8.3.2014 | 11:29
Að rita loforð sín á vatn !
Á einhverjum samningafundi Sioux-indíána og fulltrúa bandarískra stjórnvalda á höfðinginn Mahpiua-Luta eða Rauða ský að hafa sagt, að loforð hinna hvítu væru rituð á vatn..........! Með öðrum orðum, þau héldu ekki, þau væru svikin - stundum strax eftir gerðan samning !
Íslenska þjóðin virðist vera í sömu stöðu, gagnvart nánast hverjum þeim stjórnmálaöflum sem með völdin fara í þessu landi, og Sioux-indíánar voru gagnvart fulltrúum Bandaríkjastjórnar á sínum tíma. Loforð eru gefin fyrir kosningar, en þau eru rituð á vatn og eftir kosningar kemur haldleysi þeirra fljótt í ljós.
Sveitarstjórnarmenn innan sjálfstæðisflokksins virðast sárir og reiðir út af meintum svikum forustu flokksins gagnvart gefnum kosningaloforðum, og hafa sumir slíkir tjáð sig í fjölmiðlum, að því er virðist mjög hneykslaðir, varðandi það efni. En er það nú víst að þeir séu eins sárir og reiðir og þeir látast vera, skyldi ekki geta verið að annað ráði yfirlýsingum þeirra eins og sakir standa ?
Eru ekki sveitarstjórnarkosningar í vor ? Standa þessir fulltrúar ekki bara andspænis þeim tíma að þeir þurfa að gylla sig svolítið frammi fyrir kjósendum sínum ? Eru þeir ekki bara að vinna við það að skrifa sitt á vatnið ?
Það er ekki víst að mikið fari fyrir þessari vandlætingu þeirra eftir þær kosningar sem framundan eru og krefjast þess sýnilega, að þeirra mati, að þeir tjái sig ósátta við flokks-stefnuna !
Það er nú svo með þennan svokallaða íslenska sjálfstæðisflokk, að hann er, mér vitanlega, eini stjórnmálaflokkurinn í heiminum sem er beinlínis yfirlýstur flokkur allra stétta ! Í öðrum heimshlutum er í öllum þjóðfélögum barátta í gangi vegna margvíslegra stétta-andstæðna, en umræddur flokkur sem kennir sig við hugtak sem aldrei hefur verið hans, þykist hafa fundið lausnina á því hvernig hægt sé að sameina alla landsmenn, fólk úr öllum stéttum, í eitt stjórnmálalegt kærleiksbandalag !
En sú hugsun sem ræður þar að baki, hefur alla tíð verið fölsk og skrifuð á vatn ! Það er ekki hægt að tjalda flokki sem þjónar öllum jafnt ! Kristur sjálfur sagði á sínum tíma hér á jörð, að menn gætu ekki þjónað Guði og Mammon !
Og ég hef miklu meira en rökstuddan grun um að sjálfstæðisflokkurinn sé öllu hallari undir þann síðarnefnda og öll þau þjóðfélagslegu mismununartól sem honum fylgja. Þó að einhverjir kunni að vera í þessum flokki allra stétta" sem vilja fylgja kristnum gildum, hafa hugmyndir í þá átt - eins og vitað er - ekki átt miklu gengi að fagna sem tillögur á flokksþingum. Það er einfaldlega vegna þess að staðreyndin er sú, að hagsmunir flokkseigendafélagsins, sem ráða viðvarandi stefnu flokksins, fara ekki saman við kristin gildi !
Menn geta til dæmis ekki verið sannir bræður litla mannsins á götunni og flegið hann inn að skinni um leið ! Maður getur ekki verið peningaprins við hirð Mammons og um leið sóknarnefndarformaður í kristinni kirkju ? Enginn getur sinnt báðum þeim hlutverkum samtímis af heilindum, í öðru tilfellinu er og hlýtur að vera um fals og yfirskin að ræða !
En margir sjálfstæðismenn virðast segja með framferði sínu, að mál hafi þróast langt umfram það sem Kristur hafi séð fyrir, svo að nú á tímum sé það ekkert mál fyrir sæmilega greindan og góðfúsan mann, og sérstaklega þó ef hann er flokksbundinn í sjálfstæðisflokknum, að þjóna bæði Guði og Mammon og það svo að báðir séu að öllum líkindum sáttir við tilhögun mála !
Þetta er náttúrulega byltingarkennd afstaða og það hjá mönnum sem alla tíð hafa tjáð sig mjög andvíga öllum byltingum. En Saddúkear sjálfstæðisflokksins hafa aldrei séð neitt athugavert við tækifærissinna-framkomu og hagsmunalega tvöfeldni. Menn með slíkan hugsunarhátt hafa alla tíð sleikt sig upp við veraldlegt vald, hvort sem það hefur verið rómverskt, danskt, breskt eða bandarískt og um leið talið sig eiga nánast heilaga samleið með Guði !
En sjálfstæðisflokkurinn á auðvitað fyrst og síðast samleið með Mammonsdýrkun fjármagnseigenda og peningafurstum veraldarhyggjunnar. Þó að einhverjir fulltrúar aflaminni stétta álpist jafnan til að styðja flokkinn á misskildum forsendum, er Rockefeller-andinn þar allsráðandi og flokkurinn auðvitað stofnaður sem tilbeiðslutæki í hans þjónustu.
Og hvað þá ? Þarf það að koma einhverjum á óvart að loforð slíkra þjónustumanna, hvort sem þeir eru í sjálfstæðisflokknum eða hliðstæðum samstjórnarflokki, séu rituð á vatn og haldi ekki ? Mammonsvald er aldrei og getur aldrei orðið loforðavænt, og þeir sem hlýða því og ganga fram í þjónustu við það, geta aldrei verið trúverðugir menn orða sinna. -Tilgangurinn helgar meðalið - er þeirra forskrift og þannig hefur það alltaf verið !
Er ekki löngu orðið tímabært að menn skilji þessar staðreyndir og horfist í augu við hlutina eins og þeir eru ? Þjónustufulltrúar Mammonsafla munu alltaf rita loforð sín á vatn !
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:38 | Facebook
Nýjustu færslur
- Endurreisn ómennskunnar !
- ,,Fylgiríki Bandaríkjanna ?
- Hin kratíska feigðarstefna Norðurlanda !
- Útþenslustefna Bandaríkjanna !
- ,,Nýja Kalmarsambandið og glóruleysisgangan !
- Litlar, leiðitamar þjóðir !
- Er herleiðing Flokks fólksins að hefjast..... ?
- Um tilhneigingar til frestunar lýðræðis ?
- Enginn friður, engir samningar, ekkert traust !
- Athyglisverð orð :
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 92
- Sl. sólarhring: 139
- Sl. viku: 661
- Frá upphafi: 365559
Annað
- Innlit í dag: 88
- Innlit sl. viku: 573
- Gestir í dag: 88
- IP-tölur í dag: 86
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
-
: Fjörusprek og Grundargróður (2023) -
: Í norðanvindi og vestanblæ (2013) -
: Hjartað slær til vinstri - Úr minningaheimi Kalla í Nesbæ (2010) -
: Bræðingur og Brotasilfur (2004) -
: Þar sem ræturnar liggja (2004) -
: Út við ysta sæ (2000) -
: Frá fjöru til fjalls (1996) -
: Vísur frá Skagaströnd (1993) -
: Ljóð frá Skagaströnd (1991)