17.6.2017 | 09:14
Ofbeldisvæðingin !
Byssuleikir virðast vera að komast aftur í tísku, jafnvel hér á Fróni. Það hefur víst alltaf verið til nóg af mönnum sem hafa gaman að því að bera vopn og augljóst er hvert slíkir hljóta að sækja til að fá útrás fyrir þá hneigð !
Það er ekki amalegt fyrir slíka víkinga að fá að ganga um gráir fyrir járnum, en því miður fyrir þá, hefur slíkt verið talið að minnsta kosti hingað til heldur óíslenskt háttalag !
En áhrifavald umheimsins og þess illa sem þar er og hefur verið að gerast er mikið. Jafnvel friðsömustu menn eins og ríkislögreglustjóri fara að sjá ógnir í hverju horni og segjast vilja bregðast við í tíma. Ein sekúnda geti skipt máli og sá sem er fljótari að skjóta hefur þá líklega vinninginn eins og var í vestrinu gamla !
Svo hefur nú svokölluð Herbjarnarstefna áður látið á sér kræla hér og allir vita að hún er blá í gegn. En af hverju skyldum við Íslendingar eins og margt virðist benda til vera að færast á þennan óskemmtilega stað með okkar þjóðlíf ?
Það er hreint ekki eingöngu sú hryðjuverkaógn sem leikur víða lausum hala, sem veldur breyttu hugarfari ráðamanna með tilheyrandi stríðsmannastælum !
Höfuðstaður Íslands hefur verið að breytast á undanförnum árum úr tiltölulega friðsömum bæ í borg sem er farin að hýsa ansi margt af því sem fylgir stórborgum úti í heimi. Og þá á ég við slæma hluti. Það er orðið varasamt að vera einn á ferð í miðborg Reykjavíkur, ekki síst á þeim tíma sólarhringsins, sem eitt sinn í gamalli fortíð var kallaður ókristilegur umgangstími, tími þegar allt ærlegt og vinnandi fólk var að hvíla sig !
Nú virðist orðið býsna margt af fólki í höfuðborginni sem þarf ekki að nota tímann til þess að hvíla sig, virðist ekki þreytt eftir vinnu og er greinilega að sinna einhverju öðru.
Það er komið til sögunnar dúndrandi næturlíf að erlendri fyrirmynd, og saman við það hverfist nokkuð margt sem getur búið yfir hættulegum hlutum. Blaðamenn hafa því á seinni árum farið að tala opinskátt um svokallaða undirheima Reykjavíkur, nokkuð sem áður var aldrei talað um og ekki talið vera til !
Nú virðist hinsvegar einhverskonar ofbeldisvæðing vera í fullum gangi í hinum fyrrum friðsæla höfuðstað Íslendinga. Grófir ruddar eru sagðir á ferð um borgina, líklega leigðir af einhverjum peningafurstum, til að lúskra á skuldugum viðskiptamönnum. Dæmi eru til um að menn hafi verið barðir til óbóta í slíkum tilfellum og jafnvel í fangelsum landsins virðast menn ekki óhultir fyrir slíkri meðferð. Við erum stöðugt að verða vitni af illum afleiðingum slíkra mála !
Þegar leigubílstjóri í Reykjavík var myrtur þar nokkru fyrir 1970, lá við að öll íslenska þjóðin væri í taugaáfalli dögum saman. En nú kippa menn sér ekki mikið upp við slíkar fréttir. Það sem fer að verða eiginlega á næsta bæ við daglegt brauð, - vekur ekki mikla athygli. Og til að mæta ofbeldisvæðingu umræddra undirheima Reykjavíkur og hugsanlegri hryðjuverkaógn að utan ( eða innan ), virðist lögreglan nú telja sig nauðbeygða til að svara ofbeldisvæðingunni á sama veg það er að segja með því að vopnast !
Lögreglumenn eru auðvitað menn eins og aðrir, og líklegt er - að við stóraukið ofbeldi og harðsvíraða glæpamennsku af hálfu þeirra sem við er að etja, manna sem tilheyra þá ætluðu undirheimaliði höfuðborgarinnar, geti þeir orðið svo óttaslegnir um eigið öryggi, að það verði í sjálfu sér vandamál innan lögreglunnar !
Það getur því kannski ekkert unnið bug á þeim ótta meðal þeirra nema sú tilfinning að vera vel vopnaður ef í harðbakkann slær og geta skotið almennilega frá sér ?
Aðstæður hafa líka þótt sýna að það geti verið gott að geta hleypt af byssu þegar ógnin krefur. Það eru til dæmis til veikir menn sem fá hvergi inni í kerfinu og ekkert er gert fyrir, menn sem geta í örvæntingarfullri þörf sinni fyrir hjálp, orðið sjálfum sér og öðrum hættulegir. Það hefur að margra dómi sannast - í Hraunbæ og víðar !
En ef það að lögreglumenn séu vopnaðir frá toppi til táar tryggi öryggi þeirra og almennra borgara, ættu Bandaríkin að vera öruggasta land í heimi. En því er ekki að heilsa, þar eru morð daglegt brauð og lögreglan sjálf hreint ekki saklaus af slíku.
Getum við ekki lært neitt af því að hafa vítin til varnaðar beint fyrir augum okkar ?
Ástand mála hérlendis vekur auðvitað ýmsar spurningar. Fyrir utan hugsanlega hryðjuverkaógn, erum við sem sagt komin með höfuðborg sem á sína undirheima ; við erum komin þar með veruleika sem býr yfir mjög ofbeldisfullum viðskiptaháttum ; við erum komin þar með vissa viðurkenningu á því að ofbeldi sé nauðsynlegt til að menn nái sínu fram !
Og við vitum að það sem grasserar í höfuðborginni mun setja mark sitt á mannlíf annarsstaðar á Íslandi, svo sem á landsbyggðinni !
Á hvaða leið erum við ? Eigum við kannski eftir að heyra blaðamenn innan fárra ára tala um Reykjavík sem glæpaborg ?
Á íslenskt mannlíf að fara að að lifa og hrærast með glæpum, eins og það eigi bara að vera hluti af menningu okkar og dagfari ? Af hverju er þessi sjúklega löngun hjá svo mörgum að lesa glæpasögur, lesa um ofbeldi og morð ? Af hverju er svona mikil nautn fólgin í því fyrir svo marga að lesa um dráp á fólki ? Ekki vill neinn láta myrða sig, en ofbeldi gagnvart öðrum virðist bara vera álitið spennandi afþreyingarefni !
Er sú afstaða kannski liður í því að vaxandi ofbeldi í samfélaginu virðist farið að njóta umburðarlyndis langt umfram það sem eðlilegt getur talist ? Að fólk hugsi bara : Þetta er allt í lagi meðan það snertir ekki mig og mína !
En aukning á ofbeldi í samfélaginu er að sjálfsögðu mál sem snertir alla. Hvort sem ofbeldisvæðing og aukinn vopnaburður er meðal afbrotamanna eða lögreglu, er það vitnisburður sem ekki er vænlegur og hann sýnir að við erum ekki að ganga veginn til góðs. Það eru verri viðhorf farin að stjórna málum en áður og þar sem aukning verður á vopnaburði, þar verður aukning á ofbeldi. Það mun haldast í hendur !
Ef það er það sem koma skal, getum við kvatt það Ísland sem við öll höfum elskað, því það er þá farið eða á förum með þeim friði sem það bjó yfir !
Hryðjuverkasamtök umheimsins hafa þá náð þeim árangri með ógn sinni að breyta íslensku samfélagi í eitthvað sem er miklu nær þeirra eðli og art en því sem var aðalsmerki okkar í eina tíð !
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Endurreisn ómennskunnar !
- ,,Fylgiríki Bandaríkjanna ?
- Hin kratíska feigðarstefna Norðurlanda !
- Útþenslustefna Bandaríkjanna !
- ,,Nýja Kalmarsambandið og glóruleysisgangan !
- Litlar, leiðitamar þjóðir !
- Er herleiðing Flokks fólksins að hefjast..... ?
- Um tilhneigingar til frestunar lýðræðis ?
- Enginn friður, engir samningar, ekkert traust !
- Athyglisverð orð :
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 25
- Sl. sólarhring: 74
- Sl. viku: 594
- Frá upphafi: 365492
Annað
- Innlit í dag: 22
- Innlit sl. viku: 507
- Gestir í dag: 22
- IP-tölur í dag: 22
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
-
: Fjörusprek og Grundargróður (2023) -
: Í norðanvindi og vestanblæ (2013) -
: Hjartað slær til vinstri - Úr minningaheimi Kalla í Nesbæ (2010) -
: Bræðingur og Brotasilfur (2004) -
: Þar sem ræturnar liggja (2004) -
: Út við ysta sæ (2000) -
: Frá fjöru til fjalls (1996) -
: Vísur frá Skagaströnd (1993) -
: Ljóð frá Skagaströnd (1991)