28.1.2025 | 13:17
Hverju er þjónustan eiginlega helguð ?
Mér verður stundum hugsað til þess, að það hljóti að vera býsna pínleg staða fyrir starfsmenn á held ég flestöllum vestrænum fréttastofum að vera stöðugt, trúlega samkvæmt fyrirmælum, að halda fram hlutum sem eru gjörsamlega úr öllum takti við veruleikann og byggjast líklega annaðhvort á vísvitandi lygum eða algerlega óraunhæfri óskhyggju. En kannski eru svo margir orðnir heilaþvegnir og hjartadeyfðir fyrir sannleiksorðum, að þeim er ef til vill sama þó vinnan þeirra gangi út á það að stórum hluta að fara með ósannindi alla daga !
Sú var tíðin að ég áleit að Ríkisútvarpið væri þokkalegt fjölmiðlunartæki, þjóðlegt og gott sem slíkt. En það er reyndar nokkuð langt síðan. Allar götur frá þeim árum hefur RÚV verið að lækka í áliti hjá mér sem virðingarverður fjölmiðill og nú er svo komið að ég held að það komist ekki neðar. Það situr á botni alls þess, í mínum huga, sem engin leið er að bera virðingu fyrir !
Þvílíkur ósigur fyrir íslenska þjóðarsæmd ! Útvarp íslensku þjóðarinnar virðist bara orðið að ómerkilegri endurvarpsstöð fyrir Nató, ESB, loftslagsmafíuna og eiginlega alls konar óþjóðlegar klíkur sem vaða hér uppi. Engar hlutlausar og frambærilegar fréttaskýringar virðast í neinu boðnar fram. Efstaleitisútvarpið virðist orðið fastur samastaður einhvers pólitísks sértrúarsafnaðar sem stjórnar sér sjálfur !
Fréttir um stríðsátök erlendis eru nú teknar beint frá öðrum stríðsaðilanum eins og ekkert sé athugavert við slíkan frétta-flutning. Upplýsingar um Rússa og athafnir þeirra í Úkraínu koma beint frá Selenski-stjórninni. Fréttamaður frá RÚV virðist látinn vera til taks allar stundir hjá Nató og ESB í Brussel og þylja í þaula allt sem honum er skipað að segja. Hverskonar fréttamennska er þar í gangi ? Einhliða áróður og ekkert annað !
Það er mikið talað um sparnað í ríkis-rekstri um þessar mundir. Fólk er beðið um tillögur í þá átt, af nýjum stjórnvöldum. Mér finnst eitt mál alveg tilvalið í þeim efnum. Eftir 5 ár verður Ríkisútvarpið 100 ára. Ég vil gera það að tillögu minni að það verði haldið upp á afmælið með því að leggja stofnunina niður.Loka bara búllunni fyrir fullt og allt. Best væri að fara að hreinsa þar til sem fyrst, svo það verði klárt að hægt verði að skella þar endanlega hurð í lás árið 2030 !
RÚV er að minni hyggju löngu orðið að úrkynjuðu fyrirbæri sem þjónar ekki lengur eigin þjóð að nokkru gagni, hvorki sönnum og eðlilegum íslenskum menningararfi né sjálfstæðri og þjóðlegri íslenskri fram-tíðarsýn. Og sannarlega hefur þar illa verið vikið út af þeim vegi sem þessari stofnun var markaður í upphafi !
Ég veit ekki hverju eða hverjum þjónustan þar er helguð, en mér dettur helst í hug að þar sé frekast hugað að einhverjum allt öðrum aðilum en ætti að vera, kannski einhverjum sem best væri fyrir Íslendinga að þekkja sem minnst. Ég get ekki annað sagt en að ég skammast mín fyrir það sem þjóðlegur Íslendingur, hvernig búið er að fara með útvarpið okkar, sem eitt sinn var talið býsna gott og var það líklega að mörgu leyti !
En síðan eru liðin mörg ár og það góða virðist hafa horfið úr dagskrárliðum og öllu efni að mestu leyti. Einhverskonar sálufélag um skítlegt eðli og innanbúðar klíkuskap sýnist svo hafa yfirtekið allt heila klabbið í framhaldinu. Það er virki-lega ömurlegt að horfa upp á afturförina í þessum efnum. ,,Sá er löngum endir á Íslendingasögum var víst einu sinni sagt, en það þarf samt ekki að þýða, að allt þurfi alltaf að fara til andskotans í þessu landi !
Það er nefnilega hægt að hætta slíkum vitleysisgangi, það er hægt að stöðva sóun þjóðlegra fjármuna í fyrirbæri eins og RÚV, sem ekki er - að mínu mati - að skila sér til góðs. Útvarpið virðist vera orðið að ríki í ríkinu sem stjórnað er erlendis frá. Betra er ekkert útvarp en útvarp sem hegðar sér með þeim hætti sem mér finnst RÚV gera og hafa gert mörg undanfarin ár!
Það framferði hefur, að minni hyggju, lengi verið íslenskri þjóð til skammar og þá er vægt til orða tekið. Löngu er tímabært að mál séu hafin upp úr þeim fjarstýrða öldudal ómerkilegheitanna sem þar hefur viðgengist og hugað heilshugar að einhverju virðingarverðu, þjóðlegu og sjálfstæðu framtaki þess í stað !
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:33 | Slóð | Facebook
Bloggfærslur 28. janúar 2025
Nýjustu færslur
- Hverju er þjónustan eiginlega helguð ?
- Orðheimtu aðferðin !
- Endurreisn ómennskunnar !
- ,,Fylgiríki Bandaríkjanna ?
- Hin kratíska feigðarstefna Norðurlanda !
- Útþenslustefna Bandaríkjanna !
- ,,Nýja Kalmarsambandið og glóruleysisgangan !
- Litlar, leiðitamar þjóðir !
- Er herleiðing Flokks fólksins að hefjast..... ?
- Um tilhneigingar til frestunar lýðræðis ?
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 5
- Sl. sólarhring: 214
- Sl. viku: 917
- Frá upphafi: 366645
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 806
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
-
: Fjörusprek og Grundargróður (2023) -
: Í norðanvindi og vestanblæ (2013) -
: Hjartað slær til vinstri - Úr minningaheimi Kalla í Nesbæ (2010) -
: Bræðingur og Brotasilfur (2004) -
: Þar sem ræturnar liggja (2004) -
: Út við ysta sæ (2000) -
: Frá fjöru til fjalls (1996) -
: Vísur frá Skagaströnd (1993) -
: Ljóð frá Skagaströnd (1991)