Leita í fréttum mbl.is

Lítill rakki að gelta !

 

 

 

Það hefur löngum þótt kaldhæðnislegt blekkingartal þegar Evrópusambands-sinnar hafa talað um áhrif Íslands innan sambandsins, ef við létum tælast þangað inn. ,,Þá fengi rödd okkar að heyrast við borðið“, segja þessar raddir sem virðast helst ættaðar frá árinu 1262 og jafn svikular og forverar þeirra voru !

 

Eins er það, þegar Ísland er að blanda sér í stórveldapólitíkina og þykist hafa eitthvert vægi þar, meðan stöðugt er verið að reyta af því pening fyrir Natóstuðningi og nú síðast vopnakaupum svo hægt verði að drepa fleira fólk. En Ísland er þarna bara eins og lítill rakki að gelta, svipað og Litháen gerir, þegar þarlendir ráðamenn virðast helst vilja fara í stríð við Kína. Sennilega eru þetta þau tvö smáríki heimsins sem hafa haft heimskustu ráðamönnum sömu veraldar á að skipa, eins og sakir hafa staðið um skeið !

 

Hvaða vægi skyldi kjölturakki hafa innan um risastóra víghunda ? Hann hefur þar nákvæmlega ekkert vægi, enda er hann ekkert nema gjammið. Og bak við allt gjammið er bara lítið hrætt hjarta. En ráðherra með langt nafn, sér víst stöðu mála með allt öðrum hætti, og fær líka fyrir vikið að fara á ráðstefnur út í löndum og verða þar trúlega - að eigin hyggju – talsvert númer !

 

Og nú erum við Íslendingar ekki bara sekir um að vera í Nató, lítil friðarþjóð, véluð inn í drápsmanna-samsteypu, heldur erum við orðnir sekir um vopnakaup, kaup á búnaði til beinna manndrápa. Það er nýtt skref af hálfu okkar Íslendinga út í ómennskuna. Fram til þessa hefur slíkt skref ekki verið stigið. En nú virðist það ljóst, að konur sem fá völd séu grimmari og blóðþyrstari en karlar með völd, og öllu fúsari til að sökkva okkur dýpra niður í svað glóruleysis og glæpaverka en karlarnir gerðu !

 

Ef niðurstöður mála eiga að verða í þessu fari, hvað er þá unnið við að konur fari með völd, jafnvel reynslulitlar eða reynslulausar, og tali fyrir þjóðar-hagsmunum okkar, og bletti um leið skjöld okkar með nýjum ávirðingum sem ekki hafa verið okkur til vansa fyrr ? Er það kannski ný leið til jafnréttis kynjanna, að allir liggi hlið við hlið í skítnum, jafnt konur sem karlar ? Það mætti jafnvel halda það, þegar heimskan fær að ráða með svo forhertu og síversnandi stefnuinntaki !

 

Eitt af því sem áður var talið nánast gefið mál, var að eftir því sem konum fjölgaði í valdastöðum í heiminum, yrði veröldin friðsamlegri !!! Sýnist fólki það vera niðurstaðan ? Nei, eins og ég kom inn á hér framar í pistlinum, er slíkrar draumsýnar ekki að vænta við aukin völd kvenna. Miklu frekar hið gagnstæða !

 

Vilji kjósendur hinsvegar stuðla stöðugt að auknum völdum kvenna, þá verða þeir að taka afleiðingunum, sem hljóta að verða í flestum tilfellum miklu fleiri rangar ákvarðanir, teknar á forsendum mjög svo æstra tilfinninga. Aukið kvennavald í pólitík Norðurlanda hefur til dæmis gert þau fyrrum friðarins lönd, herskárri en nokkru sinni fyrr. Sú rödd friðar og sátta, sem þar talaði löngum áður, er þögnuð. Það er breyting sem hefur enganveginn bætt þennan heim !

 

Hafa menn aldrei heyrt eða lesið um valkyrjur og skjaldmeyjar fyrri tíma ? Konur geta verið grimmar, stríðsóðar og blóðþyrstar, engu síður en karlar, og nú virðist það reynt og staðfest af sárbeittum, íslenskum veruleika. Heimurinn verður, því miður, alls ekki friðvænlegri við það að konur séu leiddar til meiri valda, hvorki á Íslandi né annarsstaðar !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 61
  • Sl. viku: 911
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 775
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband