Leita í fréttum mbl.is

Nató-Ísland í kolbrúnum hasarleik viđ Rússa !

 

Nú hefur Nató-stórveldiđ Ísland svo gott sem slitiđ stjórnmálasambandi sínu viđ Rússland, sem er 1/6 hluti jarđarinnar og gefiđ skít í öll viđskipti viđ umrćtt ríki. Ţetta er gert ţó viđskipti ríkjanna hafi jafnan veriđ Íslendingum mjög hagstćđ og virđist manni glóran í ţessum gjörningi vera vćgast sagt mjög kolbrún !

 

Nú um stundir virđast Bandaríkin og Rússland hreint ekki stór ríki, samanboriđ viđ Ísland, hiđ nýja veldi í stórpólitík heimsins. Íslenska stelpustríđspólitíkin virđist ráđa öllu í ríkisstjórn og á ţingi en auđvitađ er fariđ eftir fyrirmćlum ađ utan ţó stórveldislega sé látiđ. En manna-lćtin eru ţví miđur öll fengin ađ láni og koma líklega til međ ađ kosta okkur sitt í eftirtímanum !

 

Hinar viđamiklu viđskiptaţvinganir íslenska efnahagsveldisins gegn Rússlandi hljóta ţannig ađ hafa mikiđ ađ segja ţegar til framtíđar er litiđ, enda alveg byggđar á stórmennskubrjálćđi sem orsakast af minnimáttarkennd, en ţađ er ein hćttu-legasta uppskriftarblanda sem til er fyrir mistök af versta tagi !

 

Í framtíđinni á íslenska Nató-stórveldiđ ţví líklega eftir ađ loka á viđskipti viđ fleiri ríki, ef ţau hegđa sér ekki rétt eftir formúlum frá Reykjavík. Og svo verđur kannski til á komandi árum undarlega einangrađ ríkisfyrirbćri á ysta hjara, nokkurskonar eylenda hins íslenska arnar. Hugsanlega enn eitt fasistaríkiđ í Evrópu. ,,Miklir menn erum viđ Hrólfur minn“ var einu sinni sagt og ennfremur ,,fíflinu skal á forađiđ etja !“

 

Nú halda menn líklega ađ sér höndum í ađalstöđvum Nató og bíđa eftir nćsta leik frá ríkinu sem hefur stađsett sig í fremstu víglínu fyrir hagsmuni hernađar-bandalagsins. Utanríkisráđherra fer ţví sennilega ekki úr stríđsgallanum sínum á nćstunni, enda sjálfsagt ýmsar kjass-ferđir fyrirhugađar til ađ hressa upp á liđsandann !

 

Leiđin til friđar í deilumálum stórvelda heimsins sýnist eiga ađ vera sú ađ ögra stöđugt ríki sem á vopnabúr sem eytt gćti allri veröldinni, ekki bara einu sinni, heldur margsinnis. Einhvern-veginn finnst ţó mörgum ađ slíkt sé hćpin friđarleiđ, en stelpurnar í stjórnarráđinu í Reykjavík og gamalmenniđ í Hvíta húsinu í Vostúni hugsa ţetta greinilega eitthvađ öđruvísi í valdagleđi sinni, líklega samfara ćsku-órum og elliglöpum !

 

Og ţađ er aldrei ađ vita nema nú takist ţađ sem Hitler reyndi 1941 međ sókninni í austur, ţví hann hafđi náttúrulega ekki Ísland međ sér nema ađ mjög litlum hluta. Ţađ hefđi víst ţurft töluvert fleiri unga menn međ hreinar hugsanir hérlendis á ţeim árum svo dćmiđ gćti gengiđ upp og sigur unnist á slavneska undirmáls-fólkinu og ţví fór sem fór !

 

Og ćtli ţađ sé ekki búiđ ađ heilaţvo svona um 80% af íbúum Vesturlanda og ljúga ţá svo fulla í gegnum Nato fjölmiđlana ađ sumir halda ađ heimurinn verđi góđur ef einn mađur í Moskvu verđi einhvernveginn fluttur yfir á annađ tilverustig !

 

En 6000 kjarnaoddar Rússlands og annar háţróađur vopnabúnađur í ţeirra fórum munu sennilega gegna sínum hlutverkum gegn hinni stöđugu ásćlni ađ vestan sem oftast er fylgt eftir ţađan međ hitlerískum og göbbelskum áróđurs-ađferđum. Lygin er ţar í hásćti hrokans sem fyrr og ekkert lát á yfirgengilegum falsfréttum !

 

Úkraína er sögđ í stórsókn eins og Finnar forđum, og fullyrt er ađ barist verđi til síđasta manns samkvćmt hörđustu dagskipun, eins og löngum er sagt af ţeim forustu-mönnum sem ekki eru á vígvöllunum sjálfir og ţannig í engri hćttu. En öđrum er miskunnarlaust att fram og ţeir eiga ađ deyja, jafnvel án ţess ađ hafa hugmynd um hversvegna og fyrir hvađ !

 

En bíđiđ viđ – íslenski herinn hlýtur ađ vera á teikniborđinu og ţegar utanríkis-ráđherra sendir hann austur, sem hlýtur eiginlega ađ verđa gert, verđa trúlega engin vettlingatök viđhöfđ af blöff stórveldinu viđ ysta haf. Ungir menn međ hreinar hugsanir verđa ţá kannski orđnir nógu margir til stađar á Íslandi til ađ tryggja sigur fyrir Nató !

 

Ţegar á allt er litiđ, er ţađ eiginlega furđulegt ađ heimurinn skuli enn vera til, miđađ viđ ţađ hve miklir vitleysingar eru oftast viđ völd í helstu ríkjunum og ţađ auđvitađ ađ Nató Íslandi međtöldu !

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 20
  • Sl. sólarhring: 292
  • Sl. viku: 1659
  • Frá upphafi: 319913

Annađ

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 1365
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband