Leita í fréttum mbl.is

Tveggja hćkju stjórn !

 

Margt breytist í veröldinni bćđi hérlendis og erlendis. Allt ađ ţví 25% af kjörfylgi í ţingkosningum hér virđist hćtt ađ vera fast flokksfylgi og sveiflast til eftir ţví hver best býđur. Jafnađarmennska virđist eiga undir högg ađ sćkja í íslensku samfélagi, enda er harđsođinn sérgćskuháttur vaxandi meinsemd í viđhorfum landsmanna og vandséđ hvernig samfélagsleg velferđ getur skilađ sér vel viđ slík skilyrđi.

 

Í nýafstađinni kosningabaráttu talađi forusta íhaldsins mjög um stöđugleika sem átti víst ađ vera eitthvađ fyrirbćri sem ađeins gat ţróast fyrir tilverknađ bláa ađalsins. En flestir vita hvađ stöđugleiki ţýđir í raun í munni íhaldsforustunnar, ţađ er ađ almannahagsmunum verđi stöđuglega fórnađ á sérhagsmunaaltari hinna ríku !

 

Íhaldiđ hefur löngum haft ţađ fylgi í ţessu landi, ađ ţađ hefur sem flokkur haft mestan fjölda manna á ţingi. Ég hef reyndar aldrei getađ skiliđ hvers vegna svo er.

Gamlir verkamenn sem aldrei gátu lyft höfđi á lífsleiđinni vegna fátćktar kusu ţađ margir hverjir, ef til vill vegna ţess ađ međ ţví héldu ţeir ađ ţeir vćru ađ sanna ađ ţeir vćru sjálfstćđir menn. En auđvitađ var sá gjörningur ţeirra grundvallarsönnun ţess ađ ţeir voru ţađ ekki. Sá sem kýs ţađ alltaf yfir sig sem níđir niđur af honum skóinn er hvorki frjáls né sjálfstćđur. Hann er miklu frekar ţrćll sinnar eigin blekkingar !

 

Og víđa hefur boriđ á ţví ađ ungt fólk á vegamótum sem er ekki mjög hugsjónaríkt en vill hinsvegar mjög gjarnan verđa ríkt og helst vinna sem minnst til ţess, hefur sterka tilhneigingu til ađ ganga í ţennan alrćmda sérhagsmunaklúbb sem íhaldiđ er. Einkum vegna ţess ađ ţar telur ţađ ađ verđi best hlynnt ađ ţví í nafni samtryggingar sérgćskunnar. Í ţví skjóli verđi auđveldast ađ eignast peninga, sem vafalaust gćti ţá gerst međ einhverjum spunagangi spillingarvaldsins frá herkastala Mammonshyggjunnar !

 

Vegna ţingmannafjölda síns gat íhaldiđ alltaf hér áđur fyrr myndađ tveggja flokka stjórn sem varđ til međ ţví móti ađ ţađ fékk annan flokk til liđs viđ sig sem gerđist hćkja ţess. Menn geta rétt ímyndađ sér samningana á bak viđ slíka gjörninga. Oftast voru ţađ Framsóknarmenn eđa kratar sem gáfu kost á sér til hćkjuhlutverksins og yfirleitt var sú ţjónusta ţeirra lítt metin af kjósendum í nćstu kosningum. Ţađ töpuđu skiljanlega allir flokkar á ţví til lengdar ađ leggjast undir íhaldiđ !

 

Á ţessum tíma var eitt af slagorđum íhaldsins – festa til hćgri – glundrođi til vinstri. Minnir ţađ ekki á stöđugleikataliđ nýafstađna ? Ţá sagđi íhaldiđ ađ ţriggja flokka stjórn vćri veik stjórn, enda var ekki hćgt ađ mynda vinstri stjórn nema međ ađkomu ţriggja flokka. Nú í dag er eitt af ţví sem breyst hefur, sú óhagganlega stađreynd mála, ađ íhaldiđ getur ekki lengur myndađ stjórn međ einni hćkju, ţađ ţarf tvćr !

 

Ţađ dugir ekki ađ kippa Framsókn međ sér núna eđa Samfylkingunni, jafnvel ekki Vinstri grćnum ef ţeir glćptust á slíkt. Íhaldiđ ţarf nú í fyrsta skipti ađ verđa sér úti um tvćr hjálparhćkjur viđ myndun ríkisstjórnar. Og svo tala ţeir um sigur og fagurt flokksgengi ţegar ţeir eru komnir undir 30% kjörfylgi, en höfđu lengi vel í kringum 40% !

 

Og ef ađ hćkjurnar verđa – ef af verđur, Viđreisn og Björt framtíđ, hvernig skyldi ţá semjast á milli Íhalds I og Íhalds II og Bjartrar framtíđar sem á ađ verđa litla hćkjan í samstarfinu ? Verđur slíkt stjórnarsamstarf ávísun á bjarta framtíđ fyrir landslýđinn ? Er ţađ ekki óttarrs -leg vitleysa ađ halda ţađ ?

Ég er ekki hissa ţótt íhald II vilji ţjóna undir íhald I međ ţeim samningum sem ţar verđa sjálfsagt gerđir, en ég er hissa á ađ sjá Bjarta framtíđ taka ţátt í ţeim leik og tel ţađ frekar ávísun á Svarta framtíđ fyrir íslenska kjósendur - sem voru áreiđanlega ekki ađ sá fyrir slíkum ríkisstjórnar-bastarđi í nýafstöđnum kosningum !

 

Vegakerfiđ er ađ grotna niđur međan Bjarni Ben II segist vera ađ borga niđur skuldir og hiđ opinbera menntakerfi rýrnar stöđugt ađ gćđum og brátt verđur ríkisheilbrigđiskerfiđ okkar ţjóđarskömm ef ekkert verđur ađ gert. Ţar hafa ţađ engir gott nema lćknar og sérfrćđingar sem - taxtann háa tvöfalda - og eru međ gróđastofur úti í bć !

 

Já, margt breytist í veröldinni hér sem annarsstađar. Donald Trump er búinn ađ yfirtrompa Hillary Clinton og á leiđinni í Hvíta húsiđ. Bill Clinton tekur ţví ekki viđ hlutverki “The First Lady !“

Ţótt Hillary beri brattgengt nafn tókst henni ekki ađ ná hinum mjög svo eftirsótta frama, ađ verđa forseti Bandaríkjanna og fyrsta konan í ţví embćtti. Hún hefur haft margan drauginn í fylgd međ sér og ţótt mótherji hennar sé slíkur sem hann er, tókst henni samt ekki ađ nýta sér ţađ til sigurs.

Og á Íslandi er sama stjórnleysiđ og veriđ hefur, nógir peningar fyrir ţingmenn, dómara og ráđherra en engir fyrir sjómenn landsins eđa ađra almenna launţega !

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Maí 2025
S M Ţ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 194
  • Sl. viku: 979
  • Frá upphafi: 383594

Annađ

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 850
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband