Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2023

Bretland er vægislaus vesalingur í heimsmálum !

 

 

 

Það er eiginlega fullkomlega grátbroslegt að sjá hvað Bretland er orðið léttvægt á öllum metaskálum valds og virðingar í heiminum. Samt reyna breskir ráðamenn í öllu að láta eins og þeir séu enn gamla stórkanónan frá Viktoríutímanum !

 

En Stóra-Bretland er í raun ekki lengur til sem slíkt, og þegar Skotar manna sig loksins upp til sjálfstæðis, verður það enn minna. Bretar nútímans skríða hundflatir fyrir Bandaríkjunum í öllum málum og þeir eru svo gjörsamlega búnir að missa allar flugfjaðrir, að bresku samveldisríkin eru fylgispakari Könum en þeim !

 

Ástralía mænir til dæmis allar stundir eftir leiðsögn frá Washington og virðist hreint ekki hafa mikla sjálfsvirðingu sem fullvalda ríki. Kanada og Nýja Sjáland eru heldur ekki mjög burðug í samskiptum við bandarísku heimsveldismaskínuna og gera sér enga grein fyrir því ennþá að þar er efnahagslegi styrkurinn á förum og ekkert framundan nema fall af hrokatindi !

 

Hinsvegar er ljóst að fall Bandaríkjanna mun breyta miklu fyrir helstu fylgiríki þeirra og skilja við þau í afskaplega aumri stöðu. Þau hafa líka sum hver verið hrokafull og yfirgangssöm við aðrar þjóðir og þegar höfuð-hrokagikkurinn ver þau ekki lengur, getur svo farið að ýmsir reikningar verði lagðir fram gegn þeim !

 

Það kemur alltaf að skuldadögunum og þegar Bandaríkin fara niður í Sögunni eins og assýríska herveldið forðum – algjörlega án vina, hötuð af flestum ríkjum heims fyrir allra handa misgjörðir, er hætt við því að sum fylgiríki þeirra verði nánast munaðarlaus !

 

Og það mun þá einkum og sér í lagi eiga við um Bretland, enda hefur nánast ekkert ríki verið eins undirlægjulegt við Bandaríkin eins og það, eftir að eggið yfirtók hænuna endanlega fyrir um 80 árum!

 

Stórbretinn er löngu horfinn úr samfélagi þjóðanna og enginn saknar hans. Hann var alla tíð til bölvunar fyrir friðsamlega sambúð þjóða. England býr heldur ekki lengur að því að vera ensk þjóð. Íbúar landsins eru fjölþjóðasúpa og allar fyrri áherslur þjóðlegs eðlis eru liðin tíð !

 

Bretland hefur nánast hangið á Banda-ríkjunum síðan í heimsstyrjöldinni síðari og það mun fara alveg niður með þeim sem það ríki sem það var. Og það er líklega ekki ýkja langt í þau endalok. Þessi veröld okkar mun aldrei líta neitt eilíft heimsveldi, þau hrynja öll að lokum !


Um pólitískt umkomuleysi og tjónaskrár !

 

 

Þegar fyrri heimsstyrjöldin hófst fyrir rúmri öld, reyndi Lenín að skapa samstöðu meðal alþjóðahreyfingar sósíalista gegn stríðinu en kratar sviku þá sem oftar og jafnvel fleiri. Hinn ágæti mannvinur Jean Jaurés talaði gegn stríðinu í Frakklandi og var myrtur af óðum stríðsæsingamanni í kjölfarið !

 

Allt fór í öfgakenndan samkór með yfir-stéttarráðamönnunum og auðvalds-öflunum. Þýskaland vildi alveg nýtt skiptahlutfall í nýlendu-málunum og taldi sig afskipt, en Bretar og Frakkar vildu halda sínum stóru bitum og ekki missa neitt af sínu herfangi !

 

Barátta Leníns og félaga hans fyrir því að verkamenn og bændur, lágstéttir ríkjandi skipulags, ættu ekki að styðja þetta stríð, hvarf í áróðurs-froðu nánast allra fjölmiðla á þeim tíma og stríðsæsingar réðu sviði mála um alla Evrópu. Dómgreind komst hvergi að !

 

Það var ekki hlustað á þá staðreynd, að það væri að skella á auðvaldsstríð milli ráðandi valdastétta í Evrópu, og alþýða manna ætti ekki að eiga þar neinn hlut að málum. Ætlaðir verkalýðsleiðtogar drógust með í áróðursvitleysuna og fólk var síðan brytjað niður í milljónatali víða um álfuna í meira en fjögur ár. Við seinni tíma skoðun kom í ljós að 87% fallinna voru verkamenn og bændur. Réttnefnt sláturfé auðvaldsins !

 

Fyrri heimsstyrjöldin var algjörlega háð á forsendum auðvaldsins í Evrópu og því er tjónaskrá styrjaldarinnar alfarið skuld þess, en sú tjónaskrá hefur aldrei verið lögð fram með eðlilegum, mannlegum hætti. Versalaskráningin á því ferli öllu varð að ógeðslegu ofríki sigurvegaranna sem voru þó síst betri en þeir sem töpuðu stríðinu !

 

Seinni heimsstyrjöldin var ekki síður ágirndar og auðvaldsstríð af hálfu árásar-aðilanna, sem vildu yfirtaka annarra þjóða lönd til arðráns og kúgunar. Hið vestræna auðvald sem fjármagnaði og byggði Nazista-Þýskaland alfarið upp til krossferðar gegn Ráðstjórnar-ríkjunum, missti í framhaldinu stjórn á framvindu mála og hafnaði í stöðu sem það hefði aldrei getað ímyndað sér að það gæti lent í. Það hrærði í blóðsúpu-gerðinni öðrum til ills en féll svo sjálft í pottinn sem bauð því upp á makleg málagjöld !

 

Skrá yfir allar helvítishörmungar stríðs-áranna og tjón lífs og landa, tilreiknast því auðvaldsöflum Vesturlanda að fullu og öllu með ótvíræðum stimpli sannleikans. Sú staðreynd verður aldrei hrakin !

 

Síðan 1945 hafa Bandaríkin, höfuðríki auðvaldsskipulagsins í heiminum, fyrst og fremst verið í því hlutverki að skapa forsendur fyrir tjónaskrár þjóða og landa. Þar hefur stríðsrekstur og eyðilegging í öðrum löndum talist nánast til daglegrar iðju stjórnvalda í fullan mannsaldur og meira til !

 

En tjónaskrár gegn  hinum illa og heims-verkandi eyðileggingarferli Bandaríkjanna hafa aldrei verið lagðar fram og verða líklega seint lagðar fram við óbreytta ranglætisstjórnun í málum heims á hverfanda hveli!

 

Tjónaskrá vegna Víetnam-stríðsins yrði sennilega ekkert smáplagg ef út í það væri farið. Tjónaskrár vegna Íraks, Lýbíu, Sýrlands, Afghanistans, Júgóslavíu, Yemen og Kúbu og reyndar fjölda annarra landa og ríkja, færu sjálfsagt vel yfir 31,5 trilljón dollara markið á heimsvísu, en það eru ríkisskuldir Bandaríkjanna í dag !

 

Þrátt fyrir stanslaust arðrán, ofríki og yfirgang, ránskap og rupl um allar jarðir undanfarna áratugi, er bandaríska alríkið á hausnum, þessi óseðjandi, blóðsjúgandi auðvalds-skepna. Stærsti hlutinn af rán-skapnum hefur alltaf farið í einkavasa-kerfið. Bandaríska ríkið hefur verið arðrænt allan sinn tíma af fullkomnu miskunnarleysi - af eigin auðvaldi !

 

Það er vissulega nokkuð hlálegt að höfuðríki auðvaldsins skuli ekki kunna fótum sínum forráð í eigin fjármálum þrátt fyrir að allar klær séu jafnan úti hafðar til ærulausra aðdrátta, en skýringin er sú að enginn auðvaldsaðili er öðrum trúr í leik sem fyrr segir !

 

Og þegar það liggur fyrir, að einn helsti lánardrottinn bandaríska alríkisins, þessarar verstu kúgunar og auðvalds-blóðsugu heimsins, sé Alþýðu-lýðveldið Kína, eiga margir líklega erfitt með að skilja samhengi hlutanna. Enda má víst með fullum rökum halda því fram að þessi veröld okkar, sé orðin í heild sinni að engu öðru en því sem kalla mætti efnahagsmálalegu helvíti !

 

Það er ekkert rautt, svart eða hvítt til lengur. Það hverfist allt hvað um annað og enginn veit stundinni lengur hvað kemur til með að snúa þar upp. Svonefnd tryggingafélög alþjóðasamfélagsins hafa öll svikið og tjónaskrár verða því aldrei uppgerðar í þágu réttlætis og þrautpíndra þjóða, heldur aðeins settar fram og notaðar í ógeðslegum pólitískum hráskinna-leik eins og nú var síðast gert í gyllingarumgerð hinnar íslensku höfuð-borgar !

 

Aumt er það þegar smáþjóð á eyju úti í hafi sem ætti að geta verið friðsæll staður fyrir íbúa sína, á svo vesæla og lítilsiglda ráðamenn, að þeir láta nota sig til ómerkilegustu skítverka í þágu erlendrar óþokkamennsku og þykjast jafnvel meiri fyrir vikið. Þar virðist Jón nokkur skráveifa birtast í hverjum manni í tvöföldu líki sinnar illu eðlisgerðar !

 

En verst af öllu er þó, að á þjóðlegum mælikvarða metið, hafa slíkir vandræða-aðilar lagt til efni í eina verstu tjónaskrá sem hægt er að birta varðandi afföll á íslenskum orðstír, allt frá upphafi íslenskrar sögu !


Sálfræðihernaður hinnar síljúgandi sérgæsku !

 

 

Samkvæmt lygafréttum vestrænna fréttastofa sem eru að engu leyti sjálfstæðar og svíkja hiklaust allar skyldur gagnvart almenningi um að segja sannleikann, má stöðugt lesa eftirfarandi fullyrðingar með breytilegri framsetningu :

 

,,Hver úkraínskur hermaður er að minnsta kosti jafnoki tíu rússneskra hermanna. Úkraínskar konur berjast ekki síður en karlar og standa sig jafnvel. Úkraínumenn eru annaðhvort í sókn eða að undirbúa sókn. Þeir hörfa aldrei. Vesturlönd birgja Úkraínumenn stöðugt upp af vopnum en Rússar eiga engin vopn !

 

Mannfall Rússa er svo mikið að það er að verða vandamál fyrir þá. Þeir eru nú bara 145 milljónir, greyin. Þó Úkraínumenn séu ekki nema 45 milljónir að venjulegu tali, eru þeir jafngildi 450 milljóna gagnvart Rússum og hljóta því áreiðanlega að sigra þá með hjálp Vesturveldanna !“

 

Þannig hljóða fréttirnar í síbylju og þess má geta að þegar Finnagaldurinn gekk á hér 1940, voru Finnar, að sögn vestrænna blaða, sagðir í sókn alveg fram að því að þeir gáfust upp. Óskhyggjan getur leitt menn ótrúlega langt frá því sem er í raun og veru að gerast !

 

Og þó að menn gleypi endalaust við lygum og vilji óðfúsir gera það, en verði svo að standa naktir frammi fyrir öllum rangfærslunum, fylgir slíku aldrei nein iðrun eða lærdómur. Þá er bara bent á að aðrir hafi fallið í sömu gryfjuna og sælt sé sameiginlegt skipbrot. Þannig að menn forherðast bara !

 

Þeir sannfæra sig um það, að það hafi verið rétt af þeim að fylgja lygunum, ef ekki af hreinhvítum hugsjónaástæðum, sem sjaldnast eru til staðar, þá af grjóthörðum hagsmunaástæðum sem oftast eru til staðar. Mannseðlið er með öðrum orðum sjálfu sér líkt að gjörspilltum vana og breytist seint til einhverra bóta !

 

Vesturlönd eru einu lönd heimsins sem hafa að lágmarki síðustu 150 árin lifað á arðráni. Þau hafa ekki sjálf skapað verðmæti til að byggja upp góð lífskjör, þau hafa flutt þau verðmæti inn frá öðrum heimshlutum, frá kúguðum nýlendum, og af þeim ránsfeng skapað sér lífsstíl sem markast hefur mest af bruðli og blóðsuguháttum !

 

Sérgæska er því sálarlegt einkenni Vesturlandabúa, líklega langt umfram aðra heimshluta. Enda hafa ríki Evrópu, einkum þau sem vestar liggja, lifað á því sem fyrr segir, að arðræna aðrar þjóðir í margar kynslóðir. Það virðist liggja ofarlega í germönskum og rómönskum þjóðum að arðræna. Kannski er það arfurinn frá gömlu Rómverjunum sem knýr þar á með yfirgangseðli sínu !

 

Helst virðast Slavar vera með hreinni skjöld gagnvart arðráni á öðrum þjóðum, en þó hafa þar ýmsir pottar verið brotnir. En nýlenduþjóðir eins og Vestur-Evrópu-þjóðirnar hafa þeir ekki verið og það er söguleg staðreynd. Hinum gífurlegu glæpaverkum nýlenduþjóðanna í Asíu, Afríku og Ameríku verður aldrei klínt á þá þó miklu sé löngum logið !

 

,,Í fyrri heimsstyrjöldinni spurði Breti nokkur eftir því í blaði frá fyrri árum stríðsins, hvernig stæði á því að enn væri verið að berjast ? Samkvæmt sigurfregnum breskra blaða væru fáir Þjóðverjar eftir uppistandandi. Sumir teldu að þeir væru aðeins tveir !

 

En Þjóðverjar væru annars í meira lagi undarlegir menn. Einni nafngreindri hersveit þeirra hefði verið gereytt í upphafi stríðsins í Belgíu, nokkrum mánuðum síðar hefði hún verið algjörlega upprætt í Frakklandi, síðan strádrepin austur í Rússlandi, en samt væri enn verið að berjast við hana og það gengi ekkert allt of vel !“

 

Samkvæmt skýrslum Rússa á þeim tíma höfðu alls 5 milljónir manna verið kvaddar í herinn, en þýsk blöð staðhæfðu á sama tíma að 6 milljónir Rússa væru fallnar eða herteknar og samt var stríðið í fullum gangi. Þetta sýnir hvernig lygarnar eru stundaðar af hálfu upplýsinga-aðilanna og ekki hefur það batnað. Sannleikurinn er alltaf fyrsta fórnarlambið í stríði !

 

Þó eru lygar vestrænna fréttastofa af gangi mála í Úkraínu og öllum milliríkja-samskiptum vegna þeirra atburða, orðnar svo stórfelldar, að almenningur í allri Vestur-Evrópu er gjörsamlega úti á túni varðandi það sem er að gerast og veit ekki sitt rjúkandi ráð. Það er engu að treysta og allra síst upplýsinga-aðilunum !

 

Og þannig hegða sér hinar svokölluðu menntuðu þjóðir þessa heims. Sú menntun sem þær státa af er greinilega ekki mikils virði og vissulega þeim til skammar sem telja sig hafa hana !

 


Fjármagnsþrælar !

 

 

 

Löngum hefur svo verið í þessari veröld að þrælar hafa verið til. Og vissulega má í því sambandi segja – því miður. En jafnvel í þrælahaldi eru til dæmi um að fólk göfgist í mótlætinu og verði meiri og betri manneskjur eins og Harriet Beecher Stowe benti á fyrir margt löngu með lýsingu sinni á Tómasi frænda !

 

En ein er sú útgáfa þrælahalds sem er alveg laus við alla göfgun í mannseðli og það er sú útgáfa þar sem maðurinn gerir sjálfan sig að þræli fjármagns og auðgunarsýki. Og eins og flestir ættu að vita þá eignast menn ekki peninga heldur eignast peningar menn !

 

Menn verða þrælar aura sinna, apar fyllstu skerðingar á öllu því sem ætlast er til að geri þá að mönnum. Í þeirri manngerð er engin göfgi til og þannig glata slíkir menn sálum sínum !

 

Hvort sem maðurinn heitir Morgan, Rocke-feller, Vanderbilt, Du Pont, Abramovitch eða bara Ratcliff, er það margsannað mál að auðsöfnun gerir engan mann að betri manni. Öll ævi slíks manns fer í það að gæta auðsins sem yfirleitt verður til í kringum vafasama gjörninga !

 

Til þess að menn eignist mörg þúsund-faldan ávinning venjulegs vinnandi manns yfir ævina, þarf eitthvað til sem er ljósfælið ferli. En slíkur auður gerir menn að þrælum eigin ágirndar og það verða þeir yfirleitt þaðan í frá til dauðadags !

 

Og það sem þessari óseðjanlegu og græðgisfullu manntegund gremst mest, er að hún getur ekki keypt sig frá dauðanum. Hin sönnu verðmæti lífsins verða ekki keypt fyrir peninga. Þessir milljarðamæringar með fullar hendur fjár deyja eins og aðrir ! 

 

Þeir kaupa sér ekki lífshamingju, þeir kaupa sér ekki sönn gildi, þeir kaupa sig ekki frá dauðanum. Sömu lögmál ná yfir burgeisa sem betlara. Líklega er það eina sívirka réttlætið í heiminum !

 

Til hvaða gagns er líf í klóm yfirgengi-legrar fjárgræðgi ? Hvað koma slíkir menn út með þegar dæmið er gert upp að fullu ? Andrew Carnegie sá það að lokum að útkoman var ekki glæsileg !

 

Sagt er að hann hafi á efri árum látið svo um mælt að það að deyja ríkur væri ósigur og vansæmd. Í sama anda sagði hann að ekkert skurðgoð í lífi manna væri eins hættulegt og niðurlægjandi eins og söfnun peningalegrar auðlegðar !

 

Carnegie gaf og gaf mikið til almennings. Sennilega hefur hann bjargað sálu sinni með því að gjörbreyta lífsstefnu sinni eins og hann gerði þegar honum varð ljóst að hann var enganveginn á réttri leið. En það er óhætt að segja að það sé mjög óvenjulegt að slíkir menn gangi í sig og geri það !

 

Auðmönnum hefur stórlega fjölgað á Íslandi á undanförnum árum, í skjóli últra-kapítalisma og frjálshyggju, og stjórn-málalegrar og fjármálalegrar spillingar. Hér er ekkert frábrugðið erlendum ósiðum í þessum efnum !

 

Siðferðilegir innviðir manna á Íslandi eru jafn varnarlausir fyrir valdi peninganna sem annars staðar. Auðmenn á Íslandi virðast lifa í öðru sólkerfi en samfélag þeirra og þannig er það víðast hvar. Lög og reglur eru bara fyrir aðra !

 

Fjölgun auðmanna verður alltaf sjálfkrafa ávísun á meiri spillingu og verra þjóðfélag í siðferðilegum skilningi. En auðmenn eru og verða þrælar eigin fjármagns og þeir sem þjóna undir þá verða þrælar þræla eigin fjármagns !

 

Þar er engin andleg gildisgjöf í boði aðeins efnahagsreikningur, sem við dauðann mun standa á inneignarlausu núlli. Peningalegur ágóði fylgir engum manni út úr þessari tilveru !


Frá fullveldi friðar til feigðarstefnu !

 

 

Sú var tíðin að það var litið svo á að fyrsta skylda lýðræðiskjörinna ráðamanna væri að vaka yfir velferð eigin þegna og þjóðar. Það var samt töluvert víða um vanþekkingu að ræða í þessum efnum, einkum þó í ýmsum gæsalappa-löndum lýðræðisins, eins og virðist til dæmis vera á Íslandi og í Úkraínu !

 

Almannaheill er mjög lítils metin af ráðandi öflum í þessum löndum sem bæði eru orðin últra-auðvaldssinnuð. Allt miðast við þarfir tíu prósentanna sem ríkust eru og auðgast stöðugt á kostnað alls almennings í þessum vesælu löndum sem virðast algerlega á leið til baka í allri þróun og það auðvitað af mannavöldum !

 

Á Íslandi virðist flest ganga fyrir fyrrnefndri skyldu núorðið og í Úkraínu virðist þjónustan við yfirvöld í Brussel hafa yfirhöndina í öllu. Sumir ráðamenn á Íslandi virðast svo hrifnir af ráðamönnum í Úkraínu, sennilega vegna fyrrnefndrar þjónustu, að þeir faðma þá í bak og fyrir, þó þeir svíki alfarið frumskyldu sína við eigin þjóð !

 

,,Líkur sækir líkan heim“ má trúlega segja um þann andlega skyldleika og svo bætist við sú negling brusselískrar Natókenndar sem virðist nú á tímum geta sameinað innlendan og erlendan óþjóðleika í algjörlega herleiddan geðveikisgraut !

 

Íslenskar stjórnmálakonur verða trúlega hér eftir að sýna velþóknun sína almennt með því að faðma erlenda valdamenn. Annars væri mismunun í gangi, sem félli jafnvel ekki í kramið í elítuhópi hópspillingar og sjálfsupphafningar þar sem allir gera kröfu til þess sama. Egoið er þar fyrst og síðast í aðalhlutverkinu !

 

Það er vitað að tilteknar dömur flugu út, líklega á vegum Nató, og sköpuðu sjálfar verðandi samskipta forsendu, með því sem kalla mætti í íslensku samhengi, skrið-dýrslegu framferði í borginni Kiyv, við þarlenda toppskarfa. Nató hlýtur að hafa greitt ferðakostnaðinn því engin rök eru fyrir því að íslenska þjóðin eigi að borga slíkt, sjálfri sér til skammar !

 

Arftakar Stepans Bandera og nazista-aflanna sem frömdu sín verstu ódæðisverk í Babi Yar 1941, virðast nú hafa öll völd í Úkraínu, enda er þeim sungið lof í Brussel og á Evrópuþinginu. Þeim sem ekki vilja syngja þar með, er vísað á dyr af öryggisvörðum, þó þeir eigi að hafa öll réttindi þingmanna þar. Á því sést hvað lýðræðið er á háu stigi þar eða hitt þó heldur !

 

Victor Yuschenko Úkraínuforseti gerði Stepan Bandera að Hetju Úkraínu 2010, Victor Yanukovitch afnam þá ráðstöfun síðar, en Petro Porosenko og Volodimir Zelensky hafa stutt þann gjörning !

 

Pólsk stjórnvöld sem styðja Úkraínu mjög í yfirstandandi stríði gegn Rússlandi, segjast aldrei geta fallist á hetjudýrkun á Bandera, til þess séu glæpir hans og samtaka hans allt of miklir og hræðilegir. Vonandi standa pólsk yfirvöld fast á þeim skilningi !

 

Ég er Íslendingur í húð og hár, merg og bein, en verð að játa það að það situr enginn í ríkisstjórn Íslands í dag eða á þingi sem ég tel mig geta borið virðingu fyrir. Og mér finnst það helvíti hart !

 

Ég vil geta borið virðingu fyrir íslenskum ráðamönnum, en mér finnst bara sem engir slíkir séu til í dag. Þeir sem eiga að vera það og hafa verið kosnir til þess, eru annaðhvort komnir hugarfarslega út í Brussel eða vestur í Washington í ósæmandi hlutverk og þjóðlega séð stendur enginn slíkur í lappirnar hér !

 

Íslenskir ráðamenn virðast þannig algerlega horfnir burt af landinu og hættir að vera til sem slíkir. Það er enginn íslenskur sjálf-stæðisandi í þeim undirlægjum sem hér þykjast bera íslenskum þjóðlegheitum gott vitni. Þær ættu allar að skammast sín !

 

Hvar eru Íslendingar eiginlega staddir nú um stundir í ógeðslegum lygafréttaheimi Vesturlanda ? Hvar er þjóðin sem lýsti yfir hlutleysi 1918 og óskaði eftir friðsamlegum samskiptum við allar þjóðir ?

 

Er íslenski sjálfstæðisandinn horfinn ofan í fjölmenningar-súpuna sem menn hafa verið að elda hér, á kostnað íslenskrar velmegunar síðustu árin, öllum landsfriði og góðum gildum til eyðingar og skaða – líkast til um langa framtíð ?

 

Þann ófrið sem ríkja mun á Íslandi eftir 20-30 ár, er verið að rótfesta í dag af þingi og stjórnvöldum með allskyns heimskulögum sem ná ekki nokkurri átt og eru og verða sanníslenskum þjóðargildum til hinnar mestu bölvunar !


Um ,,líknarstörf“ í lengd og bráð !

 

 

Þó heimurinn sé ekki geðslegur og síst kannski um þessar mundir, er oft þörf á því að lífga sér lund með léttara hjali. Mannlífið býr yfir svo mörgu sem maður getur haft gaman af að velta fyrir sér, og þá reynir maður um leið að gleyma eða ýta til hliðar þeim skuggahliðum sem geta spillt svo miklu í lífinu um allan heim !

 

Oft finnst mér alveg sérstakt hvað sumir ganga langt í því að klæða sérgæsku sína dularklæðum og villa á sér heimildir og þykjast þannig vera miklu betri en þeir eru !

 

Einkennileg hefur mér til dæmis löngum fundist sú sérgæskufulla nálgun við kynlíf sem virðist koma fram í viðhorfum svo margra. Sumir þykjast alltaf vera eingöngu að gefa af sér í kynlífi, gera öðrum gott og þar fram eftir götunum og vera alveg lausir við að krefjast einhvers fyrir sig, þó sérgæskan sé þar í hæstu hæðum !

 

Slíkir sjálfskipaðir ,,björgunarmenn“ fara yfirleitt aldrei neinum orðum um eigin ávinning og virðast bara helst vera með það í huga að gera eitthvert gustukaverk á annarri manneskju af einskærri manngæsku eða yfirþyrmandi líknarvilja, sem er svo yfirleitt ekki neitt eða lítið þegar upp er staðið. !

 

En kynlíf er svo eðlilegur þáttur í lífinu, að án þess er vandséð hvernig mannkynið eigi að geta haldið áfram göngu sinni. Það á náttúrulega fyrst og fremst með réttum hætti að styðjast við þá meginforsendu að tvær manneskjur kjósi af frjálsum vilja að elskast, því þá er í raun ekkert sem mælir því á móti.

 

Í þeim samskiptum er auðvitað æskilegast að vilji beggja sé fullkomlega jafngildur til athafna, og lögum sem land byggja sé fylgt í hvívetna, og ljóst í beggja hugum að báðum sé verið að gera gott. Kynlíf án sérgæsku og eigingirni er auðvitað það besta !

 

Þegar ég var strákur skildi ég eiginlega aldrei hversvegna það mátti ekki sýna fólk elskast í kvikmyndum, en hinsvegar mátti drepa fólk miskunnarlaust í öllum myndum. Samt var bannað með lögum að drepa fólk en engum í sjálfu sér bannað að elskast ?

 

En þannig er ósamkvæmnin og tvöfeldnin svo oft ráðandi í allt of mörgu í samfélagi okkar mannanna og þannig fær það að grafa undan öllu náttúrulegu og eðlilegu viðhorfi og skemma út frá sér !

 

Oft er líklega hið gamla líknarsjónarmið til staðar í þessum efnum, sem oftast virtist koma fram hjá körlum hér áður fyrr og kemur reyndar enn fyrir, þar sem þeir þykjast vera að hjálpa upp á kvenfólk sem sé alveg að farast vegna vöntunar á kynlífi !

 

Það virðist því öllu frekar um að ræða sem það sé einhverskonar alþjóðlegur hjálparstarfsemisvilji í gangi hjá slíkum aðilum, en ekki eitthvað sem ætti fyrst og síðast að vera sjálfburða mæting gagnkvæmrar þarfar !

 

Í þessu sambandi öllu kemur mér í hug sagan af Borga-Magnúsi, sem var þekktur flakkari á nítjándu öld. Hann var reyndar talinn hafa óbeit á kvenfólki og vildi yfirleitt ekki nærri því koma, en eins og löngum vill vera, brýtur nauðsyn lög !

 

Það var eitt sinn að Magnús var á ferð um páskaleytið, í bölvuðum norðangarra og nokkru frosti. Þegar hann kom á stað nokkurn sem Skrínuleiti heitir, mætti hann vinnukonu frá prestssetri í nágrenninu og hafði hún fresskött með sér !

 

Magnús kastaði kveðju á stúlkuna og spurði hvert hún væri eiginlega að fara með þennan helvítis kött ? Stúlkan svaraði því til að læðan á prestssetrinu væri breima og hún væri að sækja köttinn til að líkna henni. Það hnussaði í Magnúsi við þetta og hann hreytti því út úr sér að það væri nú lítil þörf á því !

 

Stúlkan tók þegar í stað upp þykkjuna fyrir læðuna og sagði að það væri ekki nema gustuk að líkna blessaðri skepnunni. Á þeim tíma var það beinlínis til siðs að sækja fressketti fyrir læður. Var það kallað að líkna þeim og sagt vera hreint mannúðarverk !

 

Við orð stúlkunnar virtist ljós renna upp fyrir Magnúsi því hann sagði þegar formálalaust við stúlkuna : ,, Viltu kannski að ég líkni þér ?“ Stúlkan ansaði að bragði : ,, Það er ekki hægt hérna, þá missi ég frá mér köttinn !“ ,,Ég skal sjá fyrir kettinum“ svaraði Magnús !

 

Stúlkan fékk honum þá köttinn, en Magnús tók af sér hattinn, hvolfdi honum yfir köttinn og bar steina á börðin. - Síðan líknaði hann stúlkunni undir vörðu þar á leitinu og skipti þar afleitt veðurlagið engu. Hefur varðan sú verið kennd við Magnús síðan !

 

En Magnús lét ekki þar við sitja. Hina næstu nótt eftir líknarverkið á Skrínuleitinu, gisti hann á bæ þar skammt í frá. Þegar vinnukonan þar fór út í fjósið um kvöldið, fór Magnús á eftir henni og sagði umsvifalaust við hana : ,, Nú tökum við til verka !“ Þeirri stúlku líknaði hann svo í moðbásnum !

 

Og á næstu dögum mun hann hafa líknað þriðju stúlkunni einhvers staðar á flakki sínu. Svo mikið er víst að þrjú börn voru honum kennd í framhaldinu, öll fædd í sama mánuðinum. Eftir þau afrek var ekki til þess vitað að Magnús væri oftar við kvenmann kenndur og hefur hann líklega gengið fram af sér í líknarverkunum !

 

Þarna virðist gengið út frá því að kvenfólk þurfi líknar við í þessum efnum og einhver björgunarstörf séu því í gangi. Og þetta gerist í sálfræðilegum einfaldleika sínum fyrir daga alþjóðlegra hjálparsamtaka. Það má því segja með sanni að fjölbreytt sé tilverustigið alla jafna og margt geti verið þar í fullu ferli víðsvegar um heiminn, á skrínuleitum nýrrar sköpunar !

 

Því má líka bæta hér við, að lífið heldur vonandi áfram, og til þess að svo verði er kynlíf að sjálfsögðu nauðsynlegur þáttur í framhaldsferli tilverunnar. Menn ættu þó ekki endilega að líta svo á að þar eigi eingöngu að vera um líknarstarfsemi annars aðilans að ræða !

 

Það ætti kannski miklu frekar, að öllu samanlögðu, að líta svo á að þar geti verið um gagnkvæma líkn að ræða, og í þeim skilningi séu mál kannski öllu nær því að vera það sem vera ætti !

 

 


Almyrkvi náðar er að falla yfir Bandaríkin !

 

 

Á hverjum degi er háð blóðugt stríð í Bandaríkjunum. Það er í raun óyfirlýst borgarastyrjöld í gangi. Allir gegn öllum. Þúsundir Bandaríkjamanna falla á ári hverju fyrir veruleikafirrtum og byssu-brjáluðum samlöndum sínum !

 

Alls staðar er gripið til byssunnar og lýsingin á veldi Óvinar mannkynsins á hvergi betur við nú til dags en í Bandaríkjunum. Þar er hryllingurinn líka að komast á lokastigið !

 

Heilög ritning segir : ,, Allt Óvinarins veldi er sjálfu sér sundurþykkt !“ Það er að segja, enginn er öðrum trúr. Allir sitja á svikráðum við alla. Og veldi hins illa ræður með skefjalausu ofbeldi og byssubrjálæði í Bandaríkjunum !

 

Bandaríkin eru öflugasti hluti ríkis hins illa á þessari jörð og það kemur stöðugt betur í ljós. Ef Djöfullinn missti völdin í Bandaríkjunum væri hugsanlega einhver von um þennan heim !

 

Óvinur mannkynsins veit fullvel hvað er í veði fyrir hann og hann heldur fast um sitt. Þessvegna eru Bandaríkin hornsteinn veldis hans og mesta dreifingarmiðstöð ofbeldis og illsku í allri veröldinni. Aðeins þeir sem slegnir eru blindu sjá það ekki !

 

Byssu-dýrkunin í Bandaríkjunum er bein-tengt mál við vald Djöfulsins í ríkja-bandalaginu. Ofbeldið í Bandaríkjunum er augljós og skýr undirstrikun þess og staðfesting að þar sé sérstök hernaðar-miðstöð og heimaveröld andskotans !

 

Útflutningur Bandaríkjanna til annarra landa er fyrst og fremst ofbeldismögnun um allar jarðir. Auðvitað flytur hið núverandi heimsveldi hins illa út það sem það er þekktast fyrir. Og eins og þeir vita sem hugsa á annað borð, er ekkert meiri og sterkari vitnisburður um illskuna í Bandaríkjunum en ofbeldið þar !

 

Bandarískir borgarar drepa bandaríska borgara á degi hverjum í meiri mæli en þekkist annarsstaðar. Af hverju ? Af því að það eru miskunnarlaus fyrirmæli þess andavalds sem ríkir nú í vestræna stór-veldinu og krefst þess stöðugt í krafti illsku sinnar að aðstæður þar líkist sem mest aðstæðum í helvíti sjálfu !

 

Það eru fyrirmæli Djöfulsins sjálfs sem ráða ferðinni, þar sem hann hrópar kokhraustur í þessu vítistengda vígi sínu : ,, Bandaríkin eru mitt ríki og þar á ofbeldið og illskan að ráða og þar eiga allir að drepa alla og fara síðan til helvítis !“

 

Frá Bandaríkjunum á dauðastefna Óvinarins að breiðast út um allan heim og mannkynið á hvergi að njóta friðar. Þá er öll áætlun Guðs með þessa veröld endanlega hrunin !

 

Frelsisveröldin vestræna, sem áður var svo lofsungin sem slík, er orðin helsti útrásarkastali Djöfulsins og sú staðreynd fer ekki lengur leynt. Það er ekkert mannlegt við það sem er að gerast í Bandaríkjunum !

 

Maður bankar fyrir misgáning á bandarískar heimilisdyr og fær byssukúlu í andlitið. Jafnvel ungbörnin eru farin að drepa systkini sín, sjálf kornabörnin í vöggunni. Það eru alltaf og alls staðar hlaðin morðvopn í næstu skúffu. Skólabörn og kennarar eru skotin niður um öll Bandaríkin og enginn virðist skilja hvað er í gangi !

 

Enginn er lengur óhultur þar, því andavald eyðingarhvatarinnar er alltaf að ná tökum á fleiri vitfirrtum einstaklingum sem fyllast morðhug til samborgaranna og vilja bara drepa, drepa og drepa !

 

Bandaríkin eru endanlega að falla undir fyrirspáða bölvun og sú bölvun breiðist út um heiminn frá þeim. Tortíming Banda-ríkjanna innan frá er þegar hafin. Hún er að komast í fullan gang fyrir allra augum, þó fáir skilji hvað sé að gerast !

 

Þegar þjóð er búin að fylla mæli synda sinna getur ekkert bjargað henni frá þeim örlagadómi sem hún hefur kallað yfir sig. Náðartíminn er úti og bandaríska ríkið á ekkert eftir nema að hrynja !

 

En enn reyna stjórnvöld hinnar heillum horfnu þjóðar að standa fyrir stríði í öðrum löndum, og virðast ekki skilja að þeirra eigið dauðastríð er þegar hafið heimafyrir !

 

Leiðtogar hennar eru slegnir blindu og óhæfir til allra góðra hluta. Þeir þjóna nú aðeins því sem illt er og fylgir áætlun Djöfulsins um tortímingu þessa heims !

 

Bandaríkin eru fallin undir bölvun og örlagadómur þeirra er skráður á bókfell himinsins og honum verður ekki breytt.

Hvíta húsið er nú Mene Tekel merkt á allar hliðar og þinghúsið í Washington líka. Örlagadómurinn verður ekki umflúinn !

 

Spurningin er hinsvegar hvort umheimurinn vill skilja sig í tíma frá þeirri óhjákvæmilegu helför sem framundan er fyrir allt yfirgangs-svínarí og hrokastand Bandaríkjanna, sem nú hefur fyllt sinn brotabikar svo að út úr flóir !

 

Enn er samt kannski einhver von fyrir aðra heimshluta, ef þeir vilja draga réttan lærdóm af því sem er að gerast í Bandaríkjunum, og forðast þá bölvun sem þar er í fullum vexti ?

 

Það mun eflaust sýna sig á næstunni hvort aðrar þjóðir í þessari aðþrengdu veröld okkar muni dæma sig undir sömu bölvun og Bandaríkin og fylgja hinu dauðadæmda heimsveldi illskunnar niður í djúp fordæmingar og eilífrar glötunar !

 

Sumar þjóðir jarðar eru greinilega líklegri til þess að fara þá leið en aðrar, en allt mun þetta koma fram áður en langt um líður. En eitt er ljóst, að Bandaríkjunum verður ekki bjargað héðan af. Þar er engin iðrun til staðar – aðeins miskunnarlaus forherðing !

 

Blóðbað byssudýrkunar og ofbeldis mun halda þar áfram innanlands í stórauknum mæli alveg fram í náðarlaust niðurbrot þjóðarinnar. Bandaríkin eru undir hræði-legum, sjálfsköpuðum örlagadómi og himin-hárri bölvun sem verður ekki aflétt !

 

 

 

 


Vandræðabarnið í samfélagi þjóðanna !

 

Bandaríkin eru oft lofsungin fyrir upphaf sitt og ekki sparað að benda á það að þau hafi unnið frelsi sitt með stríði í þágu eigin mannréttinda. En það er liðin saga og bandaríska alríkið hefur fyrir löngu svikið allt sem það á að hafa staðið fyrir í upphafi sögu sinnar, og kannski var það upphaf aldrei eins trúverðugt og því hefur löngum verið lýst !

 

Allt hið besta í stjórnmálasögu Bandaríkjanna var liðið hjá árið 1860 og allt hið versta eftir. Síðan Franklin D. Roosevelt leið hefur enginn forseti í Bandaríkjunum komist upp úr meðal-mennskunni og sumir verið taldir heldur vitsmunatregir svo ekki sé meira sagt. Hin raunverulegu valdaöfl í Bandaríkjunum kæra sig nefnilega alls ekki um að forsetinn sé einhver skörungur !

 

Alla sína bestu menn hefur bandarísk stjórnarstefna svívirt og svikið allt frá tíma borgarastyrjaldarinnar sem innleiddi heimsvaldastefnuna til valda í landi sjálfstæðisyfirlýsingarinnar og fór að spilla öllu sem taldist til hins betra í bandarísku mannlífi !

 

Stefna Lincolns var svikin og hann myrtur, stefna Wilsons var svikin og hann eyðilagður, stefna Franklin D. Roosevelts var svikin og hugsjónir hans vísvitandi látnar falla í gleymsku eftir dauða hans. Eftirmaður hans sá um þjónustuna við skuggaöflin sem tóku þá alfarið við völdum, enda var hann þeirra maður !

 

Bandaríska ríkiskerfið komst þegar á seinni helmingi ársins 1945 að fullu og öllu undir vald heimsvaldastefnunnar, stórkapítal-ismans og auðhringanna og hefur verið í þeirri stöðu síðan, eigin þjóð og öllum heimi til hinnar mestu bölvunar. Frá þeirri stund hafa Bandaríkin þjónað algjörlega eigin græðgi og arðránshyggju með þeim ósköpum að í dag er ekki til hataðra ríki í heiminum !

 

Byrjað var að leggja línurnar að yfirtöku hinna myrku afla meðan Roosevelt var enn lifandi og þessvegna var skipt um varaforseta 1944 því Henry A. Wallace var ekki maður af þeirri gerð, að hann gæti orðið skósveinn skuggaaflanna sem stefndu að því að leggja algerlega undir sig Hvíta húsið og öll völd í landinu !

 

Síðan 1945 hefur ferill Bandaríkjanna verið stöðugur yfirgangur á heimsvísu og stríðsrekstur um allan heim. Bandaríkin hafa sett sig ofar öllum öðrum ríkjum, upp á hrokatind ofurvaldsins. Slík staða er engum holl, enda er hún að gera út af við þetta afvegaleidda stórveldi sem er sýnilega á leiðinni á ruslahaug Sögunnar !

 

Ferill Bandaríkjanna hefur lengi verið í argandi ósamræmi við allt það sem George Washington sagði og ráðlagði hinu unga ríki að ástunda, er hann hélt kveðjuræðu sína 1797. Hvað myndi sá maður segja ef hann sæi Bandaríkin í dag og vissi hvernig þau hafa haldið á málum, eigin landi og öllum heimi til vansa ?

