Leita í fréttum mbl.is

Ţađ hefur alltaf veriđ vitlaust gefiđ !

 

 

Nokkuđ kaldhćđnislegt er ađ horfa upp á Vestur-Evrópuríkin halda hvern fundinn af öđrum og birta stórar yfirlýsingar gegn Rússum án ţess ađ hafa nokkra raunhćfa getu til ađ framfylgja ţeim eđa sanna móđursýkislegar ásakanir sínar. Án Banda-ríkjanna eru ţau eins og olnbogabörn á flćkingi, á hjara öryggisleysis og óvissu, í villuráfandi vandrćđagangi. Ţau skilja heldur ekki af hverju Bandaríkin geta ekki lengur haldiđ ţeim uppi hernađarlega og gert ţeim áfram kleyft ađ keppa viđ ţau efnahagslega um markađsvöld í skjóli ţeirra. Ţannig verđur útkoma ofeldis alla jafna, ađ ţeir sem búa viđ ţađ verđa ađ sívćlandi aumingjum !

 

Bandarísk stjórnvöld virđast hinsvegar vera farin ađ skilja ţađ, ađ Vestur-Evrópa hefur allt of lengi fengiđ ađ skáka í skjóli ţeirra og yfirleitt kostađ ţar litlu sem engu til. Margir bandarískir ţunga-vigtarmenn í stjórnmálum og viđ-skiptum vilja ţví breyta ţeirri stöđu og neita framvegis ađ borga reikninga gömlu nýlendu-níđingaríkjanna í varnarmálum og öđru. Margt er ađ breytast í veröldinni og öll valdahlutföll gera sig upp á nýtt ţegar stórveldi eins og Bandaríkin, sem hefur ruđst áfram í áratugi og yfirgengiđ alla ađra, fer ađ missa tökin. Ţessvegna hljóta flestir ađ finna fyrir ţví ađ heimurinn er ekki lengur eins og hann var. Hann er ekki lengur einpóla bandarískur heimur sem betur fer. Nýr heimur er ađ taka á sig form og vonandi verđur hann mannkynsvćnni en hinn !

 

Ţađ gleymist oft í fögnuđi ţeirra sem eru oftast hugsunarlega nátengdir fasisma, ađ Sovétríkin voru ekki lögđ niđur međ ţeim hćtti ađ ţau yrđu ađ engu. Hernađarleg geta ţeirra er kjarninn í ţeim styrk sem Rússland hefur í dag sem öflugasta kjarn-orkuveldi heims og kjarnorkuvopnabúr ţeirra er nógu öflugt til ađ tryggja varnir ríkisins gegn hvađa óvini sem er. Auk ţess er stuđningur viđ Rússa miklu útbreiddari utan Evrópu en almennt er viđurkennt í hinum gjörspilltu fjölmiđlum gömlu spillingarálfunnar !

 

Hin geđveikislegu neyđaróp Vestur-Evrópu-ríkjanna og ESB um ađ ţađ verđi ađ stöđva Rússa í Úkraínu, eru fyrst og fremst ćtluđ eyrum Bandaríkjamanna, en nú eiga ţeir bara nóg međ ađ greiđa úr eigin vanda, enda er bandaríska ríkiđ báglega rekiđ og má sannarlega muna sinn fífil fegri. Bandarísku auđhringarnir hafa arđrćnt sitt eigiđ ríki af fyllstu grćđgi, og ekki síst vegna ţess er ţađ orđiđ stórskuldugt og óhófsćvi ţess ađ verđa liđin tíđ !

 

Varđandi stríđiđ í Úkraínu, verđ ég ađ segja ađ mér finnst Páll ofurbloggari einfalda hlutina nokkuđ mikiđ međ ţví ađ gera lítiđ úr Rússum fyrir ţađ hvađ úkraínska fasistastjórnin standi í ţeim. Sú stjórn vćri trúlega löngu fallin ef hún vćri ein um hituna í Garđaríki. Gífurlegur fjárausturinn frá Vesturveldunum til Kiev og stöđugar vopnasendingarnar, hafa haldiđ lífinu í fasistastjórninni ţar hingađ til og ekkert annađ. Rússar eru ţar međ ţegar komnir í stríđ viđ Vesturveldin og ţeir vita ţađ vel og búa sig sem best undir ţađ sem koma skal og hafa sagt ađ ţeir séu til í allt !

 

Stórauđugt ríki eins og Noregur dćlir milljörđum dollara linnulaust til Úkraínu, svo ađ jafnvel hástéttarleg lífskjörin í kratalandinu alrćmda geta jafnvel fariđ ađ rýrna hvađ úr hverju. Ţetta fyrrum virta friđarríki virđist nú orđiđ eitt blóđ-ţyrstasta ríki Evrópu, undir forustu heilaţveginna Natóhauka, enda virđist vegur lands og ţjóđar stórlega hafa breyst til hins verra fyrir tilverknađ slíkra manna og er illt til ţess ađ vita !

 

Enginn ţarf ađ efast um, ađ ríki eins og Kína og Indland fylgjast vel međ ţví hvernig málum vindur fram í Úkraínu. Brics ríkja-samsteypan gerir ţađ vafalaust ekki síđur á heildina litiđ. Forrćđi Vestur-landa í heimsmálunum er reyndar nánast úr sögunni sem slíkt og ţví ber ađ fagna. Ţađ er löngu kominn tími til ađ ađrar hendur taki ţar um tauma og fái sitt tćkifćri til ađ koma lagi á heiminn. Engin von er til ţess ađ Vesturveldin geri ţađ héđan af !

 

Gömlu níđingaríkin Bretland og Frakkland eru sem sjá má tćpast lengur nein stórveldi, enda hafa ţau síđustu áratugina haldiđ sig alfariđ í skjóli Bandaríkjanna. Forustumenn ţeirra hafa stöđugt orđiđ minni og ómerkilegri bógar, eins og Macron og Starmer sanna best međ sinni framgöngu. Og Ţýskaland er í litlu skárri málum ţó ţađ sé nokkru fjölmennara ríki, en ţar koma heldur engir frambćrilegir leiđtogar lengur á sviđiđ. Og ESB er ekkert nema deyjandi arđráns-skrímsli, ţó valdamenn á Íslandi – sumir hverjir - haldi annađ í blindri ofstćkishyggju veraldar sem var !

 

Bandaríkin eru á leiđinni niđur af hátindi valdsins, Kínverjar eru líklega ađ klífa á ţann tind. Vestur-Evrópa er sennilega á leiđinni ađ verđa einhverskonar kot-rassgat, uppi á jökuldal evrópskar afdala-mennsku, langt frá miđpunkti valdsins sem fćrast mun talsvert austar og jafnframt frá öllum helstu kjötkötlum framtíđar-málanna. Ţađ er ađ segja, ef bođiđ verđur upp á einhverja framtíđ fyrir mannfólkiđ á ţessari jarđarkringlu, sem mikiđ vafamál er sennilega ađ ţađ eigi skiliđ úr ţví sem komiđ er !

 

Ranglćtis-ráđsmennska Vesturveldanna í málefnum heimsins er ađ líđa ađ lokum og ţví ber ađ fagna sem fyrr segir. Hin nýja gjöf í málefnum heimsins verđi til ađ styrkja öll milliríkjaviđskipti á jafn-rćđisgrundvelli í friđarţágu mannkyns-heildarinnar. Sérhver ćrleg manneskja ćtti ţví ađ óska ţess innilega, ađ sá samvirki, fjölpólaheimur sem virđist ađ stefnt, reynist vel. Vonandi kemur hann til međ ađ bjóđa ţjóđum heims betri lífskjör og ţađ í sannari veruleika en Vesturlönd gerđu, međan ţau höfđu völdin til hinnar ráđandi stöđu, sem ţau misnotuđu hinsvegar alla tíđ međ herfilegum og skammarlegum hćtti !


« Síđasta fćrsla

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Okt. 2025
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.10.): 46
  • Sl. sólarhring: 60
  • Sl. viku: 830
  • Frá upphafi: 399937

Annađ

  • Innlit í dag: 42
  • Innlit sl. viku: 744
  • Gestir í dag: 42
  • IP-tölur í dag: 42

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband