Leita í fréttum mbl.is

Um dómgreindarleg skađaskref !

 

 

Ţađ hefur komiđ skýrt fram í umrćđumálum dagsins, ađ margir sem studdu Flokk fólksins í síđustu kosningum, hafa séđ eftir ţví og líta svo á ađ forusta ţess flokks hafi svikiđ stefnumálin fyrir ađkomu ađ völdum. Ég kaus ekki Flokk fólksins í síđustu kosningum, en gerđi ţađ í kosningunum ţar á undan. Ég gerđi ţađ ekki aftur, vegna ţess međal annars ađ Inga Sćland var farin ađ stunda svo mikla prímadonnutakta ađ mér var fariđ ađ ofbjóđa. Hún var farin ađ leika ađra Kötu og síst ţurfum viđ á slíku ađ halda, enda er ég búinn ađ fá skömm á manneskjunni og tel ađ hún hafi flotiđ áfram á innihaldslausu lýđskrumi og litlu öđru !

 

Ţađ virđist vera búiđ ađ herja svo mikiđ á félagshyggjuna og hugsjónir hennar í ţessu landi á síđustu árum, ađ jafnvel fólk sem ţykist tala í nafni félagshyggju er iđulega á allt öđrum stađ en ţađ segist vera. Inga Sćland og fleira forustufólk í Flokki fólksins er, ađ mínu mati, í ţeim hópi. Sérgćskan í ţeim virđist hafa kćft félagshyggjuhugsjónir ţeirra, hafi ţćr ţá einhverjar veriđ í raun !

 

Ég viđurkenni fúslega ađ ég hafđi mikiđ álit á Ragnari Ţór Ingólfssyni međan hann stóđ í baráttu sinni gegn spillingarvaldi lífeyrissjóđanna og fyrir ćrlegri og betri viđhorfsmálum innan alţýđusamtakanna og verkalýđshreyfingarinnar. Ţar stóđ hann sig vissulega vel og var kröftugur og afgerandi í málflutningi sínum. En í seinni tíđ, og ekki síst eftir ţátttöku Flokks fólksins í sitjandi ríkisstjórn, og sumum persónulegri málum, velti ég ţví fyrir mér í alvöru, hvort blessađur mađurinn sé orđinn ađ einhverskonar umskiptingi ?

 

Og svo virđist vera um fleiri í forustu ţessa, ađ mér finnst heillum horfna, flokks. Ţar virđist vera um fólk ađ rćđa sem hefur ekki ţolađ breytinguna frá ţví ađ ţekkja venjulega lífsbaráttu og hafa úr tiltölulega litlu ađ spila, og vera svo komiđ međ fullar hendur fjár, völd og áhrif. En slíkt fólk er ekki lengur forsvarsliđ fyrir fólkiđ í landinu. Ţađ er ţá orđiđ ađ forréttindaliđi sem hefur veriđ keypt inn í annađ hugarfar međ breyttum kjörum og ţjónar nú öđru og andstćđu valdi en ţađ gerđi áđur. Í slíkum hamskiptum er engin heilbrigđ almanna-hagsmunatenging og ţar getur ţví engin blessun búiđ !

 

Ţvert á móti felst í slíku framferđi bölvun sem mun fara illa međ marga og einkum ţá sem hafa ţannig svikiđ köllun sína og gengiđ inn í andstćđar herbúđir vegna sérgćsku ţeirrar sem virđist hafa náđ valdi yfir ţeim međ tilkomu hćrra tekjustigs. Ţá má segja ađ slíkt fólk sé orđiđ verra en hinir eiginlegu andstćđingar alţýđunnar í landinu, ţar sem ţađ hefur ţá svikiđ meira en ţeir. Valdasókn Flokks fólksins hefur sýnilega mistekist. Í nćstu kosningum mun flokkurinn ţví ađ öllum líkindum fá litlu betri útreiđ en VG í ţeim síđustu, og á ţađ líka fyllilega skiliđ !

 

Inga Sćland kom eins og lítil halastjarna á fullri ferđ inn í okkar pólitíska sólkerfi, slengdi frá sér neistaflugi allskyns orđaleppa um hríđ og hefur nú dagađ uppi í vondum félagsskap á stopulli strýtu vafasamra metorđa og brennur ţar líklega fljótt út. Hún hefur samlagađ sig Viđreisn sem er óíslenskasti flokkur ţingsins, og ađ margra mati, beinlínis stofnađur sjálfstćđi okkar til höfuđs, og Flokkur fólksins á sér ţví ekki viđreisnar von undir hennar forustu héđan af. Í forustu flokksins virđast heldur ekki nein gćfuleg foringjaefni, ţó löngum sé erfitt ađ spá fyrir um slíkt. Samfylkingin er líka í hćsta máta varhugaverđur flokkur gagnvart sjálfstćđismálum okkar Íslendinga og ađ mínu mati til alls vís í ţeim efnum. Ţađ eiga líka allir ţjóđhollir Íslendingar ađ vita !

 

Núverandi ríkisstjórn er reist á sandi blekkinga ađ öllu leyti og mun tćpast eiga sér langt líf í ţjóđlegum veruleika sem augljós undirlćgja og fótaţurrka útlendra afla. Kristrún forsćtis er líka stjarna sem líkleg er til ađ brenna nokkuđ fljótt út í pólitíkinni, hvađ sem um hana verđur ţar í framhaldi. Sennilega vistast hún síđar hjá einhverri alţjóđastofnun sem greiđir henni hugsanlega hátt kaup fyrir vel útilátna ţjónkun og ţćgđ !

 

Ţorgerđur Gunnarsdóttir er hinsvegar ađ skrá lokakaflann á sínum ferli – og sem betur fer. Sá ferill hefur veriđ slíkur, ađ mínu mati, ađ best er ađ tala sem minnst um hann, og sennilega verđur lokakaflinn verstur. Hinar svonefndu valkyrjur  munu trúlegast allar slokkna út sem ćtlađar vonarstjörnur fyrr en varir, og minningin um valdabrölt ţeirra verđur síđan, ađ öllum líkindum, ađ óbragđi á vörum og í munni íslensku ţjóđarinnar. Eitthvađ sem ţarf ađ muna sem stöđuga viđvörun, - aldrei aftur !!!


« Síđasta fćrsla

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Júlí 2025
S M Ţ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.7.): 181
  • Sl. sólarhring: 204
  • Sl. viku: 910
  • Frá upphafi: 389420

Annađ

  • Innlit í dag: 136
  • Innlit sl. viku: 734
  • Gestir í dag: 133
  • IP-tölur í dag: 133

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband