Leita í fréttum mbl.is

Um ţorskhausajafnvćgi !

 

 

 

Kári Stefánsson forstjóri virđist telja ađ áunnu ţorskhausajafnvćgi í stjórnkerfi íslensku ţjóđarinnar sé hćtta búin. Ţađ er ekki nýtt áhyggjuefni ţví ţorskhausafjöldi íslenskra stjórnmála og embćttismanna er međ ólíkindum ađ magntölu og ţar fjölgar stöđugt óhćfu gráđuliđi og heilbeinuđum kvarnarkollum !

 

Forustuliđ ţessarar ţjóđar er orđiđ svo rótnagađ og útlendingasinnađ, ađ ţađ hefur gjörsamlega gleymt sinni eigin ţjóđ. Ţađ er ekki lengur í neinum tengslum viđ lífsbaráttu fólks til sjávar og sveita. Slíkt liđ er algerlega óhćft til íslenskrar forustu !

 

Núverandi ríkisstjórn er orđin fullkomin ţjóđarskömm. Hún eltist viđ erlend sjónarmiđ og útlendingadekur međan nauđsynleg innviđamál okkar samfélags drabbast niđur á alla kanta. Ţetta úrkynjađa, athyglissjúka ţorskhausaliđ virđist bara vilja fá ađ vera í fréttum erlendra fjölmiđla – ađ öllu leyti á okkar kostnađ. Ţađ knúsar jafnvel og kyssir erlenda óţokka í fréttamyndum, en hirđir í raun ekkert um íslenskan almenning eđa lífsskilyrđi hans !

 

Venjulegir ţorskhausar eru einfaldir ađ gerđ, en ţeir ţorskhausar sem viđ höfum í vinnu hjá okkur á ónefndum stađ, sem á víst ađ vera vinnustađur, eru tvöfaldir ađ gerđ og jafnvel ţrefaldir. Ţađ verđur ţví seint hćgt ađ koma einhverju jafnvćgi á ţau mál sem ţeir koma nálćgt og hafa afskipti af. Best vćru ţeir ţví geymdir í upphengdu ástandi í ýlduhjöllum erlendra spillingarkerfa !

 

Kári Stefánsson virđist sjá margt, en ţó mćtti hann skođa betur hvernig kvótakerfiđ er upphugsađ og sniđiđ ađ sérgćđingaţörfum íslenska útgerđar-auđvaldsins en engan-veginn ađ íslenskri almannaheill. En Kári sér kannski ekki alveg mun málanna í ţeim efnum, ţví eitt sinn minnir mig ađ ţjóđin hafi átt ađ ábyrgjast alfariđ ţann rekstur sem hann var ađ fara af stađ međ, sem ţótti ţá allmikil áhćtta. Ţá virtist koma sér vel ađ eiga valdamikla vini. Ţá sá Kári mér vitanlega ekkert ađ slíku ráđs-lagi, en nú er Kári hinsvegar fólksins mađur og vill vera ţađ !

 

Batnandi manni er best ađ lifa, en ţađ er orđiđ vandlifađ á Íslandi margra hluta vegna. Misskiptingin er í ţađ fyrsta orđin allt of mikil. Hér lifa arđrćningjar og arđrćnt fólk, fólk sem á ađ heita af sömu ţjóđ, í vaxandi heiftarandspćni. Međferđ stjórnvaldsins á strand-veiđunum sýnir ţađ ljóslega. Hvenćr sýđur algerlega upp úr, spyrja margir, og flest bendir til ađ ţađ geti orđiđ bráđlega ?

 

Hver er annars ţorskhaus og hver ekki ? Ef íslenska stjórnkerfis-elítan er samansafn ţorskhausa, sem hún reyndar er ađ öllum líkindum, hvađ erum viđ ţá, íslenskir kjósendur, sem kjósum slík víđáttufífl, sem raun ber vitni, yfir okkur sem fulltrúa okkar ?

 

Á Íslandi getur enginn búist viđ neinu ţorskhausajafnvćgi, ţví međ hverri kynslóđ koma nýir og verri ţorskhausar fram, einkum úr háskólunum, sem fara yfirleitt međ fyrra heimskujafnvćgi ţjóđmálanna til fjandans. Og fćddum ýlduhausum fjölgar !

 

Menntunin sem er orđin öfug í allri útkomu sinni nú á tímum, á sér fyrir vikiđ ađeins eina leiđ, og hún liggur niđur á viđ. Ţađ er stöđugt beđiđ um meiri og fleiri asna !

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Júlí 2025
S M Ţ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.7.): 314
  • Sl. sólarhring: 314
  • Sl. viku: 1043
  • Frá upphafi: 389553

Annađ

  • Innlit í dag: 244
  • Innlit sl. viku: 842
  • Gestir í dag: 235
  • IP-tölur í dag: 230

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband