Leita í fréttum mbl.is

Loforđatíminn og fylgjur hans !

 

 

Nú stefnir í ţann hluta kjörtímabils stjórnmálanna sem almennt gćti heitiđ ,,Loforđatíminn“. Ţá fara ţeir sem völdin hafa, ađ veita hinum og ţessum ađilum allskyns dúsur til ađ tryggja sér stuđning viđ nćstu kosningar. Ekki er neitt siđferđi taliđ mćlanlegt í slíkum viđskiptum sem öllu fremur minna á hrossakaup á skítlegu plani. Afleiđingarnar ţrýsta okkur enn dýpra í skítinn, enda er almenningsheill aldrei hluti af slíkum gjörningum !

 

Hvernig skyldi vera hćgt ađ mćla pólitískan veruleika hérlendis ? Á ađ gera ţađ eftir norrćnu spillingarstigi, eđa ţví breska, franska eđa ţýska ? Á ađ sćkja fyrirmyndina vestur um haf í spillingar-hreiđriđ mikla í Washington eđa í hitt höfuđ spillingarhreiđur Vesturlanda í miđstjórnarkastalanum í Brussel ?

 

Nú liggur fyrir ađ heimurinn er ađ breytast í ýmsum meginatriđum. Forrćđi Vesturlanda er ađ líđa undir lok og ekki síst forrćđi Evrópu í heimsmálum. Bretland getur ekki keppt viđ fyrrum nýlendu sína Indland, Frakkland hefur glatađ valdi sínu svo ađ ţađ reynir ađ hanga á áhrifum sínum innan ESB, sem ţó hafa líka gengiđ töluvert til baka. Margar fyrri nýlendur Frakka fyrirlíta gamla móđurlandiđ og sívaxandi aumingjadóm ţess. Ţýskaland hefur orđiđ fyrir verulegu efnahagslegu áfalli viđ ađ rjúfa orkusamskiptin viđ Rússland sem í raun lögđu til kraftinn í ţýsku efnahagsvélina. En Nató skipar Ţjóđverjum fyrir verkum í dag, jafnvel ţeim sjálfum til bölvunar !

 

Japan sem algjört taglhnýtingsríki Vesturlanda hefur alltaf gengiđ fyrir ađfenginni orku og stendur illa ađ vígi í ţeim efnum sem löngum fyrr. Kínaveldi virđist ađ flestu leyti ríki í örum vexti og nýtur eins og Indland góđra kjara varđandi orkukaup frá Rússlandi. Sem forusturíki í Brics hafa ţessi ţrjú ríki, ásamt bandalagsríkjum sínum, fulla burđi til ađ byggja upp alţjóđlegt fjármálakerfi óháđ dollaravaldinu. Vesturlönd eru sannarlega ekki ađ glíma viđ Gaddafi einan núna í ţeim efnum og menn hafa lćrt mikiđ af ţví hvernig Vesturlandamafían fór ađ ráđi sínu í Lybíu !

 

Vestrćn viđmiđ gagnvart pólitískri fram-vindu á Íslandi geta ţannig enganveginn byggst á ćrlegri undirstöđu, enda hljóta allir menn ađ sjá ţađ, nema ţeir sem gjörspilltir eru. Viđ höfum undanfarin ár stöđugt veriđ ađ sökkva dýpra í spillingarfen auđvalds og arđráns og félagshyggja hefur veriđ algjörlega lögđ í einelti á Íslandi, en hún var ţađ fjöldaafl sem byggđi í raun upp öll helstu verđmćti okkar í liđnum tíma !

 

Umrćdd ójafnađarsveifla hefur átt sér stađ fyrir ofbođslega grćđgi fjölda óseđjandi ađila, sem hafa skriđiđ sem afćtur inn í ríkiskerfiđ, borgarkerfiđ og sveitarstjórnir víđa um land og vilja stöđugt meiri pening. Í ţeim efnum má segja ađ stórfelld verktakastarfsemi í vampýrustíl sé búin ađ sjúga sig fasta á spena hvar sem ţađ hefur mögulega veriđ hćgt og spillingin hefur aukist sem ţví nemur og ţađ er ekki lítiđ !

 

Og slíkt óţurftarliđ vill auđvitađ fá sitt á loforđatímanum og ţar er sannarlega ekki neins krafist sem á samleiđ međ almannahag. Ţar rís sérgćskan í hćđir og bitfestan er orđin slík, ađ kerfisleg ţjóđhollustumál eru hrakin út og suđur. Ţađ má finna marga ranggefna fósturvísa á ţeim furđuslóđum, og ţó allt kunni ađ vera öfugt viđ ţađ sem rétt er, má telja víst ađ ţar sé enginn ábyrgur, enda er spillingarstigiđ hátt sem fyrr segir !

 

Möguleikar íslensku ţjóđarinnar á ţví ađ hér megi byggja upp heilbrigđa stefnu til almannaheilla fyrir tilverknađ frambćri-legrar ríkisstjórnar eftir nćstu kosningar hljóta ţví ađ teljast hverfandi. Ţađ er hreint út sagt enginn góđur kostur í bođi. Blekkingar bćta ekki neitt. Hér er enginn stjórnmálaflokkur laus viđ spillingu, hér eru engir bitastćđir stjórnmálaforingjar, hér er djúpstćđ hyglingapólitík í gangi og rótgróin sérgćska í skítugu öndvegi allra mála og blóđsugurnar eru vćgast sagt margar. Og nú virđist reyndar svo komiđ í bölvunarlegu samhengi, ađ útlendingar eru alfariđ farnir ađ ráđa sjoppunni !

 

Hvernig var hćgt ađ klúđra svona öllum manngildis málum íslensku ţjóđarinnar og ţađ á ekki lengri tíma en raun ber vitni ?

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Jan. 2025
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.1.): 49
  • Sl. sólarhring: 98
  • Sl. viku: 618
  • Frá upphafi: 365516

Annađ

  • Innlit í dag: 45
  • Innlit sl. viku: 530
  • Gestir í dag: 45
  • IP-tölur í dag: 45

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband