28.7.2013 | 11:10
Um golfvallarbraut við ysta sæ !
Sveitarfélagið Skagaströnd er menningarpláss ! Það er meira að segja stórmenningarpláss ! Hér dvelja tugir listamanna af ótal þjóðernum árið um kring og njóta fyrirgreiðslu hinna miklu menningarafla sem hér valda stöðugt grípandi gjörningum. Hér er sköpunarkraftur í algleymingi, hér er næstum allt sem þarf til að hlynna að hámarksvæðingu hæfileika fólks í fyrsta klassa !
En þegar svo mikið er fengið, geta litlir hnökrar orðið stórir. Þegar eitthvað vantar á fullkomleikann, sama hvað lítið það er, getur það spillt samhljómi hinnar æðstu samstillingar svo um munar, verið eins og óþolandi steinvala undir il í glæsifögrum skó. Og þegar þannig stendur á, verður að bregðast hart við svo að öll hljómkviða aðal og yfir lífsins verði ekki fölsk og fráhrindandi og fjarri öllum samhljómi. Ekkert má sundra samstillingunni !
Svo er mál með vexti að allt að því heimsfrægur golfvöllur er rétt fyrir utan hámenningarkauptúnið Skagaströnd. Völlurinn er mikilvægur hluti af þeirri paradís sem staðlægir ráðamenn hafa komið sér upp á síðustu árum fyrir sig og sína hirð. Og þarna er sannarlega ekki um neinn venjulegan völl að ræða. Það hefur verið annast um hann af óvenjulegri alúð og einstakri natni. Sjálfur oddvitinn slær hann þegar myndatökumaður er viðlátinn og allt hefur verið gert til að kalla fram náttúrulegan fullnægingarsjarma þarna á þessum annálaða G bletti !
Sjálfur Eisenhower Bandaríkjaforseti sem var mikill golfmaður, hefði áreiðanlega orðið yfir sig hrifinn af þessum velli og gaman hefði verið ef hann hefði getað komið hér og horft upp á alla dýrðina. En það er auðvitað út í hött að tala um slíkt, því karlinn er löngu dauður og þar af leiðandi hættur að leika golf. Þessvegna geta bæjaryfirvöld ekki boðið honum hingað eins og sendiherranum í fyrra. Það eru að vísu til nógir peningar hjá sveitarfélaginu Skagaströnd en ekki samt í þeim mæli að hægt sé að vekja menn til lífs sem dauðir eru og þar dugir ekki einu sinni hitaveitukraftur til eða 180 milljónir af almannafé !
En þótt golfvöllurinn sé og hafi verið góður og sé frægður um allan heim af listrænum Íslandsvinum Hámenningarsveitarfélagsins Skagastrandar, hefur samt verið sá hnökri á þræði gæðanna þar að ekki verður lengur við það unað. Þegar golfstraumurinn hefur legið út á völlinn hefur þurft að þeysa á eðalvögnunum nokkurn spotta - á vægast sagt grófum malarvegi !
Að hugsa sér að mönnum og það engum smámönnum skuli hafa verið boðið upp á slíkt ! Það er náttúrulega alvarlegt mál og engum til sóma. Átti sveitarstjórn til dæmis að bjóða sendiherrum erlendra ríkja í golf við slíkar aðstæður ? Áttu skrifstofuþrælkaðir tauhálsar ekki að komast út í golfvallarnáttúruna nema í gegnum hraun og holur ?
Og þarna var sosum ekki um stórt mál að ræða - aðeins skitna 3,4 kílómetra !
Þessu varð skiljanlega að kippa í lag hið snarasta. Þessar aðstæður voru auðvitað til vansæmdar fyrir hámenningarplássið og svei mér þá ef ekki bara fyrir landið allt og þjóðina með !
Og svo var allt sett í gang. Togað í alla spotta í kerfinu og gangverkið látið enduróma neyðarkall frá norðurskauti. Það varð að tryggja að oddvitinn, sveitarstjórinn, menningarvitarnir og hirðin öll, að fíflunum meðtöldum, kæmist hér eftir út á golfvöll og það eftir glæsibraut !
Það hefur löngum verið vitað að yfirstjórnarmenn víðasthvar geta orðið hitasóttarveikir á skifstofum sínum og alteknir af leiðindaköstum, en hvaða meðal er þá betra en að geta brugðið sér í golf ?
Og menn þurfa að geta greint á milli algerrar nauðsynjar og takmarkaðrar nauðsynjar !
Einhver nefndi það við ráðamann hér, að það væri tilvalið þegar öll tæki væru komin á staðinn, að leggja góðan veg eitthvað út eftir Skaganum til að bæta samgönguaðstæður fólks þar og auðvelda umferðina fyrir Skagann ? Eina svarið sem viðkomandi fékk var : Er þetta fólk eitthvað í golfi" ?
Það tala sumir líka um erfiðar þjóðfélagsaðstæður, en hvað er það þegar heill og heiður eins þýðingarmesta hóps samfélagsins er í veði, hámenningarklassans á Skagaströnd ?
Þó að það þurfi að lagfæra eitthvað til málamynda skuldastöðuna hjá aumingjum landsins, sem eru reyndar um 85% af þjóðinni, er það mál sem má bíða. Vegagerðin hefur fundið aura sem duga til að gera þessa 3,4 kílómetra þannig úr garði að enginn Íslendingur þurfi að skammast sín fyrir þá og það er kjarni málsins. Þeir peningar eru ekki teknir frá neinum og engum kemur því neitt við hvað gert er við þá og í hvað er betra að nota þá en einmitt þetta þjóðþrifamál ?
Stærðfræðilegar mælingar hafa sýnt nákvæmlega hvar beri að ljúka brautinni svo að öruggt sé að steinkast af malarveginum fyrir utan skemmi ekki farkosti sem eingöngu eru á leið út á golfvöll. Ávinningurinn af fullnaðarfrágangi vegarspottans er talinn ótvíræður, betri heilsa ráðamanna og geðsveiflur þar innan hættumarka !
Svo senn verður hægt að blússa á eðalvögnum beint í golfið, eftir eggsléttri glæsibraut, og sennilega verður það um svipað leyti og hagstaða íslenska ríkisins verður endanlega bókuð í ruslflokki !
Það er alltaf munur að menningunni !
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:53 | Facebook
Nýjustu færslur
- Endurreisn ómennskunnar !
- ,,Fylgiríki Bandaríkjanna ?
- Hin kratíska feigðarstefna Norðurlanda !
- Útþenslustefna Bandaríkjanna !
- ,,Nýja Kalmarsambandið og glóruleysisgangan !
- Litlar, leiðitamar þjóðir !
- Er herleiðing Flokks fólksins að hefjast..... ?
- Um tilhneigingar til frestunar lýðræðis ?
- Enginn friður, engir samningar, ekkert traust !
- Athyglisverð orð :
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 26
- Sl. sólarhring: 75
- Sl. viku: 595
- Frá upphafi: 365493
Annað
- Innlit í dag: 23
- Innlit sl. viku: 508
- Gestir í dag: 23
- IP-tölur í dag: 23
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
-
: Fjörusprek og Grundargróður (2023) -
: Í norðanvindi og vestanblæ (2013) -
: Hjartað slær til vinstri - Úr minningaheimi Kalla í Nesbæ (2010) -
: Bræðingur og Brotasilfur (2004) -
: Þar sem ræturnar liggja (2004) -
: Út við ysta sæ (2000) -
: Frá fjöru til fjalls (1996) -
: Vísur frá Skagaströnd (1993) -
: Ljóð frá Skagaströnd (1991)