinni verra arđránsafl en Danir hefđu getađ orđiđ og ţađ er blóđugt ađ ţurfa ađ játa ţađ. Grćđgi íslenska stjórnkerfisins og sérgćskuaflavernd ţess í gegnum hiđ rangláta kvótakerfi og önnur blóđsugubatterí er löngu komin yfir öll siđleg mörk. Ríkiskerfiđ er orđiđ óíslenskt fyrirbćri og ríkisstjórnin sem situr hér ađ völdum illu heilli, virđist helst finna sér samstöđu í ţví ađ flysja niđur íslenskt sjálfstćđi og flytja ţađ í pökkum pólitískrar prettvísi til framtíđar-vistunar í ríkiskastala Evrópu-sambandsins í Brussel ?

 

Líklega felst í ţeim óskemmtilegheitum öll framtíđarsýn kötu-bjarnasigurđar sjálfstćđis-vöntunar stjórnarinnar sem nú situr og virđist sannarlega vilja snúa öllu öfugt í málum sem snúa ţyrftu rétt viđ augum allra sannra Íslendinga ?

Erum viđ endanlega hćtt viđ ađ vilja vera sjálfstćđ ţjóđ ?

 

 

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 269
  • Sl. sólarhring: 269
  • Sl. viku: 1817
  • Frá upphafi: 319890

Annađ

  • Innlit í dag: 214
  • Innlit sl. viku: 1461
  • Gestir í dag: 206
  • IP-tölur í dag: 206

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband