Leita í fréttum mbl.is

Heimur lyga flýtur áfram ađ feigđarósi !

 

 

Nánast allar fréttaveitur og allir upp-lýsingafjölmiđlar á Vesturlöndum hafa fengiđ algjöra falleinkunn í ađkomu sinni ađ stríđinu í Úkraínu. Ţađ ţýđir ađ sannleikanum hefur veriđ ţar fullkomlega úthýst og fjórđa valdiđ hefur ţar svikiđ allan almenning ekki síđur en hin ţrjú !

 

Ţegar fyrir liggur ađ stađan er svona, ađ engu er ađ treysta, lygin í hćstu hćđum og sannleikurinn brotinn niđur í ekki neitt, hljóta býsna margir ađ spyrja sjálfa sig : ,, Á hverskonar vegi erum viđ eiginlega staddir !“

 

Ţegar áróđurslygum er dćlt út á öllum fjölmiđlum og Nató og ESB ásamt stjórninni í Kiyv semja allar fréttir ofan í frétta-stofurnar sem segjast vera sjálfstćđar, er orđiđ vandlifađ fyrir ţá sem vilja ekki búa viđ endalausar og augljósar lygamaskínur. Íslenska ríkisútvarpiđ er til dćmis orđiđ gjörfalliđ heimildardćmi í margra augum og raunar orđiđ ţjóđinni til verulegrar skammar !

 

Saga Úkraínu býr yfir mörgum hörmungum, en aldrei hefur neinn forustumađur ţeirrar sögu reynst ţjóđ sinni eins mikill ógćfumađur og núverandi forseti. Ađ standa fyrir stríđi í ţágu erlendra áhrifavalda og láta brytja niđur eigin ţjóđ, er ađeins á fćri manna sem eru gjörsamlega veruleikafirrtir og hafa alist upp viđ sjónvarpsveröld glćpsamlegrar gervimennsku !

 

Andi Stefans Bandera drottnar nú yfir stjórnvöldum í Kiyv og hann virđist ekki síđur metinn í Brussel, hjá Natótoppunum og ESB. Og sá andi er alinn af rótum fasisma og nazisma og hitlerískur ađ öllu inntaki. En sú margendurtekna tilraun Vesturlanda sem nú er í gangi, ađ brjóta Rússland undir sig, er dćmd til ađ mistakast sem fyrr !

 

Rússland er nú orđiđ öflugasta efna-hagsveldi Evrópu ţrátt fyrir allar ţvinganir Vesturlandamafíunnar og beinir nú viđskiptum sínum í ć meiri mćli til austurheims og er fariđ ađ gefa skít í öll viđskipti viđ Vestur Evrópuríkin. Ţýskaland hefur lent í kreppu fyrir vikiđ og tapađ ţeirri forustu sem ţađ hafđi í efnahagsmálum álfunnar. Bandaríkin eru talin hafa sprengt Norđurstraums-leiđslurnar sem tryggđu Ţýskalandi ódýra orku frá Rússlandi og héldu efnahagsvélum ţess í fullum gangi !

 

Ţar var ţví um ađ rćđa árás frá einu Natóríki á annađ, en enginn segir neitt ţó stofnsamningurinn hafi ţar međ veriđ ţverbrotinn. Í ţví máli hefur ţýska stjórnin ţó međ alrćmdum aumingjadómi krata lagst margflöt undir Natóklafann og hefur ţýskur undirlćgjuháttur líklega aldrei í Sögunni mćlst meiri !

 

Ţungamiđja heimsviđskiptanna hefur nú áţreifanlega fćrst til austurs og Vestur-Evrópa er ađ verđa alveg utangarđs viđ ţann meginstraum. Miklar breytingar eru ađ eiga sér stađ í heiminum, og allmörg ríki sem fylgt hafa gömlu nýlenduveldunum af gömlum ţrćlsótta síđustu áratugina, eru nú farin ađ leita sér stađfestu hjá stuđningsađilum sem ţau telja mun vćnlegri til framtíđar litiđ, og eru Rússland og Kína ţar í broddi fylkingar !

 

Gömlu Evrópuríkin eru ţannig ađ dragast illilega aftur úr og fátt verđur ţeim héđan af til bjargar. Bandaríkin eru ţegar farin ađ eiga nóg međ sig og fyrrum banda-lagsríki ţeirra týna tölunni jafnt og ţétt. Biden hlýtur ađ tapa í kosningunum í haust ef hann verđur ţá í frambođi, ţví hann er međ allt niđur um sig og veit sýnilega lítiđ sem ekkert í sinn haus. Ţađ er út af fyrir sig rétt sem Donald Trump hefur sagt, ađ Bandaríkin hafa orđiđ sér til skammar á hans vakt. En ţađ gćti nú svo sem átt viđ fleiri !

 

En hver skyldi koma til međ ađ skjótast upp á stjörnuhimininn ţar vestra í haust og taka viđ 33 trilljóna ríkisskulda-súpunni og hrikalegum viđskilnađi Bidens ? Ţađ veit svo sem enginn í dag, en ţađ gćti skipt miklu fyrir heimsfriđinn í náinni framtíđ hvernig sá mađur kemur til međ ađ taka á málum. Undirstađa heimsmálanna má ekki halda áfram ađ byggjast 99% á lygaţvćttingi ótrúlega ómerkilegra fjölmiđla sem ţjóna engu nema andskotanum !


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 73
  • Sl. sólarhring: 342
  • Sl. viku: 1712
  • Frá upphafi: 319966

Annađ

  • Innlit í dag: 61
  • Innlit sl. viku: 1416
  • Gestir í dag: 61
  • IP-tölur í dag: 61

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband