17.2.2023 | 15:39
,,Öllu skal fórnað á altari Nató !!!
Sagt er að foreldrar í Reykjavík séu æfir yfir því hvað æfingagjöld barna þeirra sem stunda íþróttir hafa hækkað mikið að undanförnu. Hvaða nöldur er þetta eiginlega ? Veit fólk ekki að það kostar að taka í arma sína 45 milljón manna þjóð utan úr Evrópu ?
Það hefur brotist út stríð í Evrópu sem við erum að hluta til ábyrg fyrir af því að við erum í hernaðarbandalagi. Það kostar auðvitað að vera í slíku samtryggingarstarfi. Þessvegna höfum við tekið á móti á þriðja þúsund manns frá þessu átakasvæði og einn Nató-ráðherrann okkar hefur rétt aðilum þar nær hálfan milljarð króna yfir borðið af þjóðarhýrunni !!!
Svo á að virkja stórlaskað heilbrigðiskerfið okkar til að taka á móti særðu fólki, líklega hermönnum, frá Úkraínu. Eitthvað kemur það til með að kosta, en skiptir það annars nokkru máli þar sem við erum svo óskaplega rrrrríííííkkkk !!!
Það skiptir auðvitað engu í þessu sambandi þó ýmis kostnaður hækki hér innanlands. Fólk verður bara að hætta þessu röfli og borga Nató-skattinn sinn með ábyrgð og festu. Það gerir hún Kata með bros á vör, en reyndar græddi hún svo vel á verðlauna-glæpasögunni sinni að hún er aflögufær !!!
En jafnvel þeir sem þykjast ekki aflögufærir, þeir sem eru að röfla og skapa leiðindi, verða að skilja að þeir verða að fórna einhverju fyrir samstöðu vestrænna þjóða, fyrir hin algóðu gildi, í nafni hins heilaga heimsfriðarbandalags Nató !!!
Aldrei hefur setið að völdum á Íslandi ríkisstjórn sem þekkir jafn vel Nató-skyldur sínar og ríkisstjórn Kötu Kobbadóttur. Og ekki síst þessvegna verða landsmenn skilyrðislaust að fylgja þar í kjölfarið. Kata og Bjarni geta svo sagt okkur hvað við eigum og verðum að gera. Sérstaklega þó Bjarni, hann getur áreiðanlega talað fyrir munn allra landsmanna, eins og Davíð og Halldór gerðu hér um árið framhjá utanríkismálanefnd. Bjarni færi létt með það viðvik, alveg eins og hann talar í flestum málum glaðbeittur út um hægra munnvikið fyrir hana Kötu sína !!!
Það þýðir ekki neitt að vera að tuða um íslensk sérmál við þær aðstæður sem nú ráða. Við þurfum núna að standa saman öll sem eitt, nema náttúrulega alls ekki í málum Eflingar, en að öðru leyti. Heiður okkar, hvað sem það kann nú að vera, er í veði. Það segir yfirstjórn Nató og ráðherrar hennar hér !!!
Skítt með heilbrigðiskerfið, skítt með skólakerfið, skítt með vegakerfið og skítt með ríkiskerfið. Skítt með öll kerfin í landinu nema kvótakerfið. Það eitt er líka í algerlega réttum höndum og við getum áreiðanlega fengið Nató-stimpil upp á það !!!
Nató-kerfið er forgangsmál fyrir skyldur Íslendinga og það verður að fá sitt, þó það komi niður á öllu hinu. Skítt með þá miklu fórn, sem er í raun lítilvæg, þegar hún er lögð á altari hinnar heilögu varnarskyldu sem hlýtur að hvíla á herðum allra stríðsbandalagsþjóða og ráðamanna þeirra sem eru auðvitað um leið öruggustu og bestu ábyrgðarfulltrúar heims-friðarins !!!
Góðir og gegnir íslenskir rétthugsunarmenn ættu nú auðvitað að taka höndum saman um að fara sem sjálfboðaliðar til Úkraínu og berjast þar fyrir hinu mikla málefni Nató, hinum þrælvopnaða heims-friði. Það hljóta að vera stórir hópar manna í landinu tilbúnir að fara í þann björgunarleiðangur !!!
Það er varla annað en sjálfsögð skylda, þar sem við Íslendingar, borgarar í stærsta smáríki veraldar, erum orðnir ábyrgir fyrir heims-friðnum. Menn geta tekið með sér í líkamlegt nesti hangikjöt og svið og í andlegt nesti - að sjálfsögðu verðlauna-glæpasöguna hennar Kötu !!!
( Aths : Þetta er að sjálfsögðu öfugmæla-pistill. En hann tekur þó mið af því áróðursefni sem haldið er að okkur, um leið og okkur er sagt milli lína í öllum fréttum að við eigum ekki að vera að hugsa. Það verði auðvitað gert fyrir okkur, en þó ekki ókeypis !)
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:04 | Facebook
Nýjustu færslur
- Endurreisn ómennskunnar !
- ,,Fylgiríki Bandaríkjanna ?
- Hin kratíska feigðarstefna Norðurlanda !
- Útþenslustefna Bandaríkjanna !
- ,,Nýja Kalmarsambandið og glóruleysisgangan !
- Litlar, leiðitamar þjóðir !
- Er herleiðing Flokks fólksins að hefjast..... ?
- Um tilhneigingar til frestunar lýðræðis ?
- Enginn friður, engir samningar, ekkert traust !
- Athyglisverð orð :
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 112
- Sl. sólarhring: 159
- Sl. viku: 681
- Frá upphafi: 365579
Annað
- Innlit í dag: 108
- Innlit sl. viku: 593
- Gestir í dag: 108
- IP-tölur í dag: 106
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
-
: Fjörusprek og Grundargróður (2023) -
: Í norðanvindi og vestanblæ (2013) -
: Hjartað slær til vinstri - Úr minningaheimi Kalla í Nesbæ (2010) -
: Bræðingur og Brotasilfur (2004) -
: Þar sem ræturnar liggja (2004) -
: Út við ysta sæ (2000) -
: Frá fjöru til fjalls (1996) -
: Vísur frá Skagaströnd (1993) -
: Ljóð frá Skagaströnd (1991)