 

Það er ljóst að Bandaríkin eru hnignandi veldi og kemur þar margt til. Innviðir ríkisins eru rotnir af spillingu og þar er hinn mannlegi þáttur afar lítils metinn. Hvert nýtt epli sem berst inn í ráðuneyti og valdastofnanir skemmist óðar við tengslin við það sem fyrir er. Það er því ekkert til sem er ferskt og heilbrigt í stjórnkerfi Bandaríkjanna og rotnunin er orðin þar svo til allsráðandi !

 

Verst eru áhrifin sem þetta fallandi stórveldi hefur á umheiminn. Þau eru vægast sagt afar óholl. Afskipti Bandaríkjanna af málum annarra heimshluta eru alls staðar til bölvunar. Þau eru full af hroka og yfirgangi. Flestar þjóðir eru búnar að fá nóg af þeim samskiptum og þarf það ekki að koma neinum á óvart !

 

Enginn þolir það til lengdar að það sé alltaf talað niður til hans, hvorki menn né þjóðir. Heimurinn væri sannarlega betri og öllu friðsamlegri staður fyrir mannkynið án Bandaríkjanna !

 

 

 

 

 

 


Varað við versta óvini Íslands !!!

 

 

Þegar hugsað er um stöðu íslensku þjóðarinnar í samfélagi þjóðanna og hvað sé okkur Íslendingum hættulegast í því samhengi, er það alveg ljóst í mínum huga, að Evrópusambandið er sjálfstæði okkar langsamlega hættulegast og ásælni þess í auðlindir þjóðar okkar þegar komin á mjög varhugavert stig !

 

Það er því íslenskum þjóðarhagsmunum mikil þörf og nauðsyn að gætt sé vel að öryggismálum Íslands í öllum samskiptum okkar við hið mjög svo viðsjárverða Brusselbákn !

 

Evrópusambandið er nefnilega eins og hungraður og orkusveltur stórúlfur, hegðandi sér í öllu eins og slíkt rándýr, og það gólar græðgislega í sífellu eftir meiri auðlindum. Það er á stöðugum nýlenduveiðum, eins og þeir ættu að geta séð, sem sjón hafa og hugsun, enda blasir sú staða við bæði hér og í Úkraínu !

 

Alls staðar þar sem slíkur ágangur er til staðar og stefnt að slíku arðráni, byrjar ásóknaraðilinn á því að koma sér upp fimmtu herdeildar fyrirbæri innanlands. Það er alkunn staðreynd og löngu vitað mál hvernig vinnubrögðin eru viðhöfð í slíkum tilfellum !

 

Þau koma meðal annars fram í því að hlynna að stjórnmálaöflum hér sem taka mið af öðrum hagsmunum en þeim sem felast í íslensku sjálfstæði og íslensku þjóð-frelsi. Og það má hiklaust telja að ásóknaraðilanum hafi tekist að ná slíkum áhrifum í þeim mæli að hætta sé á ferðum. Hirðmenn Hákonar gamla eru þannig aftur komnir á kreik á margan hátt í sínu svikagervi !

 

Við ættum öll að vita stöðuna í þeim efnum og hún er satt að segja ekkert glæsileg frá þjóðlegu sjónarmiði. Það er þannig verið að grafa undan mörgum öryggisstoðum í þessu landi, svo við vitum varla öllu lengur hvar við stöndum. Sumir vilja meina að umtalsverður hluti embættismanna-kerfisins sé hugarfarslega þegar kominn undir áhrifavald ESB !

 

Það er því full þörf á því að verjast ylfingum ESB stórúlfsins hér innanlands, sem virðast vera farnir að gjamma sitt nálega í öllum valdastöðvum íslenska stjórnkerfisins, og það gjamm er ekki íslenskt í neinum skilningi. Það er fimmtu herdeildar gjamm !

 

Fyrsta skilyrðið til að verjast óvini sem er með ágang og yfirtöku áætlanir, er að gera sér grein fyrir markmiðum hans og koma sér upp hugmyndafræðilegum varnar-virkjum gegn ásókninni !

 

Það þarf að virkja íslensku þjóðarsálina gegn þeim brögðum sem verið er að beita hana. Fólk þarf að skilja að það er enginn að herja á okkar þjóðfrelsi nema Evrópu-sambandið. Það er sá andstæðingur sem við þurfum helst að varast. Í grunninn og í allri uppbyggingu sinni er þetta Evrópu-samband nefnilega ekkert annað en gírugur auðhringur og hefur aldrei verið neitt annað !

 

Að sofa á verði sjálfstæðis og þjóðfrelsis er í alla staði glæpsamlegt athæfi. Látum það ekki henda okkur í annað sinn í sögu okkar. Það var íslenska höfðingjavaldið sem sveik þjóðina 1262 og kallaði yfir okkur 656 ára ólýsanlega kúgun. Látum ekki svíkja okkur aftur á nokkurn hátt. Íslenska þjóðin á þetta land og megi svo áfram verða um alla framtíð !

 

Íslenskir embættisfulltrúar eiga auðvitað ekki á neinn hátt að vera þjónustumenn erlendra hagsmuna eða hirðmenn í Brussel. Hollustan gagnvart Íslandi verður að vera ótvíræð hjá öllum slíkum. Við þyrftum að hafa, í það minnsta, einn Einar Þveræing í hverju ráðuneyti og kannski fleiri, líklega bara sem flesta. Hvaða þjóðar-öryggiskerfi sér annars um að fylgst sé með því að slík mál séu í lagi hérlendis ? Er einhver á vaktinni í þeim efnum ?

 

Vörumst Evrópusambandið og úlfahjörðina sem því fylgir, erlenda sem innlenda þjónustuaðila þess. Vörumst hinn glefsandi óvin sem ágirnist það sem okkar er. Vörumst öll fimmtu herdeildaröfl og hættulega og hlekkjandi orkupakka. Vörumst svikaöflin, höldum vöku okkar og verjum frelsi okkar og sjálfstæði um ókomna tíð. Ísland er landið !

 


Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 167
  • Sl. sólarhring: 209
  • Sl. viku: 1304
  • Frá upphafi: 316990

Annað

  • Innlit í dag: 157
  • Innlit sl. viku: 1004
  • Gestir í dag: 155
  • IP-tölur í dag: 154

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband