Leita í fréttum mbl.is

Tjáningarfrelsi úr túninu heima !

 

 

 

Ekki virđist mikil umrćđa hafa átt sér stađ á Skagaströnd varđandi framtíđ mála í hinum dreifđu byggđum í landinu. Ţjóđ-félagiđ hefur samt veriđ rekiđ í meira en 30 ár, alfariđ á hagnađarforsendum höfuđborgarsvćđisins. Landsbyggđin hefur jafnframt allan ţann tíma veriđ skilgreind sem afgangsstćrđ í samfélaginu af ţeim sem ráđiđ hafa ferđinni í háköstulum ríkisvaldsins og mörgum ávinningi frá fyrri tíđ veriđ spillt !

 

Níđingsleg langtíma framkoma yfirvalda gagnvart lífsafkomu bćnda og ekki síst síđustu árin, hefur stórskađađ heilbrigđar undirstöđuforsendur mannlífsins í landinu og skapađ geysilega mikiđ vantraust á kerfinu og öryggisleysi međal fólks í sveitum landsins, sem bitnar á öllu samfélaginu. Ţađ miđast allt sem fyrr viđ suđvesturhorn landsins og menningar-mafíulegar áherslur mála sem eru oftast úr öllum takti viđ vitrćnan veruleika !

 

Mikill ţrýstingur hefur veriđ viđhafđur af kerfinu á öllum ţeim tíma sem hér um rćđir, ađ heimta sameiningu sveitarfélaga úti á landi, međan jafnvel smátotur á suđvesturhorninu, eins og Seltjarnarnes, komast upp međ ađ vera sjálfstćđ á forsendum sérgćskueiningar ríkisbubba sem vilja enga samleiđ eiga međ venjulegu fólki, eđa snauđum plebbum, eins og ţađ er kallađ !

 

Á Skagaströnd hefur veriđ unniđ nokkuđ í ţví ađ tala fyrir sameiningu viđ Blönduós, en sú hugmynd hefur víđa falliđ í grýttan jarđveg. Og nú ţegar peningalegur vara-forđi vegna fyrri eignastöđu er líklega mikiđ til uppurinn, líklega vegna aumrar ávöxtunar, er sameiningarumrćđa ef til vill ofar á baugi en áđur hjá sumum og neđar hjá öđrum !

 

Og kannski er áhugi fyrir slíkri sameiningu ekkert endilega sá sami nú og hann var af hálfu yfirvalda á Blönduósi, ţar sem fyrrnefndur varaforđi er líkast til ađ fullu og öllu liđin tíđ !

 

Viđ Skagstrendingar höfum lengst af getađ mannađ okkar stjórnunareiningu á bćjar-skrifstofu međ heimafólki og ţar ţóttu samskipti oftast vera međ nokkuđ eđlilegum hćtti. Nú um tíma hefur sú stađa ţó ekki veriđ í bođi. Ađkomufólk hefur ţar tekiđ viđ störfum og öll persónuleg samskipti hafa orđiđ heldur stífari og ánćgjuminni fyrir vikiđ. Hin persónulega nánd sem áđur var ţó til stađar virđist horfin. Kannski eru ţar komin fram fyrstu kynni okkar Skagstrendinga af ţví ađ vera undir ađra settir ?

 

Allmargir virđast líka vera ađ komast á ţá skođun, ađ sjálfstćđi okkar sveitarfélags hljóti senn ađ verđa liđin tíđ og ţá er líklega ađallega horft til sameiningar viđ Blönduós og kannski ađra hreppa innan sýslunnar. En til munu ţeir menn vera međal Skagstrendinga sem ţykir ţađ, viđ gjörbreyttar ađstćđur, öllu fýsilegri kostur ađ sameinast ţvert yfir Skagann til austurs. Ţađ er ađ segja ađ sameinast Skagafirđi. En ţá er ein spurningin sú hvort Skagfirđingum hugnist slík sam-eining, en líklega mun Blönduósingum ekki lítast á slíkar hugmyndir. Allt er ţó ókannađ í ţessum efnum, en orđ eru samt til alls fyrst !

 

Međ stórbćttum samgöngum yfir Ţverárfjall hafa ţó forsendur sameiningarmála breyst mikiđ og kann sú breyting ađ fela í sér nýja möguleika samstarfs sem ekki hefur veriđ hugađ ađ í neinni verulegri alvöru fyrr. Virk atvinnulífstenging milli Skagastrandar og Sauđárkróks hefur ţó áđur gefiđ nokkra reynslu í sambandi viđ útvegsmál og veriđ báđum í hag, ađ áliti sumra !

 

Ţó ađ ţađ sé löngum best ađ hvert sveitarfélag hafi burđi til ađ geta veriđ sjálfstćtt, verđur ţví ekki neitađ ađ ríkisvaldiđ hefur sett smáum sveitar-félögum um allt land nokkuđ ţröngar skorđur, međ sívaxandi kröfum um nánast alla hluti. Ţađ getur ţví komiđ upp sú stađa ađ sveitarfélag verđi of fámennt til ađ standa undir álögum kerfislegrar ofstjórnunar af hálfu ríkisins og jafnvel ţá kannski ađ viđbćttri heimatilbúinni vanhćfni til stjórnunar !

 

Viđ slíkar ađstćđur verđur auđvitađ ekki unađ til lengdar. Setuliđ í sveitar-stjórnum verđur skiljanlega á hverjum stađ ađ axla ţá ábyrgđ sem af ţví er krafist. En viđ umrćđu um sameiningarmál er rétt ađ hafa í huga, ađ ţađ er ekki endilega bara einn valkostur til í ţví reikningsdćmi. Blönduós ţarf ţví ekki ađ vera eini sameiningarkostur Skagstrendinga. En í öllu slíku efni er best ađ fara sér hćgt og kanna möguleika ţá sem kunna ađ vera fyrir hendi sem best til hlítar !

 

Viđ ţćr ađstćđur og raunar allar ađstćđur, vćri auđvitađ hagkvćmast ef menn byggju viđ trausta og ábyrga forustu, en ţví miđur vill oft verđa nokkur misbrestur á ţví ađ svo sé. Og ţegar mál hafa fariđ í vondan farveg, er auđvitađ verr af stađ fariđ en heima setiđ. Lýđrćđiđ virđist geta búiđ viđ töluverđan atgervisskort međal kerfislegra fulltrúa sinna og ţađ er greinilega vaxandi vandamál í samfélagslegum skilningi, líklega bćđi hér og annarsstađar !

 

Vantrú manna á kosningalegar lausnir virđist orđin svo mikil víđa, ađ ţađ er hćtt ađ kjósa. Ţrisvar sinnum hafa kosningar falliđ niđur á Skagaströnd á seinni árum, líklega vegna áhugaleysis kjósenda og ţeirrar aumu útkomu sem ţćr hafa gefiđ ađ dómi of margra. En ţađ er lýđrćđisleg skylda ađ mćta á kjörstađ og virđa leikreglurnar. Og ţađ ţarf ekki síđur ađ skapa valkosti sem fólk er tilbúiđ ađ kjósa um !

 

Álagning og hćkkun gjalda, jafnvel í litlum sveitarfélögum virđist líka á seinni árum vera ađ fara í lóđbeint ris og telja margir ađ sveitarstjórnir á slíkum stöđum, séu víđa í litlu jarđsambandi viđ hag óbreyttra borgara. Ţar svífi yfir-borđskennt fólk bara um í einhverju menningarsósuđu uppstreymi, sem hafi lítiđ međ veruleikann ađ gera, og ţjóni heildarhagsmunum samfélagsins jafnvel međ hangandi hendi og jafnvel öfugum hćtti viđ ţađ sem ćtti ađ vera !

 

Ţađ er ţví ljóst ađ Skagstrendingar ţurfa, sem ađrir í ţessu landi, ađ huga vel ađ lýđrćđislegum réttindum sínum og skyldum, svo ađ ţeir láti ekki ađra teyma sig eitthvađ sem ţeir vilja ekki fara. Og alltaf ţyrfti međ vitrćnum hćtti ađ búa svo um hnúta hvers máls, í sam-einingarmálum sem öđru, ađ menn eigi leiđ til baka ef vćntingar ganga ekki eftir !


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 18
  • Sl. sólarhring: 30
  • Sl. viku: 727
  • Frá upphafi: 384389

Annađ

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 605
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband