Leita í fréttum mbl.is

Tvöföld umferđ ţarf ađ vera í forsetakjöri !

 

 

 

Ég hef fyrir löngu komist ađ ţeirri niđurstöđu ađ viđ höfum ekkert međ embćtti forseta Íslands ađ gera. Ţađ er bara kostnađarauki fyrir ţjóđarbúiđ. Auđvelt er ađ leysa ţau verkefni sem embćttiđ á ađ ţjóna međ öđrum og einfaldari hćtti. Auk ţess ţarf ađ hćkka frambođsaldur upp í 50 ár, svo viđ séum ekki međ hrúgu af fyrrverandi forsetum á eftirlaunum. Hégómleiki á alls ekki ađ vera í persónulegu krúnugervi á íslensku ríkisfangi !

 

En ef menn eru svo langt leiddir í sýndar-mennskunni, ađ ţeir vilji halda í ţetta toppfígúrutákn, er augljóst ađ kjósa verđur í tvöfaldri umferđ, ţar sem seinni umferđin verđur milli ţeirra tveggja sem mest fylgi fengu í fyrri umferđ. Ţá ćtti ađ vera tryggt, ađ kjörinn forseti hafi alltaf meirihlutafylgi á bak viđ sig sem er nauđsyn !

 

Viđ höfum veriđ ađ kjósa forseta međ allt niđur undir 30% fylgi, sem er alls ekki bođleg niđurstađa í eđlilegum lýđ-rćđislegum skilningi. Slík útkoma gerir valdasvigrúm forsetaembćttisins allt of veikt til ađ grípa inn í ţjóđleg öryggis-mál,ef ţurfa ţykir !

 

Ţađ er opinbert leyndarmál ađ stjórn-málahyskiđ vill ekki sterkan forseta. Ţađ vill ţvert á móti laskađan forseta međ veikt umbođ frá ţjóđinni. Ţađ sést best á ţví hvernig búiđ hefur veriđ ađ ţessu embćtti allar götur frá 1944. En ef viđ ćtlum ađ dröslast međ ţetta embćtti í kostnađar farteski okkar, er eins gott ađ forsetinn geti ţá veriđ eitthvađ annađ en tuska ţegar á reynir. Hann ţarf ţví fullgilt umbođ frá ţjóđinni til ađ geta gegnt embćttinu međ sóma !

 

Stjórnmálaelítan kćrir sig áreiđanlega ekkert um tvćr umferđir í forsetakjöri. Ţađ myndi ţýđa ađ forseti myndi fá óumdeilt fylgisumbođ frá ţjóđinni. Ţađ ţýddi ţá aukna hćttu á ţví ađ fram kćmi sterkur forseti, sem léti ekki ráđskast međ sig – jafnvel gegn ţjóđarvilja. Ţá vćri forspilltum flokkavöldum sannarlega ekki skemmt !

 

Reynum nú ađ hafa hlutina eftir eđlilegum lýđrćđisreglum. Ţađ er eiginlega bara tvennt til athugunar, annarsvegar - ađ leggja embćtti forseta Íslands niđur ađ öllu leyti og hćtta hégómlegum hunda-kúnstum međ snobb og úrelt orđuţing - eđa hinsvegar - ađ gera ţetta embćtti gildandi međ alvöru kosningum sem skiluđu ţá alvöru umbođi frá ţjóđinni til forsetans !

 

Ekki er vanţörf á meira ţjóđaröryggi ţegar vankasauđirnir sem sitja viđ Austurvöll virđast helst stunda ţađ ónytjuverk ađ flytja sjálfstćđisvald okkar Íslendinga í einhverjum pakkasendingum til Brussel framhjá öllum lögformlegum línum, af fullum brotavilja !

 

Forseti Íslands ćtti međ sterku umbođi frá kjósendum ađ geta í raun veriđ sá öryggisventill fyrir ţjóđarviljann sem hann ţarf ađ vera, ekki síst gagnvart pólitískum bellibrögđum af hálfu stjórnmálaelítunnar – ef hann verđur ţá, ţegar á hólminn kemur, mađur til ţess ađ vera ţađ !


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 324
  • Sl. sólarhring: 431
  • Sl. viku: 1963
  • Frá upphafi: 320217

Annađ

  • Innlit í dag: 279
  • Innlit sl. viku: 1634
  • Gestir í dag: 273
  • IP-tölur í dag: 270

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband