Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, júlí 2025

Líklega ţađ versta sem minningu Washingtons hefur veriđ gert !

 

 

 

Ţađ efast varla neinn um ţađ ađ George Washington hafi veriđ mćtur mađur. Flest bendir til ţess ađ hann hafi veriđ samviskusamur og heiđarlegur mađur, trúr og skyldurćkinn í störfum sínum í hvívetna. Kveđjurćđa hans ţegar hann hvarf frá forsetaembćttinu er slík, ađ hefđu Bandaríkin metiđ hana og haft hana ađ grundvelli stefnu sinnar gagnvart umheiminum, vćri áreiđanlega öđruvísi um ađ litast í heiminum í dag og miklu betra !

 

George Washington er eitt af ţeim mikilmennum sem 18. öldin gaf mannkyninu. Og ţau voru hreint ekki svo fá. En margt fer öđruvísi en ćtlađ er. Sá mesti heiđur sem sýna átti Washington, af hálfu eigin ţjóđar, hefur fyrir alllöngu breyst í andstćđu sína. Hin nýja höfuđborg ríkjabandalagsins sem veriđ var ađ reisa, var ţví miđur nefnd eftir honum !

 

 

Ţađ er aldrei gott ţegar menn eru hafnir upp á stalla og byrjađ ađ dýrka ţá. Ţađ er sama hver er í ţeim efnum, hvort sem talađ er um Abraham Lincoln, Thomas Jefferson eđa George Washington; hvort sem talađ er um Pétur mikla, Vladimir Lenin eđa Josef Stalin; hvort sem talađ er um Marlborough, Wellington eđa Churchill, Lúđvík XIV, Napóleon eđa de Gaulle – eđa ađra !

 

Allt voru ţetta menn en ekki guđir. Ţeir voru breyskir og brutu af sér, misjafnlega mikiđ ţó, en enginn ţeirra hefđi átt ađ vera hafinn á stall eđa smurđur til varđveislu eđa lagđur til hvílu í einhverju stćrđarinnar grafhýsi. Ljóst er ađ sumum ţeirra hefđi ekki veriđ nein ţćgđ í slíku. Látinn leiđtogi er iđulega notađur af eftirmanni sínum og valdaklíku hans í áróđursskyni, en öll slík upphafning er viđbjóđur og siđferđileg afvegaleiđing sem ćtti hvergi ađ sjást eđa líđast. Í allri manndýrkun felast margvíslegar tál-snörur sem spilla dómgreind og heilbrigđri afstöđu til manna og málefna !

 

En ţađ er víst sama hver ţjóđin er, ţegar hégóminn er annarsvegar. Jafnvel á Íslandi eru svo stórir og miklir steinar á gröfum stórkaupmanna, bankastjóra og annarra peningamanna, ađ ţađ gćti hugsanlega orđiđ ţeim til fyrirstöđu á hinum efsta degi. Arfleifđ manna felst ekki í jarđneskum leifum ţeirra og enn síđur í ţeirri efnishyggju sem ţeir líklega lifđu eftir. Arfleifđ ţeirra er ţađ sem lifir áfram međ ţjóđum ţeirra eftir ţeirra dag og ekki síst ef ţađ fćr ađ ávaxta sig til góđs. Í ţví er hin sanna arfleifđ fólgin og ađeins ţannig getur hún orđiđ til blessunar í lífi annarra !

 

Ţađ er dapurleg stađreynd, ađ í augum umheimsins er Washington valdiđ löngu orđiđ illrćmt svo ekki sé meira sagt. ,,Ţađ grćr ekkert gott í Washington“ er víđa sagt í fullvissu ţeirra orđa.

,, Pentagon er púđurtunna heimsins“ er líka sagt á okkar dögum. Sú arfleifđ sem kennd er viđ George Washington er ógn í augum fjölmargra ţjóđa ţessa heims, og margar eru ţćr ţjóđir sem hafa orđiđ fórnarlömb ţess valds međ hrćđilegum hćtti, ekki síst á síđustu árum. Washington er ţví orđiđ alrćmt nafn á heimsvísu, ţó mađurinn sem höfuđborg Bandaríkjanna er kennd viđ, hafi vissulega veriđ ágćtur mađur !

 

Svona illa er hćgt ađ halda á málum, ađ minningarmörk snúast alveg viđ og glata ćtlađri góđri merkingu. Slík hörmungar útkoma er eitthvađ sem fyrsti forseti Bandaríkjanna George Washington á alls ekki skiliđ og hefđi aldrei átt ađ vera talin arfleifđ hans í augum umheimsins. Stefnu hans var hinsvegar ekki fylgt, eftir dauđa hans af hans eigin ríki, og afleiđingarnar hafa orđiđ algjör hryllingur á heimsvísu. Ţeirri ógćfu Bandaríkjanna og heimsins alls verđur ekki breytt héđan af, enda líklega skammt til endalokanna !

 


Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Júlí 2025
S M Ţ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.7.): 96
  • Sl. sólarhring: 209
  • Sl. viku: 760
  • Frá upphafi: 388170

Annađ

  • Innlit í dag: 95
  • Innlit sl. viku: 662
  • Gestir í dag: 94
  • IP-tölur í dag: 94

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband