Leita í fréttum mbl.is

Spáð í undarlegheit mannseðlisins !

 

 

Íslendingar hafa oft þótt dálítið undarlegir þegar hugað hefur verið að þjóðlegri afstöðu þeirra í gegnum tíðina. Mörg dæmi eru fyrir því að menn sem eltu Norðmenn, Dani, Breta og síðast Kana, og urðu ríkir í gegnum þá þjónustusemi gagnvart útlendingunum, urðu svo sumir hverjir á efri árum allra Íslendinga þjóðlegastir. Þarna er líklega nokkuð verðugt pælingarefni fyrir sálfræðinga, um það hvernig landinn getur snúist í andstæðu sína gagnvart því hvernig hann lét áður, þegar aðstæður leyfa það, og menn þykjast þá líklega hafa efni á því að bæta laskaða ímynd !

 

Sumir myndu nú segja að í gegnum þetta kæmi íslenski tækifærissinninn best í ljós og víst hefur það sýnt sig í mörgu, en það er hinsvegar ekki sérlega mannlega uppbyggjandi þegar menn bregða sér nánast í allra kvikinda líki og þykjast samt alls staðar vera sannir í sinni túlkun og öðrum jafnvel hin besta fyrirmynd !

 

Sumir slá sér upp í heimabyggð sinni eftir vafasaman feril og verða kannski allt í einu allra manna hollastir og trúastir þeim gildum sem þeir áður virtust hafa gefið lítið fyrir. Þeir kaupa kannski fylgispekt fyrir peninga og vilja fá sögulega umsögn um gildi sitt og gagn, en einhvernveginn virðist allt slíkt vera eins og næsti bær við falsaða pappíra. Auðvitað er alltaf til í dæminu að menn breytist með tímanum, og kannski einkum þegar fer að styttast til grafarinnar, en oft er eins og menn séu bara að kaupa sér vinsældir, en slík viðskipti reynast oft haldlítil til lengdar !

 

Ég hef stundum hugsað um það, að Grímur Thomsen eyddi stórum hluta ævi sinnar í það að vera embættismaður í danska ríkiskerfinu og komst þar að sögn til hárra metorða. Það hlóðust á hann heiðursmerki og hann virtist vera ákaflega mikið fyrir orður og titla lengi framan af ævi. Svo kom hann heim og fór þá að yrkja talsvert mikið. Og um hvað orti hann þá helst ?

 

Hann orti um arfinn frá forfeðrunum, íslenskar fornhetjur, sægarpa og krafta-menn, þjóðlegar dyggðir og íslenska andann sem aldrei megi láta kæfa sig fyrir erlendum ágangi ! Þannig var Grímur Thomsen í sínum kveðskap eða Grímur Þorgrímsson eins og hann hét upp á íslensku. Ferill hans flaggar þarna með tveimur mönnum sem virðast í öllu andstæðir persónuleikar. Hvor þeirra var sannari ? Hvernig bar og ber að skilja manninn ?

 

Grímur þótti frekar stirðkvæður en mörg kvæði hans eru afar sterk tjáning og urðu þjóðinni mjög kær. Einkum vegna þess að þau þóttu svo þjóðleg og undirstrikuðu að við Íslendingar þyrftum ekki að skríða fyrir neinum. Við værum líka menn þó við værum ekki af milljónaþjóð. Grímur túlkaði þannig hinn frjálsa íslenska anda með sterkum hætti og naut víða vinsælda lengi vel sem rammíslenskt skáld !

 

En þrátt fyrir að Grímur legði áherslu á slík atriði, þótti hann yfirleitt heldur óþýður í samskiptum við aðra eftir að hann kom heim og einkum almúgafólk. Helst var hann upprifinn við útlendinga sem komu til að heimsækja hann að Bessastöðum, skipherra af frönskum og enskum herskipum og fleiri höfðingja af líku tagi og þá var skálað í kampavíni og spjallað á tungum stórþjóðanna. Þá var Grímur, glansnúmerið úr stjórnkerfi Dana, á sviðinu á ný og líklega hrókur alls fagnaðar og með sín heiðursmerki uppi við að þeirra sýn sem frugtuðu fyrir þeim !

 

Maðurinn er undarlegt fyrirbæri. Sumir virðast þannig gerðir að það er aldrei hægt að þekkja þá með vissu, jafnvel ekki eftir langtíma kynni. Og það segir sig sjálft, að í gegnum slík kynni skapast ekkert traust. Menn eru alltaf á verði gagnvart slíkum aðilum og vita aldrei upp á hverju þeir kunna að taka. Og þegar slík ólíkindatól fara á þjónustusamninga hjá erlendum aðilum virðast þau hreint og beint fara í margföldun sinna ólíkinda-heita og ekki tekur þá betra við. Það er nú ekki hægt að telja að þar sé um mannlegar framfarir að ræða !

 

Margir ,,íslenskir útlendingar“ á höfuð-borgarsvæðinu hafa á síðustu árum kynnt sig sem slíka manntegund allnokkuð fyrir landanum, og flestir jafnvel fengið sér undirmenn af líkum anda út um lands-byggðina, sem endurspegla þá hrokann sem þeim hefur lærst að búa við og tileinka sér. ,,Hefur hver til síns ágætis nokkuð“ hefur löngum verið sagt og reyndar í vafasamri meiningu, því staðreynd veruleikans er sú, að í mörgum og jafnvel flestum tilfellum virðist svo ekki vera. Ágæti sumra virðist nefnilega bara greint í fölsku líkingamáli sem hefur enga sannfræðilega undirstöðu !


Pælt í málum deyjandi veraldar !

 

 

 

Það er alkunnugt að Trump forseta langar mjög mikið til að fá friðarverðlaun Nóbels. Jafnvel þótt þau verðlaun þyki ekki sérlega merkileg í dag miðað við það sem áður var og eftir alla misnotkunina á þeim, virðast forréttindastéttir á Vestur-löndum enn þeirrar skoðunar að þessi verðlaun hafi eitthvert gildi og Trump er náttúrulega innan þeirra raða. En líkurnar á því að Trump fái þessi verðlaun, þetta leikfang í safnið sitt, fara að flestra mati þverrandi, enda eru Bandaríkjamenn miklu vanari því að starta stríðum en að stöðva þau !

 

Þó hafa nokkrir fræðimenn og pólitískir hugsuðir bent á það að Trump hafi manna mest unnið að því – reyndar öfugt við ætlun sína - að styrkja Brics samtökin og þannig aukið líkur á friðsamlegum lausnum í samskiptum milli þjóða innan þeirra samtaka. Hann hefur þannig haft mikil áhrif á að Kínverjar og Indverjar hafa leyst úr erfiðum samskiptamálum og víða hefur yfirgangsstefna Trumps í tollamálum og mörgu öðru leitt til þess að samstaða Brics-ríkjanna hefur líklega orðið miklu meiri en ella fyrir vikið og víst ætti það að vera til ávinnings fyrir nýja og betri heimsskipan, ef framhald mála leyfir eitthvað slíkt !

 

Í því sambandi væri kannski ástæða til að sæma Trump fyrrnefndum verðlaunum, enda væri það áreiðanlega ekki það versta sem hefur verið gert varðandi útdeilingu þeirra, eftir alla þá hrikalegu spillingu. Barack Obama fékk þessi verðlaun nú á sínum tíma fyrir ódrýgðar dáðir, sem voru svo aldrei af höndum leystar, enda var hann sem fanga-búðastjóri í Guantanamo í erfiðri stöðu til dáðaverka. Sagt er líka að norski pólitíkusinn Thorbjörn Jagland hafi prívat og persónulega ráðið útnefningu hans til verðlaunanna og gæti ég alveg trúað því að svo hafi verið !

 

Stundum verður persónudýrkunin svo mikil hjá mönnum, að hún fer fram úr sér og verður þá stundum alveg viðskila við mannlega skynsemi og svo eru líka til menn sem hafa aldrei haft mikil tengsl við mannlega skynsemi og jafnvel talið sér það til tekna. Nokkuð margir slíkir virðast vera í stjórnkerfi Bandaríkjanna og tiltölulega háttsettir, svo ekki sé meira sagt. Síðar mun það svo vafalaust verða afhjúpað, að Obama átti hreint ekki svo lítinn þátt í valdaráninu í Kiyv 2014 sem leitt hefur til þeirra hörmunga sem síðan hafa gerst á þeim slóðum !

 

Svo Obama var nú ekki sérlega merkilegur forseti, þó sumir hafi viljað færa honum allt upp í hendurnar og jafnvel verðlauna hann fyrir afrek sem hann aldrei drýgði. En það var þegar komið fram á valdaárum hans, að veldi Bandaríkjanna var ekki lengur það sem það hafði verið og hann hefði því glóru sinnar vegna átt að tala varlegar en hann stundum gerði og sú óvarkárni kemur nú í bakið á honum og eins þeim sem hylltu hann mest !

 

 

Síðan Trump tók við húsbóndavöldum í Hvíta húsinu, hefur hann ekki unnið neina sigra, nema þá helst á eigin banda-mönnum. Þeir eru því líka vanastir að lúffa fyrir Könum og kunna varla annað. Síðustu 80 árin hafa kennt ríkjum Vestur-Evrópu að hlýða bandaríska valdinu skilyrðislaust, jafnvel þó topphaukurinn þar stundi það helst núorðið að rass-skella þau hvert með öðru !

 

Það er því einna líklegast að Bandaríkin taki sér landsvæði sem áður voru til-heyrandi langtíma fylgiríkjum þeirra og auðvitað verða rökin fyrir því þau, að Bandaríkin séu hvort sem er að verja allt galaríið, svo það sé best að þau hafi á sínum diski sem mest af bitanum. Annars kemur þetta líklega allt í ljós á síðustu metrunum fyrir kjarnorkustyrjöldina, sem býsna margir virðast vera að reyna að hleypa af stokkunum – mannkyninu líklega til bjargar !!!


Íslendingar í hermannaleik !

 

 

Einhverjar umsagnir eru í gangi um að íslenskir einstaklingar séu að berjast í Úkraínu. Ég vona samt að það sé ekki rétt. Það getur svo sem vel verið að einhverjir Íslendingar séu búnir að horfa svo mikið á tölvuleiki og annað síbyljukennt stríðsæsingaefni, að þeir séu orðnir eitthvað veruleikafirrtir, en þeir geta varla verið margir og varla svo að þeir æði til annarra landa til að láta drepa sig !

 

Ég hélt að við Íslendingar vissum flestir að friðurinn er bestur, þó hinar Norður-landaþjóðirnar séu komnar inn á það að stríð sé betri valkostur, eins og mér skilst að Mette hin danska hafi viðhaft í orðum fyrir skömmu. Hún hefur þá afstöðu þá væntanlega í huga ef danski herinn þarf að verja Grænland í komandi tíð fyrir Bandaríkjamönnum !

 

Það er eiginlega hlægilegt að sjá gamla innanbúðarmenn hjá Nató kallaða sem hlutlausa umsagnaraðila um stríðið í Úkraínu. Slíkur fávitaháttur í fjölmiðlum ætti ekki að sjást hérlendis, en hér er dómgreind afar lítið viðhöfð í fréttaflutningi, því miður. Lygar eru því daglegt brauð. Svo eru dregnir fram í viðtölum eldri menn sem fóru á árum áður í hermannaleik í norska hernum og urðu þar liðsforingjar, fengu að vera í einkennisbúningum og skemmta eigin egói og sýndarmennsku fram og aftur. Síðan eru þeir svo sagðir sérfræðingar og álitsgjafar og að því viðbættu afskaplega hlutlausir. Ég gef nú lítið fyrir allar umsagnir frá slíkum gervifuglum og þeir eru bara hlægilegir í mínum augum !

 

Það liggur hinsvegar ljóst fyrir og þarf enga pólitíska pótentáta til að nefna það, að sú styrjöld sem jafnvel ólíklegustu aðilar eru að reyna að magna upp þessa dagana, mun kveikja í öllum heiminum. Það sleppur enginn við þau Ragnarök. Hver einasta stórborg stórþjóðanna fær eldflaugaregnið yfir sig og þar með ótaldar kjarnorkusprengjur. Þannig er búið að búa um hnútana í austri og vestri og það þarf bara að ýta á hnappana sem ræsa vítis-vopnin !

 

Það er nefnilega löngu búið að marka skotstefnuna og skotmörkin. Þetta vita allir sem glóru hafa, nema kannski þeir sem eru í hermannaleik og vilja vera það áfram. Slíkir menn sem elska náttúrulega einkennisbúninga og heiðursmerki og allt þotu og tindátadraslið, halda víst að stríð sé flott og skemmtilegt. Það eigi bara að vera æskilegur valkostur í milli-ríkjasamskiptum eins og Mette hin danska og aðrir Natóleiðtogar virðast búnir að sannfæra sig um eða aðrir búnir að sannfæra þá um !

 

En reyndin verður önnur. Það er hinn grimmasti háskaleikur í gangi. Skelfileg framvinda sem ógnar okkur öllum. Mette hin danska á kannski eftir að sjá alla sína kæru Kaupmannahöfn í rústum áður en þeim leik lýkur og til hvers var þá verið að endurbyggja kauphöllina þar og Notre Dame í París ?

 

Ætli þeir næstum fimmtíu milljarðar dollara sem virðast nú týndir af stolnum rússneskum innistæðum í Frakklandi hafi ekki meðal annars verið notaðir til að endurbyggja kirkjuna og lappa upp á ríkisfjármálin, sem þó eru í algerum ólestri hjá Macron greyinu og verða það líkast til áfram ? Hann er enginn maður í djobbið sem hann slysaðist í !

 

Afleiðingin af því að 300 milljörðum dollara innistæðum Rússa var stolið, hefur nú skilað sér í því að erlendir aðilar treysta ekki lengur Vesturlöndum til að geyma fyrir sig fé. Það er ekki lagt mikið inn núorðið í Belgíu, Bretlandi, Frakk-landi og annars staðar þar sem var rífandi gangur á slíkum viðskiptum fyrir ekki svo löngu. Og traust sem hefur verið eyðilagt kemur ekki svo glatt aftur. Allir vilja geta treyst þeim sem geyma og ávaxta peningana þeirra !

 

Vesturlönd eru búin að vera sem slíkur geymslustaður og það kemur og mun koma illa niður á þeim sjálfum. Peningavelta heimsins færist líklega á næstu árum til Asíuríkja, enda er stöðugt verið að byggja þar undir traust varðandi slíkt, vegna breyttrar heimskipunar !

 

Að lokum vil ég segja. - Eitt kann kannski að vera gott við styrjöldina sem verið er að hrinda af stað, að minnsta kosti í súrrealísku samhengi. Það er bara það, að mannkynið þarf í framhaldinu ekki að hafa áhyggjur af frekari styrjöldum !

 

Þessi styrjöld verður alveg einfær um að ganga frá okkur öllum og þegar maðurinn verður ekki lengur til staðar með sinn eilífa ófrið, verður loksins friður í veröldinni. Það er að segja friður í steindauðum og eyðilögðum heimi !


Er leiðandi fólk að þjóna þjóð sinni heilshugar ?

 

 

Sú spurning hefur sótt á mig sem og aðra, hvort forustufólk í íslenskri pólitík yfir línuna, sé í raun fært um að axla sitt hlutverk með eðlilegum hætti í þágu þjóðarheilla ? Þá er einfaldlega átt við það hvort þetta fólk hafi þá hæfni til að bera, að geta tekið ábyrgð á lífs-hagsmunum þjóðarinnar í nútíð og til framtíðar ?

 

Ég hef nefnilega sívaxandi efasemdir um getu þessara aðila til að skila þessu höfuðverkefni sínu með ásættanlegum hætti. Ekkert forustufólk virðist hafa komið fram í íslenskri pólitík um mjög langt skeið, sem getur talist yfir meðallag að hæfni á viðkomandi sviði. Við eigum til dæmis enga stjórnmálamenn sem hafa látið af störfum vegna aldurs, með orðstír sem er talinn óumdeildur og almennt viðurkenndur sem gildismikill í þjóðlegum skilningi !

 

Slíkir einstaklingar virðast bara ekki til. Hinn norski Einar Gerhardsen var kallaður Landsfaðirinn á sínum tíma sem forsætisráðherra, og það var almennt litið svo á, af miklum meirihluta norsku þjóðarinnar, að hann stæði undir því virðingarheiti. Svo spyrja mætti : Hvar er íslenski Landsfaðirinn ? Hann hefur aldrei verið til. Sennilega er dýrkunin á Jóni Sigurðssyni, sem margfaldaðist eftir dauða hans, komin mikið til af því að enginn hefur komið fram sem jafnast á við hann á stjórnmálasviðinu og hann lést fyrir næstum 150 árum !

 

Það er að vísu vel þekkt staðreynd á Íslandi að stjórnmálaforingjum hafi verið lyft hér hátt af eigin flokkum, en aðeins með þeim hætti. Og sú lyfting er ekki mikils virði eða merkileg í þeim skilningi sem hér er til umfjöllunar hvað almennt viðhorf snertir. Enginn íslenskur stjórnmálaleiðtogi hefur áunnið sér óumdeilda virðingu allrar þjóðarinnar, fyrir að sýna sérstaka umhyggju fyrir þjóðarhag – fyrir almannaheill, hér í þessu landi !

 

Enda hafa þeir pólitísku flokksforingjar sem hér hefur lengstum borið mest á, miklu frekar verið umhyggjusamir forsjármenn sérhagsmuna, eins og allar vendingar í íslensku valdasamfélagi hafa vitnað skýrt um alla tíð. Sumir þeirra hafa búið við, - allt að því - persónudýrkun í eigin flokkum, og kannski sérstaklega einn þeirra, en það varð á engan hátt þjóðinni í heildarskilningi til nokkurs ávinnings. Það varð líka ljóst mjög snemma á valdaferli þess manns að hann var enginn fulltrúi heildarhagsmuna !

 

Nei, við Íslendingar höfum yfirleitt ekki átt nein sérstök stórmenni í pólitískum skilningi, nema þá kannski Jón Sigurðsson, og ekki hafa vonir um slíka hæfnis-hvalreka á íslenskum stjórnmálafjörum vænkast hin síðari ár. Þar virðast bara hafa verið meðalskussar á ferð eða gagnslítið vogrek á þeim fjörum - frá sjónarmiði þjóðar-heilla. Og af hverju er útkoman slík ? Af hverju hjakkar þetta forustulið okkar bara í ómerkilegu fari, allri þjóðinni til vansa og virðingar-leysis, jafnt inn á við sem út á við ?

 

 

Það vantar ekki að flest af þessu fólki er hámenntað á skólavísu, það eru svo sem ýmsar gráður til staðar, en eitthvað vantar samt og það virðist nokkuð mikið. Eru gráðurnar kannski orðnar, sérstaklega í seinni tíð, að ávísun á litla innistæðu ? Er hæfnisgetan kannski bara blekking, að miklu eða mestu leyti ?

 

Af hverju virðist vanta svona mikið upp á að heilbrigð trúmennska við land og þjóð, og raunveruleg hæfni forustuliðsins sé eins og eðlilegt ætti að vera ? Er þetta lið kannski alltaf í því hlutverki fyrst og fremst að þjóna eigin sjálfi og jafnframt erlendum hagsmunum, í anda þeirrar ótakmörkuðu sérgæsku sem virðist ráða nánast öllu núorðið í þessu landi ?

 

Það skyldi þó aldrei vera ? Það er hart að þurfa að horfa upp á það að enginn sómi Íslands, sverð og skjöldur, hafi látið á sér kræla í næstum hálfa aðra öld, í stjórnmálalífi þjóðarinnar. Við virðumst bara hafa átt fólk allan þann tíma á þessu sviði, sem sýnist mestanpart hafa verið að snúast í kringum sitt eigið framaferli. Það er að langminnstu leyti þessu liði að þakka að þjóðin gat brotist út úr fátækt til skaplegrar velmegunar. Aðalástæðan fyrir þeim framförum fólst í dugnaði þjóðarinnar sjálfrar á sínum tíma. Hún gerðist sjálf sinn eiginn sómi, sverð og skjöldur og sú staðreynd er og mun lengi vera stolt okkar Íslendinga !

 

Nú er hinsvegar svo komið að unga kynslóðin í landinu virðist ekki hafa á nokkurn hátt sambærilegan metnað til þjóðarþarfa og gamla kynslóðin. Allir virðast vilja hafa það gott, en án þess að leggja þar mikið framlag til. Hver og einn virðist hugsa sér að slíkt framlag eigi að koma frá öðrum. Eigingirni og sjálfselska virðist komin í hæðir miðað við fyrri tíð og fórnfýsi í þjóðlegum skilningi er vart mælanleg. Hvað á að halda okkur uppi og fleyta okkur til lifandi framtíðar, ef staðreyndin er kannski sú að þúsundir þjóðarþegna nenna ekki lengur að vinna, vilja bara vera á bótum og helst lifa á erfiði annarra ?

 

Í ríkiskerfinu er - að margra ætlun og sögn - fullt af fólki að taka laun, sem er þó ekki að skila neinu í sameiginlegan þjóðhagslegan sjóð. Ef það reynist rétt, lifir það bara á framlagi annarra og það gengur bara ekki. Engin velmegun varir við slíkar aðstæður. Eins er það álit margra varðandi borgarkerfið, að allt of mikið sé þar um fjarvistir frá vinnu og skort á skilvirkni í vinnuframlagi !

 

Það er því löngu tímabært, að farið verði með nákvæmum hætti í rannsókn hvað þessa annmarka samfélagsins snertir og síðan þarf að fjarlægja viðverandi afætur frá þeim arðráns-spenum sem þær hafa legið á og hreiðrað um sig við, að því er virðist með þegjandi samþykki kerfis og valda-aðila. Stöðugar hyglingar slíkra veitinga-valdsmanna til fylgismanna á kostnað samfélagsins hafa á margan hátt farið illa með fjárhag okkar og samrýmast á engan hátt eðlilegri stjórnsýslu !

 

Það er ekki nóg að ganga um með gráður og stæra sig af þeim og það í verulega ríflegum ótíma. Menntaður er í raun og veru aðeins sá maður sem sigrað hefur sjálfan sig. Menntun sem er ekki að skila sér, nema kannski í fjölgun afætna í samfélagskerfinu, er einskis virði. Slík menntun styrkir ekkert nema ófrjósamt egó, sem vill sýnilega búa við ævilanga framfærslu sem koma á frá öðrum. Það er forustulið þjóðarinnar sem á að sjá til þess að þjóðin leggist ekki í leti og úrkynjun. Og það forustulið má undir engum kringumstæðum falla sjálft í sambærilegar ómennskugrafir !

 

Og einmitt þessvegna verðum við umfram allt að kjósa okkur bitastæða fulltrúa á þjóðþingið og til starfa í borgarstjórn og í sveitarstjórnir um land allt. Þar þarf að vera fólk sem hefur þann manndóm í sér að geta leitt þjóðina til góðra verka og gæfuríkrar framtíðar – eða til hvers er fólk að bjóða sig fram til slíkra starfa ? Eins og staðan er, vantar sýnilega mikið á að íslenska þjóðin búi við frambærilegar og eðlilegar aðstæður hvað þetta snertir og þar þarf skilyrðislaust að koma til þróun endurhæfingar framboðsaðila sem vísar í rétta átt í þessum efnum, hvað ábyrgð og þjóðrækni varðar !

 


Sérfræðingasúpan – ,,naglasúpa allsnægtanna“ !

 

 

Alltaf erum við Íslendingar að eignast sérfræðinga á nýjum sviðum. Og það virðist ekki skipta neinu máli þó sérfræði-þekkingin sé á einhverju því sviði sem gagnast þjóðinni lítið sem ekkert. Við verðum samt að hafa sérfræðinga á fullum launum á sem flestum sviðum ef eitthvað kemur upp á, fullyrða sérfræðingar umræðunnar. Hvað skyldu annars laun sérfræðinga vera á nauðsynlegum sviðum á Íslandi í dag ?

 

Við vitum að við eigum nú slatta af náttúruvársérfræðingum, enda stöðugt kynntir nýir slíkir til sögunnar í gegnum veðurfréttir. Sumir í þeim hópi virðast reyndar vera svo ungir, að maður gæti haldið að þeir væru varla nema um 40 kíló, að meðtalinni skólatöskunni. En allt er þetta unga fólk sagt vera sprengfullt af sérfræðiþekkingu og gráðurnar allt í kring. Nýverið heyrði ég til dæmis að við værum búin að eignast skriðufalla-sérfræðing og sjálfsagt er Veðurstofan búin að ráða hann til starfa vegna öryggishagsmuna þjóðarinnar og skriðu-fallavarnardeild ríkisins hlýtur að vera á næsta leiti í kerfinu sem björgunarlegt varnarlið !

 

Og í gegnum allt þetta ferli er okkur almennum borgurum talin trú um að samfélagið sé alltaf að batna, alltaf að verða öruggara og innviðir hér séu með því besta sem gerist. Líklega með hliðsjón af höfðatölu. Þjóðin sé þannig pökkuð inn í öryggishlíf sem geti ekki bilað og öllu sé þar tryggilega fyrir komið. Og þar til næsta brotalöm kynnir sig, jafnvel með háum hvelli, halda allir að öll mál séu hér í frábæru og fullkomnu lagi. Allt í höndum hálærðra og hálaunaðra sérfræðinga, sem sjái til þess upp á hvern dag, að öllu sé til skila haldið í öryggismálum hinnar ómetanlegu íslensku þjóðarheildar !

 

Og sérfróðu lærdómsstéttunum fjölgar og gráðurnar stíga dans í fullum takti við efnalegt tekjustig og hagsmunalegt öryggi sjálfra sérfræðinganna, jafnvel þó menntun þeirra hafi í raun lítið sem ekkert vægi gagnvart því öryggisneti sem þjóðin er talin þurfa að búa við. Allir eru sagðir verða að fá að njóta menntunar sinnar með sjálfstæðum hætti og eiga rétt á að fá vinnu í kerfinu í samræmi við sína sérfræðiþekkingu, þó stundum megi segja að viðkomandi þekking komi landi og þjóð lítið við og kannski ekkert - eða ætlum við að ganga fyrir björg í þessum efnum ?

 

Þá hljóta sérfræðingar að flæða fram í nánast öllu. Þá munu sérfræðingar í sérfræðimálum koma fram, útsýnis-sérfræðingar sem segi fólki hvar bestu útsýnisstaðir landsins séu og hvað þeir bjóði best upp á, menningarvalkosta-sérfræðingar, sem kenni fólki að krjúpa fyrir menningarlegum verðmætum, einkum þeim sem ráðandi elítur mæla með, innrifegurðarsérfræðingar sem bjarga ófríðu fólki frá örvæntingu með því að greina hvað það sé í raun fallegt hið innra, o.s.frv.o.s.frv. !

 

Og svo eru allir sérfræðingarnir sem líklega ætti að vera hægt að fara að framleiða í ótölulegu magni í gegnum hin fjölmörgu kyn, sem verið er að telja okkur trú um að séu fyrir hendi innan mannkynsins, sem á víst allt að fara að verða hinsegin að kröfu sumra. Gróskan í þeim möguleikum getur vafalítið orðið ólýsanlega mikill hafsjór innan skamms, sem kannski á eftir að drekkja okkur öllum með tíð og tíma ef fer sem horfir !

 

Af þessu má sjá að það er engin hætta á því að það verði einhver sérfræðingaþurrð í landinu á komandi tíð. Og almenningur verður svo auðvitað að skilja það, að fólk sem hefur menntað sig - pung eða píkusveitt - sem sérfræðingar, verður að hafa þokkalegt kaup þegar það kemur til starfa - eftir allt menntunarbaslið, sem sagt er að hafi verið – að sjálfsögðu - í þágu lands og þjóðar !

 

Það bendir þannig allt til þess að Íslendingar fari að einhenda sér inn í virkilega áhugaverða atvinnulífs byltingu, þar sem allir verða smám saman hérmegin eða hinsegin sérfræðingar í hver öðrum. Menn hætta að veiða fisk, stunda landbúnað og smíða þetta og hitt. Þjóðfélagið allt verður gert að inngrónu sérfræðinga-súpuveldi þar sem allir koma til með að lifa á öllum – á góðu kaupi, hvaðan svo sem peningarnir eiga að koma – fyrir allri vitleysunni !!!!!!!

 

 


Heiða Björg fær ,,Marshallhjálp“ !

 

 

Mikil sigling var á málflutningi reykvísku kvenleiðtoganna, þegar þær sameinuðust um að taka við stjórn borgarinnar snemma á árinu, eftir hið mjög svo misheppnaða útspil Einars Þorsteinssonar borgarstjóra. Og það virtist nú margt og mikið eiga að gera þó tíminn væri nú ekki langur til kosninga, en konurnar virtust sannarlega mjög hressar og til í slaginn  !

 

Eitthvað virðist þó samstillingu kraftanna hafa orðið ábótavant og stefnulegur skýrleiki hefur verið heldur bágborinn til þessa. Að vísu er venjubundinn reiðu-leysisbragur á tökum íhaldsins á sinni málefnastöðu í borginni, en væri þar heilsteypt forusta fyrir hendi, væri hinn margbrotni vinstri meirihluti líklega í töluverðri hættu !

 

Þegar margir ólíkir pólitískir aðilar hugsa sér að mynda stjórnunarlega heild um málefni, er mun meiri þörf en ella á samhæfingu og samvirkri forustu. Sú staða virðist hinsvegar ekki vera áberandi sýnileg hjá núverandi vinstri meirihluta. Borgarstjóri þessarar samfylkingar virðist til dæmis vera í einhverjum erfiðleikum með að fá til sín viðverandi aðstoðar-manneskju og er nú þriðji valkosturinn reyndur í þeim efnum !

 

Ekki virðist þar sérlega mikil festa í athöfnum og einhver vandræðagangur til staðar sem bendir ekki til þess að styrkar hendur stjórni málum. Það mun varla góðri lukku stýra fyrir hið samvirka gengi í komandi kosningum, enda hefur oft verið erfitt að stýra slíku liði til sigurs !

 

Íhaldið hefur reyndar verið með afbrigðum seinheppið um alllangt skeið varðandi völd og framgang í borginni. Það hefur glutrað niður mörgum tækifærum til að gera betur, sumpart með óheppilegum frambjóðendum og sumpart með illa skipulögðu kosningastarfi sem höfðað hefur lítið til kjósenda !

 

Það er eiginlega mjög skemmtilegt, að mörgu leyti, til þess að hugsa, hvað þessum yfirlýsta pólitíska sértrúarsöfnuði ójafnaðarmanna meðal borgarbúa, hefur í rauninni verið mislagðar hendur við að reyna að ná aftur þeim völdum sem í eina tíð voru líklega talin af honum sjálfum vera tryggð um aldur og ævi ! Í þeim efnum hafa klaufastrikin verið svo mörg og mikil, að í sumum tilfellum hafa þau jafnvel nægt til þess að tryggja íhaldinu ósigur ein og sér – án afskipta annarra !

 

En vinstri flokkarnir verða nú samt að reyna sitt til að vinna sigur á eigin forsendum og eigin verðleikum, því það dugir auðvitað ekki að treysta alfarið á það, að andstæðingurinn fremji áfram þau asnastrik sem nægi til ósigurs. Og sú staða er tvímælalaust uppi hjá sumum vinstri framboðunum, eins og málin standa, að hún hefur oft verið betri og þarf að vera töluvert betri, ef sigur á að vinnast að vori !

 

Að sjálfsögðu skiptir það fólk á landsbyggðinni ekki svo litlu máli að höfuðborginni sé vel stjórnað, en á því hefur oft verið allmikill misbrestur. Og þegar svo til gengur, bitnar það á allri þjóðinni með ýmsum hætti. Sennilega er varla til í veröldinni land þar sem jafn miklu er hlaðið undir höfuðborgina og gerist hérlendis, enda hefnir það sín í mörgu !

 

Sú alveldisstaða sem þar hefur verið skrúfuð upp með pólitískum hætti, er nokkuð sérkennileg útfærsla á lýðræðis-legum jöfnuði, enda virðist í flestu fremur verið að byggja hér upp borgríki en þjóðríki. Við þær valdaáherslur sem ráðið hafa allt of lengi, hefur landsbyggðarfólk á Íslandi nánast verið gert að einhverri afgangsstærð sem á líklega bara að þegja og hlýða, samkvæmt hinni allsráðandi borgarlínu !

 

En svo vikið sé að öðru, þá er Róbert Marshall margreyndur maður á mörgum sviðum, og ef honum og Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra reynist fært og mögulegt, út af hugsanlegum og hættulegum egóstíflum, að vinna saman, mun hann vafalítið geta lagt sitthvað gagnlegt til málanna til ávinnings fyrir vinstri meirihlutann og varla mun veita af því !

 

En samhæfing og samstilling innan eigin raða er samt frumskilyrði fyrir því að kosningasigri verði náð og það á eftir að koma í ljós hvernig Marshall-hjálp Heiðu Bjargar skilar sér í þeim efnum !


Nokkur orð um stríðsglæpinn mikla í Libýu !

 

 

 

Það kemur alltaf að því að sannleikurinn leitar fram. Sprengingarnar á Nordstream leiðslunum í Eystrasalti munu verða skráðar á syndareikning Nató í fyllingu tímans eins og Sy Hersh hefur þegar upplýst. Og hinar villimannlegu loftárásir á Libýu munu fara á sömu syndaskrá. Bandaríkjamenn og Norðmenn eru einkum taldir hafa komið við sögu í þessum hryðjuverkum og vekur það enga furðu varðandi þá fyrrnefndu, en allnokkra varðandi þá síðarnefndu !

 

Annars eru allar líkur á því að stríðsóðir Norðmenn fari brátt að kynna sig svo afgerandi á heimsvísu að engum blandist hugur um það hverjir eru þar læri-meistararnir og þeir sem litið er upp til. Það liggur fyrir að Jens Stoltenberg hefur viðhaft þau orð í uppbólgnum hroka sínum, að hann hafi aftur viljað láta varpa sprengjum á Libýu og norska þingkonan Ine Eriksen Söreide hefur sagst vera stolt af þátttöku Noregs í sprengju-árásunum á Libýu og eyðileggingu landsins, sem þá var mesta velferðarríki Afríku. Og athuga ber, að það eru háttsettir Norðmenn sem svona tala á 21. öldinni ? Hver hefði trúað slíku fyrir um aldarfjórðungi ? Ekki nokkur maður, en svona fara menn að því að verða umskiptingar !

 

Þó þarf nú enginn að undrast, að Bilderbergs-ungi eins og Jens Stoltenberg tali eins og hann talar, en að kona á Stórþinginu telji sér til gildis að hafa samþykkt slíkan glæp sem hér um ræðir, ætti að vekja töluverða furðu. Konur eru yfirleitt taldar líklegri til að taka nærri sér illar gjörðir og vera á móti þeim, en kannski er það liðin tíð í Noregi og víðar að svo sé. Sennilega eru núverandi valdamenn í landinu með þeim lökustu sem norska þjóðin hefur kosið yfir sig um langt skeið og hafa þó margir ráðamenn þar verið slæmir !

 

En þátttaka Noregs í glæpnum mikla í Libýu mun líklega aldrei gleymast þjóðum Afríku og þar mun Noregur aldrei geta áunnið sér fyrri sess. Þessi fyrrum mjög svo virðingarverða Norðurlandaþjóð er nú vægast sagt aumkvunarverð í ríkidæmi sínu með hrunið orðspor. Nú er víða um heim litið á Noreg, og það nánast umfram allar aðrar fylgiþjóðir Sáms frænda, sem sálarlaust viðhengi Bandaríkjanna - og það er nokkuð sem getur ekki talist neinni þjóð til gildis og virðingar !

 

Það voru margir drepnir í árásunum á Libýu. Almennir borgarar, venjulegt fólk sem var að störfum sínum í dagsins önn. Meira að segja allmörg börn. Og flóttinn yfir Miðjarðarhafið á manndrápsfleytum, vegna viðvarandi styrjaldarátaka í landinu, hefur krafist mjög margra mannslífa. Það eru afleiðingar af eyðileggingu landsins, svo það er viðbótarglæpur og sömu aðilar sekir um hann. Í öllu hinu tilbúna hernaðar-yfirburða skapaða helvíti í árásunum á Libýu, var um slíkan hrylling að ræða að ekki er hægt að líta á þá aðila sem menn sem stóðu þar að baki, heldur sem sálarlausar ófreskjur eða viðbjóðsleg skrímsli !

 

Hvernig það fólk er að innviðum til sem hrósar sér af slíkum fjöldamorða hryðju-verkum er engin leið að skilja, en mannúð getur ekki verið til staðar í slíkum persónum. Ef til vill eigum við eftir að sjá, fyrrverandi vestræna leiðtoga fyrir rétti, kannski í Nurnberg, ákærða fyrir glæpi gegn mannkyni. Ef slíkt gerðist, myndi það stórefla trú fólks, alls staðar í þessum heimi, á framgang réttlætisins, og sannarlega væri ekki vanþörf á því. Og einhverntíma verður hið ráðandi vald ekki í höndum þessara ríkja sem svo sví-virðilega hafa misnotað það og þá snýst dæmið við og örlagadómurinn hegnir þeim sem hegna ber !

 

Það eru nefnilega komnir þeir tímar að þjóðir heims gera kröfu til þess að vestræn ríki verði að vera ábyrg gerða sinna. Það hafa þau aldrei verið fram að þessu. Nú verða heiðarlegir menn á Vesturlöndum, ef þeir finnast þar þá enn, að horfast í augu við þá staðreynd, að saklaus börn og alþýðufólk, óbreyttir borgarar margra landa, hafa hvað eftir annað verið sprengdir í tætlur á sinni eigin feðragrund, án þess að hafa nokkuð til þess unnið. Og ástæðan er einbeittur brotavilji vestrænna ríkja til að viðhalda kúgun og arðráni í öðrum heimshlutum !

 

Og morðingjarnir eiga víst að heita siðmenntaðir Vesturlandabúar, sportlega klæddir í drápstækjum sínum hátt í lofti, sem hafa látið dauðasendingar sínar rigna yfir þetta blessað fólk, eftir fyrirmælum pólitískra og hernaðarlegra forustumanna Nató. Þó að maður trúi, að svona dráp-sjúkir manndjöflar hljóti að enda í helvíti, finnst manni samt að margfalt helvíti þyrfti að bíða þeirra, eftir þau hryllilegu ódáðaverk sem þeir hafa drýgt !

 

Og bak við þessar útsendu morðingja-sveitir eru vestræn yfirvöld, aðilar sem þykjast aldrei hafa gert öðrum illt og alltaf vera að vinna góðverk. Það er ein ógeðslegasta falsbirtingarmynd sem til er, en samt alltaf í umferð. Yfirleitt eru Vestur-Evrópuríkin á bak við mestan viðbjóð heimsmálanna á öllum tímum og hvergi saklaus ef út í það er farið. En sumir virðast þannig gerðir, einkum á Vesturlöndum, að afsaka alla glæpi ef réttir aðilar, að þeirra mati, fremja þá. Þá er vísað til hinna svonefndu góðu gæja, sjálfra Nató-englanna, varðengla hins ofbeldisríka valdakerfis Banda-ríkjanna og Vestur-Evrópu á heimsvísu !

 

Hrun mennskunnar í vestrænum valda-stofnunum á undanförnum árum er meira en geigvænlegt. Það ógnar öllu lífi mann-kynsins. Og nú er fasismanum gert hátt undir höfði, ekki bara í Úkraínu eða á Ítalíu, heldur víðsvegar um Vestur-Evrópu. Margar valdablokkir þar virðast harma ósigur nasistaríkisins 1945 og vilja sýnilega helst geta snúið úrslitum síðari heimsstyrjaldarinnar við um heilan hring, því vítisveldi ómennskunnar í hag !

 

Það er vissulega orðið býsna langt síðan almennileg stjórnvöld hafa farið með völdin í Bandaríkjunum, en það sama fer nú að verða hægt að segja varðandi Noreg. Lýðræðisleg fingraför í stjórnkerfi þessara landa fara líklega brátt að gufa upp og hverfa. Það fer að verða afar fátt sem viðheldur þeim úr þessu. Auðstéttin ræður öllu í báðum ríkjunum og herðir stöðugt tökin !

 

Mammon á bæði ríkin og sá kauði sleppir ekki því sem hann hefur eignast að fullu og ríflega það. En réttlætiskrafan og kallið frá Libýu verður ekki þaggað niður út af stríðsglæpnum mikla 2011. Hinir seku aðilar munu verða afhjúpaðir að lokum og dæmdir. Einum aðila á hvergi að líðast að fara um heiminn með þeim yfirgangshætti sem viðhafður var í Libýu og hefur sýnt sig víðar. Í því framferði kemur fram slíkur hroki að hann dæmir sig sjálfan til stærstu gjalda. Forsjónin sjálf mun taka í taumana þegar slíkt á sér stað !

 

 


Gjörbreytt þjóðarásýnd ?

 

 

Líklega er Noregur eitt af þeim löndum Evrópu sem höfðu bestan orðstír hér áður fyrr. En sá orðstír virðist því miður að mestu liðin tíð. Ríkidæmi Norðmanna hefur, að margra mati og þá sérstaklega á seinni árum, orðið þeim að mikilli sjálfselskusnöru og sjáanlega flækt þá inn í einhverskonar siðferðilegt mann-dómsfall. Velmegunin virðist hafa gert þá óvenju harðsvíraða og sérgóða gagnvart erfiðleikum annarra og þungri lífsbaráttu ýmissa þjóða. Það virðist alveg um að ræða gjörbreytingu frá því sem þekkt var áður, enda sýnast Norðurlöndin öll komin í nokkuð svipað far !

 

Norska þjóðin sem var hér áður oftast einna fyrst til að rétta út hjálparhönd þegar neyð ríkti einhversstaðar, virðist nú lokuð inn í sérlega efnahagslega sterkum ríkiskastala og pólitísk stjórnvöld hennar virðast mestu Natósleikjur sem fyrir-finnast á evrópskri grund og er sú einkunn engri áður þekktri norrænni hugsjón til virðingarauka. Þar fara tauhálsar topp-krataklíkunnar fyrir, menn sem margir telja að séu komnir svo langt frá öllum alþýðurótum að það virðist nema heilum eða hálfum ljósárum. Þjóðin virðist komin inn í einhverskonar limbó-ástand og varla vita hvar hún er stödd í yfirstandandi tíma !

 

Þar sem mannvinurinn og göfugmennið Fritjov Nansen var í huga umheimsins hér áður sem andlit Noregs, virðist nú Jens Stoltenberg vera búinn að koma sér fyrir, og landsfaðirinn Einar Gerhardsen virðist horfinn á bak við ásjónu Jonas Gahr Störe. Hin góða og mannkynsvæna norska ímynd virðist hafa stórskaddast undir ofurvaldi hernaðarlegra leiðsögumanna Nató, sem nú virðast ráða öllu sem þeir vilja í Noregi !

 

Hernaðarbandalags viðbjóðurinn virðist hafa unnið sér afgerandi einsýnan stuðning meðal núverandi valdamanna í Noregi. Friðarhugsjónir fyrri daga sýnast hafa misst sitt fyrra vægi í landinu og sjálfstæðisandi þjóðarinnar virðist hafa verið sendur vestur um haf í pössun þar. Enda spretta herstöðvar nú upp eins og gorkúlur á hinum stórvaxandi skítahaug ómennskulegrar sérgæsku og eiginhags-munasemi í Noregi og breyta landi og þjóð í andstæðu sína !

 

Hvað getur hafa valdið slíku karakterfalli hjá heilli þjóð og það þjóð sem var fyrir skömmu virt og mikils metin í samfélagi þjóðanna ? Svarið er Mammon ! Stóraukin Mammonsdýrkun og sérgæska hjá þjóð sem auðsældin virðist hafa truflað langtum meira en góðu hófi gegnir. Okkar gömlu frændur og vinir eru ekki lengur eins og þeir voru. Óhæfir leiðtogar sem lúta erlendum boðum og bönnum hafa líka bætt verulega á ógæfumálin. Það virðist margt hafa lagst þar á sömu ógerðarsveifina, hinni fyrrum ágætu þjóð til falls og bölvunar !

 

Það er önnur þjóð í Noregi en var, og hún virðist nú sitja södd og værukær við sína kapitalísku kjötkatla og gefa skít í umheiminn. Andi manna eins og Hauge, Björnsons, Ibsens og annarra þjóðlegra göfugmenna virðist ekki svífa yfir vötnum norsks samfélags í dag. Þar virðist eiginlega ekkert eftir af hinum fyrrum mikla manngildis arfi. Eyðileggingar-máttur Mammonslegrar yfirgangshneigðar í öllum samfélagsmálum hefur sýnilega farið yfir stjórnunarsvið þjóðfélagsins eins og jarðýta allrar svívirðingar. Það er sárt fyrir norrænan mann að horfa upp á slíkt gildisfall !

 

Nú eru það auðveldis auðmennirnir sem drottna yfir norsku samfélagi með sín sálarlausu græðgisviðhorf, og mesta samsteypa auðvaldsríkja í heiminum, Bandaríkin, eru tignuð og lofuð í hvert reipi af norskri elítuhirð hinnar sívirku sjálfselsku, sem baðar sig í allsnægtum og auðlegð upp á hvern dag, eins og rómverska yfirstéttin gerði, uns hún gerði út af við sjálfa sig með ægilegu siðleysi sínu og djöfullegri úrkynjun !

 

Nú er norskur auður notaður, ekki til að efla frið í heiminum eða græða sár, heldur til að dreifa vopnum og peningum til að skapa undirstöðu fyrir styrjöld og dauða. Staða mála virðist að sumu leyti hafa farið í heilan hring. Maður sem tekinn var af lífi í Noregi árið 1945 sem svikari við land sitt og þjóð, myndi - að margra hyggju - fagna hástöfum í dag, ef hann gæti séð stöðu mála nú og líklega telja sig og sína liðsmenn sigurvegara dagsins !

 

Þau myrku öfl - sem nú dansa í kringum gullkálfa norskrar tilbeiðslu og fjármuna-dýrkunar, geta vafalaust eyðilagt á sama hátt hvert einasta mannsamfélag sem fyrirfinnst á jörðinni, og þar er ekkert gott eða gæfulegt á ferðinni – aðeins fullkomið niðurbrot heilbrigðra lífshátta og mannlegra dyggða, og það hjá þjóð sem að flestra áliti átti allt gott skilið fyrir tiltölulega skömmu. Svona getur farið fyrir öllum sem kjósa að ganga hart fram í því að keyra niður eigið gildi og hefja sig með hroka í augum ljótra lagsbræðra í vondum félagsskap !


Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.10.): 0
  • Sl. sólarhring: 24
  • Sl. viku: 434
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 395
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband