Leita í fréttum mbl.is

Um sérgćskuviđhorf mannfélagslegs misréttis !

 

 

Komiđ hefur upp sú spurning í umrćđu dagsins, ađ fötlun sem er viđurkennd í Reykjavík og afgreidd ţar međ manneskjulegum hćtti, verđi minni ef flutt er í Garđabć ? Ţví miđur er ţó ekki um ţađ ađ rćđa, ađ andrúmsloftiđ í Garđabć sé svo heilnćmt ađ mönnum snarbatni viđ ađ flytja ţangađ, heldur virđist tekiđ á fötlunarmálum ţar međ ţeim hćtti ađ ţađ hlýtur ađ teljast í meira lagi ómanneskjulegt !

 

Svo er mál međ vexti, ađ viđhorf til fötlunarmála virđast vera ţví stađnađri og steingerđari sem viđkomandi yfirvald sýnir sig vera fjandsamlegra manneskjulegum einstaklingsrétti, félagshyggju og allri samfélagslegri ábyrgđ. Sum bćjarfélög á Íslandi hafa, ađ ţví er virđist, einhverja miđaldasýn á réttindi ţeirra einstaklinga sem standa höllum fćti vegna skertrar heilsu !

 

Ţá virđast lögbundin ákvćđi um skyldur ekki hafa neitt ađ segja og vera hundsuđ međ kulda og kćruleysi. Ađ komast ađ raun um ađ svo sé, hlýtur ađ vera hverjum ţeim Íslendingi áfall sem slíkt reynir, ţví allmargir standa enn í ţeirri meiningu ađ hér sé rekiđ velferđar-ţjóđfélag, ţó stađreyndin sé í býsna mörgum tilfellum allt önnur og verri. Auđlindir Íslands eru nú til dags blóđ-mjólkađar af innherjapúkum kerfis og klíkuskapar, af Natóarđráni og af kol-vitlausri og mjög svo kostnađarsamri innflytjendapólitík  !

 

Sérgćsluöflin á Íslandi hafa lengi hreiđrađ um sig í ákveđnum bćjarfélögum og ţar eiga helst engir óverđugir ađ komast inn. Ýmsar leiđir virđast fundnar upp og farnar til ađ undirstrika, ađ efnahags-legur styrkur sé og eigi ađ verđa meginforsenda réttar til búsetu í slíkum paradísar-einingum samfélagsins fyrir útvaldar veskisvoldugar sálir!

 

Ţađ eru reistir ósýnilegir múrar utan um slíkar sérgćskubyggđir međ úthugsuđum valdbođum, sem eiga ađ búa yfir fćlingarmćtti gagnvart ţeim sem eiga bara ađ vera annars stađar ásamt ţví ađ vera jafnframt annars flokks borgarar. Fyrsta flokks borgarar, amerískir Íslendingar, gćđamćldir eftir banda-rískum stöđlum, eiga víst ađ hafa allan forgang !

 

Af ţessum sökum eru grunsemdir um nokkuđ víđtćka flokkspólitíska fötlun í stjórn-sýslumálum sumra bćjarfélaga, orđiđ býsna áleitiđ umrćđuefni međal almennings. Fólk er fariđ ađ átta sig á ţví ađ viss útilokunarstefna er sýnilega á viđvarandi dagskrá hjá sumum valdaöflum og er full ástćđa til ađ vara almenning viđ ţví ađ veita fulltrúum slíkra forréttinda-krefjandi hópa stuđning í kosningum !

 

Ţađ segir sig sjálft, ađ mikill meirihluti ţjóđarinnar er andvígur ţví ađ einhver innmúrađur ađall rísi upp á Íslandi og heimti sérréttindi fyrir sig og sína. En einmitt ţađ er ađ gerast fyrir augum okkar í vaxandi mćli og viđ ţví verđur ađ bregđast fyrr en síđar svo alţjóđ fái haldiđ velli !

 

Veldi Mammons í ţessu landi hefur aldrei veriđ meira. Úrkynjunaređliđ er fariđ ađ segja svo til sín ađ ţađ vekur ţjóđlegan óhug. Ísland er nú víđa kallađ Litla-Ameríka og ekki ađ ástćđulausu. Í augum margra virđist sterk peningaeign jafngilda sáluhjálp og manngildi vera einskisvirđi án auđgildis. Í slíku viđhorfsmati felst í raun dauđadómur okkar sem ţjóđar !  

 

Samfélagssáttmálinn er rofinn međ slíku framferđi. Viđ ţurfum í nafni almennings-heilla og endurreisnar íslenskra manngildishugsjóna, ađ rísa gegn allri mannfélagslegri ógn sem gengst fyrir misrétti. Tilraunir sem miđa ađ ţví ađ koma upp í landinu okkar einhverskonar republikana-hreiđrum, eru óţjóđlegar og andfélagslegar og bera međ sér ófriđ og sundrungu sem ekkert gott fylgir!

 

Ţađ er ekki nóg međ ađ fasismi sé nú nánast í uppsiglingu um alla Vestur-Evrópu eins og fyrir 1940, heldur virđist svo líka vera í okkar eigin landi, og hefđi ţađ líklega ţótt ótrúleg saga fyrir ekki svo mörgum árum. Mađur nokkur fćddur um 1890 ritađi á gamalsaldri minningar sínar og sagđi ţar: ,, Um aldamótin (1900) var hatur á kúgurum og samúđ međ kúguđum einn sterkasti ţátturinn í siđrćnu viđhorfi íslensku ţjóđarinnar !“ Hver skyldi stađa okkar í ţeim efnum vera nú ?

 

Viđ Íslendingar höfum ţolađ norska kúgun, danska kúgun, breska kúgun og bandaríska kúgun, en nú virđist hin versta birtingarmynd slíkra samfélagshátta vera ađ koma fram í stöđugt verri og grófari útfćrslum íslenskrar kúgunar, ţar sem efnameiri einstaklingar rotta sig saman í ţeirri sálarlausu viđleitni ađ gera sínum minnstu brćđrum eins erfitt um vik međ ađ lifa og mögulegt er. Einhverjir kynnu ađ segja, ađ slíkir menn gćtu ekki lengur talist vera Íslendingar!


Bloggfćrslur 13. maí 2025

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Maí 2025
S M Ţ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 114
  • Sl. sólarhring: 137
  • Sl. viku: 1056
  • Frá upphafi: 381338

Annađ

  • Innlit í dag: 97
  • Innlit sl. viku: 903
  • Gestir í dag: 96
  • IP-tölur í dag: 96

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband