Leita í fréttum mbl.is

,,Einleikur á Eldhússborðsflokk“ ?

 

 

 

 

 

Það fór eins og margir óttuðust, að Inga Sæland færi fram úr sér við að verða ráðherra og sú útkoma lét því miður ekki á sér standa. Það er ekki nóg að búa til flokk við eldhúsborðið, það verður að gera það með þeim hætti að það standist lög. Skattpeningar almennings virðast helst hafa streymt frá Ríkinu til Flokks fólksins, án nokkurrar aðgæslu. Slíkt er enganveginn ásættanlegt !

 

Og þá er það spurningin: Í hvað fóru þessir peningar ? Varla til að kaupa einhvern óþarfa og fleira fínt ? Það verður að vera hægt að sýna fram á fjárreiður félagasamtaka og/eða flokka með skýrum hætti, þegar nærst er á almennings-pyngjunni. Þar eiga engin undanbrögð að líðast. Sérstakur talsmaður almanna-hagsmuna, varnaraðili fólksins í landinu, verður að sýna betri framkomu en þetta ! Hvar er eiginlega ábyrgðin í þessu dæmi gagnvart sameiginlegum sjóði landsmanna ?

 

Flokkur fólksins virðist helst hafa hlaupið inn í nýmyndaða ríkisstjórn með allt niður um sig. Hvernig er með þetta lið þar á bæ, er enginn að hugsa ? Það er ekki nóg að vinna sigur, það er miklu meira mál að vera manneskjur til að standa undir sigrinum. Tommi var settur út, að sögn, vegna þess að hann hefði sofið of mikið. En það virðist sem forustulið Eldhússborðsflokksins hennar Ingu sé meira og minna allt sofandi !

 

Þessi ríkisstjórn er sannarlega ekki líkleg til stórra afreka. Það virðast þegar komnir brestir í nýsmíðaðan grunninn og fjölda manns ofbýður sú staða í fjármálum flokksins sem nú liggur fyrir ; flokksins sem átti að standa svo nálægt fólkinu og vera málsvari lífskjara þess og velferðar. Það er nöturleg niðurstaða fyrir ,,fólk fólksins“ að hafa orðið sér úti um ráðherrastóla á forsendum sem virðast ekki halda vatni. Stundar formaður flokksins bara einleik eins og henni þóknast ? Ef svo er, þá eru það vinnubrögð sem geta alls ekki gengið !

 

Við Íslendingar þurfum að gera kerfið okkar skilvirkara og ærlegra. Það þarf að hreinsa þar til og losna við margskonar óværu sem hefur fengið að búa um sig allt of lengi. Við verðum að geta átt þjóðkjörna fulltrúa á þingi sem standa undir nafni og ábyrgð sem slíkir. En það virðist vanta mikið á slíkt og það skaðar okkur öll sem tilheyrum þessu samfélagi !

 

,,Hvað höfðingjarnir hafast að, hinir meina sér leyfist það“ stendur á vísum stað og það er sannmæli. Þegar fordæmið er slæmt, kemur margt annað sem er verra á eftir. Það vilja þá margir bæta gráu ofan á svart. Við sem erum þegnar íslensks samfélags, þurfum að fá að upplifa það að sjá hin góðu fordæmi, sjá þau í virku formi og sjá þau skila af sér góðum ávöxtum !

 

En á því virðist óneitanlega hafa verið mikill misbrestur. Öll mistök kerfisins bitna á borgurum landsins. Við þurfum öll að bera ábyrgð gagnvart okkar samfélagi. Flokkur fólksins þarf í því sambandi að kynna sig þannig í orði og verki, vegna yfirlýstrar stefnu sinnar – og það með ólíkt meiri ábyrgðarkennd – en hinir flokkarnir !

 


Bloggfærslur 31. janúar 2025

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 258
  • Sl. sólarhring: 274
  • Sl. viku: 1200
  • Frá upphafi: 366954

Annað

  • Innlit í dag: 225
  • Innlit sl. viku: 1054
  • Gestir í dag: 219
  • IP-tölur í dag: 215

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband