Leita í fréttum mbl.is

,,Farinn af hjörunum !“

 

 

Gavin Newson ríkisstjóri í Kaliforníu hefur sagst ćtla ađ höfđa mál gegn Trump forseta og alríkisstjórninni í Washington, ţar sem ekkert samráđ hafi veriđ haft viđ hann og yfirvöld í Kaliforníu um sendingu herliđs til Los Angeles vegna óeirđanna sem urđu nýlega í borginni. Newson ríkisstjóri hefur látiđ hafa eftir sér, ađ Trump sé farinn af hjörunum og ţađ eru nokkuđ sterk orđ um forsetann !

 

En ţađ er svo sem ekkert nýtt, ađ Donald Trump geri hluti sem stangast á viđ lög og rétt ađ margra mati, en ţarna kemur upp mál sem viđkemur upprunalegu vandamáli innan ríkjabandalagsins, vandamáli sem hefur í raun aldrei hefur veriđ leyst. Ţađ er hvernig valdahlutföll eigi og ţurfi ađ vera milli einstakra ríkja og miđ-stjórnarinnar eđa alríkisins í Washington. Ţetta vandamál skapađist strax á stofnunarárum ríkjabandalagsins og svo trađkađi alríkiđ niđur vald ríkjanna međ ofbeldishćtti eftir ađ Norđurríkin sigruđu í borgarastríđinu !

 

Styrjöldin var ađ stórum hluta afleiđing ţess ágreinings sem var í gangi um valdahlutföllin, hún leysti hann heldur ekki og erfitt er ađ skilja hvađ alríkisstjórnin gekk langt í ţví ađ kúga Suđurríkjamenn eftir ađ átökum linnti. En ţađ var gert međ 12 ára grimmum hervalds-yfirgangi og mikilli kúgun, alveg ţangađ til Rutherford B. Hayes forseti sá ţörfina á ţví ađ draga úr andstyggđinni sem svo lengi hafđi eitrađ ţjóđlífiđ og aflétti hernáminu af Suđurríkjunum 1877 !

 

Ţó Hayes yrđi forseti međ afar veiku umbođi af sérstökum ástćđum, varđ hann farsćll í starfi sínu sem slíkur, enda var hann óumdeilanlega mannkostamađur. Saga ţess tíma sem hér um rćđir hefur samt aldrei veriđ rakin til hlítar eđa gerđ sómasamlega upp, en ţar er ekki viđ Hayes ađ sakast. Mörgu misjöfnu hafđi bara veriđ sópađ undir valdateppi alríkisstjórnvaldanna á ţessum tíma, líklega af hefndarástćđum, og ţar hefur býsna margt ljótt legiđ allar götur síđan, í glćpsamlegu ţagnarvíti, og réttlćtiđ verđur líklega seint látiđ fjalla um ţau mál ef ađ líkum lćtur !

 

Washingtonvaldiđ hefur alla tíđ haldiđ sjálfstćđi ríkjanna sem mest niđri og lengstum hefur naumast nokkur ríkisstjóri ţorađ ađ anda á móti ţví, nema kannski Gavin Newson verđi til ţess núna, enda hefur Kalifornía kannski mestu burđina til ţess berjast fyrir auknu valdi einstakra ríkja. En líklega verđur sú andstađa kveđin snarlega niđur bak viđ tjöldin, ţví Washingtonvaldiđ í Bandaríkjunum er algerlega sambćrilegt viđ Moskvuvaldiđ í Rússlandi og Brusselvaldiđ í Vestur-Evrópu. Miđstjórnarvald er nefnilega alls stađar ágengt og yfirgangssamt klíkukerfi gagnvart almennu mannfrelsi og gerir yfirleitt allt verra !

 

En Donald Trump er í sjálfu sér ekki farinn af hjörunum, ţví hann hefur aldrei veriđ á neinum hjörum. Hugsanasveiflur hans eru fyrst og fremst sjálfskapađar og lúta engum kerfisbođum neins stjórn-skipunarvalds. Trump er sérgćskusinni frá toppi ađ tá og út í alla fingurgóma. Sennilega hefur enginn forseti Banda-ríkjanna veriđ honum skćđari í ţeim efnum. Allir hafa ţeir líklega snúist á einhverjum hjörum, nema Trump !

 

Trump snýst bara um sjálfan sig og öll mál verđa ađ snúast um mikilleika hans, annars er allt hundleiđinlegt. Jafnvel Elon Musk var orđinn leiđinlegur í hugsun Trumps vegna ţess ađ hann er líka dálítiđ mikiđ fyrir ţađ ađ hlutirnir snúist um hann. Trump og Musk áttu ţví ekki frekar saman en Björgólfur Thor og Robert Wessmann. Ţađ geta ekki veriđ tveir kóngar í sama ríki !

 

En miđstjórnarkúgun Washingtonvaldsins stendur enn sem fyrr Bandaríkjunum fyrir lýđrćđislegum ţrifum, eins og ţađ hefur alla tíđ gert og menn eins og Donald Trump eru vćgast sagt manna ólíklegastir til ađ verđa styrkar stođir fyrir lýđrćđiđ í eigin landi, hvađ ţá lýđrćđiđ í heiminum. Sú óţćgilega stađreynd virđist satt ađ segja stöđugt vera ađ opnast betur fyrir skilningi fólks, jafnt heima fyrir sem erlendis – og líklega um allan heim !

 

Ţađ leiđir vafalítiđ til ţess, ađ sífellt fleiri spyrja sig ţeirrar spurningar, hvort Bandaríkin sjálf séu bara ekki ađ fara af hjörunum, eftir alla ţá gífurlegu valdamisnotkun sem ţar hefur átt sér stađ af hálfu stjórnvalda, og ţađ í stöđugt meiri mćli hin síđari ár. Ţar virđast flestar hjarir farnar ađ gefa sig, enda ţarf enginn ađ undrast ţađ !


« Síđasta fćrsla

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.6.): 124
  • Sl. sólarhring: 235
  • Sl. viku: 944
  • Frá upphafi: 385270

Annađ

  • Innlit í dag: 118
  • Innlit sl. viku: 845
  • Gestir í dag: 117
  • IP-tölur í dag: 117

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband