20.6.2025 | 00:01
Ísland undir arðránsholskeflu Nató !
Íslenska þjóðin hefur aldrei verið arðrænd eins mikið og af svokölluðum vinaþjóðum sínum. Fyrst voru það Norðmenn, svo Danir, svo Bretar og síðan Banda-ríkjamenn. Allar þessar þjóðir hafa beitt íslensku smá-þjóðina margskonar kúgun í liðnum tíma. Og alltaf hefur sú kúgun verið framkvæmd með lymsku undir blekkingarhulu vináttu og samstöðu. Meðferðin á okkur Íslendingum, af hálfu þessara aðila, hefur verið fölsk og svikul alla tíð, en lítið hefur verið gert af því að rekja þá sögu, enda vafalaust lítil fjárvon í slíkum sögurannsóknum og því engir til að gera þær !
Á sínum tíma var fullyrt að Danahatur væri fyrir hendi meðal íslensku þjóðarinnar, en það var þó aldrei meðal ráðamanna og stórbænda hérlendis, enda lágu þeir yfirleitt kylliflatir fyrir danska valdinu og meðtóku Dannebrogs-orðurnar sínar með bugti og beygingum. En alþýða manna var lítt hrifin af Dönum, og þegar Íslendingabragur Jóns Ólafssonar rit-stjóra, birtist í blaði hans Baldri, 19. mars 1870, daginn fyrir tvítugsafmæli hans, flaug bragur sá um allt landið á augabragði. Jón var þar ómyrkur í máli varðandi Danahatrið og kúgun þá sem var forsenda þess. Þar segir meðal annars:
..En þeir fólar sem frelsi vort svíkja
og flýja í lið með níðingafans,
sem af útlendum upphefð sér sníkja,
eru svívirða og pest föðurlands.
Bölvi þeim ættjörð á deyjanda degi,
daprasta formæling ýli þeim strá,
en brimrót, fossar, fjöllin há
veiti frið stundar-langan þeim eigi.
Frjáls því að Íslands þjóð
hún þekkir heims um slóð,
ei djöfullegra dáðlaust þing
en danskan Íslending !
Mönnum þótti bragð að þessu orðfæri og þjóðarandinn tók hressilega við sér. Og ekki skemmdi að lagið sem bragurinn var ortur undir, var sjálfur Marseilleasinn baráttusöngur frönsku byltingarinnar. Mjög fróðlegt er að fara sögulega yfir ofsóknir þær sem hin dansksinnuðu yfirvöld hér hófu í framhaldi mála gegn höfundi Íslendinga-brags, sem sá sér brátt þann kost vænstan að flýja land. En bragurinn sá er samt og verður í óhrekjanlegu gildi með ummæli sín gagnvart öllum sem svíkja íslenska þjóðar-hagsmuni fyrir erlend skurðgoð !
Þjóðhollusta af sannri gerð getur ekki búið í mönnum sem skríða fyrir erlendu valdi með þeim hætti að þjóna því á kostnað eigin þjóðarhagsmuna. Það er sama hvort við tölum þar um Bandaríkin, Bret-land, Nató, ESB eða annað gamalkunnugt arðránshyski þjóðlegrar hagsældar hér. Við Íslendingar þurfum að læra að verjast slíku leðurblökuliði ágangs og pólitísks skuggahernaðar. Við þurfum nefnilega í slíkum efnum að taka okkur mikið á. Við erum ekki hálfdrættingar á við Færeyinga sem eru aðdáunarverðir í sínu þjóðvarnar-starfi og geta sannarlega verið okkur sönn fyrirmynd í flestum efnum varðandi þjóð-hollustu og heilbrigða samstöðu !
Auðvitað á engin þjóð að hata aðra, en sennilegt er að hatur milli þjóða hafi fengið mikla innspýtingu þegar nýlendu-arðránið og meðfylgjandi kúgun byrjaði fyrir alvöru og Evrópuþjóðirnar kepptust um að leggja undir sig fjarlæg lönd með ofbeldi og yfirgangi. Það var ekkert réttlæti í gangi á tímum ,,The White Man´s Burden og blóðslóðir þess tíma þorna seint og gleymast aldrei. Við Íslendingar þurftum lengi að þola kúgun erlendra yfirráða og hefði svo ekki verið, hefði hatur á annarri þjóð varla fest neinar rætur hér. Það er yfirleitt orsök að hverri afleiðingu !
Það er vont þegar þjóð fær ekki að rækta sinn eigin garð í friði og njóta sinna eigin verka. Það er vont þegar yfirlýstar vinaþjóðir ganga svo á lagið með kúgun og arðrán, að þær fara að reyta blóð-fjaðrirnar af hinum íslenska þjóðarlíkama. Við Íslendingar höfum ekki efni á því að eiga svo aðgangsharða vini gagnvart hag okkar litla ríkis. Ef svonefndar varnir okkar krefjast þess að við verðum gerðir slyppir og snauðir, er betra að vera án þeirra. Matsþörf þeirra varna er líka alfarið samin og gerð af erlendum aðilum, sem horfa með litlum skilningi á okkar þjóðarþarfir og hafa alltaf gert !
Ef kvenlegt innsæi og vald í stjórnmálum kallar á það, að sópa íslensku ríkisfé í útlendar hakkdyngjur fjárheimtu og hömlulauss yfirgangs, er betra fyrir Ísland að vera án slíkrar leiðsagnar. Ef stórpólitísk, erlend innheimtubatterí,fara að vaða hér uppi hálfu meira en áður vegna pólitískrar valdaforustu kvenna í stjórnmálaflokkum landsins, er afskaplega vandséður ávinningur af þeirri forustu fyrir íslensku þjóðina. Það ætti flestum að geta verið ljóst nú þegar !
Enn er mikil þörf á því að verja þjóðlegt frelsi okkar og sjálfstæði, ekki síst gegn öllum þeim valdaaðilum hér sem virðast vilja ganga annarra erinda en þeir ættu að ganga. Það er sannarlega ekki mikil reisn yfir stjórnmálalífinu í landinu. Satt best að segja virðist hún engin vera. Við þurfum að hugsa miklu skýrar og betur um það mikilvæga mál hverskonar fólk við erum að senda sem fulltrúa fyrir okkur inn á alþingi. Í því sambandi hefur í raun allt of mikið kæruleysi viðgengist og því þarf að linna. Fulltrúar okkar á þingi eru kosnir til þess að verja íslenska þjóðarhagsmuni en ekki til þess að skríða og flaðra upp um útlenda yfirgangsaðila !
Stöndum gegn því að íslenska ríkið verði gert gjaldþrota með erlendri vígbúnaðar-margföldun og styrjaldar-tilkostnaði af hálfu Nató, sem á enganveginn að vera okkur aðsteðjandi fjárflettingarmál. Við eigum ekki heima í neinni stríðsæsinga-mafíu. Við viljum fá að vera fullvalda og sjálfstæðir Íslendingar, í friði fyrir stórpólitískri geðveiki umheimsins, - á okkar eigin, þjóðlegu forsendum !
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:08 | Slóð | Facebook
Bloggfærslur 20. júní 2025
Nýjustu færslur
- Hvað stjórnar þessari þjóð ?
- Ísland undir arðránsholskeflu Nató !
- Ísland í stórveldaslagnum !
- Það er aldrei sjálfgefið að rata réttan veg !
- ,,Farinn af hjörunum !
- ,,Að frægja land og þjóð ?
- Seinni skólaspekin verður að falla !
- Að fjötra sig klikkuðum klúbbi !
- Alltaf versna kerfiskýlin !
- Að vera með í að skemmta skrattanum !
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 191
- Sl. sólarhring: 195
- Sl. viku: 1036
- Frá upphafi: 386829
Annað
- Innlit í dag: 165
- Innlit sl. viku: 906
- Gestir í dag: 164
- IP-tölur í dag: 161
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
-
: Fjörusprek og Grundargróður (2023) -
: Í norðanvindi og vestanblæ (2013) -
: Hjartað slær til vinstri - Úr minningaheimi Kalla í Nesbæ (2010) -
: Bræðingur og Brotasilfur (2004) -
: Þar sem ræturnar liggja (2004) -
: Út við ysta sæ (2000) -
: Frá fjöru til fjalls (1996) -
: Vísur frá Skagaströnd (1993) -
: Ljóð frá Skagaströnd (1991)