27.5.2015 | 20:41
Misheppnuð tilraun - eða hvað ?
Það virðist býsna margt undirstrika það að sameiginlegur sáttagrundvöllur þjóðar í þessu landi sé kominn víða að þolmörkum. Stjórnkerfið hefur löngum verið fellt að þörfum þeirra sem búa að mestum efnum og varðhundur þeirrar stefnu, sjálfstæðisflokkurinn með litlum staf - eða Stóri þjóðarógæfuflokkurinn - er jafnan iðinn við sitt hlutverk. Sérgæskan situr þar í hásæti sem bústin blóðsuga. Enginn flokkur hefur mótað ríkiskerfið eins og það alræmda sérréttindabatterí sem sjálfstæðisflokkurinn er, enda hafa merkin löngum sýnt glöggt hvað þar situr í fyrirrúmi. Samfélagsleg uppbygging á félagslegum forsendum hefur gengið mjög til baka hérlendis, ekki síst á árunum eftir 1990, en hákarlasvipur frjálshyggjunnar færðist þá á margan hátt yfir íslenskt samfélag eins og tilfinningalaus helgríma og bölvun hlaut að fylgja í kjölfarið.
Það stýrði auðvitað ekki góðri lukku þegar stjórnvöld fóru að miða allt við Mammon, enda lauk fjármálalegri kappsiglingu frjálshyggjunnar með algerri brotlendingu og skipbroti og eyðileggingu áratuga uppbyggingar ásamt ótöldum harmleikjum í lífi einstaklinga, fjölskyldna og fyrirtækja um land allt. Enginn fær tölu á það komið hvað skemmt var þá og skaddað í lífsmálum þessarar litlu þjóðar við ysta haf, sem þarf þó öllu öðru fremur á því að halda að samstaða og samheldni sé til staðar í samfélaginu og það í sem mestum mæli.
Og menn fóru að hugsa margt upp á nýtt. Var þessi sjálfstæðissókn og lýðveldisstofnun sem hér átti sér stað á sínum tíma eitthvað sem skilaði sér íslenskri þjóð til þrifa ? Áttu tvær, þrjár kynslóðir að þræla baki brotnu í þessu landi til að skapa verðmæti sem yrðu svo yfirtekin í fyllingu tímans, stolin og sérmerkt eignarmarki kúgara og arðræningja eins og þekkist svo víða erlendis ? Var baráttan háð til þess ? Var ekki sagt að íslenskur almenningur myndi höndla mikla velferð þegar öll landhelgin væri komin í hendur þjóðarinnar ? En hvað gerðist svo, örfáum árum síðar var búið að stýra öllum ágóða sjávar-auðlindarinnar inn í einkadilka sem enn halda herfangi sínu með ofstopa og blindum hroka. Kvótagreifarnir hegða sér sumir hverjir eins og kóngar liðinnar tíðar og slíkt ætti hvergi að líðast í frjálsu landi. Slíkt framferði er óíslenskt í alla staði !
Margir Íslendingar hafa farið í vonbrigðum sínum að líta til Noregs sem draumalands heilbrigðra lífshátta og félagslegs öryggis og til eru þeir sem hugsa jafnvel svo að við hefðum aldrei átt að fara þaðan á sínum tíma og ættum bara að pilla okkur aftur heim á þeim forsendum að tilraunin til nýrrar þjóðfélagssköpunar við ysta haf hafi endanlega misheppnast ! En að spyrja hvort við megum koma heim aftur til Noregs, líkt og glataði sonurinn eftir ævintýrið sem fór í vaskinn, er nú tæplega gerlegt fyrir Íslendinga á 21. öldinni, enda mætti spyrja í því sambandi heim hvert ? Ekki förum við heim í þann Noreg sem forfeður okkar fóru frá, nei, auðvitað ekki, ekki heldur heim í þann velferðar-skapaða Noreg sem fórnfúsar kynslóðir Norðmanna sköpuðu á áratugum síðustu aldar. Nei,nei, nú er allt öðru að mæta þar en þá var !
Noregur er nefnilega ekki lengur það sem hann var, því miður. Norska ríkið virðist á nokkuð hraðri leið í það að umskapast í einhverskonar múslimska hjálendu, kannski það sem kalla mætti Norður Pakistan, og gæti þessvegna við áframhaldandi þjóðardoða orðið islömsk ríkiseining innan fárra áratuga. Íbúar Noregs eru að breytast úr norrænum stofni í fólk af allt öðru sauðahúsi. Víða í borgum og bæjum Noregs er að skapast meirihluti innflytjenda sem hefur gjörólík viðhorf til trúar, menningar og siða en það fólk hefur haft sem landið hefur byggt til þessa. Það virðist hægt nú til dags að leggja undir sig heilu löndin með ýmsum hætti og þarf ekki opinberan hernað til. Það er bara skipt um þjóð með ótakmörkuðu magni innflytjenda. Vinsælasta nafngift sveinbarns í Osló um þessar mundir er sagt vera Múhameð !
Nei, við Íslendingar förum ekki til Noregs í norrænt velferðarríki ! Það er að vísu velferð þar ennþá, en hún verður eflaust islamiseruð með tímanum og skilyrt við rétta trú og rétta siði eins og þekkist í þeim heimshluta sem leggur hinar breyttu forsendur til. Noregur er að af-norrænast eins og Svíþjóð og Danmörk og meginástæðan er sú arfavitlausa innflytjendastefna sem hefur verið við lýði í þessum löndum síðustu fimmtíu árin eða svo. Fjölmenningarfarsóttin er hrein og klár dauðastefna. Ríkisvaldið í umræddum löndum hefur bersýnilega þjónað innflytjendum miklu betur og meira en eigin landsmönnum á þessum tíma sem hér um ræðir og virðist nú orðið meira en lítið hrætt við afleiðingar eigin verka. Sú hræðsla endurspeglast í stöðugri eftirgjöf og sleikjuhætti við þetta lið sem áfram fær að streyma inn í þessi lönd og éta þar upp félagsleg hlunnindi landsmanna eins og rétthafinn eini og sanni, með tilheyrandi frekju og yfirgangi.
Jú, íslenska tilraunin til góðrar samfélagssköpunar hefur ef til vill misheppnast, en ég sé ekki betur en jafnvel enn verri vanþróun sé að eyðileggja norrænu velferðarríkin, því þeir sem á verðinum sofa munu seint dag að morgni lofa. Yfirvöld viðkomandi landa, úr hvaða flokkum sem þau koma, hafa gjörsamlega villst í fjölmenningarskógi fáviskunnar og norræn gildi eru sýnilega hvarvetna þar á undanhaldi og útleið fyrir öðrum og verri gildum. Og við hér á Íslandi sem höfum dæmin fyrir okkur frá nágrannalöndunum virðumst ekkert ætla að læra af þeirra mistökum !
Það hefur oft sannast að margt sem misheppnast fyrir dómgreindarleysi manna og glatast af þeim sökum, verður aldrei endurheimt ! Og ég spyr því, hvenær ætla menn að vakna til varnar þeim gildum sem varða trú okkar, menningu, sögu og siði, allt okkar líf ?
Erum við ekki komin fram á ystu nöf ?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:43 | Facebook
Nýjustu færslur
- Á hið góða að koma með friði frá Bandaríkjunum heimsófriðar...
- Arfleifð Francos !
- Í kringum kosningasirkus hégómans !
- Innflutningur á ófriði og ofbeldisbreytni !
- Um óraunhæfar væntingar !
- Á skelfilegt skítkast í kosningum að leiða til Gullaldar ?
- Félagshyggjuna upp örvæntinguna og vonleysið niður !
- Er Ísland utanríkispólitískt núll ?
- Um valdaspil að tjaldabaki !
- Að komast yfir Rússland !!!
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 127
- Sl. sólarhring: 203
- Sl. viku: 907
- Frá upphafi: 357088
Annað
- Innlit í dag: 115
- Innlit sl. viku: 723
- Gestir í dag: 115
- IP-tölur í dag: 114
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
-
: Fjörusprek og Grundargróður (2023) -
: Í norðanvindi og vestanblæ (2013) -
: Hjartað slær til vinstri - Úr minningaheimi Kalla í Nesbæ (2010) -
: Bræðingur og Brotasilfur (2004) -
: Þar sem ræturnar liggja (2004) -
: Út við ysta sæ (2000) -
: Frá fjöru til fjalls (1996) -
: Vísur frá Skagaströnd (1993) -
: Ljóð frá Skagaströnd (1991)