Leita í fréttum mbl.is

Innflutningur á ófriði og ofbeldisbreytni !

 

 

 

Áreitið erlendis frá og takmarkalaust flæði ofbeldiskenndrar fjölmiðlatjáningar hefur á undanförnum árum breytt íslensku samfélagi talsvert til hins verra. Þar er um að ræða innflutning sem er þjóðinni ekki hollur í neinum skilningi og líklega síst siðferðilega. Skaðinn af þessu fer að verða óbætanlegur !

 

Á allra síðustu árum höfum við, til viðbótar þessu vonda og siðlausa efnis-flæði, líka galopnað land okkar fyrir innfluttum ófriði og ofbeldisbreytni í formi lifandi fólks, sem virðist vilja koma hingað, ekki til að gerast aðilar að íslensku samfélagi á heiðarlegum for-sendum, heldur öllu frekar til að breyta Íslandi í sitt fyrra heimaland !

 

Innflytjendur þurfa ekki að vera slæmir, en hér virðist ekki hafa verið skeytt neitt um það lengi hvort í hlut eigi aðlögunarhæft fólk eða ekki og hver fjöldinn er. Viðhorfið virðist vera að allir eigi helst að geta komið hingað til lands til að eiga hér heima í friðsældinni á Íslandi. Margir Íslendingar virðast vilja virka svo frjálslyndir og víðsýnir, að þeir glata hreinlega allri skynjun sinni fyrir því hvernig beri að tryggja öryggi lands og þjóðar á heilbrigðum forsendum !

 

En það er hinsvegar ekkert vafamál, að það er mikil þörf á því að halda sig til hlés í allri þeirri ágjöf sem fylgir því að hvolfa sér, og það án allra burða, í alþjóðaslag og stórveldapólitík. Að ætla sér í uppdrifnum hroka að leysa helst öll vandamál heimsins, með því að setja eigið land og friðsæld þess í spennitreyju hættulegrar sambúðar við aðila sem koma hingað til að taka og þiggja og gefa ekkert í staðinn. En það höfum við einmitt verið að gera !

 

Með allt of miklum fjölda innflytjenda, sem engin stýring eða þjóðaröryggis-skipulag kemur nærri, erum við að talsverðu leyti farin að vísa friðsæld okkar þjóðfélags á dyr og það getur aldrei komið út sem góð stefna. Í þeim meðförum fer margt forgörðum sem við viljum vafalaust, og ættum allra hluta vegna, að vernda og halda í. Og víst er að afkomendur okkar munu ekki þakka okkur þegar viðsjárnar aukast, fyrir að bregðast á allri öryggisvakt fyrir þeirra framtíð, en það erum við einmitt líka að gera !

 

Menn geta bara hugleitt hvernig sósíaldemókratastefnan í innflytjenda-málum eyðilagði Svíþjóð, sem það ríki sem það var, áður en arfavitlaus fjölmenningar-bakterían byrjaði að breiða úr sér þar. Við Íslendingar erum á hliðstæðri leið. Það er engum íslenskum veruleika til góðs, að skapa forsendur fyrir átök og ófrið í samfélagi okkar í gegnum þá stöðu mála, að fólkið í landinu sé alveg hætt að eiga samleið, hvorki í menningarlegum,þjóðlegum,trúarlegum,eða yfir höfuð neinum siðferðilegum skilningi !

 

West Side Story virðist nú þegar farin að eiga sér fullar forsendur í sumum hverfum Reykjavíkur. Það er líka talað um að útlendar mafíur séu til staðar í undirheimum höfuðborgarinnar. Og í átökum milli ofbeldishópa erlendis frá, eru menn drepnir, nákvæmlega eins og í Svíþjóð. Í janúar 1968 var leigubílstjóri skotinn til bana í Reykjavík og öll þjóðin var í sjokki á eftir. Nú hrekkur enginn upp við manndráp eða morð í höfuðborginni. Svo ríkur þáttur virðist jafnvel grófasta ofbeldi vera orðið í daglegu lífi íslensku þjóðarinnar !

 

Það er líka sagt, að ófáir gámar af ránsfeng frá innbrotum á höfuðborgar-svæðinu séu reglulega sendir úr landi. Er slíkt eitthvað af því tagi sem við viljum hafa hér eða af hverju er landið haft galopið ár eftir ár, þó vitað sé hvað það kostar okkur að bjóða ógæfunni heim með slíkum hætti, ásamt margri annarri óaðgæslu? Fréttir hafa líka borist um vaxandi áhyggjur lögreglumanna út af ástandi mála hér, enda er stóraukið ofbeldi orðið samnorrænt vandamál, en ekki bara sænskt eins og áður var jafnan talað um !

 

Það er því sívaxandi og knýjandi þörf á því að koma einhverri vitrænni skipan á þessi mál hérlendis. Íslendingar verða að gæta að sér í þessum efnum. Við verðum ekki lengi þjóðleg þjóð, ef við kaffærum okkur áfram í einhverri fjölþjóðasúpu þar sem enginn á lengur samleið. Þá er sú staða komin inn á þjóðarheimili okkar sem enginn ræður við, og ófriður mun þá setja stöðugt meira mark sitt á allt samfélag okkar og splundra því svo í framhaldinu, ef að líkum lætur. Þessi málaflokkur er orðinn eitt skýrasta dæmið um getuleysi pólitískra forustuhópa í landinu til að verja samfélagið og allan almannahag !

 

Þar virðast allir hafa brugðist, framkvæmdavaldið, þingið og dóms-valdið. Þessar áður sígildu stoðir laga og réttar, virðast vanta alla eðlilega virkni til þess að þjóna þjóðinni núorðið svo að gagn sé að því. Það þarf traust skipulag og styrka stjórn á þessi mál hérlendis, í stað þess stjórnleysis sem verið hefur !


« Síðasta færsla

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.11.): 196
  • Sl. sólarhring: 381
  • Sl. viku: 1234
  • Frá upphafi: 355811

Annað

  • Innlit í dag: 183
  • Innlit sl. viku: 973
  • Gestir í dag: 178
  • IP-tölur í dag: 178

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband