Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2024
6.1.2024 | 00:04
Hvers virði er að hafa hreinan skjöld ?
Hvers virði er að hafa hreinan skjöld ? Það er ekki lítil nauðsyn að spyrja þess nú á tímum þegar öll óhreinindi virðast vel þegin, bara ef þau skila einhverjum ágóða. En sú var tíðin að menn reyndu að vera sómakærir og sjálfum sér samkvæmir !
Auðhyggja skilar engu góðu inn í sálir manna. Ágirnd er ein versta synd sem hægt er að burðast með. ,,Ágirndin er undirrót alls ills segir Ritningin. Hefði ágirndin ekki verið til sem slík hefðum við Íslendingar aldrei farið inn í Nató og Íslenskir aðalverktakar líklega aldrei orðið til á sínum upphafsgrunni. Hvorttveggja hefði þá verið hrein blessun fyrir land og þjóð !
Við Íslendingar lögðum af stað eftir fengið fullveldi 1918 með hreina, þjóðlega stefnu. Þrjátíu árum síðar virtist stór hluti ráðamanna okkar vera á hlaupum eftir silfurpeningunum þrjátíu, hlut þeirra sem sækjast alltaf eftir svikalaunum. Ekkert hreint var lengur virt af þeim söfnuði. Litla, herlausa friðarþjóðin skyldi leidd inn í hernaðarbandalag og gerð ábyrg fyrir eftirkomandi ófriðarmálum og glæpum stríð-andi stórþjóða. Aldrei lagðist uppsett forustulið Íslendinga lægra en 1949, jafnvel ekki 1262 !
Og síðan hefur skjöldur okkar Íslendinga safnað óhreinindum vegna afleiðinganna af þeim svikum sem þá voru framin. Við erum meðábyrgir og meðsekir um manndráp í stórum stíl meðal annarra þjóða. Hvernig gátum við látið fara svona með okkur ? Hvernig gátum við sagt skilið við nánast allt sem gerði okkur að virðingarverðu fólki ? Við sem vildum enga manneskju deyða ?
Við Íslendingar vorum skráðir á sínum tíma í bandalag viljugra þjóða til ofbeldis-verka og drápa á fólki sem hafði aldrei gert okkur neitt. Fjölmargar slíkar af-leiðingar í áratugi tengjast hinni lýð-ræðislausu og skammarlegu inngöngu Íslands í Nató 1949 !
Það er vont að hafa þetta á samviskunni fyrir litla herlausa þjóð. Hvernig stóð á því að margir forustumenn í okkar þjóðlífi virtust ekki sjá neitt athugavert við það fyrir okkur Íslendinga að taka sameigin-lega ábyrgð á drápum á fjölda fólks erlendis í nafni hernaðarbandalags ?
Var stofnun íslensks gróðafyrirtækis á pólitískum og persónulegum sérkjörum, kannski nægileg syndaaflausn fyrir hið hræðilega þjóðlega gildisfall í augum viðkomandi manna ? Hverskonar Íslendingar voru það sem virtust sjá framtíð okkar sem þjóðar með þeim hætti ? Voru þeir kannski gripnir af sturlun, eins og hinir svonefndu höfðingjar Sturlunga-aldarinnar, sem seldu sig erlendu valdi ? Var þeim kannski sama um örlög þjóðar sinnar ?
Nú hefur minningu manns sem allir vita að gerði margt gott á sinni ævi, verið ýtt út í horn vegna vafasamra yfirlýsinga sem seint verða sannaðar og kunna meðal annars að byggjast á einberum söluáróðri og einkahagsmunum. Hvað með regluna sem segir að enginn maður eigi að teljast sekur fyrr en sekt hans er sönnuð svo hafið sé yfir vafa ?
Og í því sambandi spyr maður, ef svo á til að ganga, hvað með þá menn sem tóku ákvarðanir sem ljóst er að skaðað hafa stórlega orðspor lands og þjóðar í áratugi ? Eiga þeir áfram að vera á stöllum hjá þeirri þjóð sem enn býr við afleiðingar þess hryðjuverks sem unnið var með þeirra stuðningi ? Eigum við þá að búa þar áfram við falskar fyrirmyndir ?
Er ekki löngu orðið tímabært að setja á fót Sannleiksnefnd sem gerir upp málin varðandi þau óbætanlegu svik við þjóðina sem þá voru unnin ? Eða viljum við hafa þjóðarskjöld okkar áfram útskitinn eftir Natóaðildina, sem hefur leikið okkur jafn illa og raun ber vitni, þó einhverjir ,,bissnisskarlar í ákveðnum flokkum hafi malað gull í gegnum það svínarí um langt skeið, okkur hinum til hneisu og vansa ?
Hvers virði er það fyrir þjóð að halda skildi sínum hreinum og forðast að ganga með blóði drifnar ábyrgðarhendur vegna glæpaverka annarra ? Svari því hver fyrir sig, en mitt svar er skýrt. Ég vil að mitt land og mín þjóð haldi frið við allar þjóðir og kappkosti að bera þar hreinan skjöld !
Þá getur Guð vors lands verið með okkur í öllu og haldið verndarhendi sinni yfir landi og þjóð og þá vernd megum við ekki missa. Miðvers Ritningarinnar segir : ,, Betra er að treysta Guði en mönnum !"
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:11 | Slóð | Facebook
2.1.2024 | 19:04
Áfram blæðir úr svikasporunum !
Það er enginn vafi á því að aðildin að Nató var mikið óheillaspor fyrir íslensku þjóðina. En þá eins og löngum oftar og eins núna vildu helstu pólitíkusar landsins fara aðra leið en þjóðin sjálf. Fyrst hugsuðu þeir sér að koma í veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Þjóðin átti ekki að fá að greiða atkvæði um sitt eigið sjálfstæði. Hirðmenn Hákonar gamla spruttu fram í gegnum þingmenn þriggja stjórnmálaflokka og svívirtu öll lýðræðis-leg vinnubrögð. Þar var ljótur leikur hafður í frammi !
Viðkomandi menn og aðrir af sama tagi lýstu því yfir, að Bandaríkin væru vinaþjóð okkar og það væri því til skammar að við sýndum þeim vantraust og tortryggni. Þannig átti að drepa á dreif samstöðu manna gegn landssölusvikunum. Því svaraði frú Aðalbjörg Sigurðardóttir á opnum fundi í porti Miðbæjar-barnaskólans á þessa leið : ,,Það hefur verið sagt, að við, sem ekki viljum gera hinn nýja samning Ólafs Thors, tortryggðum Bandaríkin. Ég lýsi því yfir sem ein í hópi hins almenna Íslendings og hins hrjáða mannkyns, að ég tortryggi Bandaríkin !
Og á sama fundi sagði Halldór Kiljan Laxness : ,, Samningurinn táknar uppgjöf fullveldis Íslands..... Engin þjóð getur samið af sér réttinn til að ráða landi sínu.... Þeir, sem semja slíkan rétt af þjóðinni heita landráðamenn, hvort heldur þeir skríða saman fleiri eða færri ! Og á fundinum gerði séra Sigurbjörn Einarsson sína játningu er hann sagði : ,, Ég hafði til annars ætlast af þeim þingmönnum sem ég studdi til þingsetu !
Það er ljóst að allir hinir betri menn þessarar þjóðar vissu hvað var í gangi og tóku einarða afstöðu gegn landráðunum og þeim Hrunadansi sem leikinn var í því sambandi og hefur lengi verið látinn æra glóru og gildi manndóms frá íslenskri þjóð !
Ísland átti ekki og mátti ekki láta flækja sig í stórveldapólitíkina. Við áttum að reka okkar þjóðfélag á fullum forsendum hlutleysisins áfram og sinna í gegnum það hagsmunum okkar eigin þjóðar, án tengsla við stórhættulega hernaðarpólitík !
Í þeim anda og farvegi hefði farsæld íslenskrar þjóðar legið og þá stæðum við ólíkt betur að vígi í dag í alþjóðlegum skilningi sem frjáls og fullvalda þjóð, sem vildi ástunda frið við allar þjóðir, en ekki sem virðingarsnautt viðhengi við blóði atað og skítugt stórveldi !
Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.1.2024 kl. 21:43 | Slóð | Facebook
Nýjustu færslur
- Endurreisn ómennskunnar !
- ,,Fylgiríki Bandaríkjanna ?
- Hin kratíska feigðarstefna Norðurlanda !
- Útþenslustefna Bandaríkjanna !
- ,,Nýja Kalmarsambandið og glóruleysisgangan !
- Litlar, leiðitamar þjóðir !
- Er herleiðing Flokks fólksins að hefjast..... ?
- Um tilhneigingar til frestunar lýðræðis ?
- Enginn friður, engir samningar, ekkert traust !
- Athyglisverð orð :
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 26
- Sl. sólarhring: 75
- Sl. viku: 595
- Frá upphafi: 365493
Annað
- Innlit í dag: 23
- Innlit sl. viku: 508
- Gestir í dag: 23
- IP-tölur í dag: 23
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
-
: Fjörusprek og Grundargróður (2023) -
: Í norðanvindi og vestanblæ (2013) -
: Hjartað slær til vinstri - Úr minningaheimi Kalla í Nesbæ (2010) -
: Bræðingur og Brotasilfur (2004) -
: Þar sem ræturnar liggja (2004) -
: Út við ysta sæ (2000) -
: Frá fjöru til fjalls (1996) -
: Vísur frá Skagaströnd (1993) -
: Ljóð frá Skagaströnd (1991)