Leita í fréttum mbl.is

Svolítil gáta um ótiltekið land ?

 

 

Til er land sem er aðsetur þjóðar sem margir halda að sé búin að týna sér í hræsnis og hégómamálum. Í viðkomandi landi hefur sérgæska og sjálfselska risið í áður óþekktar hæðir ómennsku og mannfyrirlitningar. Menn hafa reist þar Mammoni ótalin ölturu og færa honum fórnir í sífellu, meðan öll mann-ræktarviðhorf eru troðin niður og félagshyggja er að verða óþekkt hugtak ?

 

Í upphafi var land þetta byggt friðsamri þjóð sem kom frá öðrum löndum en viðurkennt er. Svo komu ræningjar annars-staðar frá og rændu, drápu og þrælkuðu þjóðina sem fyrir var og þurrkuðu út alla sögu hennar. Svo var logið upp allt annarri sögu og hún er enn látin gilda. Það hafa því alltaf verið tvær þjóðir í landinu. Sú rænda og ræningja-þjóðin !

 

Eitt af því sem gerir það að verkum að land þetta er nokkuð umtalað víða, er það að þeir pólitísku flokkar og baktjaldaöfl sem hafa þar mestu ráðið og mótað kerfið, hafa jafnframt séð til þess að margir valdamenn landsins sem myndu annarsstaðar vera taldir til þjóðsvikara og landráðamanna vegna verka sinna, eru þar hátt upp hafnir í sögunni og sagðir hafa verið höfðingjar miklir og stakir mannkostamenn. Minningargreinarnar um þá, skrifaðar af eftirlifandi félögum þeirra, virðast undirstrika það margar hverjar, að þeir hafi nánast verið teknir í guðatölu !

 

Slíkri upphafningu dauðra valdamanna hefur að sjálfsögðu ráðið rangsnúið siðferðismat. Það á svo allar rætur að rekja til síbylgjuáróðurs, sem fyrrnefndir flokkar og þjóðfélagsöfl hafa staðið fyrir í landinu árum saman upp á hvern dag og gera enn. Til þess áróðurs hafa umrædd öfl varið miklum fjármunum og ótæpilegri prentsvertu. Þar hafa himinhrópandi lygar flotið yfir allt og til efnis jafnan allt verið notað nema sannleikurinn !

 

Slíkar tilvistaraðstæður og þær sem hér er lýst, gætu vafalaust sett heilbrigði mun sterkari þjóðar algerlega úr skorðum, en þeirrar sem land þetta byggir. Áður viðurkennd sannindi um dyggðir og ærleg-heit eru úthrópuð í fyrrnefndum áróðri sem gamaldags torfkofaakjaftæði og séu sem slík að engu hafandi í framsæknu nútímaþjóðfélagi sem hafi að sjálfsögðu guðdómlega auðsæld að sínu megin-markmiði !

 

Umræddu landi hefur þó fyrir allnokkru verið stolið af gjörspilltri valdstéttinni frá þjóðinni og stendur ekki til að skila því aftur til réttmæts eiganda frekar en auðlindum þess sem nánast öllum hefur verið stolið með hliðstæðum hætti. Sá gjörningur hefur átt sér stað þvert á gildandi lög og almennan mannrétt sem þó er sagður viðurkenndur í landinu, en er það enganveginn !

 

Sýndarveruleiki ræður miklu í allri umræðu í þessu landi, því enginn myndi þola að heyra hvernig veruleiki mála er þar í raun. Ríkiskerfið er nú alfarið talið í þjónustu auðmanna landsins og hefur það komið æ betur í ljós hin síðustu ár. Allar félagslegar hugsjónir frá fyrri tíð hafa verið slegnar af sem úrelt arfleifð og menningarsaga þjóðarinnar verið stytt sem því nemur. Allt sem tekur mið af ójöfnuði og yfirgangi er nú talið til dyggða í samfélaginu, enda hefur tíðni glæpa margfaldast í höfuðborg landsins og þykir það varla lengur frásagnarvert !

 

Nú hlýtur að vera búið að upplýsa svo mikið í þessu efni, að það ætti ekki að vefjast fyrir fólki að vita hvert landið er. Þó skal bæta hér við lykilupplýsingum sem ættu að gera allt ljósara fyrir jafnvel tornæmustu mönnum. Háskóli landsins er af mörgum talin óþjóðlegasta stofnun þess, þvert á það sem hann átti að verða – fyrir utan ríkisstjórn þess - að sjálfsögðu !

Hvert er landið ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.1.): 29
  • Sl. sólarhring: 78
  • Sl. viku: 598
  • Frá upphafi: 365496

Annað

  • Innlit í dag: 26
  • Innlit sl. viku: 511
  • Gestir í dag: 26
  • IP-tölur í dag: 26

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband