15.8.2014 | 23:30
Að taka afstöðu til mála !
Stundum sé ég ástæðu til að velta því nokkuð fyrir mér á hvaða forsendum fólk tekur afstöðu til mála ? Í eina tíð held ég að það hafi skipt miklu máli hjá flestum að vera sannleikans megin og styðja helst í engu það sem rangt væri, en sú afstaða virðist mér búa við fallandi gengi mjög víða, eins og sakir standa.
Það er ekki annað að heyra nú til dags, en mjög margir spái fyrst og fremst í það að taka afstöðu til mála út frá því hvað sé og geti verið hagkvæmast fyrir þá. Viðhorfin til þess hvað sé rétt eða rangt virðast víðsfjarri þeim sem þannig hugsa. Og svo er oft að heyra, að vilji til þess að þurfa kannski að fórna einhverjum lífsþægindum fyrir það að standa á sínu og því sem menn telja rétt, sé vægast sagt orðinn af skornum skammti í okkar ofurneysluruglaða samfélagi. Það er dapurleg niðurstaða ef menn eru almennt orðnir svo fullir af siðlausum sofandahætti að þeir láti allt falt við freistingum !
Í Einræðum Starkaðar segir Einar Ben gleðin er heilust og dýpst við það smáa" og er ég ekki grunlaus um að sá fjölhæfi maður hafi lesið Orðskviðina í Biblíunni vel yfir áður en hann lagði út með mörg þau spekiorð sem í umræddu kvæði búa. En Einar Ben var margbrotinn maður og vildi alla tíð fá sitt tillag í lífinu og það í ríflegra lagi. Spekimál kvæða hans var því kannski öðru fremur hugsað sem leiðbeiningar-framlag til annarra, heldur en eitthvað sem hann sjálfur ætti að lifa eftir. Að minnsta kosti var líf hans í flestu nokkuð frábrugðið því sem hann boðaði.
Þegar hann eitt sinn fúlsaði við soðinni ýsu, svaraði Valgerður kona hans : Þetta er soðin ýsa með floti og kartöflum og það er fullgóður matur handa þér á mánudegi !" En Einar svaraði að bragði: Á mánudegi, hvers á mánudagurinn eiginlega að gjalda ? Hvers vegna má ekki vera veislumatur á mánudegi ?"
Svo fórnarlund Einars Ben gagnvart lífsgæðum og skilningur hans á gleðinni í því að búa við það smáa, mun nú lengstum hafa verið nokkuð mikið með sínum sérstaka hætti. En samt er það svo, að sá sem hefur ekki of mikið umleikis í sínu lífi upplifir oft sælli gleði en sá sem telur sig þurfa alls að gæta vegna hagsmuna sinna og gefur sér ekki nokkurn tíma til þess - að lifa !
Best fer jafnan á því að hugsjónir og framferði rími saman í mannlegri tilveru, enda er það að vera sjálfum sér samkvæmur oft hið erfiðasta mál en jafnan þó sigur þroska, samvisku og sæmdar í lífi hvers manns. Þann sigur vinna hinsvegar allt of fáir og enn færri nú til dags en áður var. Það vantar allar hugsjónir í tilvistarstrengina í dag, það vantar háleit markmið og hreina og göfuga sýn til samfélagslegra þarfa. Það vantar að koma hinu allsráðandi eigingirnisstefi nútímans undir aga og hemja græðgisfullar hvatir sjálfsins !
Það vantar endurlífgaðan kristinn anda í þjóðarsálina, og ég segi það hiklaust nú þegar ríkisútvarpið er farið að kasta því út úr dagskrá sinni sem í áraraðir hefur verið því til sóma, og telur það ekki lengur eiga við - vegna samtíma sem er á sinni breysku blinduför inn í meiri og meiri siðleysu. Hvenær hefur þörfin verið meiri á því að standa hvarvetna vaktina fyrir hinum góðu, gömlu gildum ?
Sá forsvarsmaður sem telur sig þjóna þjóðinni best með því að fella niður Morgunbænir og Orð kvöldsins úr dagskrá útvarpsins er sjáanlega að þjóna einhverju allt öðru en hann ætti að þjóna. Andinn í þeirri ákvörðun afhjúpar sig mjög skýrt og sýnir sig vera anda niðurrifs og lausungar í siðferðilegu tilliti. Það er hinsvegar ekkert nýtt að verið sé að þóknast einhverju sem ekki er af okkar meiði og seint verður þjóð okkar til þrifnaðar !
En nýir stjórnendur eru oft Mammons mestu vinir og þeir sem eru það taka afstöðu til allra mála á grundvelli þess sem þeir telja hagkvæmt, hagkvæmt fyrir sjálfið og yfirdrepsskapinn, hagkvæmt fyrir rotin sjónarmið dauðra sálna. Og slíkir stjórnendur trúa því að allir aðrir séu þeim líkir, elski sjálfa sig 100% á kostnað allrar elsku gagnvart öðrum, taki afstöðu til mála eftir því sem þeir telja sér hagfellt, hafi enga sýn á hvað sé rétt eða rangt, þekki ekki neitt til fórnarlundar og hafi ekki neina sannfæringu, samvisku eða sómatilfinningu !
Og eigi slíkir stjórnendur að fá að móta og leiða þjóðfélagið, er það ávísun á blessunarlausan ófarnað, ávísun á annað og verra hrun. Þá er samfélagið dæmt til andlegs dauða, dæmt til kyrkingar og hengingar heiðarlegra viðmiða og blygðunarlausrar aftöku allra heilbrigðra siðagilda !
Hvaða afstöðu viljum við hafa til mála ? Ætlum við að láta andlega berrassaða sperrileggi leggja okkur línurnar í okkar eigin lífsmálum ? Eiga þjónustubundnir andar, innfluttir í gegnum kukl framandi þjóða, að fá að vaða hér yfir allt og alla ?
Eigum við ekki að vera áfram kristin þjóð, og halda fast í Herrans klæðafald ? Er það ekki leið hjálpræðisins og þess vonarljóss sem hefur lýst þjóðinni í gegnum dimmar aldir til þeirra föðurhúsa sem fyrri kynslóðir trúðu statt og stöðugt að væri heimahöfnin eina og sanna ?
Eigum við virkilega að sætta okkur við að ríkisútvarpið okkar vinni andlegt skemmdarverk í þágu skurðgoða öfugsnúins tíðaranda og neiti okkur um þá þjónustu sem verið hefur þar í boði, að hefja hvern dag með morgunbæn og ljúka honum með orði kvöldsins ? Erum við orðin svo andlega dauð ?
Ég vil að endingu spyrja, verður næst ráðist á þjóðsönginn okkar ?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Endurreisn ómennskunnar !
- ,,Fylgiríki Bandaríkjanna ?
- Hin kratíska feigðarstefna Norðurlanda !
- Útþenslustefna Bandaríkjanna !
- ,,Nýja Kalmarsambandið og glóruleysisgangan !
- Litlar, leiðitamar þjóðir !
- Er herleiðing Flokks fólksins að hefjast..... ?
- Um tilhneigingar til frestunar lýðræðis ?
- Enginn friður, engir samningar, ekkert traust !
- Athyglisverð orð :
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 66
- Sl. sólarhring: 114
- Sl. viku: 635
- Frá upphafi: 365533
Annað
- Innlit í dag: 62
- Innlit sl. viku: 547
- Gestir í dag: 62
- IP-tölur í dag: 60
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
-
: Fjörusprek og Grundargróður (2023) -
: Í norðanvindi og vestanblæ (2013) -
: Hjartað slær til vinstri - Úr minningaheimi Kalla í Nesbæ (2010) -
: Bræðingur og Brotasilfur (2004) -
: Þar sem ræturnar liggja (2004) -
: Út við ysta sæ (2000) -
: Frá fjöru til fjalls (1996) -
: Vísur frá Skagaströnd (1993) -
: Ljóð frá Skagaströnd (1991)