Leita í fréttum mbl.is

Seinni skólaspekin verđur ađ falla !

 

 

 

Og af hverju gćti margur spurt? Vegna ţess ađ hún virkar lamandi sem hin fyrri og stendur heilbrigđum og sönnum framförum fyrir ţrifum. Skólaspekin er í dag orđin jafn eitruđ og rotin og sú fyrri var orđin, ţegar hún var felld af frjálsari og betri hugsun. En sú seinni sem enn ríkir í hroka sínum og mikillćti, ţarf líka ađ falla ţví hún bođar enga nýja hugsun og ţađan af síđur frjálsari og mannlegri hugsun, ţví ţeir sem ráđa í mygluđum háskólaköstulum hennar eru ađ mestu orđnir úrkynjađir og afdankađir frćđingar á fúla vísu afturhalds og einrćđishyggju !

 

Menntalýđur seinni skólaspekinnar varđ hinn nýi ţjóđfélagsađall ţegar kom fram á tuttugustu öldina og síst betri en sá gamli var. Ţar var sami hrokinn, sjálfselskan, egóiđ í hágír og virđingarleysiđ fyrir allri heilbrigđri mennsku. Ytri klćđi, skikkjur og skrauthúfur áttu sem fyrr ađ vera til uppfyllingar í eyđur verđleikanna. Hégóminn fékk strax ađ ráđa ríkjum, ţar sem útvaldir vitringar samfélagsins áttu ađ veita heilbrigđa leiđsögn til framtíđar ! Prófessorar nýju skólaspekinnar tóku hin andlegu völd og urđu fljótt jafn spilltir og fyrirrennarar ţeirra höfđu í veriđ í gamla tímanum. Musteri Mammons urđu ađ ţeirra höfuđvígjum !

 

Međ tilkomu nýrrar upplýsingatćkni er í raun hverjum manni bođiđ upp á ţann möguleika ađ mennta sig sjálfur. Gamla skólaskipanin er orđin úrelt ađ mestu, en heldur fastast um ţađ steingerđa og myglađa valdakerfi sem varđ til í kringum hana. Óteljandi vanmetasauđir hafa hreiđrađ ţar um sig í gegnum árin, hlađiđ um sig hrokavígjum, gengiđ um torg međ yfirgengilegu sjálfselskudrambi og haldiđ ađ ţeir héldu á sjálfum hnettinum eins og Atlas og allt stćđi og félli međ ţeim !

 

Í raunmynd hefur ţetta hyski veriđ ađ mestu liđónýtt, ekki síst síđustu áratugina, og veriđ einar verstu afćturnar í öllu ţjóđhagslegu tilliti í hverju samfélagi, međ botnlausu mikillćti sínu og takmarkalausri sjálfsupphafningu. Ţađ er löngu kominn tími til ađ skipta ţessum auđnuleysingum út og fá í stađinn fólk sem vinnur fyrir kaupinu sínu, á grundvelli raunverulegrar hćfni !

 

Ţađ er sama hvađ svona inngróinn ómerkilegheitalýđur hefur kallađ sig međ gráđum og gerviblómum, ţví mörg geta nöfnin veriđ, en af ávöxtunum ţekkist ţetta liđ. Ţađ byggir ekkert upp en vill bara fá ađ njóta velsćldar í öllu og ţykist eitt geta vísađ öđrum veginn til góđra og gagnlegra lífshátta, en ţađ er fjarri öllum réttum viđmiđum og sannleika !

 

Ţarna getur veriđ um ađ rćđa ójafnađaralikálfa íhaldsins, sjálfs-eyđingarsinnađar vćflur vinstri grćnna, athyglissjúkar upphlaupsbullur pírata ásamt úrkynjuđum og valdasjúkum hlaupaliđseiningum úr öllum spillingar-flokkum landsins. Í stuttu máli sagt, ţá sem tilheyra lágkúruklíku allrar aumustu umrćđunnar á tilvistarlegu hallćrisplani ţjóđlífsins. En ţetta stórruglađa samansafn, telur sig samt líklega vera hina einu sönnu frelsisbođendur hámennta og framtíđarfarsćldar á Íslandi - ţvert á allan veruleika !

 

Ţađ sem gildir í smáu og stóru í mann-lífinu, er ađ menn haldi frelsi sínu, frelsi til ađ hugsa og vera sjálfstćđir persónuleikar, frelsi til ađ taka eigin ákvarđanir og mennta sig sjálfir. Öll skólakerfi leiđast út í ţađ ađ ráđskast međ fólk og frelsi ţess. Allt mannfrelsi verđur smám saman fjötrađ í glórulausan rétttrúnađ sem hleđur undir fylgjendur sína en úthýsir ţeim smám saman sem ekki hlýđnast toppliđinu !

 

Menntasnobbiđ sem tók viđ af ađalsdekri fyrri tíma er jafnvel ógeđslegra en ţađ var. Baráttufólk kommúnista og sósíalista á árum áđur, sem barđist hér harđast fyrir ţví ađ réttur almennings til menntunar yrđi frjáls og viđurkenndur, upplifđi ţađ áđur en ţađ lokađi augunum í hinsta sinn, ađ barnabörnin ţeirra gátu fariđ í langskólanám. En ţá fyrst fór hrollvekja veruleikans ađ blasa viđ !

 

Barnabörnin gengu nefnilega, eins og lömb leidd til slátrunar, í gegnum pólitíska innrćtingu kerfisins og síđan enduđu ţau 80% hjá íhaldinu, sérgćskuađli Íslands, og snerust gegn flestu af ţví sem afar ţeirra og ömmur höfđu barist fyrir – međal annars í ţeirra ţágu. Til hvers var eiginlega barist, ţegar fjandinn fékk ţannig ađ hirđa allt ađ lokum, í nafni sérgćskunnar ?

 

Menntun einstaklinga verđur ađ fá ađ vera frjáls, svo ţeir verđi ekki lagđir kviknaktir á glóđarteina auđvaldsins og eyđilagđir sem samfélagsuppbyggilegar persónur, en manndómsmorđ af slíku tagi eru býsna algeng ţar sem dollarinn og evran hafa öll hin pólitísku völd og ekkert sjálfstćđi fćr ađ dafna viđ ţjóđréttarlegar ađstćđur. Mammon ríkir ađ fullu, í krafti spillingarvalds síns, yfir íslenska ríkis-kerfinu !

 

Framkvćmdavald, löggjafarvald og dómsvald virđist nú í ţađ heila taliđ, vera alfariđ ađ glata virđingu ţjóđarinnar. Og ţađ er ekki síst vegna spillingar og sérgćsku langskólaliđs sem virđist ekki einu sinni vita eđa hafa hugmynd um ţađ - ađ menntunarlegt manndómsleysi ţess, gegnum steindauđa skólaspeki, er ađ ganga af öllum íslenskum atgervisanda dauđum. Mesta manndóminn er alltaf ađ finna međal alţýđunnar. Alikálfar ávaxta ekki manndóm !

 


Bloggfćrslur 4. júní 2025

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.6.): 26
  • Sl. sólarhring: 66
  • Sl. viku: 715
  • Frá upphafi: 384352

Annađ

  • Innlit í dag: 24
  • Innlit sl. viku: 596
  • Gestir í dag: 24
  • IP-tölur í dag: 24

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband