Bloggfærslur mánaðarins, september 2024
24.9.2024 | 16:06
Er Sagan frá 1941 að endurtaka sig ?
Það verður aldrei hægt að hreinsa það af spjöldum Sögunnar, að Vesturveldin, einkum Bretland og Frakkland, ásamt auðhringa-valdi viðkomandi landa, fjármögnuðu þýska nazistaríkið með það fyrir augum að senda það gegn Sovétríkjunum. Hitler skeit ekki peningum, en peninga þurfti hann að fá og fékk þá að vestan !
Bandaríska ríkið mun líklega hafa átt lítinn þátt í þeirri fjármögnun í eigin nafni á þeim árum, einkum kannski vegna þess að Roosevelt var forseti, en bandarískt auðvald, bankavald og einstakir auðkýfingar lögðu drjúgt í sjóði Hitlers. Sumir slíkir voru yfirlýstir gyðinga-hatarar og stefna nazista höfðaði því ekki svo lítið til þeirra. Á síðari tímum virðist hinsvegar Hitlersandinn hafa sett mark sitt svo á bandaríska stjórnarstefnu, að mörgum finnst tæpast öllu lengur hægt að greina þar á milli !
Á margan hátt minnir öll atburðarás þessara ára á forynjulega íslenska draugasögu. Menn vekja upp djöful og ætla að senda hann á einhvern óvin til að drepa hann, en vopnin snúast í höndum þeirra og uppvakningurinn fer að herja á þá í staðinn. Loks hlýðir hann þó ef til vill því sem fyrir hann hafði verið lagt, en þá er svo komið að uppvekjendurnir eiga engan annan kost en að verða bandamenn þess aðila sem ófreskjan átti í upphafi að drepa !
Sennilega hafa pólitískir ráðamenn, fjár-máladrottnarar og bankaburgeisar Vestur-landa fórnað höndum þegar Hitler réðist á Frakkland og önnur Vestur-Evrópuríki í stað þess að hjóla í Sovétríkin. En þar sannaðist það sem oftar, að það hefur löngum verið erfitt að stjórna upp-vakningum og ekki síst þegar þeir koma þráðbeint upp úr helvíti eins og Hitler mun hafa gert !
Auðvald Vesturlanda hefur nú sett afl sitt í þann örlagagír sem kann að leiða til lokastyrjaldar mannkynsins. Nú á víst að vekja upp myrkraöfl sem hlýða því sem þeim er fyrir sett. Og auðvaldið er auðvitað tengt við sömu uppsprettur og það var 1941. Það er því ekki við neinu góðu að búast. Auðvaldið hefur sýnt sig á öllum stigum sem það mannkyns hættulega bölvunarvald sem snýr allri blessun við og skapar ekkert nema endalausa ógæfu !
Græðgishvöt mannsandans er sending beint upp úr vítisglóðinni og auðvaldið er helsti fulltrúi þeirrar sívirku óþokka-mennsku hér á þessari jörð. Sú staðreynd ætti ekki að fara framhjá neinum skyni bærum manni sem hlýðir eðlilegri rödd sinnar eigin samvisku !
Eða hver skyldi annars vera helsti gerandi þeirrar þjóðfélagsmyndar sem Chris Hedges hefur lýst svo afgerandi með eftirfarandi orðum ?
,,Við lifum nú í þjóðfélagi þar sem læknar eyðileggja heilsufarið, lögfræðingar eyðileggja réttlætið, háskólar eyðileggja þekkinguna, ríkisstjórnir eyðileggja frelsið, fjölmiðlarnir eyðileggja upplýsinguna, trúarbrögðin eyðileggja siðvitundina og bankar okkar eyðileggja efnahaginn !
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:43 | Slóð | Facebook
22.9.2024 | 10:01
Ritað í tilefni haustjafndægra !
Það haustar. Sumarið er að hníga út af dagatalinu og sumir segja að það hafi aldrei komið til að vera þetta árið. Einhverjir voru þó slíkir dagarnir en fólk vill meira en fáeina daga. Margir tuða og ergja sig og aðra, og fara svo á hásumartíð út á Teneriffe, innfæddum íbúum þar til takmarkaðrar ánægju. Allt kemur að sínum þolmörkum, jafnt fjöldi Íslendinga á Teneriffe sem og fjöldi útlendinga á Íslandi !
Hvað er framundan ? Verður dýrtíðin áfram jafn djöfulleg og hún hefur verið, verður staða heimilanna í mögnuðu mínusgildi til frambúðar ? Verður húsnæðisokrið áfram í hæstu hæðum ? Hið hálaunaða, pólitíska ríkisforustulið gerir sannarlega fátt til að bæta stöðuna og skilar engu, er með fundahald úti á landi sem skilar engu, með sveitarstjórnarfólki sem skilar engu :
Ríkisstjórnin fundar, fundar,
flækist vítt og breitt.
En í verkum stundar, stundar,
stefnuleysið eitt !
Og vetur nálgast og dagar styttast. Allt lífsverk náttúrunnar hlýðir sínu kalli og laufin falla. En verkin mannanna, einkum valdamannanna dragast. Þau skila sér seint til góðra lykta. Samt er kominn loforða-tími, kominn lygatími fyrir lausnir eftir kosningar. Gildir þá enn og aftur það sem eitt sinn var kveðið á Þorrablóti á Skagaströnd :
Færist yfir alþjóð ró
eftir kosningar.
Eitt og annað gleymist
sem áður lofað var.
Sveipar þögnin á ný
sérhvern þingmannsstól.
Svo veit enginn hvar við
dönsum næstu jól ?
Þeim fjölgar Íslendingunum sem dvelja stóran hluta ársins erlendis, jafnvel í eigin húsnæði. ,, Maður frýs bara uppi á Íslandi segja þeir með hrolli. Þeir eru eiginlega orðnir hálfgerðir Frýslendingar að eigin mati og horfa svörtum augum á Ísland, farsælda frón. En við heima-ræktaðir Íslendingar þekkjum náttúruöflin hér og erum ekkert óvanir gosum og skjálftum, jökulhlaupum og aurskriðum og öðrum uppákomum hins íslenska umhverfis, og slíkt hendir nú víðar en hér !
En það eru yfirvöldin sem eru miklu verri viðureignar en náttúruöflin. Þau moka erfiðis-ávinningi lands og þjóðar til Brussel eða Úkraínu, eða jafnvel beint til Nató og Pentagon. Það fjármagn sem ætti að fara í að byggja upp laskað heilbrigðis-kerfið, byggja upp hrunið vegakerfið, byggja upp niðurbrotið velferðarkerfið, er sent úr landi í þágu Nató-samhjálpar Vesturlanda sem stefnir í það að verða mesta blóðsuga í samanlagðri Íslands-sögunni !
Nú eru Íslendingar víst orðnir beinir stuðningsaðilar hergagnaiðnaðar Pentagon og Brussel og ótaldir hálfíslenskir leigupennar hamast við það, húsbændahollir með afbrigðum, að réttlæta þá blóðugu staðreynd á öfugum nótum. Og ráðherrar í ríkisstjórn ganga þar á undan með illu fordæmi. Hvað skyldi friðsama örþjóðin á hjara veraldar geta sokkið djúpt ?
Við Íslendingar erum arðrænd þjóð, en við erum arðrændir af svokölluðum vinaþjóðum okkar og eigin auðvaldi. Erfiði vinnandi fólks fer alltaf illa á Íslandi vegna sérgæskuaflanna. Við vörum okkur ekki á höggormunum sem eru í þjóðargarðinum og þeim fjölgar með hverju árinu. Þeir ræna þjóðina jafnt fyrir eigin hag og fyrir erlenda húsbændur sína. Þeir eiga engar ærlegar taugar til og þaðan af síður þjóðhollustu !
Við Íslendingar erum ekki lengur á leiðinni upp, við erum á leiðinni niður, eins og allir sem búa við arðrán og svikræði eigin ráðamanna og annarra blóðhunda. Unga fólkið okkar stendur frammi fyrir því að erfa ekkert annað en þrælahaldskjör. Það er kannski það sárasta af öllu. Skyldu annars nokkrir geta farið héðan til Teneriffe eftir tíu ár ?
19.9.2024 | 09:23
Hugleiðing um andlegan aumingjadóm !
Ýmsir velta því fyrir sér hvernig menn verða að andlegum aumingjum ? Það er dálítið erfitt að meta slík dæmi því andlegir aumingjar geta átt sér svo ólíkan bakgrunn og komið fram svo víða. Það er kannski um að ræða norskan þunga-vigtarkrata, franskan forseta, breskan lubbaling, ítalskan auðkýfing eða þjóð-lausa prímadonnu !
Aumingjadómur af andlegu tagi má líklega teljast alþjóðlegur, fjölmenningarlegur en alltaf er hann einstaklega sérhags-munalegur. Sumir virðast komast upp á lag með að selja sálarfrumur sínar og manngildissellur nánast í stykkjatali og halda því áfram, uns ekkert er eftir nema innihaldslaus ytri skel algerrar og þjóðlausrar vesalmennsku. Andlegur vesaldómur skilur sig þannig endanlega að lokum frá allri virðingarverðri mennsku !
Og samt getur verið um að ræða æðstu menn í sumum þjóðríkjum, en þó um leið andlega aumingja og manndómslaus kvikindi. Maðurinn er í öllu sínu menntaveldi sannarlega ólýsanlega brjóstumkennanlegur í allan máta. Mörg svokölluð frægðarmenni menningar-geirans virðast meira og minna ánetjuð alkóhólisma og fíkniefnum og ráða mörg hver ekkert við sitt brotakennda sálarlíf. Og þannig kynna sig flestar fyrirmyndir í auglýsingaómennsku fjölmiðlanna og fölskum veruleika nútímamenningar, svo geðsleg sem hún er eða hitt þó heldur !
Geðveikislegar útfærslur á hugarfars-legum ágöllum og sálarlegum meinvörpum eru meginefni þúsunda bóka sem alltaf virðast seljast. Þar virðist fólk nærast á nánast öllu sem er óeðlilegt og var reyndar talið það fyrir skemmstu. Og samt á allt að vera á skínandi framfaraleið ? Ranghverfa málanna er í flestu látin snúa upp og rétttrúnaður samtímans er ill og óhrein getnaðargrein rómverskrar siðvillu !
Hvar er úrkynjunin mest í heiminum ? Berast ekki böndin að Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku ? Og af hverju skyldi það vera ? Líklega vegna þess að heilbrigð trúarvitund og siðferðileg undirstaða er þar einna mest á fallandi fæti. Fólk telur sig orðið svo menntað og er orðið svo sjálfhverft að í egói sínu varpar það Guði burt úr lífi sínu. Það er hinsvegar innganga í mesta aumingjadóm mann-legrar tilveru að hafna tilvist Skaparans !
Skólainnspýtingin sem á að leysa allt gerir það bara ekki, langt því frá. Og svokallað veraldlegt hámenntafólk fyllist vonleysi og andlegri vesöld og þá er flaskan oftast úrræðið og býður upp á gleymsku frá veruleikanum og hugarfarslega flóttaleið. En eftirköst slíks verða alltaf slæm og drukknir valdamenn geta skiljanlega orðið meðal hættulegustu manna þessa heims !
Andlegur aumingjaskapur er langoftast heimatilbúinn vandi, af eigin völdum eða annarra. Menn halda sig oftast vera gildari að manndómi en þeir eru. Þeir ráðast í verkefni sem verða þeim ofviða, jafnt í pólitík sem öðru. Þá fara þeir að leysast upp í frumparta sína, tapa öllum áreiðanleika, tala og hegða sér eins og í þeim búi margir persónuleikar, leita í rugl og kukl og hvaðeina sem villir og tryllir. Og að lokum hafa þeir komið lífi sínu í svo mikla sjálfheldu, að enginn getur lengur borið nokkurt traust til þeirra. Þeir hafa núllað sjálfa sig. Sviðsmyndin er þá fallin !
Kjósum enga andlega aumingja yfir okkur, hugum að manngildi frambjóðenda við kosningar en ekki flokksgildi, auðgildi eða gráðugildi. Vinnum í því saman að koma okkur upp manndómslegu forustuliði fyrir íslenska þjóð. Það hefur allt of lengi vantað hérlendis. Losum okkur við alla andlega aumingja úr valdakerfinu, alla þá sem þjóna öðrum öflum en þeim sem stefna að þjóðlegri hagsæld og velferð. Gerum hreint fyrir okkar dyrum !
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:53 | Slóð | Facebook
16.9.2024 | 00:01
Hin stórkostlega upplifun hinna kúguðu - gildishrap hvíta mannsins !
Heimsstyrjöldin síðari var mikill harm-leikur og margar þjóðir fengu þar falleinkunn í mennsku og siðferðilegum veruleika. Þýska þjóðin mun aldrei verða söm eftir að hafa kosið yfir sig nazismann og alla þá óheyrilegu mannvonsku sem honum fylgdi. Meðferðin á Gyðingum er einn allra ljótasti blettur mannkyns-sögunnar og verður aldrei burtu þveginn sama hvað menn gera !
En meðferð hvítra manna á nýlenduþjóðunum í Asíu og Afríku var líka fyrir neðan allar hellur. Þar var í raun ein útgáfa nazisma til staðar, hvítir töldu sig algera yfirþjóð og auðmýktu og niðurlægðu hina innfæddu takmarkalaust. Ef Japanar hefðu haft vit á því að koma fram með mannlegum hætti gagnvart íbúum þeirra landa sem þeir hertóku, hefði stuðningur við þá orðið margfalt meiri !
Þá hefðu þeir sýnt að þeir voru miklu skárri kostur fyrir hina innfæddu en hvítu nýlenduherrarnir. En óheyrilegur hroki þeirra og grimmd fengu flestar asískar þjóðir til að rísa upp gegn þeim og það varð þeim dýrkeypt áður en yfir lauk !
En eftir styrjöldina ætluðu nýlendu-þjóðirnar bara að setjast að kjötkötlunum á nýjan leik eins og ekkert hefði átt sér stað. En það var ekki hægt. Virðingin fyrir þeim var horfin. Hinir innfæddu höfðu horft upp á ,,hvítu guðina niðurlægða af Japönum, þeir höfðu séð þá hrakta og bjargarlausa, jafn auma og aðra við slíkar aðstæður !
Þeir voru engir guðir lengur, þeir voru bara menn eins og aðrir og að engu leyti betri. Þegar þeim var ekki þjónað til allra hluta, gátu þeir ekki bjargað sér, án annarra hjálpar. Það voru engin haldbær rök lengur til fyrir valdstjórn þeirra !
Og sjálfstæðishreyfingar innfæddra fengu þar með þrumandi start. Hollendingar misstu Indónesíu og fóru þó í stríð til að reyna að halda henni, Frakkar misstu sínar nýlendur í Asíu og töpuðu Víetnam endanlega eftir ósigurinn við Dien Bien Phu. Og ekki farnaðist þeim betur í Afríku. Bretar misstu Indland þar sem arðránsgróði þeirra hafði farið upp úr öllu valdi og í raun auðgað þá meira en nokkuð annað !
Belgar og Portúgalir urðu fljótlega að hundskast burt frá sínum nýlendum þó hinir síðarnefndu væru aldrei beinir aðilar að styrjöldinni. Staðan hafði gjörbreytst á svipstundu og veldi hvíta mannsins í heiminum hafði stórlega gengið til baka !
Og ástæðan var sú að hvítir menn höfðu farið miklar hrakfarir í styrjöld við asíska þjóð. Japanar höfðu leikið þá verulega grátt í augsýn þeirra þjóða sem þeir höfðu lengi kúgað og undirokað !
Bandaríkjamönnum hugnaðist ekki hvernig hlutirnir gengu eftir styrjöldina og hugðust skakka leikinn í Víetnam og sýna Frökkum hvernig ætti að taka á innfæddum. Þeir framlengdu þjáningar víetnömsku þjóðarinnar um 20 ár, en urðu að skammast þaðan burt eins og sneyptir hundar að lokum eftir ótrúlegan glæpaferil !
Það er í sannleika einn versti blettur bandarískrar sögu. Þeir vörðu nýlendu-kúgunina þó þeir hefðu sjálfir eitt sinn verið nýlenda og orðið að berjast fyrir sínu frelsi og sjálfstæði. En það var allt löngu gleymt og grafið og dollaravaldið hyllt að jöfnu í auðvaldshöllunum í Washington og London !
Þar samsömuðu Bandaríkjamenn sig því sem þeir hefðu átt að standa á móti og sýndu með því móti hversu langt þeir voru komnir í spillingunni og djúpt sokknir. Margir frelsisleiðtogar hinna kúguðu þjóða voru að vísu kommúnistar og hákarlarnir í Wall Street hræddust auðvitað ekkert meira en heimskommúnismann og Sovétríkin !
En hinsvegar voru flestir forustumennirnir gegn hinni gömlu nýlenduskipan öllu heldur þjóðlegir byltingarmenn en kommúnistar, en bandaríska auðvaldið hafði sinn hátt á því að stimpla þá alla undir einu brennimarki. En það voru mikil mistök því þannig voru margir leiðtogar hraktir yfir í rauðar herbúðir, menn sem þar áttu í rauninni ekki heima !
Hvíti kynflokkurinn kom að langmestu leyti báðum heimsstyrjöldunum af stað í hroka sínum og innbyrðis valdabaráttu og græðgi. Aðrir kynflokkar urðu þar fyrst og fremst þolendur og píslarvottar. En hvítir menn felldu þar sjálfa sig af stöllum !
Þeir glötuðu þeirri stöðu sem þeir höfðu, vegna þess að eftiröpunarmenn þeirra, stríðsmenn hins himneska Japanskeisara, lítillækkuðu þá og sýndu þá í afgerandi hlutverki varnarleysis og vesalmennsku. Þar uppskáru þeir eins og þeir höfðu sáð !
Önnur afleiðing nýlenduvaldsins er það, að móðurlönd eins og Bretland, Frakkland og Holland hafa fyllst af fólki frá fyrri nýlendum, sem í krafti samveldisréttar hafa nýtt sér fulla borgararéttar stöðu þar !
Sú saga hvernig þau mál fara er ekki enn útséð, en samt er ljóst að viðkomandi lönd munu seint eða aldrei verða þau sömu og þau voru fyrir seinni heims-styrjöldina. Hin borgaralega innrás frá Asíu og Afríku mun algerlega sjá til þess !
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.9.2024 kl. 15:29 | Slóð | Facebook
13.9.2024 | 12:27
Mannfélagshópur í útrýmingarhættu !
Flestir skyni bærir menn eru að byrja að átta sig á þeirri staðreynd að samfélagsvænir eða samfélagshollir stjórnmálamenn eru sannarlega í bráðri útrýmingarhættu. Þetta á við um stóran hluta heimsins, ekki síst Evrópu, og þetta á við um stöðu mála á Íslandi !
Þegar talað er um virta stjórnmálamenn á Íslandi er yfirleitt vísað til manna sem voru upp á sitt besta fyrir mannsaldri eða meira. Af hverju skyldi það vera ? Jú, að almennu mati, eru þeir tæpast til í dag. Það virðist sem það lið sem situr nú á alþingi njóti mjög lítillar virðingar meðal almennings og traustið á því sé varla mælanlegt meðal þjóðarinnar ?
Skýringarinnar á því er að mínu mati frekar að leita hjá hinum kjörnu fulltrúum en almenningi. Fólk metur stöðuna eftir frammistöðu þingsins gagnvart því hlutverki sem það á að gegna og telur hana afspyrnu slaka. Á þingi séu mjög fáir, ef nokkrir, að skila þeim verkum sem þeim er ætlað að vinna og sinna. Sem sagt, þingið er að mati almennings dæmigert upp á það, að samfélagshollir stjórnmálamenn séu á sömu hverfandi leiðinni og geirfuglinn forðum. Þeir geta ekki flogið í frjálsum anda, falla í gildrur og eru étnir upp sálarlega af hagsmunahópum Mammons !
Er það annars orðið lögmál á Íslandi að sérgott og egóhlaðið fólk sitji á alþingi ? Margir virðast líta svo á og það er vaxandi tilhneiging í samfélaginu fyrir því að það sé eðlilegt að hafa skömm á þingmönnum. Það er vond framvinda í málum, en af hverju er þá fólk að kjósa slíka fulltrúa fyrir sig á þing og það aftur og aftur ? Jafnvel löngu eftir að öllum er orðið ljóst að þeir eru frómt frá sagt - meira en gagnslausir sem slíkir !
Er þá kannski verið að kjósa flokkinn, sama hvað honum hugnast að bjóða fólki ? Varla getur það verið nú til dags, því traustið á flokkunum virðist langt frá því að koma vel út hjá kjósendum og er engu betra en traustið til þingmannanna. En hvernig eru þá málavextir ? Fer kannski margt fólk á kjörstað og skilur glóruna eftir heima ? Beitir fólk lýðræðisrétti sínum eins og það sé í svokallaðri rússneskri rúllettu ? Af hverju sitjum við uppi með ónýt stjórnvöld og ónýtt þing ?
Það er víst löngu liðin tíð, að fólk mennti sig til að verða samfélaginu til eflingar og gagns. Það tilheyrði frekar þeim tíma sem menntunina þurfti að sækja til Kaupmannahafnar. Nú til dags er menntafólk sannarlega ekki að sligast undan ábyrgð og glóandi samfélagskennd. Öðru nær !
Nú er það egóið eitt sem ræður og græðgin í gráðuspilltan frama, til þess að öllum verði kunnugt hvað viðkomandi ein-staklingur sé virkilega stórbrotin persóna. En dæmið gengur bara ekki lengur upp. Viðmiðin eru orðin svo skökk að ætlaður manngildisteljari fer með niðurstöður sínar út í móa, jafnvel Hádegismóa, og sá teljari er að mæla það stórt sem ekkert er !
Háskóli Íslands er löngu hættur að vera háborg íslenskrar menningar, eins og hann var kynntur við stofnun, hafi hann þá nokkurntíma náð því að verða það. Það sem menn hugsuðu varðandi þjóðleg menningarefni 1911 er löngu orðið að andstæðu sinni og varð það býsna fljótt. Hroki, sérgæska, snobb og egó tóku fljótt yfir og byrgðu fyrir alla útsýn til betri viðmiða !
Frá hreiníslensku sjónarmiði er langt síðan háskólinn virðist fyrst og fremst hafa orðið að notalegu dvalarhreiðri erlendra menntamanna og skyn þeirra á íslenska menningu og gildi hennar er sennilega vafasamt svo ekki sé meira sagt. Háskóli Íslands virðist í öllu orðinn að útungunarstöð fjölmenningar og íslensk menning er þar hvergi í öndvegi !
Egóistar af líku tagi og okkar menntamenn, frá miklu stærri þjóðum, munu í flestum tilfellum hugsa sitt út frá allt öðru og ólíku sjónarhorni en íslenskri þjóðmenningarstefnu. Hóflaust dekur við útlendinga á okkar kostnað er komið út úr öllu samhengi við þjóðleg gildi og þar virðist háskólinn miklu fremur orðinn að háborg fjölmenningar og þeirra rangsnúnu sjónarmiða sem henni fylgja. Sú staða verður aldrei neinu sem íslenskt er til gagns og gæða !
Svo þörfin á bitastæðum forustumönnum fyrir íslenska þjóð er brýn sem áður og jafnvel enn brýnni en hún var. En í því sambandi virðist sannarlega fátt um fína drætti. Þjóðin er sýnilega að glata þeim ávinningi sem sérhverri þjóð er talinn nauðsynlegur, með hliðsjón af vökulli og heilbrigðri sjálfstæðisvörn og lífsfrelsi almennra borgara !
Vandamálið er eiginlega uppeldislegs eðlis. Það hefur verið stórlega vanrækt að hlynna að þjóðræktarlegum sjónarmiðum í íslensku samfélagi og afleiðingarnar eru þegar orðnar augljósar. Íslenskt stjórn-málalið virðist orðið að einhverju alþjóðasinnuðu, óþjóðlegu og Nató-mörkuðu hyski sem veit ekki lengur hvar skyldur þess liggja. Stjórnmálalífið virðist orðið dauðhreinsað af þjóð-varnarsinnuðu fólki og enginn er að vernda sjálfstæði þjóðarinnar og síst af öllu flokkurinn sem kennir sig við það. Hann er eins og hægri flokkurinn í Danmörku sem heitir Venstre !
Þjóðhollir, íslenskir forustumenn ættu skilyrðislaust að vera á válista, þeir virðast svo gott sem útdauðir !
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:12 | Slóð | Facebook
10.9.2024 | 09:15
Loforðatíminn og fylgjur hans !
Nú stefnir í þann hluta kjörtímabils stjórnmálanna sem almennt gæti heitið ,,Loforðatíminn. Þá fara þeir sem völdin hafa, að veita hinum og þessum aðilum allskyns dúsur til að tryggja sér stuðning við næstu kosningar. Ekki er neitt siðferði talið mælanlegt í slíkum viðskiptum sem öllu fremur minna á hrossakaup á skítlegu plani. Afleiðingarnar þrýsta okkur enn dýpra í skítinn, enda er almenningsheill aldrei hluti af slíkum gjörningum !
Hvernig skyldi vera hægt að mæla pólitískan veruleika hérlendis ? Á að gera það eftir norrænu spillingarstigi, eða því breska, franska eða þýska ? Á að sækja fyrirmyndina vestur um haf í spillingar-hreiðrið mikla í Washington eða í hitt höfuð spillingarhreiður Vesturlanda í miðstjórnarkastalanum í Brussel ?
Nú liggur fyrir að heimurinn er að breytast í ýmsum meginatriðum. Forræði Vesturlanda er að líða undir lok og ekki síst forræði Evrópu í heimsmálum. Bretland getur ekki keppt við fyrrum nýlendu sína Indland, Frakkland hefur glatað valdi sínu svo að það reynir að hanga á áhrifum sínum innan ESB, sem þó hafa líka gengið töluvert til baka. Margar fyrri nýlendur Frakka fyrirlíta gamla móðurlandið og sívaxandi aumingjadóm þess. Þýskaland hefur orðið fyrir verulegu efnahagslegu áfalli við að rjúfa orkusamskiptin við Rússland sem í raun lögðu til kraftinn í þýsku efnahagsvélina. En Nató skipar Þjóðverjum fyrir verkum í dag, jafnvel þeim sjálfum til bölvunar !
Japan sem algjört taglhnýtingsríki Vesturlanda hefur alltaf gengið fyrir aðfenginni orku og stendur illa að vígi í þeim efnum sem löngum fyrr. Kínaveldi virðist að flestu leyti ríki í örum vexti og nýtur eins og Indland góðra kjara varðandi orkukaup frá Rússlandi. Sem forusturíki í Brics hafa þessi þrjú ríki, ásamt bandalagsríkjum sínum, fulla burði til að byggja upp alþjóðlegt fjármálakerfi óháð dollaravaldinu. Vesturlönd eru sannarlega ekki að glíma við Gaddafi einan núna í þeim efnum og menn hafa lært mikið af því hvernig Vesturlandamafían fór að ráði sínu í Lybíu !
Vestræn viðmið gagnvart pólitískri fram-vindu á Íslandi geta þannig enganveginn byggst á ærlegri undirstöðu, enda hljóta allir menn að sjá það, nema þeir sem gjörspilltir eru. Við höfum undanfarin ár stöðugt verið að sökkva dýpra í spillingarfen auðvalds og arðráns og félagshyggja hefur verið algjörlega lögð í einelti á Íslandi, en hún var það fjöldaafl sem byggði í raun upp öll helstu verðmæti okkar í liðnum tíma !
Umrædd ójafnaðarsveifla hefur átt sér stað fyrir ofboðslega græðgi fjölda óseðjandi aðila, sem hafa skriðið sem afætur inn í ríkiskerfið, borgarkerfið og sveitarstjórnir víða um land og vilja stöðugt meiri pening. Í þeim efnum má segja að stórfelld verktakastarfsemi í vampýrustíl sé búin að sjúga sig fasta á spena hvar sem það hefur mögulega verið hægt og spillingin hefur aukist sem því nemur og það er ekki lítið !
Og slíkt óþurftarlið vill auðvitað fá sitt á loforðatímanum og þar er sannarlega ekki neins krafist sem á samleið með almannahag. Þar rís sérgæskan í hæðir og bitfestan er orðin slík, að kerfisleg þjóðhollustumál eru hrakin út og suður. Það má finna marga ranggefna fósturvísa á þeim furðuslóðum, og þó allt kunni að vera öfugt við það sem rétt er, má telja víst að þar sé enginn ábyrgur, enda er spillingarstigið hátt sem fyrr segir !
Möguleikar íslensku þjóðarinnar á því að hér megi byggja upp heilbrigða stefnu til almannaheilla fyrir tilverknað frambæri-legrar ríkisstjórnar eftir næstu kosningar hljóta því að teljast hverfandi. Það er hreint út sagt enginn góður kostur í boði. Blekkingar bæta ekki neitt. Hér er enginn stjórnmálaflokkur laus við spillingu, hér eru engir bitastæðir stjórnmálaforingjar, hér er djúpstæð hyglingapólitík í gangi og rótgróin sérgæska í skítugu öndvegi allra mála og blóðsugurnar eru vægast sagt margar. Og nú virðist reyndar svo komið í bölvunarlegu samhengi, að útlendingar eru alfarið farnir að ráða sjoppunni !
Hvernig var hægt að klúðra svona öllum manngildis málum íslensku þjóðarinnar og það á ekki lengri tíma en raun ber vitni ?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 11.9.2024 kl. 20:14 | Slóð | Facebook
7.9.2024 | 14:00
Að fara niður úr öllu valdi !
Nú þegar Vinstri græn hafa legið kylliflöt undir íhaldinu og frjálshyggjunni árum saman og þurrkað út hverja ögn af virðingu í sinn garð frá almenningi, virðast ráðherrar flokksnefnunnar og þingmenn leita í vaxandi örvæntingu eftir einhverju bitastæðu ágreiningsmáli við fyrrnefndan samstarfsflokk, til að reyna að bæta ímynd sem þegar er í rúst !
Vinstri græn hljóta eftir öllum réttum sólarmerkjum að vera á endanlegri útleið. Það er ekkert tilefni lengur til að bera traust til þeirra. Og sá forseta-frambjóðandinn sem kom úr liði Vg, var kolfelldur þrátt fyrir ríkulegan stuðning hægri aflanna, þar sem sumir gengu fram af sér í yfirlýsingum !
Það eina sem var verulega sláandi niðurstaða í nýafstöðnum forseta-kosningum var að umræddum frambjóðanda var algjörlega hafnað. Það blasir við hverjum manni sem skoðar málin. Núverandi forseti mun ekki hvað síst hafa náð kosningu vegna þess einbeitta ásetnings þjóðarmeiri-hlutans sem þar kom fram !
Það mun fljótt koma í ljós í haust, að Vg mun kosta kapps að fjarlægja sig stjórnartaumum íhaldsins, en ólíklegt er að þjóðin láti gabbast af þeim gerviformúlum sem þá verða settar upp. Vg er eitthvað sem tilheyra þarf fortíðinni og þá sem víti til varnaðar fyrir alla sem kjósa að vera vinstri menn og vera þar sjálfum sér samkvæmir !
Komandi kosningar þurfa að undirstrika það með skýrum hætti, að svik við stefnumál verði ekki verðlaunuð. Það eru svik við kjósendur og eðlileg lýðræðisafstaða getur ekki heiðrað slíka framkomu. Vg er ekki lengur neinn valkostur fyrir fólk sem vill að almannahagsmunir séu varðir í þessu landi. Þeir hafa verið beygðir og brotnir á margan hátt á síðustu árum, undir stjórnarforustu prímadonnunnar, í fullri baktjaldaþjónustu við svartliða !
Það vita allir hvaða flokkur hefur alla tíð verið skjaldborg sérhagsmunanna í þessu landi, en það þurfa líka allir að vita hvaða flokkur hefur dyggilegast stutt hann þar í öllu sér til svörtustu skammar. Og þessvegna er Vg ekki lengur boðlegur valkostur með sitt lið til setu á þingi. Þjóðin þarf að vera minnug á það sem gert hefur verið síðustu árin til ills og bölvunar fyrir hennar hag og hún þarf því - vegna eigin nauðsynjar, að varpa Vg endanlega á dyr !
En margur óhugnaður er í gangi að tjaldabaki og löngum er sagt að kerfið sjái um sína. Það á trúlega jafnt við um ríkiskerfið og pólitíkina. Það veit því enginn hvað kann að koma í ljós á næstu mánuðum sem verða líklega nokkuð miklir örlagatímar fyrir íslenska þjóð. Kjósendur þurfa því að vera vel á verði og varast allar þær blekkingar sem kunna að verða settar á svið á næstunni þeim til falls og skaða í náinni framtíð !
Sumir af komandi gjörningum kunna vafalítið að þykja mjög ógeðfelldir, að mati almennra borgara og langt frá allri þjóðlegri nauðsyn. Í slíkum tilfellum þarf fólk að vera tilbúið að láta hug sinn í ljós. Þingið má ekki vera afgreiðslu-stofnun fyrir blóðsugaættaða sérhags-munaaðila, heldur á það að endurspegla þjóðarviljann með réttarfarslegum hætti og siðferðilegum styrk. Fáir telja að það geri það eins og sakir standa !
Margt virðist fara eftir ljósfælnum leiðarmerkjum í pólitískum veruleika og alls kyns hyglingar virðast daglegt brauð. Til dæmis má nefna það, að nokkuð víst er talið, að einhverjir hægrisinnaðir áhrifa-menn muni líklega um þessar mundir, vera mjög uppteknir í kringum það miður skemmtilega verkefni, að leita með logandi ljósi um allt ríkiskerfið - að einhverri nógu feitri stöðu sem eftirkosninga huggunardúsu fyrir prímadonnuna !
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:06 | Slóð | Facebook
4.9.2024 | 16:47
Eina kjarnorkusprengju-árásarþjóð veraldar !
Þegar litið er yfir síðustu 170 árin eða svo, kemst maður varla hjá því að hugleiða hvað það var mikil ógæfa fyrir veröldina og mannlegt frelsi um allan heim, að Suðurríkin skyldu ekki fá að segja sig frá bandaríska ríkjasambandinu með friðsamlegum hætti. Því miður hegðuðu leiðtogar Suðurríkjanna sér fávíslega í upphafi átakanna og gáfu Washingtonvaldinu færi á sér, með því að hefja árás. Það voru mikil og afdrifarík mistök !
En hefðu Suðurríkin orðið sjálfstætt ríkjasamband 1860 hefði hin blóðuga saga Bandaríkjanna aldrei orðið sú sem hún hefur orðið. Þá hefðu þrjú ríki deilt með sér Norður-Ameríku, Kanada í norðri, Suðurríkin í suðri og Bandaríkin þar á milli. Sennilega hefðu þau þurft að beina athygli sinni töluvert að hvert öðru vegna varnarhagsmuna sinna, og þar af leiðandi engin framvinda hrokkið í þann heimsveldisgír sem hefur skaðað orðstír Bandaríkjanna mest í gegnum hræðilega glæpi þeirra gegn öðrum þjóðum, einkum þó frá stríðslokum 1945 !
Það hefur ekkert ríki skaðað heimsfriðinn meira allan þann tíma en þetta glæparíki hinnar mestu tvöfeldni. Að hugsa sér, að frá dauða Roosevelts í apríl 1945 hafa Bandaríkin ekki komið sér upp einu einasta mikilmenni. Úrvalið úr ríflega 260 milljón manna þjóð hefur sjaldnast náð yfir meðallag mannlegra hæfileika. 75% leiðandi liðs virðast skussar og skíthælar og afgangurinn hangir í því að vera við meðallagið. Varla getur nú heildin verið merkileg þegar útkoman er með þessum hætti !
Ritstjóri við blað í Houston í Texas skrifaði á þeim tíma þegar Kosovomálin stóðu sem hæst, að hefði utanríkismálastefna Bandaríkjanna verið rekin með þeim hætti árið 1860, sem hún var um þær mundir, upp úr 1990, hefði engin borgara-styrjöld orðið í landinu og 600.000 Bandaríkjamenn fengið að lifa. Suðurríkin hefðu fengið að sigla sína leið í fullum friði !
En allt í einu var málum gjörbylt og einstakur ríkishluti mátti allt í einu segja sig úr sambandsríki einhliða. Hvað hafði gerst ? Þeirri spurningu getur enginn svarað nema Clintonstjórnin, sem stóð fyrir umræddri breytingu, líklega einkum til að herja á ríkishagsmuni Serba á þeim tíma, af pólitískum ástæðum. Svo var Nató keyrt upp í árásargír gegn viðkomandi þjóð !
Slík reginsveifla hafði aldrei fyrr, mér vitanlega, átt sér stað með samþykki og fyrir atbeina Bandaríkjanna. En þarna var áratuga föstum stefnupunkti breytt og enginn virðist vita hversvegna ? Mörgu kemur valdapólitíkin til leiðar og stundum er þar farið í heilan hring ósam-kvæmninnar, eins og þarna var bersýnilega gert, heimsfriðarmálum til óþurftar !
Bandaríkin hafa kúgað mörg ríki til hlýðni og undirgefni, en þó hygg ég að Suðurríkjamenn í Bandaríkjunum hafi verið barðir niður einna mest afgerandi af Washingtonvaldinu, því aldrei hefur æmt í þeim eftir borgarastyrjöldina og tólf ára svívirðilega hersetu Norðanmanna í Suðurríkjunum, enda voru þau meðhöndluð að fullu sem fyrsta nýlendan og yfirgangurinn og arðránið skelfilegt !
Það er lítill vafi á því að heimsbyggðin gæti verið mun betri án Bandaríkjanna eins og þau eru orðin. Þessi sannkölluðu Byssuríki eru eitt versta ofbeldishreiður veraldar og ómenningaráhrifin frá þeim streyma í allar áttir - allar stundir. Hin siðferðilega sýking er sem gangandi heimsfaraldur og nánast orðin áþreifanleg !
Ekkert ríki veraldar býr nú við meira hatur annarra þjóða en Bandaríkin. Enda þarf engan að undra það. Ófá þjóðríki hafa verið eyðilögð á undanförnum árum með sprengjuregni og algerri stríðsyfir-hellingu af Bandaríkjunum, svo lífskjör fólks hafa verið gjörsamlega eyðilögð. Það hefur gerst svo oft, að hatrið á orsakavaldinum er víða um heim komið í óslökkvandi stöðu !
Fólk æddi ekki út á Miðjarðarhafið frá Lybíu á manndrápsflekum á tímum Gaddafis. Það gerðist eftir að Bandaríkin ,,frelsuðu landið, eins og það heitir á Washingtonískunni tungumáli ofbeldis-aflanna. Tugmilljónir manna út um allan heim, eiga um sárt að binda vegna yfirgangs Bandaríkjanna og hjá þeim er hatrið á þessu ríkisskrímsli orðið sterkasta tilfinning þeirra í lífinu. Slíkt hatur er komið yfir öll mörk og kallar á hefnd hverja einustu lífsins stund !
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.10.2024 kl. 20:20 | Slóð | Facebook
Nýjustu færslur
- Endurreisn ómennskunnar !
- ,,Fylgiríki Bandaríkjanna ?
- Hin kratíska feigðarstefna Norðurlanda !
- Útþenslustefna Bandaríkjanna !
- ,,Nýja Kalmarsambandið og glóruleysisgangan !
- Litlar, leiðitamar þjóðir !
- Er herleiðing Flokks fólksins að hefjast..... ?
- Um tilhneigingar til frestunar lýðræðis ?
- Enginn friður, engir samningar, ekkert traust !
- Athyglisverð orð :
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 28
- Sl. sólarhring: 77
- Sl. viku: 597
- Frá upphafi: 365495
Annað
- Innlit í dag: 25
- Innlit sl. viku: 510
- Gestir í dag: 25
- IP-tölur í dag: 25
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
-
: Fjörusprek og Grundargróður (2023) -
: Í norðanvindi og vestanblæ (2013) -
: Hjartað slær til vinstri - Úr minningaheimi Kalla í Nesbæ (2010) -
: Bræðingur og Brotasilfur (2004) -
: Þar sem ræturnar liggja (2004) -
: Út við ysta sæ (2000) -
: Frá fjöru til fjalls (1996) -
: Vísur frá Skagaströnd (1993) -
: Ljóð frá Skagaströnd (1991)