10.10.2023 | 12:46
Norður-Atlantshaf og Svarta haf ?
Nató var stofnað í upphafi um lífæðina Norður Atlantshafið, til að tryggja að umrætt hafsvæði yrði óumdeilanlega í höndum Vesturveldanna um ókomin ár. Sumir telja að kafbátahernaður Stór-Þýskalands nazismans í Seinni heimsstyrjöldinni hafi komist nálægt því að hindra að fullu birgðaflutninga með siglingum frá Banda-ríkjunum til Bretlands. Með stofnun Nató átti að koma í veg fyrir að slík örlaga-hætta gæti skapast aftur !
Í dag er Natóbandalagið hinsvegar notað sem varðhundur fyrir töluvert miklu meira hafsvæði en Norður Atlantshafið.Banda-lagið virðist til dæmis skilgreina Svarta hafið núorðið innan sinna gæslumarka. Útþensluhugsunin sem í því felst felur í sér beinn yfirgang gagnvart rétti annarra ríkja. Þar er ekki varnarhugsun í gangi heldur árásarhugsun og ágangur á rétt annarra þjóða !
Ef Bandaríkin vestanhafs, sem stjórna Nató austanhafs,vilja ráða á Svartahafi, austur í heimi, í annarri heimsálfu, ætti engum að þykja skrítið að Rússland vilji hafa eitthvað um það að segja, stórveldi sem á land að umræddu hafi að stórum hluta !
Samt eru stöðugt sendar út fréttir um yfirgang Rússa á þessu svæði, en ekki er minnst á yfirgang Bandaríkjanna og Nató á hafi sem ætti að vera utan þeirra lögsögu. Í vörn sinni fyrir eigin hagsmunum vilja Bandaríkin í raun ráðskast með allan heiminn !
Það hefur þýtt og mun þýða viðvarandi stríðsátök víða um heim. Ekkert ríki skapar meiri ófrið í þessari veröld en Bandaríkin og svo hefur lengi verið. Það ættu menn nú að geta séð eftir áratuga reynslu af heimsyfirráðastefnu Pentagon-ríkisins !
Hefði Nató verið lagt niður eftir hrun Sovétríkjanna og stefnt ákveðið að friði, væri ástand heimsmála að öllum líkindum mun betra í dag en það er. En Vesturveldin vildu ekki ganga veg friðarins. Þau vildu halda sínum hernaðarmætti óskertum og hafa áfram fulla burði til að deila og drottna um allan heim. Það hefur alltaf verið þeirra meginmarkmið og vegna þess virðast haukar þeirra tilbúnir að hefja ótak-markaða styrjöld og breyta með því heiminum í blóðugan vígvöll og gera alls-herjar ruslahrúgur úr helstu borgum heims !
The Secret Military Plan, Operation Unthinkable, hugmynd Churchills í lok síðari heimsstyrjaldar, sem fór í þróun af hálfu breska hersins og Bandaríkjanna strax í maí 1945, er bersýnilega enn til staðar á skoðunarborðum Nató. Sú hugmynd hefur aldrei þýtt annað en að þriðja heimsstyrjöldin verður sett af stað og þessari veröld verður eytt í vítislogum kjarnorkustyrjaldar !
Hvernig er með kerfisbatterí Sameinuðu þjóðanna, sem illu heilli var byggt upp í New York ? Hefur það aldrei séð ástæðu til að gagnrýna framferði Bandaríkjanna um allan heim, að bandarísk réttindi séu í forgangi alls staðar. Er allur heimurinn viðurkenndur af æðstu stjórn S.Þ. sem bakgarður Bandaríkjanna ?
Af hverju eru lönd eins og Rússland, Kína, Indland og nokkur fleiri, yfirleitt að taka þátt í starfi eða öllu heldur starfsleysu S.Þ. ? Öll yfirstjórnin þar þjónar undir Vesturveldin og hefur alltaf gert og aldrei verið hlutlaus. Aðalritarar S.Þ. hafa aldrei verið neitt annað alla tíð en auðmjúkir skrifstofumenn í pappírs-bákni blekkingar og svika og hneigt sig og beygt eftir húsbóndans vilja !
Sameinuðu þjóðirnar hafa þannig aldrei náð því að verða eitt eða neitt. Bandaríkin eyðilögðu alla möguleika samtakanna til að verða mannkyninu að einhverju gagni. Þau voru nánast frá upphafi gerð að ómerkilegu leikfangi í höndum pólitísks rétttrúnaðar á Vesturlöndum. Það ætti umsvifalaust að leggja S.Þ. niður og bygging samtakanna í New York getur þá bara hýst deildir úr Pentagon eða CIA með öðrum svikahætti !
Aðalstöðvar slíkra samtaka, ef trúverðug hefðu átt að verða, hefðu miklu frekar átt að byggjast upp í Sviss. Fyrir tíu árum hefði ég kannski freistast til að nefna Svíþjóð að jöfnu, en Norðurlöndin eru nú öll rúin trausti í alþjóðlegum skilningi og öll talin heilaþvegin Natósleikjuríki. Neðar verður varla komist í beinum undir-lægjuhætti gagnvart erlendu valdi !
Það er athyglisvert að aukið kvennavald í norrænni pólitík virðist hafa gert Norðurlöndin að hálfu viljugri leikbrúðum í höndum Nató en áður var. Var þó nóg þjónkun að margra mati til staðar í þeim efnum frá fyrri tíð svo stríðsmaskínan gæti fengið sitt !
En norrænar konur í valdastöðum virðast finna svo föðurlega vernd hjá Jens Stoltenberg að þær standast ekki sjarma hans.Þarf ekki langt að fara til að sjá dæmin um það. En ærlegur sjálfstæðisbragur viðkomandi landa er því miður orðinn svipur hjá sjón eftir allan undirlægju-háttinn og alþjóðleg gildis-staða Íslands virðist nú skilgreind sem tómt viðhengi viljugustu þjóðar við stríðsstefnu Bandaríkjanna og Nató !
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:59 | Slóð | Facebook
7.10.2023 | 11:52
Verstu dæmi vondra þjóða !
Það er ekkert leyndarmál að svokölluð nýlenduveldi frömdu slíka glæpi í gegnum það illa skeið sögu sinnar, að það er og verður ólýsanlegt í allri mannkynssögunni. Og það eru einmitt þessi ríki sem eru alltaf að siða aðra til og þykjast öðrum fremri á öllum sviðum í góðum og ærlegum samskiptum við aðrar þjóðir !
Ég er hér að tala um Bretland, Frakkland, Belgíu, Holland, Spán, Portúgal, Ítalíu og jafnvel Danmörku. Lítum aðeins til Sögunnar. Bretar þóttust alltaf vera að sinna þróunarhjálp í nýlendum sínum, en arðrændu þær hinsvegar og kúguðu með þeim hætti, að þar ætti eiginlega að ríkja eilíft hatur í þeirra garð !
Framferði þeirra í Indlandi og hvar sem þeir kúguðu aðrar þjóðir, var endalaus ránskapur og svívirða. Drjúgur hluti af Lundúnaborg var byggður fyrir herfangið. Ferill Frakka og Ítala í norðurhluta Afríku var alveg sambærilegur að öllum viðbjóði og auk þess bættu Frakkar mjög við glæpasögu sína í Indókína, Sýrlandi og víðar eins og kunnugt er !
Belgar og Portúgalir óðu fram í mannvonsku sinni sunnar í Afríku og afhöggnar hendur og misþyrmd lík í Kongó, Angóla og Mosambique og hvar sem þeir komu að málum, mörkuðu slóðir þessara yfirgangsþjóða þar. Hollendingar léku sama leikinn í Indónesíu og annarsstaðar þar sem þeir létu til sín taka !
Já, Hollendingar segi ég, þeir voru þar sannarlega ekki öðrum skárri, þjóð sem hafði þó lengi þurft að berjast fyrir eigin frelsi gegn utanaðkomandi kúgurum og hefði átt að þekkja sín mörk !
Hollendingar höfðu verið frelsisþjóð sautjándu aldar í Evrópu. Þangað flykktist flóttafólk frá þeim löndum þar sem skefjalaust var níðst á minnihlutahópum. Í Hollandi ríkti frjálslynd stefna og þar fékk þetta hrakta fólk skjól og lífs-skilyrði. En Hollendingar reyndust því miður að engu leyti betri en hinar nýlendu-þjóðirnar, þegar þeir lærðu af þeim að fljúga á æti. Græðgin yfirtók þá og þeirra mennskufall gerðist í framhaldi mála mikið og ömurlegt !
Spánverjar eiga skelfilega fortíð í Suður-Ameríku þar sem þeir rústuðu ríkjum Inka, Azteka og Maya og drápu og eyðilögðu allt í óþrjótandi gullþorsta sínum og ómann-legri grimmd. Og síðar og víðar hafa þeir skapað sér öfugan orðstír, sem aldrei verður þagaður í hel. Og í gegnum þræla-sögubækur Thorkild Hansens geta menn kynnt sér, að litla Danmörk átti sér líka ljóta sögu í þessum græðgisfulla djöfladansi evrópsku menningarríkjanna í öðrum álfum og heimshlutum !
Þessar þjóðir sem hér eru fyrir sökum hafðar, eru mestu hræsnarar heimsins og þykjast alltaf öðrum betri. Þær setja upp dómstóla til að dæma aðrar þjóðir og leiðtoga þeirra fyrir stríðsglæpi og allar vammir og skammir, þær setja upp heiðrunarbatterí sem þjóna engu nema hræsni og hégóma, samanber Nóbels-vitleysuna. En ásamt seinni tíma læri-meistara sínum í ósiðunum, Banda-ríkjunum, hafa þessar sömu þjóðir gengið lengra í glæpsamlegri svívirðu en nokkrar aðrar þjóðir í þessum heimi !
Bandaríkin hafa lengi tileinkað sér þá erfð að verða samnefnari allra synda gamla heimsins. Einkum og sér í lagi Vestur-Evrópuríkjanna. Fólkið sem flýði vestur til nýja heimsins á sínum tíma til að frelsast frá glæpum Evrópu, skilaði afkomendum sínum býsna fljótt inn í samviskulausan heim peningavaldsins. Heim sem hefur ávaxtað glæpasögu og hræsni gamla heimsins með svo yfirgengilegum hætti, að gömlu nýlendu-kúgunarríkin líta öll til Bandaríkjanna í dag sem meistara síns í yfirgangsferli og mannréttinda-brotum gegn öðrum þjóðum !
Og þessi ríki verða ekki dæmd af neinum glæpadómstól, þau eru ósakhæf, sama hvað þau aðhafast. Og friðarverðlaun Nóbels falla iðulega í hlut manna sem eru blóðugir til axla í gegnum feril sinn og hefðu aldrei átt að koma þar til greina. Og bókmenntaverðlaun Nóbels falla að sama skapi í hlut lítt þekktra rithöfunda í öðrum löndum, sem hafa unnið sér það oftast eitt til velvildar, að vera þar á móti ríkjandi stjórnvöldum, sem eru þá pólitískir andstæðingar nýlendu-níðinga-þjóðanna !
Svo er fólk dregið með í lygaáróðri pólitískra fréttastofa daginn út og inn, og það svarta gert að hvítu og alltaf segja málsvarar níðingaþjóðanna að verið sé að berjast fyrir friði og réttlæti þótt hvorttveggja eigi stöðugt erfiðara um vik í veröldinni. Og helvítis hljómsveitinni stjórnar heimsvaldapólitík Bandaríkjanna með stöðugri tónagjöf illræðisins út um allan heim frá Nató og CIA !
Þetta er heimsmyndin ! Þetta er það sem við búum við og trúum að þjóni góðum málstað. Og meðan aðrir heimshlutar eru kúgaðir og arðrændir og smáhluti af arðráninu er gefinn okkur til hlýðni og þagnar, segjum við Vesturlandamenn ákaflega lítið !
Við horfum að mestu leyti alfarið framhjá þeim glæpum sem framdir eru í nafni þjóða okkar, en ábyrgðin er samt okkar. Það mun sanna sig þegar öll skil verða gerð upp !
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:01 | Slóð | Facebook
3.10.2023 | 21:16
Nokkur orð um hálfbreskan hernaðarpostula !
Það er löngu orðið ljóst, að Winston Churchill var alla tíð einn magnaðasti stríðsæsingamaður heims um sína ævidaga. Seinni heimsstyrjöldin átti enn eftir nokkra mánuði til loka, þegar þessi stríðsóði leiðtogi fór að tala um nauðsynlegt uppgjör Vestur-veldanna við Sovétríkin. Hann vildi áfram stríð og blóðs-úthellingar. Honum fannst ekki nóg komið !
Það má alveg ætla að bresku þing-kosningarnar 1945 hafi bjargað heiminum þá þegar frá þriðju heimsstyrjöldinni, því hefði Churchill unnið þær kosningar, hefði allt getað farið fullkomlega í bál og brand. Hið gamla kommúnistahatur í huga Churchills var farið að brjótast út á nýjan leik og það í margföldum styrkleika. Og það fékk sína viðbótar innspýtingu frá ýmsum öflum að vestan !
En breska þjóðin, sem hafði neyðst til að treysta Churchill fyrir stríðinu, treysti honum ekki fyrir friðnum. Churchill hafði aldrei átt mikla samleið með friðnum og það var þekkt og viðurkennd staðreynd meðal almennings í Bretlandi. Fólk sá að það var ekki leið út úr stríðinu að fela Churchill áframhaldandi völd. Svo það má líklega segja að heimsfriðarlegt gildi bresku þingkosninganna 1945 verði kannski seint ofmetið !
Þó að Bretar hafi lagt nokkuð af mörkum í stríðinu, hefði framlag þeirra orðið mun minna og fljótlega komist í þrot án hjálpar Bandaríkjanna. En Churchill var heldur enginn ekta Breti, hann var hálfur Bandaríkjamaður, og leit ef til vill svo á að með því að sækja hjálp að vestan, væri hann bara að sækja móðurarfinn sinn. Sumt í fari hans virtist frekar hafa verið sótt vestur yfir Atlantsála og sennilega öllu heldur það sem var af lakara taginu í hans eðlisgerð og það var reyndar nokkuð margt !
Staða Bretlands var í raun skelfileg eftir flóttann frá Dunkirk. Þeir voru allslausir og gátu afskaplega lítið gert sér til varnar. Germanska skriðan hafði fallið yfir þá og kaffært þá. Churchill reyndi að vísu að rífa kjaft, enda hefði hann seint hætt því, en flestum þótti sem hann talaði út frá heldur lítilli innistæðu !
Það sem bjargaði Bretum í þessari eymdarstöðu, var innrás Þjóðverja í Sovét-ríkin. Stríðsþunginn færðist frá þeim og lagðist af meginþunga á annarra herðar. Hitler taldi sig búinn að sigra Breta og svo virðist sem hann hafi haldið að Sovétríkin myndu falla við fyrsta högg. Hvorugt gekk eftir !
Bretar seigluðust áfram og Rússar sóttu stöðugt í sig veðrið þó illa hafi gengið í fyrstu. Mesta innrás sögunnar skilaði sér ekki í neinu leifturstríði og svo snemma sem í árslok 1941 gerðu margir þýskir hershöfðingjar sér grein fyrir því að styrjöldin myndi ekki vinnast, þegar sókninni gegn Moskvu var hrundið !
Og Sovétríkin sigruðu á Austurvíg-stöðvunum og á hverjum mæddi mest í styrjöldinni ? Það er augljóst mál. Sovétríkin misstu 25-26 milljónir manna, Bretaveldi 451.000, Bandaríkin 405.300. Segja þær tölur ekki sitt ? En áður en átökum lauk voru stríðsæsingamenn eins og Churchill farnir að safna efnivið til nýrrar styrjaldar. Styrjaldar gegn sínum fyrri bandamönnum !
Churchill og menn af hans tagi munu líklega hafa orðið því manna fegnastir, að Roosevelt forseti skyldi látast í apríl 1945. Áætlanir þeirra um framhald mála hefðu áreiðanlega ekki fallið Roosevelt í geð. Hann stefndi að friði og uppbyggingu, þeir að stríði og frekari eyðileggingu. Margt bendir líka til að Roosevelt hafi ekki hugnast sérlega vel persónan Winston Churchill við aukin kynni þeirra !
Skoðanabróðir Churchills og manna af hans tagi var látinn taka við sem varaforseti Roosevelts 1944, því ekki þótti vænlegt að hafa Henry A. Wallace áfram sem vara-forsetaefni. Hann var friðar-sinni og hefði trúlega fylgt stefnu Roosvelts til uppbyggingar og græðslu sáranna, en það gerði Truman sannarlega ekki. Margt var því gert í framhaldi mála, öllum heimi til ills og bölvunar og öllu friðarferli rústað á marga vegu !
Heimsveldistímar Bandaríkjanna, tímar stríðs, yfirgangs og kúgunar hafa plágað heiminn frá 1945 og mál að linni. Allskyns áróðursefni lyginnar hafa stórspillt heil-brigðri hugsun milljóna manna allan þann tíma um veröld alla. Lofsöngurinn um ,,mikilmennið Winston Churchill hefur til dæmis gengið látlaust allt til okkar daga, en það má alveg fara að sturta þeim lofsöng niður og það fyrir fullt og allt. Losa sig við hann, eins og hvern annan óþarfan úrgang. Hvað er annars gert á WC ?
Winston Churchill var ábyrgur fyrir dauða fjölda manna með óskynsamlegum ákvörðunum, í báðum heimsstyrjöldunum. Og hann gerði sitt til að reyna að koma þeirri þriðju af stað. Gallipoli mannfallið í þeirri fyrstu var á hans ábyrgð, mörg glópskan í þeirri annarri skrifast á hann og hefði sú þriðja farið af stað, eins og vilji hans stóð til, hefðu tugmilljónir manna farist í ógnum hennar !
Ekki hafði ég lesið mikið um Winston Churchill þegar öll virðing mín fyrir manninum var farin og síðan hef ég enn betur gert mér grein fyrir því að hann var alltaf fyrst og fremst hernaðarsinni og stríðsæsingamaður. Það kom strax fram í Búastríðinu. Mannkynið skuldar honum sem leiðtoga nákvæmlega ekki neitt !
Churchill vildi alltaf verða The Duke of Marlborough síns tíma. Egóið barði stöðugt á hugardyr hans og krafðist stærri hlutar. Hann fékk aldrei nóg af stríði. Þegar á allt er litið, hefur Churchill líklega átt töluvert meira sameiginlegt með Hitler en menn almennt hafa gert sér grein fyrir !
Af hverju skyldu annars svona margir einstaklingar gera sér far um að halda mest upp á þá menn sem eru eða hafa í raun verið lítið annað en óþokkar ? Segir ekki máltækið : ,, Hvað elskar sér líkt !
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.10.2023 kl. 18:02 | Slóð | Facebook
Einstaklega ómerkilegu tímabili í pólitískri sögu þjóðar okkar hlýtur að fara að ljúka senn hvað líður. Tímabili þar sem engin manneskja í valdasessi hefur unnið sér nokkurn eðlilegan orðstír samkvæmt þjóðlegum, íslenskum mannskilningi !
Það er eins og fólk, sem telur sig þó líklega öðrum fremur borið til mannaforráða, hafi fallið nokkrar manndómströppur niður á við á undanförnum árum. Það er eins og viðmið gagnvart heilbrigðari mælikvörðum sem áður giltu, hafi skekkst og séu jafnvel ekki til lengur. Svo mikil er ösin orðin á græðgis-götum mannlífsins !
Núverandi ríkisstjórn er að minni hyggju vesalmennskustjórn. Hún er æpandi auglýsing um aumingjaskap og bakslag í öllum þeim málaflokkum sem eiga að bera frjálsri og sjálfstæðri þjóð góðan vitnisburð. Þeir sem sitja í þessari stjórn eiga aldrei eftir að heyra það hjá neinum að þeir hafi setið þar til góðs.
Þar hefur nánast allt verið gert þjóðarhag til óþurftar og flest reynt til að hanga við völd sem lengst og geta svo endað ferilinn með ráðherra-eftirlaun til hinsta dags fyrir ekki neitt. Það fjölgar líklega fyrrverandi ráðherrum á Kanarí innan skamms, en öllum er þeim haldið uppi af íslenskum almenningi, þó þeir gangi þar um eins og útblásnir froðuskúmar og þykist líklega hetjur þjóðar sinnar !
Núverandi ríkisstjórn hefur mér vitanlega aldrei staðið undir nafni sem slík eða yfirleitt í lappirnar Pólitíkin í kringum hana virðist vera soðin saman á einhverjum ógeðslegum spillingarforsendum sérhagsmuna, svo maður fær æluna upp í kok við óhreinar gerðir hennar. Lengi getur vont versnað, segir máltækið, og það leynir sér ekki að þannig er ferlið !
Það hafa margar afleitar ríkisstjórnir setið við völd á Íslandi, en þessi sem nú óhreinkar þar sviðið er ein af þeim ömurlegustu sem troðið hefur verið upp á okkur og hún hefur, að mínu mati, komið óorði á nafn Íslands með ýmsum hætti !
Þessi ríkisstjórn hefur þegar setið of lengi til einskis gagns. Samstarfið innan hennar virðist hanga saman á einhverri samtryggingar-formúlu sem langlyktar af skítlegheitum og skemmandi manndómsleysi. Það verður sannur fagnaðardagur í sögu þjóðarinnar þegar þetta óhæfa sjálfdæmda lið verður að hypja sig burt úr ráðherrastólunum, eftir að hafa setið þar á einu stóru núlli frá byrjun, flestum til angurs og leiðinda !
Stjórnmálaforustan í landinu er orðin óþjóðleg að öllu leyti og sérgæskan ræður þar ríkjum. Það virðist engin heiðarleg hugsun þar til grundvallar einu eða neinu. Enginn virðist í raun vera að vinna fyrir land og þjóð, allir bara að krafsa sér í hag, á kostnað almannaheilla. Arðránið á öllum auðlindum íslensku þjóðarinnar er komið í sögulegan hápunkt sem þýðir að almenn velferð er á hröðu undanhaldi í landinu. Til hvers vildum við stefna að sjálfstæðu Íslandi, ef ávextirnir áttu virkilega að verða svo óþjóðlegir og úrkynjaðir eins og þeir sem við blasa ?
Íslensk yfirvöld virðast þegar orðin þjóðinni verra arðránsafl en Danir hefðu getað orðið og það er blóðugt að þurfa að játa það. Græðgi íslenska stjórnkerfisins og sérgæskuaflavernd þess í gegnum hið rangláta kvótakerfi og önnur blóðsugubatterí er löngu komin yfir öll siðleg mörk. Ríkiskerfið er orðið óíslenskt fyrirbæri og ríkisstjórnin sem situr hér að völdum illu heilli, virðist helst finna sér samstöðu í því að flysja niður íslenskt sjálfstæði og flytja það í pökkum pólitískrar prettvísi til framtíðar-vistunar í ríkiskastala Evrópu-sambandsins í Brussel ?
Líklega felst í þeim óskemmtilegheitum öll framtíðarsýn kötu-bjarnasigurðar sjálfstæðis-vöntunar stjórnarinnar sem nú situr og virðist sannarlega vilja snúa öllu öfugt í málum sem snúa þyrftu rétt við augum allra sannra Íslendinga ?
Erum við endanlega hætt við að vilja vera sjálfstæð þjóð ?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:35 | Slóð | Facebook
19.9.2023 | 10:37
Miðstýrð, frosin valdakerfi !
Sovéska stjórnkerfið var á seinni árum eins og allt miðstjórnarvald verður með tímanum, seinvirkt og hægfara. Kerfið kæfir manneskjuna og allt verður vélrænt og ómanneskjulegt. Æðstu valdsmennirnir voru orðnir svo gamlir og heilsulausir þegar þeir komust á toppinn, að þeir áttu bara eftir að geispa golunni !
En svo varð breyting á ! Allt í einu varð Mikhail Gorbachev æðsti maður Sovét-ríkjanna, maður á besta aldri, geðþekkur og manneskjulegur í hvívetna. Hvernig gat slíkt gerst í ómanneskjulegu kerfi, spurðu margir ? Á sama tíma tók við sem æðsti maður Bandaríkjanna, gamall kaldastríðs-jálkur, í mörgu mjög svipaður fyrri leiðtogum Sovétríkjanna, jafnt að aldri og aðferðum. Það þiðnaði í austri en fraus í vestri !
Og sviðið varð allt í einu gjörbreytt. Fólk á Vesturlöndum varð sem ruglað í ríminu. Kennedy var í Sovét og Krússi í Washington. Gorbi virkaði sem sovéskur sjarmör og Raisa kona hans kom vel fyrir, en Ronald og Nancy virkuðu bara sem bandarísk ellihró. Þessi útkoma á aðal-sviðinu bauð sannarlega upp á heldur óskemmtileg vandræði fyrir glansmynda-fabrikkur bandaríska kerfisins !
Og svo var Ronny síðara kjörtímabilið jafnvel farinn að verða mjög svo tæpur til höfuðsins eða tæpari en hann hafði áður verið. Hinar tilbúnu ímyndir geta stundum breyst í andstæður sínar og virkað alveg öfugt og þarna snerist sjarminn við !
En valdabákn, hvort sem það er byggt upp í Moskvu, Washington eða Brussel, er hreint ekki líklegt til að flytja með sér einhverja almenningsheill í gegnum mið-stýrðan, pólitískan óskapnað. Þar er ekkert lýðræðislegt sköpunarverk í gangi, aðeins sérgæskufull hagsmunatogtreita, þar sem fals og lygi ræður allri för !
Sami andinn ræður nefnilega á öllum þessum fyrrnefndu stöðum. Og heilbrigt mannfrelsi og almannaheill getur hvergi blómstrað þar sem frosið ferli hefur tekið yfir með mið-stýrðu ómanneskjulegu kerfi, sem auðvitað ætti hvergi að vera við lýði á þessari jörð !
16.9.2023 | 09:31
Um einn meðalmanninn sem loginn var upp í leiðtogastöðu !
Dwight D. Eisenhower var hershöfðingi, en hann var kannski eitthvað ögn manneskjulegri en margur annar í slíkri stöðu. Kannski vegna þess að hann var aldrei beinn þátttakandi í vígvalla-átökum. Engum hefði dottið í hug að kalla hann Old Blood and Guts eins og Patton var kallaður, enda mennirnir eins ólíkir og frekast mátti verða !
Þegar Eisenhower var orðinn forseti Bandaríkjanna, lét hann vonda framvindu mála að mestu afskiptalausa og vildi líklega vera sem mest laus við leiðindin sem fylgdu, því arfleifð Trumans var alls ekki góð. En nánustu samstarfsmenn hans voru af allt annarri manntegund og engir friðarvinir. Eisenhower virtist aldrei átta sig á því að hann var bara leiksoppur í annarra höndum !
Menn eins og Dullesbræður, Richard Nixon og fleiri slíkir fóru mikinn á þeim tíma og lögðu sjaldan nokkuð uppbyggilegt til málanna. Þeir voru nefnilega hugar-farslega heilaþvegnir og alfarið í krossferð gegn ægilegustu ógn allra tíma sjálfum heims-kommúnismanum !
En Eisenhower greyið, aumingja karlrolan, þekkti lítið inn á pólitík. Hann geispaði bara á pólitískum langloku-fundum og virtist oftast hundleiður á málastappinu og hefur líklega iðulega bara sagt ergilega : ,, Æi, þið sjáið bara um þetta, strákar ! Og það gerðu þeir, en oftast allri framvindu heimsmála til ófarnaðar, enda ekki við öðru að búast af þeim, steingerðum haukum og harðlínu-mönnum þess tíma !
Valdatími Eisenhowers var - ekki síst þar af leiðandi - vondur tími fyrir heiminn. Þá keyrðu bandarísk yfirvöld sig til fulls upp í heimsvaldagírinn á rómverska vísu. Hinn værukæri skrifborðs-hershöfðingi lét hina ófriðsömu aðstoðarmenn sína um alla framvindu mála og fylgdist varla með. Hann var í golfi og hinu og þessu sem var honum til yndis og honum miklu ánægjulegri mál en að tryggja heilbrigða stöðu heims-málanna. Hann gerði sjálfan sig þannig að peði í valdataflinu og allt of talhlýðnu toppstykki. Honum reyndist það, þegar fram í sótti, ekki einu sinni fært að losa sig við Nixon sem varaforseta sinn þegar hann vildi það !
En Eisenhower sagði stundum í óvitaskap sínum ýmislegt sem var mun heiðarlegra en það sem bandaríska ríkiskerfið vildi að sagt væri. Hann lét til dæmis út úr sér við stríðslokin, að Japanir hefðu verið reiðubúnir til að gefast upp og það hefði alls ekki verið nauðsynlegt að ráðast á þá með þessum hræðilega hlut, og átti þá við kjarnorkusprengjuárásirnar alræmdu. Umrædd orð hans mátti lesa á sýningu í Smith-sonian safninu í Washington fyrir nokkrum árum svo þau segja sitt enn í dag !
En það breytir því ekki, að í nafni Eisen-howers forseta síðarmeir, var nokkrum sinnum hótað að beita kjarnavopnum og sumir eftirmenn hans hugleiddu líka að grípa til þeirra. Valdamenn eru sjaldan sjálfum sér samkvæmir og sumir frjósa á verstu augnablikum, ekki síst í Banda-ríkjunum. Það gæti þessvegna átt eftir að fara með þennan heim út í tómið !
Dwight D. Eisenhower var tilþrifalítill forseti og í raun tilþrifalítill maður. Hann var sérstakur skjólstæðingur George C. Marshalls formanns bandaríska herráðsins og síðar utanríkisráðherra og varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, og sennilega hefur hann verið útnefndur yfir-hershöfðingi Bandaríkjanna á vígstöðvunum í Evrópustríðinu, í heimsstyrjöldinni síðari svo til eingöngu af þeirri ástæðu að hann var í uppáhaldi hjá Marshall og sérstakur vikapiltur hans !
Marshall hafði mikil völd á þeim tíma og naut þá áreiðanlega töluvert meira álits en hann stóð undir. Það kom meðalmanninum Eisenhower til góða. Marshall er einn af þeim ömurlegu einstaklingum sem hafa fengið friðarverðlaun Nóbels á algjörlega óboðlegum forsendum - aðeins spilltri, vestrænni pólitík !
Sagan sýnir mörg dæmi þess að sumum hefur verið hampað langt umfram það sem verðleikar buðu upp á. Þannig var það líka með Montgomery og kannski var það þessvegna sem ,,Ike og ,,Monty þoldu ekki hvorn annan til lengdar. Þeir hljóta nefnilega að hafa vitað innst inni að þeir voru bara litlir karlar. Ike sá litla karlinn í Monty og Monty sá litla karlinn í Ike. Hvorugur þoldi að horfa í slíkan spegil. En fyrir ýmsar undarlegar aðstæður verða sumir heimsfrægir, þó aldrei hafi þeir verið nein stórmenni og raunar haft afskaplega lítið til að bera í slík hlutverk !
En Eisenhower var samt afskaplega annt um orðstír sinn. Sagt er að ljósmyndari hafi fylgt honum nánast í öllu hans ferli, nema á klósettið. Myndir af honum áttu að undirstrika mikilvægi hans sem leiðtoga og gerðu það líklega meðan menn trúðu goð-sögninni !
En raunveruleikinn var þó aldrei eins glæstur og haldið hefur verið fram. Áróðurinn bar þar sannleikanum sem oftar ekki gott vitni og við þekkjum hvernig fjölmiðlablekkingar rústa skynsemi manna enn þann dag í dag með skelfilegum af-leiðingum; gera jafnvel svartan sorann hvítan sem mjöll !
Það eru margir af Eisenhowers taginu á kreiki í dag, meðal leiðtoga heimsins, menn sem halda að þeir séu toppstykkin, en eru oftast betri framvindu mála til bölvunar á flestan hátt. Við sjáum það, að margir slíkir menn hljóta að vera kosnir í valdastöður gegnum vitleysu allrar vit-leysu, og þá er ekki von að vel fari !
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:06 | Slóð | Facebook
8.9.2023 | 14:10
Burt með yfirgang Bandaríkjanna !
Í nærri 80 ár hafa Bandaríkin í krafti yfirburðastöðu sinnar arðrænt allan heiminn, beitt yfirgangi, ofbeldi og styrjöldum til að kúga og undiroka alla andstöðu við keisaraveldið í Washington. Lýðræði Bandaríkjanna er blekking, þar hefur stöðuglega verið við völd sama kapitalíska einræðisstjórnin sem hefur kúgað alla veröldina síðasta manns-aldurinn. Fjöldi þjóða er búinn að fá upp í kok af þessari amerísku yfirdrottnun og vill koma upp manneskjulegra kerfi í viðskiptum milli landa og Brics-ríkin standa fyrir þeim valkosti og verða að bjóða upp á betri lausnir !
Í lok seinni heimstyrjaldarinnar stóðu Bandaríkin mjög vel að vígi til að láta gott af sér leiða fyrir alla heims-byggðina. En þau kusu að fara aðra leið. Myrk auðvaldsöfl tóku yfir að fullu eftir lát Roosevelts, enda var Truman þeirra maður. Ákveðið var að varpa kjarnorku-sprengjum á Hiroshima og Nagasaki og láta þar með alla vita, og ekki síst Sovétmenn, að Bandaríkin réðu yfir gereyðingar-vopnum. Það voru síðustu forvöð að nota þessi vopn og prófa eyðingarmátt þeirra áður en Japanir gæfust upp og það var miskunnarlaust gert. Óbreyttum og varnar-lausum borgurum var þar með slátrað í tugþúsunda tali. Bandaríkin fóru rómversku leiðina í öllu þá og eftirleiðis. Beittu ofbeldi og yfirgengilegri fjármálakúgun gegn allri andstöðu út um allan heim !
Slóð flestra þeirra glæpa sem framdir voru er auðrakin og hefndargjöldin gleymast ekki. Jafnvel Japanir muna misgerðirnar þó þeir hafi fylgt Bandaríkjunum eins og viljalausir rakkar alla tíð frá stríðs-lokum. Þeir treystu sér bara ekki til annars. En engin þjóð sem ber virðingu fyrir sjálfri sér, gleymir því hvernig komið er fram við hana, þegar kúgun, valdbeiting, lítilsvirðing og margfaldur yfirgangur er í gangi ár eftir ár. Það kemur alltaf að skuldadögunum og Bandaríkin skulda mörgum þjóðum mikið !
Brics blokkin ætti nú að vera ráðandi varðandi olíumarkaðinn í heiminum, sem þýðir að petró dollarinn er í raun úti. Heimsframleiðsla G-7 ríkjanna er nú 30.7%, en Brics-ríkjanna 31,5%. Margar þjóðir vilja ganga til liðs við Brics og flestar eru þær búnar að fá nóg af hroka og yfir-gangi Bandaríkjanna. Eftir nær 80 ára tíma af sívondum samskiptum við Bandaríkin, sjá flestir að vonlaust er að ætla að hið gjörspillta auðvaldsríki breyti um brag. Þjóðir heims eru í sívaxandi mæli komnar á það stig að snúa sér frá því með fullkomnu ógeði !
Sovétríkin hrundu fyrst og fremst vegna óstands í efnahagsmálum, en hernaðarmáttur þeirra var ótvíræður. Honum var þó ekki beitt. Efnahagsmál Bandaríkjanna eru í ólestri og skuldir ríkisins yfirþyrmandi miklar. En hernaðarmáttur ríkisins er ótvíræður. Spurningin er nú, mun honum verða beitt ? Mun honum verða beitt í þágu ójafnaðarafla og auðvaldsafla vestanhafs, gegn þeim sem vilja ekki búa við ameríska yfirdrottnun lengur ? Það er gegn meiri-hluta heimsins !
Það var ljóst þegar Sovétríkin hrundu að það myndi koma að því að Bandaríkjunum yrði hætt við slíkum örlögum. Enda lærðu þau ekki neitt af falli Sovétríkjanna og hrokuðust bara ennþá meira upp. En það var Bandaríkjunum löngum drjúgur styrkur að Sovétríkin væru til sem slík. Þau töpuðu mikið á því að Óvinurinn sem hafði verið andskotast á áróðurslega í meira en mannsaldur, var ekki lengur til, enda voru þau í tilvistarkreppu næstu árin þar á eftir. Og þá var kjörið tækifæri til að leysa Nató upp og leita friðar og sam-starfs við aðrar þjóðir á heimsvísu, en það var ekki gert. Stjórnvöld Vesturlanda vildu áfram halda öllum hernaðarvöldum til að geta kúgað og ráðskast með veröldina sem fyrr - að vild !
Engum ætti að dyljast að ástandið í Úkraínu hefur verið keyrt upp með ágangi frá Vesturlöndum og Nató. Það er eins og verið sé að þreifa fyrir sér hvar veiku blettirnir í varnarkerfi Rússlands séu. En þetta áreiti hefur gert Rússum það miklu betur ljóst um hvað er að tefla. Þeir eru betur vakandi á verði nú en þeir hafa lengi verið og munu verja sitt land með öllu því afli sem þeir hafa yfir að ráða !
Auðlindir Rússlands liggja því ekki á lausu fyrir orkuhungruðu auðvaldi Vesturlanda, hvorki nú eða síðar. Þar verður öllum ágangi mætt með fullum varnarmætti og menn með glóru ættu að vita hvað það þýðir. Og Rússland verður trúlega ekki eitt í þeirri vörn, því aðrar þjóðir munu þekkja sinn vitjunartíma, ef til slíkra átaka kemur !
Bandaríkin geta ekki haldið áfram að kúga allan heiminn og þó bandarísk stjórnvöld hegði sér á Hitlers-vísu í yfirstandandi tíma, er ólíklegt að bandaríska þjóðin sjálf verði sátt við það framferði. Og þó lygafréttastofurnar haldi sannleikanum enn um sinn frá bandarísku þjóðinni, kemur að því að staðreyndir mála leita út. Lygar bresta þegar á líður. Þær halda ekki til lengdar !
Bandaríska þjóðin vill ekki tortímingar-styrjöld frekar en aðrar þjóðir og íbúar þessa heims. Og margt er að segja henni þessa dagana, að hlutirnir séu ekki eins og reynt hefur verið að telja henni trú um. Fólk í Bandaríkjunum er að vakna til vitundar um þá hættu sem kann að vera yfirvofandi vegna ábyrgðarleysis stjórn-valda þeirra. Og framundan eru kosningar sem kunna að snúast um það eitt að kjósa með glóru eða á móti glóru ?
Ekkert ríki má vera í þeirri stöðu eða komast í þá stöðu, að kúga allan heiminn. Ný heimsskipan fríverslunar og frjálsari milliríkja-viðskipta bíður við dyrnar. Bandarísk stjórnvöld verða að skilja það að óbreytt ástand er ekki í boði lengur. Hin alþjóðlegu kúgunartæki sem þau hafa hingað til notað gegn öðrum þjóðum, eru að glata yfirgangs-stöðu sinni og duga ekki lengur !
Samstarf þjóða verður að byggjast á jafnréttis-stöðu og gagnkvæmri virðingu. Flestar þjóðir virðast gera sér grein fyrir því nú á dögum, nema þá Bandaríkin. Þau virðast vilja halda í yfirgang sinn áfram, en heimurinn hafnar því og vill breytta skipan mála, meira frelsi, meira réttlæti og meiri jöfnuð í samskiptum þjóða. Fyrst við slíkar aðstæður getum við, mannanna börn, öll gengið saman upprétt til móts við betri framtíð !
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:21 | Slóð | Facebook
5.9.2023 | 00:04
Um hégómahræringar samfélagsins !
Sérhvert þjóðfélag á Vesturlöndum virðist eiga létt með að koma sér upp mótmæla-söfnuði. Það er svona nokkurnveginn sam-þjálfaður upphlaupshópur sem rýkur til ef það á að mótmæla einhverju. Í fæstum tilvikum á það skylt við hugsjónir, því þarna er fyrst og fremst verið að taka þátt í einhverju sem er spennandi og gefur lífinu lit. Fullt af óstöðugu fólki er þá til í tuskið !
Fólk sem þekkir lítið til almennra verka, hefur til dæmis sjaldan dýft hendi í kalt vatn, er í nafni mótmæla-samstöðunnar oftast tilbúið að taka lifibrauðið frá öðrum sem þurfa að vinna hörðum höndum. Það fyllist menningarofsa, æðir á samkomu-stað og sker lífsafkomu annars fólks niður við trog og þykist gera vel. Svo fer það heim og sest við kaffibolla og sígó og talar glaðbeitt um hvað það hafi nú staðið sig vel á stórmenningar-vaktinni !
Sú var tíðin á Íslandi að fólk mótmælti ranglæti af hugsjón, barðist fyrir mál-efnum verkalýðs af hugsjón og gekk nánast fyrir hugsjón. En sá tími virðist liðinn í þessu landi. Nú mótmælir enginn ranglæti, nú berst enginn af fullum heilindum fyrir verkalýðshugsjón og nú gengur enginn fyrir hugsjón. Svona langt höfum við gengið afleiðis á tæpri hálfri öld og áfram stefnum við að ystu brún !
Menn standa með ranglætinu ef þeir fá beinið sitt, enginn vill nú vera svo aumur að tilheyra verkalýð, allir eru stjórar að eigin sögn og annarra, og fólk gengur ekki lengur fyrir hugsjónum. Það gengur hinsvegar, af fullri meðvirkni, í takt við alla uppvakta græðgi í samfélaginu. Það magnar hana með afskiptum sínum, og fær þó aldrei nóg í sinn hlut. Þannig breytni leiðir allt til falls og það getur varla orðið langt í það !
Margt mótmælalið virðist horfa mikið á það að komast í fjölmiðla fyrir framferði sitt. Það vill verða frægt sem aðgerða-sinnar og þvælist um allar trissur til að verða sér úti um hasar. Hvernig er það, þarf þetta aumingja fólk aldrei að vinna ?
Hvar fær það pening til afkomumála, þegar það flækist landa milli árum saman og þykist vera að bjarga heiminum ? Þetta virðist að stærstum hluta vera snarruglað lið sem gengur fyrir hégóma, sýndar-mennsku og athyglissýki á háu stigi !
Samfélag þar sem allir vilja að lokum verða afætur, getur ekki átt sér langt tilvistarskeið. Þeir sem sleikt hafa rjóma alla sína tíð, verða sjaldan hæfir til að vera forsjá annarra í samfélagslegum hags-munamálum, en eru þó settir í það verkefni allt of oft vegna misskilnings af hálfu kjósenda. Það leiðir svo af sér samfélagslegan ófarnað, sem þó er aldrei rakinn til föðurhúsanna. Hégóminn ríður sjaldan við einteyming og síst í nútíma-samfélögum. Það sannast æ ofan í æ og það er öllum til óþurftar !
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:54 | Slóð | Facebook
1.9.2023 | 11:46
Í bláum veruleika !
Veruleikinn birtist fólki með ýmsu móti. Nokkuð stór hluti af mannkyninu virðist haldinn ranghugmyndum og vill mála sitt umhverfi að vild sinni, óháð því hvað öðrum finnst. Þar kemur heilbrigð hugsun ákaflega lítið við sögu eða lýðræðisleg afstaða og því er ruglið í veröldinni oftast í meira lagi !
Sumir eigna sér umhverfi í bláu og vilja sjá allt í bláu. Aðrir eigna sér alla regnbogalitina og regnbogann í ofanálag og eignaréttur í augum slíkra aðila verður þá mjög svo afstætt hugtak. Sumir vilja sjá allt í rauðu og ropa hátt um það, enn aðrir vilja sjá umhverfi sitt í grænum veruleika og sjást þá ekki fyrir. Hver vill eiga svokallað sitt með réttu eða röngu og margar manneskjur virðast fara létt með að upplifa sig sem nafla veraldar eða jafnvel alheimsins og þá er egóið komið upp í hæstu hæðir !
Allt getur þetta verið mjög skrautlegt út af fyrir sig, en varasamt þó á margan hátt, einkum með hliðsjón af álagi á sálarlega stöðu. Verst er þó þegar algjör umskipti verða með því hugarfarslega róti sem slíku fylgir oftast. Til dæmis þegar manneskja sem hefur viljað sjá allt í grænu tekur upp á því að vilja sjá allt í bláu !
Það gerist til dæmis þegar veruleikinn verður skyndilega allur annar og þá líklega fyrir einhvern þrýsting rang-hugmynda. Þegar slíkt gerist á vafalaust einhver persónuleikabreyting sér stað hjá viðkomandi manneskju sem einungis er þá trúlega á færi afburða sálfræðinga að skilgreina !
Ég fór fyrir nokkru að velta slíkum persónuleika-sveiflum fyrir mér og þar sem ég vildi nú ekki beinlínis hugleiða slíkar umveltur út frá manneskjum, tók ég mið af því að lítil gul hæna, eða segjum bara, lítil græn hæna, vildi allt í einu verða blá ? Hvað þá ?
Hvernig kemur það út, þegar veröld sem var með grænan hugarheim í lífi lítillar grænnar hænu, fær bláan hugarheim ? Verður þá hænan sjálf ekki slíkum breytingum undirorpin og breytist hún þá ekki bara í litla bláa hænu ?
Og hvernig kemur henni til með að líða eftir slíka umsköpun ? Hefur þá ekki ýmislegt farið forgörðum sem áður þótti ástæða til að varðveita ? Verður ekki allt verðmætamat annað ? Eða má segja : ,,Sjá, hið gamla er farið, ný sköpun hefur orðið til ! Það geta svo sem verið ýmsir undarlegir leyndardómar í kringum slíkar persónuleikabreytingar, en í þessum pælingum varð mér á að yrkja eftirfarandi vísur sem kannski segja sitt og því læt ég þær fylgja hér með :
Litla, bláa hænan
Hún elskar líf sem allt er blátt
og eltir það á röndum.
Og kann að hoppa og hlæja dátt
með hönum úti í löndum.
Hún æðir jafnan stað úr stað
og stundar sig að grafa.
Fólk skilur ekki eðli það
sem umskiptingar hafa.
Úr einu hún í annað fer
þó allt hún viti fátt um.
Og fettubrettu ferlið er
á flugi í öllum dráttum.
Og þótt hún segi þetta og hitt
er það sem hvati á ælu.
Hún gerir alltaf gaggið sitt
að glappaskotaþvælu.
Svo uppi á borði engan séns
hún öllu lengur hefur,
þó kroppi hún margt í kringum Jens
sem kornið henni gefur.
Því hann sem fyrr er henni kær
sem himintengdur goði.
En sannleikskorn hún fráleitt fær,
sú fæða er ekki í boði.
En samt hún kýs að brosa breitt
á blárra óra valdi,
sem virðast snúast um það eitt
hún áfram stöðu haldi.
Þar unir hún sér alla tíð
við egó skammtinn vænan.
Og gefur skít í land og lýð,
- litla, bláa hænan !
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.9.2023 kl. 13:42 | Slóð | Facebook
28.8.2023 | 23:07
Að af-íslenskast erlendis !
Sjálfstæðismál okkar Íslendinga eru sem löngum fyrr í nokkuð óljósum veruleika. Fölsk hollusta höfðingjavaldsins í landinu gagnvart þjóðargildum sjálfstæðis okkar veldur því engu síður en á Sturlungaöld. Það stafar engin hætta í þeim efnum frá almenningi á Íslandi, þó reynt hafi verið að villa um fyrir honum á allar lundir til margra ára. Íslensk þjóðarheill getur aldrei falist í endastöð í Brussel og það veit allt íslenskt fólk sem enn ræður sál og sinni, en því virðist að vísu fækka með hverju árinu !
Það ráða nefnilega ekki allir eigin sál og sinni á Íslandi. Markaðsauðvaldið hefur fjárfest býsna mikið í sálum á síðustu árum og sú fjárfesting á eftir að leiða það betur í ljós hverjir hafa þar glatað því sem skilar sér í manndómi og sjálfs-virðingu. Það er víða svo komið, að persónulegt innihald sálna er orðið rotið og spillt og margir landar okkar virðast hafa villst endanlega frá uppruna sínum og tilheyra nú allt öðru en því sem þeir gerðu meðan þeir hegðuðu sér enn sem ærlegir menn !
Mesta hættan fyrir sjálfstæði Íslands virðist geta falist í íslenskum mennta-skrípum sem vilja koma sér í mjúkinn hjá Evrópusambandinu, upp á efnahagslega eigin farsæld, og gefa sem úlfar í sauðargæru allskyns sérfræðiálit sem markast af slíkum viðhorfum sem eru þá hvorki heiðarleg né sönn í heilbrigðu samhengi !
Skólakerfið er mjög mengað í þeim efnum og villukenningar vaða þar uppi. Svokölluðum upplýsingum, sem flestar eru í formi blekkinga og lyga, er haldið svo fast að þjóðinni að sannleikurinn fær hvergi að komast að. Menntunarmál eru farin að skila sér með öfugu móti og til tjóns fyrir samfélagið !
Fjöldi fólks telur sig nú búa að svo mikilli menntun að það fæst ekki lengur til að vinna þjóðnýt störf. Það telur sig of merkilegt til þess. Það vill bara raða pappírum í skúffur á margföldu kaupi. Flytja verður inn útlendinga til að vinna nauðsynleg störf. Við Íslendingar virðumst því miður vera að úrkynjast. En landið okkar gerir sínar kröfur til þeirra sem búa hér og ef við mætum þeim kröfum ekki á manndómslegan hátt, erfa aðrir landið !
Að vera Íslendingur í eigin landi og það sjálfstæðu eigin landi, er og ætti jafnan að vera keppikefli frjálsra manna, en nú segja hálærðir menntamenn með spekinga-svip, að við eigum að varðveita sjálfstæði okkar með því að farga því. Þeir tala þá annaðhvort frá Brussel eða Washington en sama valdinu er þar þjónað og sýnilega samviskulaust. Það sama var sagt um full-veldi okkar á sínum tíma, af hliðstæðum aðilum, að við ættum að varðveita það með því að farga því !
Sérfræðimenntaðir Íslendingar sem horfa til Íslands frá fræðastólum í Brussel, Washington eða London, komast gjarnan að niðurstöðum sem samrýmast þeim erlenda sjónarhóli sem horft er frá. Líklegt er að niðurstöður slíkra manna yrðu í mörgum atriðum aðrar ef þeir skoðuðu málin frá íslenskum tilvistar-punkti með þjóðlegum hætti. En það er ekki í boði. Til þess eru þessir fræðingar orðnir talsvert um of lærðir á erlenda vísu !
Sókrates sagði forðum ,, Þekkingin er undirstaða dyggðarinnar, en nútíminn hefur sannað óþyrmilega fyrir okkur þá staðreynd að menn verða enganveginn betri menn fyrir svokallaða aukna menntun. Í mörgum tilfellum gerir hærra menntunarstig þá að verri mönnum. Þeir fyllast hroka og líta niður á aðra !
Sókrates hefði átt að segja ,, Dyggðin er undirstaða þekkingarinnar. Þekking sem grundvallast á dyggð hlýtur alltaf að vera af því góða og þjóna samfélagi manna miklu betur en sú þekking sem vill baða sig í egoisma og sérgæsku. Hæfnisstig manna til samfélagslegrar þjónustu fer yfirleitt niður þegar hrokinn fer upp !
Við þurfum ekki menntafólk af því tagi og svokallaðir sérfræðingar eru þegar komnir með óeðlilega mikil völd í samfélaginu, þó þeir beri litla sem enga ábyrgð. Við höfum hér nú þegar allt of mikið af gráðugu gráðuliði, ekki síst innan ríkiskerfisins, og það skilar sér afar illa til gagns fyrir þjóðarheill í þessu landi, og er hér þegar orðið að afætum almennrar velferðar !
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:14 | Slóð | Facebook
Nýjustu færslur
- Heiða Björg fær ,,Marshallhjálp !
- Nokkur orð um stríðsglæpinn mikla í Libýu !
- Gjörbreytt þjóðarásýnd ?
- Erum við undirlægjuþjóð allrar fávisku ?
- ,,Upplausn Bandaríkjanna !
- Hin rangsnúna framvinda ytra og innra arðráns !
- Saga síðustu 80 ára : Litið yfir svið þar sem lítið er um frið !
- Undir alveldi ,,Sölunefndar þjóðarlífseigna !
- Afneitun á íslenskum fjölbreytileika !
- Nokkur orð um ,,fallega ævikvöldið !
Eldri færslur
- September 2025
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.9.): 53
- Sl. sólarhring: 67
- Sl. viku: 1171
- Frá upphafi: 397153
Annað
- Innlit í dag: 39
- Innlit sl. viku: 1047
- Gestir í dag: 39
- IP-tölur í dag: 38
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
-
: Fjörusprek og Grundargróður (2023) -
: Í norðanvindi og vestanblæ (2013) -
: Hjartað slær til vinstri - Úr minningaheimi Kalla í Nesbæ (2010) -
: Bræðingur og Brotasilfur (2004) -
: Þar sem ræturnar liggja (2004) -
: Út við ysta sæ (2000) -
: Frá fjöru til fjalls (1996) -
: Vísur frá Skagaströnd (1993) -
: Ljóð frá Skagaströnd (1991)