Leita í fréttum mbl.is

Jafndćgur ađ vori !

 

 

Ţó ađ veturinn hafi svo sem ekki veriđ neitt ógnvćnlegur sem slíkur til ţessa, og sé reyndar ekki enn ađ baki, er alltaf ánćgjulegt ţegar jafndćgur ađ vori heilsa. Ţá hefst náttúrulegur valdaferill ljóss og birtu og eykur afl sitt međ hverjum degi !

 

Og Íslendingar eru auđvitađ ţjóđ sem ţráir ljósöflin, svo ţau laugi landiđ okkar ţeirri blessun sem flćđir yfir ţađ međ vorkomunni sem framundan er og nćr vonandi ađ styrkja okkur öll og endurnćra !

 

Ţađ ćttu ţví allir ađ geta fariđ ađ brosa og léttast í lyndi, jafnvel Áslaugar-helmingurinn af íhaldinu. Og auđvitađ líka 19 atkvćđa meirihlutinn sem telur sig hafa sameinađ hálfsundrađ hagsmuna-bandalagiđ međ ţessari kosningu, sem klauf ţađ ţó ađ endilöngu í nánast tvo jafna hluta !

 

Ţar sást, ađ ţađ getur kannski fundist eitthvađ hjá íhaldinu sem er jafnt, ţó glađbeittir ţingmenn ţar hafi lýst ţví yfir ađ á ţeirra bć sé ekki stefnt ađ jöfnuđi og ţó stétt eigi ađ sögn ađ fylgja stétt, á ţađ ekki ađ byggjast á jöfnuđi !

 

En líklega kemur slík yfirlýsing fáum á óvart ţví jöfnuđur hjá íhaldinu hlýtur skiljanlega alltaf ađ vera í skötulíki – enda er grundvöllur ţess á öllum sviđum byggđur á ójöfnuđi og ţar af leiđandi vafalaust skorti á réttlćti !

 

En nú hefur nýkjörinn nítján atkvćđa meirihluta formađur, samt orđiđ sér úti um diplómu í hagnýtri jafnréttisfrćđi, svo fróđlegt verđur ađ sjá jafnréttistök hins nýja formanns ţegar stjórnviskunnar ţar fer ađ gćta í komandi tíđ !

 

Og ţrátt fyrir allar viđvarandi meinsemdir í mannheimi, eru ađ koma vorjafndćgur. Íhaldiđ blćs ţau ekki af og vill kannski bara hafa ţau, jafnvel ţó ţau kunni ađ koma jafnt yfir alla. Báđir kvennavalds-helmingar íhaldsins eru vonandi svo mannlegir, ađ ţeir vilji njóta sólar og sumars ekki síđur en hinir skárri hlutar ţjóđarinnar, sem standa auđvitađ ţar fyrir utan !

 

Íhaldsmenn, sem vilja yfirleitt láta kalla sig sjálfstćđismenn, fara varla mikiđ til sólarlanda ţví ţeir ţurfa vafalaust ađ líta svo mikiđ eftir hinu vandmeđfarna sjálfstćđi okkar og passa upp á ţađ, svo ţađ glatist ekki, eins og ţađ er og heitir á ţeirra máli !

 

En sjálfstćđi á máli íhaldsins er allt annađ sjálfstćđi en ţađ sem hefur almenna, jákvćđa merkingu í hugum fólks. Ţađ er sjálfstćđi útvalinna ađila auđs og valda, til arđráns og yfirgangs gagnvart venjulegu fólki og allri almannaheill !

 

Reyndar fyndist manni ađ hagsmuna-bandalag ţeirra hjá íhaldinu, sem vill endilega skilgreina sig sem flokk, ćtti ađ taka sér nafniđ Sameinađi flokkurinn eftir hinn stórkostlega einingar-landsfund, ţar sem allir voru svo dásamlega samhuga í ţví ađ efla brćđralagsandann og stćkka flokkinn !

 

Ţađ hefđi kannski átt vel viđ ađ útbýta Kjörís til allra landsfundar-fulltrúa eftir ţessa makalausu kćrleiksmessu, svona til ađ fullkomna hina einu og sönnu sameiningu allra ţrýstihópanna sem ţar otuđu sínum tota !

 

En hvernig sem ţađ allt saman er og hversu öfugsnúin sem mál geta orđiđ, er samt vonandi, ađ allir bornir og barnfćddir Íslendingar, hvar í flokki sem ţeir standa, geti fagnađ vorjafndćgrum 2025 af heilum huga. Einnig ţeir sem eru líklega á sinni árvissu ferđ á suđrćnar sólarstrendur ţessa dagana !

 

 


« Síđasta fćrsla

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Mars 2025
S M Ţ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 16
  • Sl. sólarhring: 73
  • Sl. viku: 976
  • Frá upphafi: 374227

Annađ

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 787
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband