Leita í fréttum mbl.is

,,Upplausn Bandaríkjanna“ !

 

 

 

Ţađ er hreint ekki ólíklegt ađ síđar meir verđi upphafiđ ađ upplausn bandaríska alríkisins rakiđ til seinna kjörtímabils Donalds Trump. Stjórnunarstíll Trumps er ekki uppbyggilegur, hann er ţvert á móti niđurbrjótandi. Hann virđist yfirleitt virka ákveđiđ međ auknu virđingarleysi gagnvart lögum og reglu. Vinnubrögđ Trumps eru einrćđiskennd og virđast ganga í ýmsu ţvert gegn ţeim gildum sem Ameríkumönnum hefur veriđ innrćtt ađ virđa í margar kynslóđir. Ţar á ég viđ hina sönnu Ameríkumenn, sveita og lands-byggđarmenn Ameríku, en ekki stórborgalýđinn !

 

Donald Trump virđist ţví, í stuttu máli sagt, miklu fćrari um ađ brjóta niđur en byggja upp. Ţađ eru langt frá ţví ađ vera međmćli međ honum sem forseta og fulltrúa fyrir eigin ţjóđ. Niđurrifs-starfsemi er ólíkleg leiđ til ađ gera Ameríku mikla aftur. Ţessvegna felst mikil kaldhćđni í ţví ađ til umrćdds tíma verđi rćturnar ađ upplausn ríkisins ef til vill síđar raktar !

 

Einn hinn besti fyrirrennari Trumps á forsetastóli, Franklin D. Roosevelt talađi á sínum tíma um ađ Bandaríkjamenn vćru meira fyrir ţađ ađ byggja upp en brjóta niđur. En auđvitađ dettur engum heilvita manni í hug ađ vera međ einhvern samanburđ á ţessum tveimur forsetum, ţar sem engu er ţar saman ađ jafna. Emil Ludwig segir í bók sinni um Roosevelt ,,Auđmenn Ameríku, sem hata Roosevelt, eru sömu tegundar og menn ţeir sem komu Hitler til valda“ !

 

Og sú stađhćfing mun ekki fjarri lagi. Ţegar óvenju vćnlegur valdamađur eins og Roosevelt, var sendur á sviđiđ međ góđri framgöngu fyrir hönd forsjónarinnar 1933, kom hiđ illa náttúrulega fram međ sinn mótleik og sá mótleikur varđ Hitler, austurríska illmenniđ sem ritađi Mein Kampf um sjálfan sig og ekkert annađ. Í ţeirri bók eru allar sögulegar tilvísanir rangar og úr lagi fćrđar. Ţar er allt í rugli og ţar fyrir utan eru hinar trylltu ćsingarćđur Hitlers svo efnislega tćttar og málfarslega gallađar, ađ ţađ ţarf fyrst ađ ţýđa ţćr yfir á ţýsku, ef ţćr eiga ađ skiljast !

 

En Bandaríki Roosevelts eru ekki Bandaríki Trumps. Bandaríkin eins og ţau horfa viđ í dag, eru allt annađ og í rauninni mun ómerkilegra ríki stjórnunarlega séđ, en ţau voru 1933 ţegar Roosevelt varđ forseti. Öll mannsćmandi gildi hafa veriđ tröđkuđ niđur og peningaguđinn rćđur öllu eins og hann gerđi fram ađ hruninu sem hann olli 1929. Ţá var virkilegur sorti yfir sviđinu. En nú sitja auđhringarnir enn á ný á toppnum og stjórna öllu frá sínum svörtu baktjaldahúsum – jafnvel hvítum húsum !

 

Ef Franklin D. Roosevelt gćti litiđ yfir sviđiđ í dag, myndi honum áreiđanlega ekki lítast á blikuna. Hann var mađur sem vildi vera mađur orđa sinna. Í dag er slíkt ekki taliđ annađ en skortur á pólitískum klókindum og ţá líklega ekki síst af auđmönnum sem setjast í lýđrćđisleg forustusćti. En tímarnir breytast og mennirnir međ, er oft sagt og tímarnir hafa sannarlega ekki skánađ og ţá ekki mennirnir sem nú ráđskast međ fjöregg mannkynsins !

 

Franklin D. Roosevelt sagđi margt gott um sína daga, sem er vert allrar umhugsunar enn í dag. Hann var lýđrćđislega hugsandi mađur og mannvinur. Áriđ 1936 sagđi hann í stefnuskrárrćđu :

,,Vér verđum ađ gćta ţess, ađ láta hiđ alţjóđlega bankaauđvald ekki ginna oss út í styrjöld. Og vér verđum ađ taka í vorar hendur allan gróđa af hergagna-framleiđslu !“ Og í ljósi ţessara orđa skulum viđ svo hugleiđa stöđuna í dag, sem sýnir okkur ađ ekkert hefur áunnist, ţví aldrei virđist hafa veriđ hlustađ á slík orđ !

 

Franklin D. Roosevelt hafđi margt til brunns ađ bera sem leiđtogi. En strax viđ lát hans breyttu Bandaríkin um stefnu. Eftirmađur hans var mađur allt annarrar gerđar og hann ţjónađi allt öđrum öflum og ţá fóru Bandaríkin út í sína einpóluđu heimsveldisstefnu sem hefur eyđilagt fyrri orđstír ţeirra ađ fullu. En fyrir okkur Íslendinga, ţrátt fyrir illan eftirleik mála og svik á svik ofan, jafnt fyrir vestan haf og hér, er rétt og ţarft og skylt ađ hafa í minni eftirfarandi orđ sem Roosevelt sagđi í nafni Bandaríkjanna í júlímánuđi 1941:

,,Bandaríkin skuldbinda sig til ađ hverfa af Íslandi međ allan herafla sinn, á landi, í lofti og á sjó, undir eins og núverandi ófriđi er lokiđ, svo ađ íslenska ţjóđin og ríkisstjórn hennar ráđi algerlega yfir sínu eigin landi“ !!!!!!


Bloggfćrslur 25. ágúst 2025

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Ágúst 2025
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.8.): 125
  • Sl. sólarhring: 131
  • Sl. viku: 768
  • Frá upphafi: 394811

Annađ

  • Innlit í dag: 104
  • Innlit sl. viku: 662
  • Gestir í dag: 102
  • IP-tölur í dag: 102

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband